Morgunblaðið - 16.10.2010, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 16.10.2010, Blaðsíða 4
4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 2010 Kristján Jónsson kris@mbl.is ÍR-ingar vilja líklega helst gleyma skrautlegu keppnistímabili sínu í fyrra. Mikið gekk á hjá liðinu og óheppnin elti lykilmenn þess á rönd- um. Fyrir það fyrsta þá freistaði ÍR gæfunnar á nýjum heimavelli. Menn höfðu fengið sig full- sadda af dúklögðu gólfinu í Seljaskóla og liðið lék þess í stað í Kennaraháskólanum. Þrátt fyrir ánægju með parketið þá gengu þau vista- skipti ekki vel því stemningin á leikjunum var lítil, sérstaklega í samanburði við það vígi sem „Hellirinn“ hafði reynst. Hinn leikreyndi Ei- ríkur Önundarson braut á sér hnéskelina um sumarið, Sveinbjörn Claessen sleit krossband í upphafi móts og Hreggviður Magnússon meiddist á fyrstu sekúndum undanúrslitaleiks í bikar. Ofan á allt annað þá þurfti Jón Arnar Ingvarsson að hætta störfum sem þjálfari. Gunnari Sverrissyni eftirmanni hans hefur hins vegar tekist að ná upp þeirri stemningu sem einkennt hefur ÍR á undanförnum árum. Í afar jafnri og sterkri deild var það afrek hjá Gunnari að koma liðinu í úrslitakeppnina á síð- ustu leiktíð. Gunnar og lærisveinar hans hafa hins vegar þurft að búa til annars konar stemningu en ríkt hefur. Á umliðnum árum hefur ÍR verið með kjarna öflugra heima- manna en nú bregður svo við að liðið hefur þurft að fá til sín leikmenn bæði innanlands og utan. Gunnar hefur því þurft að púsla saman nýju liði í sumar og þar af leiðandi gæti tekið smá tíma fyrir liðið að finna taktinn. Nemanja Sovic er þekkt stærð, en standi þeir Kelly Beidler og Karolis Marcinkevicius undir vænt- ingum þá verður ÍR með virkilega öflugt lið. Mikið mun mæða á Sveinbirni Claessen þegar hann snýr aftur og það er mín tilfinning að hann muni láta vita af sér. Sveinbjörn er mikill íþróttamaður og hefur lagt afar hart að sér til þess að geta komið sterkur til baka eftir meiðslin. Á góðum degi er hann á meðal bestu íslensku leikmanna deildarinnar og hann er hungraður í að spila á ný. Morgunblaðið/Kristinn Þjálfarinn Gunnar Sverrisson tók við liði ÍR síðasta vetur og er áfram við stjórnvölinn. ÍR-ingar eru búnir að berja í brestina Nokkrar breytingar hafa orðið áliði ÍR á milli tímabila. Hregg- viður Magnússon réri á önnur mið og mun leika með KR og Steinar Ara- son gekk til liðs við 1. deildarlið Breiðabliks. Báðir hafa þeir verið máttarstólpar í liðinu á undanförnum árum.    ÍR var ekki meðbandarískan leikmann framan af tímabilinu í fyrra en teflir nú fram Kelly Beid- ler sem er tæp- lega tveggja metra hár fram- herji en mun vera nokkuð fjölhæfur. ÍR-ingar fengu einnig til sín íslenska leikmenn. Níels Dungal kom frá Fjölni en hann er leikreyndur og ætti að auka breidd- ina í hópnum. Hjalti Friðriksson kom frá Breiðabliki og við þetta má bæta að Sveinbjörn Claessen og Vil- hjálmur Steinarsson voru lítið með í fyrra.    Auk þess erLitháinn Karolis Marc- inkevicius mætt- ur í Breiðholtið en hann leikur sem bakvörður. Báðir erlendu leik- mennirnir hafa verið nokkuð drjúgir í fyrstu leikjum liðsins í deild- inni.    Saga ÍR er löng og glæsileg enskipulegar körfuknattleiks- æfingar hófust hjá félaginu árið 1950. Var ÍR fyrst íslenskra félaga til þess að koma á fót slíkum æfingum í íþróttinni eftir því sem fram kemur í 100 ára afmælisriti félagsins, „Heil öld til heilla“. Á gullaldarárum félags- ins lék liðið 32 leiki í röð án taps, á ár- unum 1960 - 1965. ÍR varð jafnframt fyrsta íslenska félagið til þess að leika í Evrópuleiki í körfuknattleik.    Karlalið félagsins hefur fimmtánsinnum orðið Íslandsmeistari. Nokkuð er um liðið frá því að ÍR hampaði síðasta Íslandsmeistaratitli sínum í meistaraflokki karla en það var árið 1977. Liðið hefur hins vegar tvívegis sigrað í bikarkeppninni frá aldamótum. Annars vegar árið 2001 og hins vegar árið 2007. Tveir leik- menn úr liðinu árið 2001 eru enn í leikmannahópnum, þeir Eiríkur Ön- undarson og Björgvin Jónsson.    