Morgunblaðið - 28.12.1982, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 28.12.1982, Blaðsíða 1
44 SIÐUR 290. tbl. 69. árg. ÞRIÐJUDAGUR 28. DESEMBER 1982 Prentsmiðja Morgunblaðsins Viðræður ísraela og Líbana hefjast í dag: Stefnir í þrætu strax í upphafi Mótmæli í Nýju Delhí Afganskir mótmæl- endur hrópandi slagorð og með borða með vígorð- um fyrir utan sov- éska sendiráðið í Nýju Delhí á Ind- landi, til þess að minnast þess að þrjú ár voru í gær liðin frá innrás Sov- étmanna inn i Afg- anistan. Nokkur hundruð manns Jerúsalem og Khalde í Líhanon, 27. des. AP. VIÐRÆÐUR á milli ísraela og Líbana hefjast á ný í Beirút á morgun, þriðjudag, með yfirlýsing- um frá báðum aðilum. Að þeim loknum munu fulltrúar hinna striðandi aðila hefja formlegar við- ræður á ný eftir hlé yfir hátíðirnar. Fulltrúar deiluaðila töldu í dag, að flest benti til að ágreiningur risi vegna dagskráratriða. ísrael- ar hyggjast fylgja dagskrá, sem samþykkt var af líbönskum emb- ættismönnum, en hlaut aldrei samþykki stjórnarinnar. Útvarpið í ísrael hafði í dag eftir Menach- em Begin, að ísraelar hefðu farið fram á það við Líbanonstjórn að hún skrifaði undir dagskrána, en hún neitað. Samkvæmt þessari dagskrá ísraela er fyrsta málið eðlileg samskipti á milli ríkjanna á ný. Líbanir segja á hinn bóginn um- ræðuefni númer eitt, tvö og þrjú vera brottflutning erlends herliðs úr landinu. Allt annað komi þar á eftir. Herlið ísraela skarst í dag í leikinn í hlíðunum umhverfis bæ- inn Khalde til þess að stöðva erjur á milli trúflokka, sem geisað höfðu um hríð. Þá sagði útvarpið í Líb- anon frá því, að tveir hermenn ís- raela hefðu látið lífið og sjö særst er herflutningabifreið var gerð fyrirsát skammt frá þorpinu Ghazieh. Fjöldi sjönarvotta staðfesti þessa fregn og sagðist hafa séð herþyrlur flytja lík og særða burtu eftir árásina, en talsmaður herliðs ísraela í Yarze, skammt austur af Beirút, vildi ekkert við þennan atburð kannast. tóku þátt í mótmæl- unum, sem fóru friðsamlega fram. Efnt var til mót- mæla víða annars staðar um heim. Sjá nánar „Inn- rásinni í Afganistan mótmælt i mörgum löndum" á bls. 20. Þrjú ár frá innrás Sovétríkjanna í Afganistan: „Afganistan er land, sem ekki má gleymast Islamahad, Pakistan, 27. desember. AP. RONALD REAGAN Bandaríkjafor- seti hrósaði í gær frelsissveitum Afg- ana óspart fyrir ódrepandi dugnað og ósérhlifni í baráttunni við stjórn- arherinn á þriggja ára afmæli inn- rásar Sovétmanna í Afganistan, sem er i dag. Um leið lýsti forsetinn því yfir, að tilraun Sovétmanna til að berja Afgani til hlýðni og undirgefni hefði mistekist hrapallega þrátt fyrir stuðning rúmlega 100.000 manna herliðs frá Sovétríkjunum, auk stjórnarhersins í landinu. Reagan sagði einnig í ræðu sinni, að Bandaríkjamenn myndu ekki gleyma frelsissveitunum. „Afganist- an er land, sem ekki má gleymast," sagði forsetinn í ávarpi, sem dreift var til fjölmiðla. „Barátta frelsis- sveitanna er ekki einungis fyrir eig- Hlustendakönnun BBC: Thatcher og Páll páfí voru í efstu sætunum Lundúnum, 27. desember. AP. JÓHANNES PÁLL páfi II og Margaret Thatcher, forsætisráð- herra Breta, reyndust hlutskörpustu fulltrúar síns kyns í skoð- anakönnun, sem breska útvarpið gekkst fyrir nú fyrir jólin öðru sinni og miðaði að því að draga fram „mann og konu ársins". Tóku þau sæti þeirra Karls Bretaprins og Diönu prins- essu, sem urðu langefst í þessari kosningu í fyrra. Þrátt fyrir frumburð þeirra hjóna dugði frami þessa árs og athygli þeim ekki til sætis á meðal þeirra efstu. Diana varð í fimmta sæti á kvennalistanum og Karl í 9. sæti á lista karlanna. Laut hann lægra haldi fyrir bróður sínum Andrew, sem hirti 5. sætið. Mjög á óvart varð Anna, systir Karls, í 2. sæti á lista kvennanna og Ken Livingstone, harðlínu- maður í Verkamannaflokknum breska og formaður borgarráðs Lundúna, varð næstur á eftir páfa. Flest nafnanna á listum hlust- enda útvarpsins voru af bresku bergi brotin, en þó mátti sjá Lech Walesa í 10. sæti á lista karlanna og þær móður Theresu í 8. sæti og móður Frances Dom- inica í 10. sæti á lista kvenn- anna. in sjálfstæði heldur einnig gegn sov- éskri heimsvaldastefnu." TASS-fréttastofan sovéska brást hart við ummæium Reagans og harmaði þau. í tilkynningu frétta- stofunnar sagði m.a.: „Með ummæl- um sínum undirstrikar Reagan ein- ungis þau markmið Bandaríkja- stjórnar, að velta löglega kjörinni stjórn lýðveldisins Afganistan af valdastóli með öllum tiltækum ráð- um.