Morgunblaðið - 14.06.1918, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.06.1918, Blaðsíða 1
B'ðstudag 14. júní 1918 fflORGDNBLABlD 5. argangr 217 tðlublað Rjtstjórnarsími nr. 500 Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen ísafoldarprentsmiðja Afgreiðslusimi nr. 500 Skuggi fortíðarinnar eða Ast Yvonne Sjónleikur í þrem þáttum, tekin á kvikmynd af Nordisk Films Co. Aðalhlutverkið leikur Else Fpölleh. Hvers er krafist af góðri kvikmynd? Að hún sé áhrifamikif, fögur, einkennileg, efnisrlk, hrífandi og vel leikin. Öll þau skilyrði uppfyllir þessi mynd. Það tilkynnist vinum og vandamönnum nær og fjær að móð- ir okkar elskuleg, Arnbjörg Jónsdóttir frá Skálatanga á Akranesi, andaðist að heimili sinu, Tjörn í Biskupstungum, 7 þ. m. Jarðar- arförin verður ákveðin síðar. f * Gunnfriður Rögnvaldsdóttir. Guðjón Rögnvaldsson. I. 0. 0. F. 1006149 — 0. Gamla Bló Dr. Mors. Skemtil. og afarspennandi sjónl. í 3 þáttum tekinn af Dania Biofílm (Gyldendahl). Og leikin af ágætum dönsk- um leikurum. Aðalhlutverkið, Dr. Mors, leik- ur hr. Paul Reumert.. Til Vifilsstaða fer bifreið fyrst um .•sinn hvern þriðju, fimtu- og sunnu- dag kl. n frá Breiðabliki. Farkeðlar verða að kaupast þar. (Aukaferðir venjulega kl. 2.) st. Einarsson. Gr. Sigurðsson. Simi 127.Simi 581. Erl. simfregnir (Fri fréttaritara Morgunkl.). Khöfn. 12. júni. Frá Paris er simað, að bandamenn hafi gert sigursæl gagnáhlaup hjá Rudes-Court og Maur og sótt fram um 2 kilometra fyrir austan Mery og tekið 1300 fanga. Þjóðverjar sækja enn fast fram i Matzdalnum. Borgarstjórnin í Paris er að undir- búa varnarráðstafanir. Frá Islandsmálanefnd . danska rikisþingsins hefir það frézt, að hún muni öll mæla með því að menn verði sendir til íslands til samninga. 4 Khöfn. 12 mai. Þjóðverjar túkynna að þeir hafi brotið á bak aftur áhlaup Frakka hjá Leployron og Antheiris. Þjóð- verjar hafa gert útrás hjá Oise fyrir norðan Matz og handtekið þar 3000 menn. Suðvestur af Noyon hafa þeir tekið þorpið Carlepont og eru nú komnir að herlinu fyrir norðan Bailly og Tracylival og vestan Nampcel. Allsheijar-motuneyti. Þess var getið hér i bláðinu fyrir nokkrum dögum, að Bandalag kvenna hefði tekið það mál til meðferðar, að hér i Reykjavík kæmist á alls- herjar-mötuneyti. Eigi má þó skilja það svo, sem Bandalagið muni koma hér á fót sliku fyrirtæki, heldur mun það hafa vakað fyrir því, að ýta undir framkvæmdir. Og munu af- skifti Bandalagsins af málinu senni- lega hafa ýtt undir það, að málið komst inn i bæjarstjórn Reykjavikur. Og nú hefir hún — eins og áður er frá skýrt — sent erindi til bjarg- ráðanefndar Alþingis um það, að sendir yrðu menn til útlanda — Danmerkur og sennilega Svíþjóðar — til þess að kynnast því fyrir- komulagi, sem þar er haft á slikum stofnunum. Hefir bæjarstjórn með því bundið sig óbeinlínis loforði um það, að koma hér upp slikri stofnun fyrir haustið, ef þingið leggur fiam fé til utanfarar handa slíkri sendi- nefnd. Og verða allir, sem þessu máli eru fylgjandi, án efa fegnir þvi, að málið skuli mi komið á þennan rekspöl. Eftir er nú að vita, hvernig bjarg- ráðanefnd neðri deildar tekur i þetta mál. En hún verður að sinna þvi fljótt, vegna þess að tími er naum- ur til stefnu. Sumum kann nú að virðast það óþarfa tilgerð, að vera að senda menn til útlanda i þessum erinda- gerðum. En það hefir bæjarstjórn Reykjavikur eigi fundist og munu fleiri vera henni þar samdóma. Þjóðverjar urðu fyrstir allra til þess, eins og kunnugt er, að koma á alþýðu-mötuneyti í borgum sínum. Og þótt miklu væri til kostað og undirbúningur svo vandaður, sem föng voru á, ráku þeir sig þó hvað eftir annað á ýmsa annmarka á fyrsta