Morgunblaðið - 29.12.1982, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 29.12.1982, Blaðsíða 1
40 SIÐUR 291. tbl. 69. árg. MIÐVIKUDAGUR 29. DESEMBER 1982 Prentsmiðja Morgunblaðsins Mikill vatnselgur skapaðist víða í Reykjavík I hlákunni I g*r og voru sumar götur líkastar árfarvegi, eins og þessi mynd ber með sér. Danmörk: Verkfallsvörður í Hirtshals beið bana Mikil harka færist nú 1 verkföll hafnarverkamanna Vinna hefur nú stöðvazt aó verulegu leyti við höfnina í Kaupmannahöfn. Þar hafa hafnarverkamenn sem í mörgum öðrum hafnarbæjum í Danmörku efnt til skyndiverkfalla til þess aö mótmæla fyrirhuguðum lækkunum á atvinnu- leysisbótum. Kaupmannahöfn, 28. deMember. Al'. YFIR hundrað hafnarverkamenn höfðu í frammi mótmælaaögerðir í dag fyrir utan skrifstofur danska vinnumáladómstólsins í Kaup- mannahöfn, en af hans hálfu var því lýst yfir í dag, annan daginn í röð, að skyndiverkföll hafnarverkamanna í Danmörku að undanförnu væru ólögleg með öllu. Skipaði dómurinn verkamönnum að hefja vinnu aftur þegar í stað. Spennan vegna verk- fallsins jókst mjög í dag, eftir að danskur hafnarverkamaður beið bana, er hann reyndi að stöðva hol- lenzkan vörubíl í Hirtshals á Jót- landi. Hefur uppskipun og útskipun nú stöðvazt að langmestu leyti í dönskum höfnum af völdum verk- fallanna. Þrjátíu og fimm ára gamall vöru- bílstjóri frá Hollandi hefur þegar verið ákærður fyrir manndráp af gáleysi vegna dauða verkamanns þess, sem varð fyrir bifreið hans. Verkamaðurinn, Kaj Aage Nielsen, sem var 43 ára gamall, var í hópi verkfallsvarða á höfninni í Hirts- hals og stökk hann upp á brettið á vörubílnum, þar sem hann kom ak- andi meðfram röðum verkfalls- varða, er hollenzki bílstjórinn virti algerlega að vettugi. Nielsen datt síðan af bretti vörubílsins og undir hjól tengivagns, sem kom á eftir vörubílnum. Hann mun hafa dáið þegar í stað. Finn Larsen, lögreglustjóri í Hjörring í nágrenni við Hirtshals, lét hafa eftir sér í dag, að hollenzki bílstjórinn, van der Gaag, hefði ver- ið ákærður fyrir manndráp af gá- leysi og hefðu frumyfirheyrslur þegar farið fram yfir honum. Hol- lendingurinn lýsti hins vegar yfir sakleysi sínu varðandi öll atriði ák- ærunnar. Svo virðist sem um misskilning hafi verið að ræða, sagði Larsen lögreglustjóri í viðtali við frétta- menn í dag. Einhver af verkfalls- mönnunum hafði gefið van der Gaag merki um að aka áfram fram- hjá verkfallsvörðunum að vöru- skemmu, þar sem hann átti að taka frosinn fisk, en svo vill til, að þessi skemma stendur einmitt við sömu bryggju og eitt af þeim skipum var bundið við, sem verkfallsverðirnir vildu koma í veg fyrir að yrði fermt. Van der Gaag sagði í yfirheyrsl- um í dag, að hann hefði ekki séð neinn stökkva upp á bifreið sína, er hann ók framhjá röðum verkfalls- varða. Hann kvaðst hafa numið strax staðar er hann fann, að hann hafði ekið yfir eitthvað. Þá fyrst hefði hann uppgötvað, að það var einn af verkfallsvörðunum. Van der Gaag er hollenzkur, eins og að framan var getið og starfar við flutningafyrirtækið Spronsen í Monster í Hollandi. Talið er víst, að þessi atburður eigi eftir að auka enn á hörkuna í skyndverkföllunum, sem hófust víðs vegar um hafnarbæi í Dan- mörku um miðjan desember. Enda þótt forystumenn verkfallsmanna hafi neitað því að um skipulagðar verkfallsaðgerðir sé að ræða, þá hafa þeir hvatt hafnarverkamenn almennt til þess að taka þátt í aðgerðum þeim, sem fram eiga að fara í Kaupmannahöfn 3. janúar nk., en þá hyggjast fulltrúar hafn- arverkamanna ræða við Grethe Fenger Möller atvinnumálaráð- herra. Ætlunin með þessum við- ræðum er að koma í veg fyrir áform dönsku stjórnarinnar um að skera niður atvinnuleysisbætur til hafn- arverkamanna. Bjartsýni í við- ræðunum í Líbanon Undirbúningur hafinn að skiptum á stríðsfóngum milli ísraels og PLO khalde, Líbanon. 