“ Þá sagði einnig í tilkynningu TASS, að þær ásakanir Reagans, að Sovétmenn beittu eiturefnum í hern- aði gegn byltingarsinnum, ættu við engin rök að styðjast. Dagblað alþýðunnar í Kína sagði í dag í frétt, þar sem þriggja ára inn- rásarafmælis Sovétmanna í Afgan- istan var minnst, að þjóðir heimsins mættu ekki hætta stuðningi sínum við baráttu frelsissveita Afgana. Þá sagði málgagn kínverska kommún- istaflokksins, að innrás Sovétmanna í Afganistan væri ekki einungis ógn- un við Afgani heldur og við Kínverja þar sem skammt væri á milli landa- mæra ríkjanna. Talsmenn frelsissveitanna skýrðu frá því í morgun að þær hefðu valdið miklum skemmdum og manntjóni í áhlaupi, sem sveitirnar gerðu á bækistöð sovéska flughersins skammt frá landamærum Pakistan á þriðjudag í síðustu viku. Sagði talsmaðurinn, að a.m.k. 40 Sovétmenn og Afganir þeim hlið- hollir hefðu látið lífið í áhlaupinu á Jalalabad-flugvöllinn í Nangarhar- héraðinu þann 21. desember. Þá hefðu ennfremur tvær þyrlur og fjórir herflutningavagnar verið sprengdir í loft upp. Ekkert mann- að tjón varð hjá frelsissveitunum sögn talsmannsins. Þá gerðu frelsissveitirnar annað áhlaup daginn eftir, sem stóð allt fram á jóladag, á bækistöð stjórn- arhersins við þjóðveginn á milli Jal- alabad og Kabúl með þeim afleiðing- um að 14 stjórnarhermenn létust og 4 úr liði frelsissveitanna. Þá voru og 25 stjórnarhermenn handteknir. Týndi aleigunni — 1,8 millj- ónum kr. — í matartímanum Kaupmannahofn, 27. desembcr. AP. SÆNSKUR starfsmaður Sameinuðu þjóðanna varð fyrir því óhappi á að- fangadag, að tapa skjalatösku, sem hann hafði meðferðis, er hann tyllti sér niður í veitingabúð Kastrup- flugvallar eftir að hafa sótt farangur á flugvöllinn. Lagði hann töskuna frá sér á meðan hann snæddi hádegisverð ásamt tveimur dætrum sínum. Höfðu þau komið með bifreið frá V-Þýskalandi og ætluðu áfram til Svíþjóðar með ferju. Er þau höfðu lokið málsverði héldu þau út úr flugstöðvarbygg- ingunni og þá uppgötvaðist, að önnur dóttirin hélt á skjalatösku, sem var nákvæmlega eins og sú sem Svíinn átti, nema hvað inni- haldið var hreint ekki það sama. Upphófst þegar ítarleg leit, en án árangurs. Töskumissirinn væri e.t.v. ekki svoýkja fréttnæmur ef ekki kæmi sú staðreynd til, að í henni voru 112.500 dollarar, eða sem svarar 1,8 milljónir íslenskra króna. Ætlaði Svíinn að kaupa sér hús í heimalandi sínu fyrir upphæðina. Einn leiðtoga Samstöðu dæmdur í 4 ára fangelsi Varsjá, 27. desembcr. AP. YFIRVÖLD í Póllandi dæmdu í dag einn af leiötogum Samstöðu til fjög- urra ára fangelsisvistar „fyrir skipu- lagningu verkfalla og mótmælaað- gerða gegn herstjórninni'* eins og það var oröað í tilkynningu opinberu pólsku fréttastofunnar, PAP. Stálverkamaðurinn Bednarz var dæmdur af borgardómstóli og sekur fundinn um „ítrekað ólöglegt at- hæfi“. Að sögn PAP var dómurinn mjög vægur og tillit tekið til aldurs Bednarz og þeirrar staðreyndar, að hann hafði ekki áður gerst brotlegur við lög. Þeir leiðtogar Samstöðu, sem enn ganga lausir, skýrðu frá því í bréfi, sem erlendum fréttamönnum í Pól- landi var afhent í dag, að þeir hygð- ust halda áfram baráttunni fyrir endurreisn samtakanna. „Vandamál, Póllands verða ekki leyst án Samstöðu," sagði m.a. í bréfinu, sem dagsett var 10. des- ember og undirritað af átta leiðtog- um samtakanna, sem voru í haldi í Bialoleka-fangelsinu þar til í síð- ustu viku. í bréfinu sagði einnig að áttmenningarnir hefðu verið kjörnir til æðstu starfa innan samtakanna í lýðræðislegum kosningum og hefðu í höndum traustsyfirlýsingu frá meðlimum samtakanna.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.