Morgunblaðið - 14.06.1918, Blaðsíða 1
B'ðstudag
14.
júní 1918
fflORGDNBLABlD
5. argangr
217
tðlublað
Rjtstjórnarsími nr. 500
Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen
ísafoldarprentsmiðja
Afgreiðslusimi nr. 500
Skuggi fortíðarinnar eða Ast Yvonne Sjónleikur í þrem þáttum, tekin á kvikmynd af Nordisk Films Co. Aðalhlutverkið leikur Else Fpölleh. Hvers er krafist af góðri kvikmynd? Að hún sé áhrifamikif, fögur, einkennileg, efnisrlk, hrífandi og vel leikin. Öll þau skilyrði uppfyllir þessi mynd.
Það tilkynnist vinum og vandamönnum nær og fjær að móð- ir okkar elskuleg, Arnbjörg Jónsdóttir frá Skálatanga á Akranesi, andaðist að heimili sinu, Tjörn í Biskupstungum, 7 þ. m. Jarðar- arförin verður ákveðin síðar. f * Gunnfriður Rögnvaldsdóttir. Guðjón Rögnvaldsson.
I. 0. 0. F. 1006149 — 0.
Gamla Bló
Dr. Mors.
Skemtil. og afarspennandi
sjónl. í 3 þáttum tekinn af
Dania Biofílm
(Gyldendahl).
Og leikin af ágætum dönsk-
um leikurum.
Aðalhlutverkið, Dr. Mors, leik-
ur hr. Paul Reumert..
Til Vifilsstaða fer bifreið fyrst um
.•sinn hvern þriðju, fimtu- og sunnu-
dag kl. n frá Breiðabliki. Farkeðlar
verða að kaupast þar.
(Aukaferðir venjulega kl. 2.)
st. Einarsson. Gr. Sigurðsson.
Simi 127.Simi 581.
Erl. simfregnir
(Fri fréttaritara Morgunkl.).
Khöfn. 12. júni.
Frá Paris er simað, að bandamenn
hafi gert sigursæl gagnáhlaup hjá
Rudes-Court og Maur og sótt fram
um 2 kilometra fyrir austan Mery
og tekið 1300 fanga.
Þjóðverjar sækja enn fast fram i
Matzdalnum.
Borgarstjórnin í Paris er að undir-
búa varnarráðstafanir.
Frá Islandsmálanefnd
. danska rikisþingsins hefir það frézt,
að hún muni öll mæla með því að
menn verði sendir til íslands til
samninga.
4
Khöfn. 12 mai.
Þjóðverjar túkynna að þeir hafi
brotið á bak aftur áhlaup Frakka
hjá Leployron og Antheiris. Þjóð-
verjar hafa gert útrás hjá Oise fyrir
norðan Matz og handtekið þar 3000
menn. Suðvestur af Noyon hafa þeir
tekið þorpið Carlepont og eru nú
komnir að herlinu fyrir norðan
Bailly og Tracylival og vestan
Nampcel.
Allsheijar-motuneyti.
Þess var getið hér i bláðinu fyrir
nokkrum dögum, að Bandalag kvenna
hefði tekið það mál til meðferðar,
að hér i Reykjavík kæmist á alls-
herjar-mötuneyti. Eigi má þó skilja
það svo, sem Bandalagið muni koma
hér á fót sliku fyrirtæki, heldur mun
það hafa vakað fyrir því, að ýta
undir framkvæmdir. Og munu af-
skifti Bandalagsins af málinu senni-
lega hafa ýtt undir það, að málið
komst inn i bæjarstjórn Reykjavikur.
Og nú hefir hún — eins og áður
er frá skýrt — sent erindi til bjarg-
ráðanefndar Alþingis um það, að
sendir yrðu menn til útlanda —
Danmerkur og sennilega Svíþjóðar
— til þess að kynnast því fyrir-
komulagi, sem þar er haft á slikum
stofnunum. Hefir bæjarstjórn með
því bundið sig óbeinlínis loforði um
það, að koma hér upp slikri stofnun
fyrir haustið, ef þingið leggur fiam
fé til utanfarar handa slíkri sendi-
nefnd. Og verða allir, sem þessu
máli eru fylgjandi, án efa fegnir þvi,
að málið skuli mi komið á þennan
rekspöl.
Eftir er nú að vita, hvernig bjarg-
ráðanefnd neðri deildar tekur i þetta
mál. En hún verður að sinna þvi
fljótt, vegna þess að tími er naum-
ur til stefnu.
Sumum kann nú að virðast það
óþarfa tilgerð, að vera að senda
menn til útlanda i þessum erinda-
gerðum. En það hefir bæjarstjórn
Reykjavikur eigi fundist og munu
fleiri vera henni þar samdóma.
Þjóðverjar urðu fyrstir allra til
þess, eins og kunnugt er, að koma
á alþýðu-mötuneyti í borgum sínum.