fyrirkomulaginu. En reynslan hefir kent þeim margt og mikið og af reynslu þeirra hafa Norðurlandaþjóð- irnar lært. Hefir þeim með því tekist að sigla fram hjá mörgum skerjum, sem fyrirkomulagið steytti á í fyrstu hjá Þjóðverjum og hefir það sparað þeim eigi litið fé og tíma, auk þess að fyrirtækið hefir fyr komið að tilætluðum notum. Sumir kunna nú að segja, að nokk- ur reynsla sé fengin hér í Reykja- vík þar sem matgjafir Samverjans eru og er það að sumu leyti satt. En hitt er líka ómótmælanlegt, að ef slikt allsherjar-mötuneyti á að komast hér á fót og vera rekið svo, að það komi að tilætluðum notum, verður það að vera með alt öðru sniði heldur en matargjafir Samverj- ans. Það verður í svo miklu stærri stíl og margbreyttara, að ekki er líku saman að jafna. Enginn efi er á því, að þ a ð e r h æ g t að koma hér upp alþýðu- mötuneyti án þess að nokkuð sé leitað þekkingar á reynsiu annara þjóða í því efni. Það er hægt að þreifa sig áfram og læra af sinni eigin reynslu og spara með þvi fé það, sem gengi til utanfarar sendi- nefndar, enda þótt það gæti aldrei orðið mikið. En efasamt er, hvort með því væri eigi sparaður eiririnn en krónunni kastað. Og efamál er líka hitt, hvort nokkur kona, sem fær er til slíks, mundi vilja taka að sér forstöðu sliks allsherjar-elda- skála, nema þvi að eins, að hún hefði áður farið utan og fræðst af þeim, sem reynsluna hafa fengið í þeirri grein. Knattspyrnumót íslands ÞriOji kappleikur. í fyrrakvöld þreyttu félögin »Framc og »Valur< með sér og fóru leikar svo, að »Fram« sigraði með 2 :1. Veður var hið ákjósanlegasta og völlurinn hafði verið lagfærður með fargvöltu, svo að hann var nú bæði harðari og sléttari heldur en áður. Fór leikurinn þvi hið bezta fram og var ágæt skemtun á að horfa. í fyrri hálfleiknum átti »Valur< undir sól að sækja. Var sókn hörð á báða bóga og mátti eigi í milli sjá. í þeim hálfleik fór þó knött- urinn einu sinni í mark »Frams« — fyrir klaufaskap. »Valur« sótti þá á sem ákafast og var kominn með knöttinn alveg að marki. En þar var Clausen »back< fyrir og hefði honum verið innan handar að skjóta knettiuum þvert út af vellinum eins og svo oft'ella, til þess að bjarga markinn. En að þessu sinni brást honum »sparkið< og ? stað þess að koma knettinum burtu, laumaði hann honum i mark áður en mark- vörð grunaði að nokkuð ilt væri i aðsigi. Fyrri hálfleiknum lauk þannig að þetta var eina skoraða markið. í seinni hálfleiknum kom »Fram« knettinum tvisvar í mark, en »Valur« aldrei og mátti þó svo heita, sem leiknum hallaði altaf á »Fram« enda fatlaðist þá einn af beztu mönnum hans, Friðþjófur Thorsteinsson og varð að ganga úr leiknum undir lokin. En næði »Fram«-menn í knöttinn voru þeir komnir með hann í einu hendingskasti upp að marki »Vals«, enda á »Valur« ekki slíka hlaupara sem »Fram« og má þar sérstaklega nefna Gunnar Hall- dórsson sem er allra manna frástur, þeirra er á völlinn koma. En »Vals«- menn voru snjallir í því að þvæla knettinum milli sín og halda honum á vallarhelming mótherjanna. Yfir- burði sína sýndu »Fram«-menn aðal- lega í því að spyrna til marks. En það kann enginn af »Vals«-mönnum enn og er það stór galli. Var oft raun að siá hvað þeim fipaðist er þeir voru komnir með knöttinn að marki. En framsóknarmenn »Frams« þrir, Gunnar Halldórsson Friðþjófur Thorsteinsson og Pétur Magnússon eru snillingar í því að spyrna til marks. Ættu »Vals«-menn að æfa sig 'betur að þessu leyti og geta Hafnarstræti 18 Simi 137. Kaupirðu góðan hlut þá mundu hvar þu fekst hann. Smurningsolia: Cylinder- & Lager- og 0xulfeiti erit áreiðanlega ódýrastar og beztar hjá Slgu?jóul

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.