Gunnar Sverrisson þjálfari ÍR tókvið liðinu í upphafi síðasta tíma- bils eftir að Jón Arnar Ingvarsson hætti störfum af persónulegum ástæðum. Jón hafði þjálfað liðið frá árinu 2006 en ÍR-ingar hafa komist í úrslitakeppnina undanfarin fjögur tímabil,. KÖRFUBOLTINN Kristján Jónsson kris@mbl.is Fjarvera leikstjórnandans Svein- bjarnar Claessen hafði mikil áhrif á leik ÍR á síðustu leiktíð í körfubolt- anum. Sveinbjörn sleit krossband í leik gegn KR í upphafi leiktíðar og lék ekki meira með liðinu. Sveinbjörn var ekki klár í slaginn þegar deildin hófst að nýju en mun snúa aftur á næstu vikum. Sveinbjörn tjáði Morgunblaðinu að hann hefði lagt mjög hart að sér í end- urhæfingu og á undirbúnings- tímabilinu í sumar en þá kom babb í bátinn. „Endurhæfingin gekk gríð- arlega vel eftir slitið og ég var kominn á fulla ferð aftur í sumar. Ég spilaði t.d. í Reykjanesmótinu en í kjölfarið safnaðist fyrir vökvi í hnénu. Var ég þá sendur í segulómun og þar kom í ljós að þegar ég sleit krossbandið virðast hafa verið komnar skemmdir í hnéð. Einhvers konar brjóskskemmd sem er illvíg við að eiga, svokallað beinmar. Af þeim sökum hef ég verið settur í kæli fram til áramóta ef að lík- um lætur, þó ég geri mér vonir um að geta byrjað fyrr. Það eina sem ég þarf að gera er að styrkja vöðvana í kring- um hnéð. Við getum kallað þetta bak- slag en ég er að öðru leyti í topp- standi,“ sagði Sveinbjörn. Félagarnir róa á önnur mið Nokkrar breytingar hafa orðið á ÍR-liðinu frá því í fyrra. Fjórir upp- aldir ÍR-ingar, sem urðu bikarmeist- arar með Sveinbirni árið 2007, hafa horfið á braut á skömmum tíma, Ólaf- ur J. Sigurðsson, Ómar Örn Sæv- arsson, Hreggviður Magnússon og Steinar Arason. Er Sveinbjörn ekki nánast einn eftir hjá ÍR af þessari kynslóð? „Davíð Fritzson og Elvar Guðmundsson eru eftir ásamt mér. Því er ekki að neita að þetta hefur verið mikil blóðtaka því á síðustu fjór- um árum hefur einn af öðrum farið frá félaginu. Við þessa upptalningu má einnig bæta Fannari Helgasyni sem vann bikarinn með okkur. Ástæð- urnar fyrir þessu eru hins vegar eins misjafnar og þeir eru margir,“ sagði Sveinbjörn en hann telur þó að ÍR- liðið gæti hæglega orðið sterkara í vetur en það var í fyrra þegar liðið hafnaði í 8. sæti. Þrír erlendir leikmenn „Ég er ekki frá því að þetta sé besta lið sem ÍR hefur haft lengi. Út- litið er alla vega gott. Hjalti Krist- jánsson fyllir skarð Hreggviðs og Níels Dungal kemur í stað Steinars. Nemanja Sovic er besti sóknarmaður deildarinnar og Bandaríkjamaðurinn er hrikalega góður. Auk þess bættist Lithái við hópinn og við verðum því með þrjá erlenda leikmenn en það voru ráðstafanir sem við þurftum að grípa til. Við þetta má bæta að ég bind einnig vonir við að Vilhjálmur Stein- arsson nái sér á strik en hann missti af tímabilinu í fyrra eins og ég. Stefn- an er að sjálfsögðu sett á titla og ég hef fulla trú á því að það geti gengið. Annars væri maður ekki að standa í þessu,“ benti Sveinbjörn á og honum leiðist ekki að snúa eftur í „Hellinn“ í Seljaskóla. „Fyrsta æfingin í parket- lögðum Hellinum fór fram um daginn og völlurinn er glæsilegur. Þetta er allt annað íþróttahús og við stefnum að sjálfsögðu á að verja okkar vígi,“ sagði hinn metnaðarfulli Sveinbjörn Claessen. Bakslag en bjartsýni  Römm er sú taug er rekka dregur föðurtúna til  ÍR-ingar snúa aftur í Selja- skólann í Breiðholti  Splunkunýtt parket  Babb kom í bátinn hjá Sveinbirni Morgunblaðið/Ómar Lykilmaður Sveinbjörn Claessen er lykilmaður í liði ÍR en hann sleit kross- band í fyrra og er á batavegi. Hér er hann í baráttunni gegn Cedric Isom í leik gegn Tindastóli. Kelly Beidler 22 ára Framherji (1,96 m) Kristinn Jónasson 26 ára Miðherji (2,03 m) Ásgeir Hlöðversson 33 ára Miðherji (1,97 m) Nemanja Sovic 33 ára Framherji (1,98 m) Ólafur Þórisson 27 ára Bakvörður (1,90 m) Eiríkur Önundarson 36 ára Bakvörður (1,86 m) Hjalti Friðriksson 21 ára Framherji (2,00 m) Davíð Fritzson 23 ára Bakvörður (1,80 m) Vilhjálmur Steinarsson 27 ára Bakvörður (1,92 m) Elvar Guðmundsson 24 ára Bakvörður (1,89 m) Sveinbjörn Claessen 24 ára Bakvörður (1,94 m) Níels Dungal 27 ára Framherji (1,92 m) Vilhjálmur Jónsson 20 ára Miðherji (1,98 m) Björgvin Jónsson 36 ára Framherji (1,97 m) Tómas Viggósson 18 ára Bakvörður (1,90 m) Benedikt Skúlason 23 ára Framherji (1,91 m) Þorgrímur Emilsson 16 ára Miðherji (2,06 m) Daníel Capaul 16 ára Bakvörður (1,83 m) Bjarni Valgeirsson 23 ára Framherji (1,94 m) Edgar Palencia Rubio 24 ára Framherji (1,92 m) Þorvaldur Hauksson 20 ára Framherji (1,92 m) Karolis Marcinkevicius 27 ára Bakvörður Leikmannahópurinn ÍR VETURINN 2010 - 2011

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.