Morgunblaðið - 16.10.2010, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 16.10.2010, Blaðsíða 1
LAUGARDAGUR 16. OKTÓBER 2010 íþróttir Evrópuleikir Valskonur mæta firnasterku liði Oldenburg frá Þýskalandi á Hlíðarenda í dag og annað kvöld. Stefán þjálfari segir Val geta unnið öll lið á heimavelli. 3 Íþróttir mbl.is Bandaríkjamaðurinn Valentino Maxwell hefur ekki getað leikið með Keflvíkingum í fyrstu leikj- um Iceland Express -deildarinnar í körfuknattleik karla á þessu keppnistímabili. Maxwell er meidd- ur á hné en svo virðist sem meiðslin séu ekki eins alvarleg og um tíma var talið. „Hann hefur ekkert getað spilað síðustu þrjár vikurnar. Talið var að hann væri með rifinn liðþófa en annað kom í ljós í myndatöku. Hann slapp við það en teygði töluvert á liðbandi innanvert á hægra hné. Liðbandið skaddaðist því eitthvað en ég vona að hann fari að verða klár í slaginn. Það er þó alla vega ljóst að ég verð án hans í næsta leik,“ sagði Guðjón Skúlason, þjálfari Keflavíkur, þegar Morgunblaðið hafði samband við hann í gær. Guðjón segir að enn sé smáóvissa um hversu fljótur Maxwell verði að jafna sig. „Hann er dug- legur að styrkja sig og vinna í þessu en það er nú misjafnt hve menn eru fljótir að jafna sig af svona meiðslum. Við tókum þá ákvörðun að hinkra eftir honum af því að hann er öflugur leik- maður. Þetta er oft mikið happdrætti með erlenda leikmenn og þegar maður lendir á einum góðum þá reynir maður að hanga á því,“ sagði Guðjón ennfremur. kris@mbl.is Keflvíkingar bíða eftir Maxwell „Eftir að Fjölnismenn höfðu haft samband við mig og við hist á fundi í framhaldinu átti ég ekki í erfiðleikum með að gera upp hug minn um að takast á við þetta verkefni,“ sagði Örvar Kristjánsson, sem í gær var ráðinn þjálfari úrvalsdeildarliðs Fjölnis í körfuknattleik karla. Örvar verður nú aðalþjálfari meist- araflokksliðs karla í fyrsta sinn en hann segist búa að tölvuverðri reynslu sem aðstoðarþjálfari í Njarð- vík í gegnum tíðina. „Þetta var einfaldlega of gott tæki- færi sem mér bauðst til þess að hafna því. Mikill efniviður er fyrir hendi hjá Fjölni þar sem stjórnendur hafa lagt áherslu á það í gegnum tíð- ina að ala upp leikmenn og láta þá spreyta sig,“ sagði Örvar sem var nýkominn af sinni fyrstu æfingu hjá Fjölni þegar Morgunblaðið náði tali af honum. Örvar hefur látið af störfum sem þjálfari þriggja yngri flokka hjá Njarðvík. iben@mbl.is Örvar tekur við Fjölni Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Sænska knattspyrnufélagið Helsingborg hefur sýnt áhuga á að fá Hjört Loga Valgarðsson, vinstri bak- vörð FH og 21-árs lands- liðsins, í sín- ar raðir, sam- kvæmt heimildum Morg- unblaðsins. Svíarnir hafa beint sjónum sín- um að Loga eftir góða frammistöðu hans með 21-árs landsliðinu í leikj- unum við Skota og vilja fá hann til æfinga sem fyrst. Hels- ingborg er í öðru sæti sænsku úrvalsdeildarinnar og heyr ein- vígi við Malmö um meistaratit- ilinn. Malmö hefur þriggja stiga forskot þegar fjórar umferðir eru eftir. Hareide er ánægður með Hjört Loga Hjörtur Logi er á leiðinni til Noregs, til