Og þótt miklu væri til kostað og
undirbúningur svo vandaður, sem
föng voru á, ráku þeir sig þó hvað
eftir annað á ýmsa annmarka á fyrsta
fyrirkomulaginu. En reynslan hefir
kent þeim margt og mikið og af
reynslu þeirra hafa Norðurlandaþjóð-
irnar lært. Hefir þeim með því
tekist að sigla fram hjá mörgum
skerjum, sem fyrirkomulagið steytti
á í fyrstu hjá Þjóðverjum og hefir
það sparað þeim eigi litið fé og
tíma, auk þess að fyrirtækið hefir
fyr komið að tilætluðum notum.
Sumir kunna nú að segja, að nokk-
ur reynsla sé fengin hér í Reykja-
vík þar sem matgjafir Samverjans
eru og er það að sumu leyti satt.
En hitt er líka ómótmælanlegt, að
ef slikt allsherjar-mötuneyti á að
komast hér á fót og vera rekið svo,
að það komi að tilætluðum notum,
verður það að vera með alt öðru
sniði heldur en matargjafir Samverj-
ans. Það verður í svo miklu stærri
stíl og margbreyttara, að ekki er
líku saman að jafna.
Enginn efi er á því, að þ a ð e r
h æ g t að koma hér upp alþýðu-
mötuneyti án þess að nokkuð sé
leitað þekkingar á reynsiu annara
þjóða í því efni. Það er hægt að
þreifa sig áfram og læra af sinni
eigin reynslu og spara með þvi fé
það, sem gengi til utanfarar sendi-
nefndar, enda þótt það gæti aldrei
orðið mikið. En efasamt er, hvort
með því væri eigi sparaður eiririnn
en krónunni kastað. Og efamál er
líka hitt, hvort nokkur kona, sem
fær er til slíks, mundi vilja taka að
sér forstöðu sliks allsherjar-elda-
skála, nema þvi að eins, að hún hefði
áður farið utan og fræðst af þeim,
sem reynsluna hafa fengið í þeirri
grein.
Knattspyrnumót íslands
ÞriOji kappleikur.
í fyrrakvöld þreyttu félögin »Framc
og »Valur< með sér og fóru leikar
svo, að »Fram« sigraði með 2 :1.
Veður var hið ákjósanlegasta og
völlurinn hafði verið lagfærður með
fargvöltu, svo að hann var nú bæði
harðari og sléttari heldur en áður.
Fór leikurinn þvi hið bezta fram og
var ágæt skemtun á að horfa.
í fyrri hálfleiknum átti »Valur<
undir sól að sækja. Var sókn hörð
á báða bóga og mátti eigi í milli
sjá. í þeim hálfleik fór þó knött-
urinn einu sinni í mark »Frams« —
fyrir klaufaskap. »Valur« sótti þá
á sem ákafast og var kominn með
knöttinn alveg að marki. En þar
var Clausen »back< fyrir og hefði
honum verið innan handar að skjóta
knettiuum þvert út af vellinum eins
og svo oft'ella, til þess að bjarga
markinn. En að þessu sinni brást
honum »sparkið< og ? stað þess að
koma knettinum burtu, laumaði
hann honum i mark áður en mark-
vörð grunaði að nokkuð ilt væri i
aðsigi.
Fyrri hálfleiknum lauk þannig að
þetta var eina skoraða markið.
í seinni hálfleiknum kom »Fram«
knettinum tvisvar í mark, en »Valur«
aldrei og mátti þó svo heita, sem
leiknum hallaði altaf á »Fram« enda
fatlaðist þá einn af beztu mönnum
hans, Friðþjófur Thorsteinsson og
varð að ganga úr leiknum undir
lokin. En næði »Fram«-menn í
knöttinn voru þeir komnir með
hann í einu hendingskasti upp að
marki »Vals«, enda á »Valur« ekki
slíka hlaupara sem »Fram« og má
þar sérstaklega nefna Gunnar Hall-
dórsson sem er allra manna frástur,
þeirra er á völlinn koma. En »Vals«-
menn voru snjallir í því að þvæla
knettinum milli sín og halda honum
á vallarhelming mótherjanna. Yfir-
burði sína sýndu »Fram«-menn aðal-
lega í því að spyrna til marks. En
það kann enginn af »Vals«-mönnum
enn og er það stór galli. Var oft
raun að siá hvað þeim fipaðist er
þeir voru komnir með knöttinn að
marki. En framsóknarmenn »Frams«
þrir, Gunnar Halldórsson Friðþjófur
Thorsteinsson og Pétur Magnússon
eru snillingar í því að spyrna til
marks. Ættu »Vals«-menn að æfa
sig 'betur að þessu leyti og geta
Hafnarstræti 18
Simi 137.
Kaupirðu góðan hlut
þá mundu hvar þu fekst hann.
Smurningsolia: Cylinder- & Lager- og 0xulfeiti
erit áreiðanlega ódýrastar og beztar hjá Slgu?jóul