Takmark - Lítið fréttabréf um heilbrigðismál - 01.10.1976, Blaðsíða 1
Jftid fréttotoét -um heUbwgóismól
1. tbl. 1. árg. -a
Október 1976
Útgefendur: Krabbameinsfélag Reykjavfkur
og Krabbameinsfélag fslands, Suðurgötu
24. Reykjavík, sími 16947, pósthólf 523.
Ritstjórar: Þorvarður Ornólfson (ábm.) og
Jónas Ragnarsson. Upplag 25.000 eintök.
Ljossetning og offsetprentun. ODDI hf.
TAKMARKIÐ ER: REYKLAUST LAND
Heita vatnið í iðrum jarðar og hreyfi-
afl fossanna hefur gert okkur íslend-
ingum kleift að losa hvert byggðarlagið
af oðru við kolareyk og olíustybbu sem
mengaði andrúmsloftið áður fyrr hvar
sem var að finna byggt ból
Yfir þessu hrósum við happi og
stefnum að því að nýta þessar náttúru-
auðlindir til hitunar og lýsingar hvar
sem þess er kostur — þó að þar komi
að vísu fleira til en andúð á loftmengun
En á sama tíma og lagt er kapp á að
fækka þeim reykháfum sem beina
stybbu og reyk upp úr húsum okkar úr
ofnum og tækjum sem eru lífsnauðsyn
meðan ekki er völ á öðru betra þá hefur
heldur en ekki fjölgað þeim
..reykfærum" sem engin þörf er að
hafa um hönd en fylla híbýlin eiturlofti
sem erfitt er að losna við og liggur viða
Nýtt blað
Hér hefur göngu sína nýtt blað sem
er fyrst og fremst helgað samtökum
ungs fólks gegn reykingum.
Utgefendur eru krabbameinsfélögin
en vænst er góðrar samvinnu við skóla
og skólafólk um útgáfuna.
Þetta fyrsta tölublað er sent öllum
börnum á Islandi sem fædd eru árið
1963, og þeim verður sent blaðið á-
fram um hrið. Jafnframt er ætlunin að
senda það framvegis hverjum nýjum
12 ára árgangi.
Ætlunin er að nýja blaðið sem hlotið
hefur nafnið TAKMARK, komi út fjór-
um sinnum á ári, en í ár verða tölu-
blöðin þó varla fleiri en tvö.
Efni TAKMARKS verður einkum frá-
sagnir af baráttunni gegn reykingum í
skólum og utan svo og ýmsar gagn-
legar upplýsingar og fræðsla um áhrif
tóbaksnautnar.
Utgefendur vonast til að blaðið verði
vel þegið og geti orðið að liði í barátt-
unni tyrir reyklausu landi.
Ss
í húsum eins og grá þoka langtímum
saman.
Er ekki baráttan við loftmengun
næstum eins og skot út í bláinn meðan
miðað er framhjá einum alskæðasta
og um leið þarflausasta mengunar-
valdinum, tóbaksreyknum?
Það er kominn tími til að segja þeim
óþrifum algert stríð á hendur og
stefna að þvi að gera ísland að reyk-
lausu landi innan húss ekki síður en
utan
Einhverjir kunna að halda að það sé
vonlítið stríð, svo máttug sem reyk-
ingatískan virðist vera í þjóðfélagi okk-
ar og öllu umhverfi. En vissulega
bendir margt til að veldi hennar hafi
náð hámarki og undanhaldið sé jafnvel
hafið
Æ fleirum tekst að losa sig úr viðjum
reykingavanans, og þeir sem hætta að
reykja verða sumir hverjir einna
harðastir andstæðingar reykinga
Vissulega er þetta mikilvægt og það
þarf að leggja æ meiri áherslu á að
hvetja menn til að hætta að reykja og
aðstoða menn við það
En ennþá mikilvægara er að unga
fólkið í landinu sameinist i þeim ein-
dregna ásetningi að byrja ekki að
reykja og beiti áhrifum sínum í einu og
öllu gegn reykingatískunni. Þvílíkt á-
hlaup fær hún ekki staðist.
Samtök 6 -bekkinga gegn reykingum
sem sagt er frá á öðrum stað í þessu
blaði sýna að slík sameining er mögu-
leg og þau vekja trú á að sá dagur komi
fyrr en varir að þjóðarskútan íslenska
sigli út úr tóbaksþokunni inn í hreint
lofl
Ykkur öllum sem tókuð þátt í þeim
samtökum eru sendar sérstakar kveðj-
ur og þakkir fyrir aö gerast brautryðj-
endur Það var ánægjulegt að verða
vitni að áhuga ykkar og hugkvæmni;
engu líkara en þið hefðuð mörg beðið
eftir tækifæri til að láta að ykkur kveða í
baráttunni gegn tóbakstískunni. Hafi
einhverjir í hópnum ekki getað staðið
að fullu við hið góða áform er skorað á
þá að skera sig ekki framar úr leik!
Þeim og öllum jafnöldrum sem ekki
gafst kostur á að tengjast þessum
samtökum í vor skal bent á hve frábært
það væri ef nærfellt allur aldursflokk-
urinn sameinaðist gegn reykingatisk-
unni en tækifærið til þess gefst í skól-
unum í haust og vetur. p ö
Börnin snua baki við reyknum — en hvað um foreldrana?