æfinga hjá Viking Stavanger, en hann æfði með liðinu fyrr í haust. Þar á bæ er greinilega talsverður áhugi á að fá hann, ef marka má orð þjálfarans kunna, Åge Hareide, í Stavanger Aftenblad í vikunni. „Hann spilaði mjög vel gegn Skotum og er afar spennandi bakvörður. Hann er fljótur og með góðar og nákvæmar spyrn- ur með vinstri fæti. Við hjá Vik- ing sækjumst eftir sókndjörfum bakvörðum og hann myndi falla vel í þá mynd,“ sagði Hareide. Indriði Sigurðsson hefur leik- ið sem vinstri bakvörður í síð- ustu leikjum Viking en hefur að öðru leyti ávallt leikið sem mið- vörður með liðinu. Hareide sagði í sama viðtali að Indriði væri einmitt fyrst og fremst miðvörður, en sem kunnugt er hefur hann verið vinstri bak- vörður í landsliði Íslands á und- anförnum árum. Helsingborg með Hjört Loga í sigtinu Hjörtur Logi Valgarðsson Víðir Sigurðsson vs@mbl.is Elfar Freyr Helgason, miðvörðurinn efnilegi úr Íslandsmeistaraliði Breiða- bliks og 21-árs landsliðinu í knatt- spyrnu, fer á morgun til Grikklands. Þar verður hann til reynslu hjá hinu kunna félagi AEK næstu vikuna. Yf- irmaður knattspyrnumála þar er fyrr- verandi félagi hans úr Breiðabliki, Arn- ar Grétarsson, sem lék með AEK á sínum tíma. Eftir dvölina í Aþenu fer Elfar síðan beint til Englands og æfir þar með fyrstudeildarfélaginu Reading. Svo kann að fara að hann verði enn lengur erlendis því bæði Nordsjælland í Dan- mörku og Lilleström í Noregi hafa hug á að fá hann til æfinga hjá sér sem fyrst. Gott að vita af Arnari „Ég verð í viku hjá AEK og það er gott að vita af Arnari þar. Sennilega verð ég líka í viku hjá Reading, þó ég sé ekki alveg öruggur á því. Það verður síðan bara að koma í ljós hvort ég heim- sæki líka liðin í Danmörku og Noregi í framhaldi af því, ég hef um nóg að hugsa í bili,“ sagði Elfar Freyr við Morgunblaðið í gær. Hann er 21 árs gamall og vakti at- hygli fyrir frammistöðu sína í vörn Breiðabliks í sumar. Þar vann hann sér fast sæti, spilaði 19 af 22 leikjum liðsins í úrvalsdeildinni og skoraði eitt mark. Þá spilaði Elfar tvo leiki með 21-árs landsliðinu og kom inn í byrjunarliðið fyrir leikinn mikilvæga í Skotlandi síð- asta mánudag, eftir að hafa setið á bekknum í þeim fyrri. „Það hefur verið nóg að gera í haust og eiginlega bara spennufall hjá mér í augnablikinu. En ég er algjörlega tilbú- inn til að fara út og sýna mig því senni- lega hef ég aldrei verið í betra standi en einmitt núna,“ sagði Elfar Freyr. AEK er eitt af stærstu liðum Grikk- lands en hefur þó ekki náð að vinna meistaratitilinn þar í landi í sextán ár. Síðast varð félagið bikarmeistari 2002 og varð í fjórða sæti A-deildarinnar á síðasta tímabili. Nú er liðið í sjöunda sæti af sextán liðum þegar fimm um- ferðir eru búnar. Elfar er eftirsóttur  Fer til Arnars Grétarssonar og AEK í Aþenu á morgun  Síðan til Reading  Nordsjælland og Lilleström bæði á eftir miðverði 21-árs landsliðsins Morgunblaðið/Eggert Efnilegur Elfar Freyr Helgason var í stóru hlutverki í vörn Íslandsmeistaraliðs Breiðabliks í sumar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.