28. desember. Al*. YTÐRÆÐUR þær milli Israels og Líbanons sem lengi hefur verið beðið eftir um brottflutning alls herliðs ísraelsmanna frá Líbanon, hófust í dag í bænum Khalde í Líbanon. Miklar varúðarráðstafanir voru gerðar vegna fundarins og öflugt gæzlulið gætti fundarstaðarins. Viðræður þessar fara fram að frumkvæði Bandarikjamanna. Að loknum sex klukkustunda fundi í dag var gefin út sameiginleg yfirlýsing sendinefndanna þriggja, þar sem sagði, að aðilar hefðu lagt á það áherzlu við byrjun viðræðnanna að útskýra sjónarmið sín hver fyrir öðrum með góðum árangri. Næsti fundur er fyrirhugaður á fimmtudag í bænum Kiryat Shmona. Bandarísk stjórnvöld segja, að það skipti mestu máli í viðræðum þessum, að samningar takist sem fyrst um brottflutning alls herliðs ísraelsmanna. „Markmið okkar er, að ríkisstjórn Líbanons fái yfirráð yfir öllu landinu og að það fái að búa við óskert fullveldi og sjálf- stæði í framtíðinni“, sagði Alan Romberg, talsmaður bandaríska ut- anrikisráðuneytisins í dag. En hann bætti því við, að það yrði að tryggja það, svo að óyggjandi væri, að önn- ur ríki færu ekki með herlið sitt yfir land Líbanons til árása á Israel. Þá sagði Romberg ennfrem- ur, að Morris Draper, sem verður sérstakur sendifulltrúi Bandaríkja- manna í þessum viðræðum, eigi eft- ir að taka þar virkan þátt. Romberg sagði hins vegar, að Bandaríkjamenn myndu ekki taka þátt að svo komnu í viðræðum milli Líbanons og Sýrlands né viðræðum milli Líbanons og PLO, palest- ínskra skæruliða, varðandi brott- flutning herja þeirra á brott frá Líbanon, enda hefur enginn tími verið ákveðinn enn til slíkra við- ræðna. Bandaríkjamenn eru þeirrar skoðunar að það muni ekki reynast erfitt, ef það einu sinni tekst, að fá Israelsmenn til þess að flytja lið sitt á brott — um 25.000 manns — að fá aðra erlenda aðila til þess að flytja lið sitt á brott frá Líbanon. Talið er, að um 30.000 manns séu í herliði Sýrlendinga í Líbanon og að PLO hafi þar enn yfir 6.000 manna lið. Ekki var liðin nema ein og hálf klukkustund frá því að viðræðurnar hófust í dag, er fréttir bárust af skotbardögum í hafnarborginni Sídon, sem liggur um 40 km fyrir sunnan Beirut. Þar réðust óþekktir menn með vélbyssuskothríð á ísra- elskan hervagn, sem stóð á einu helzta torgi borgarinnar. ísraels- menn svöruðu skothríðinni og girtu síðan af borgarhverfið, þar sem þeir leituðu árásarmannanna hús úr húsi. Engar fréttir voru um mannfall, en Israelsmenn handtóku nokkra menn. Bruno Kreisky, kanslari Austur- ríkis, skýrði svo frá í útvarpsviðtali í dag, að hann hefði komið á beinum viðræðum milli PLO og ísraels- manna um skipti á stríðsföngum. Kreisky vildi ekki tjá sig um ein- stök atriði varðandi fyrirkomulag þessara viðræðna. Kleif Everest í þriðja sinn Katmandu, Ncpal, 2S. desemlx'r. Al*. Ferðamálaráðuneytið i Nepal skýrði frá því í dag, að síðdegis á mánudag að staðartíma hafi jap- anski fjallgöngumaðurinn Yasuo Kato komizt á hæsta tind Everest- fjalls, og er þetta í þriðja sinn sem Kato klífur þetta hæsta fjall heims. Kato er fyrsti útlendingurinn, sem hefur þrisvar staðið á tindi Mt. Everest, en fyrir tveimur mánuðum varð innlendur Sherpa-leiðsögptmaður fyrstur manna til að klífa Everest í þriðja sinn. Kato kleif Mt. Everest fyrst haustið 1973, og fór þá upp suðausturhlíðarnar, sömu leið og hann valdi upp á tindinn nú í þriðju ferðinni. í annarri ferð- inni fyrir tveimur árum fór Kato upp norðurhlíðarnar meðfram landamærum Tíbets. Verðbólga 200% í Afganistan Islamahad, 28. dosombor. Al*. PREMUR árum eftir ad sovézkt herlid hernam Kabúl, höfuðborg Afganistan, er verðbólgan þar komin upp í allt að 200% á ári. Var þetta haft eftir áreiðanlegum heimildum í Kabúl í dag. Þá var því haldið fram, að gengi gjaldmiðils landsins hefði hrapað mjög að undanförnu og að seðlabankinn þar í landi hefði gripið til þess ráðs að prenta mikið magn af peningaseðlum án þess að nokkur varasjóður væri fyrir hendi að baki slíkrar seðlaútgáfu. Hið opinbera gengi á „afgani", en svo heitir gjaldmiðill landsins, er nú 55 á móti bandarískum doll- ar, en á svartamarkaði í Kabúl er gengið nú 85 á móti einum dollar. Það er um 16% hærra verð á Bandaríkjadollar en það sem var fyrir hendi um miðjan nóvember sl. Verð á vörum eins og olíu, tei og sykri hefur nær fjórfaldazt frá því á sama tíma í fyrra. Babrak Karmal, forseti komm- únistastjórnarinnar í Afganistan, hefur viðurkennt, að mikill skort- ur sé á alls konar nauðsynjavörum í þessu stríðshrjáða landi og í ávarpi, sem hann flutti 15. október sl. sagði hann, að ástandið færi versnandi með hverjum mánuði sem liði. Skortur á vinnuafli háir mjög sumum atvinnugreinum í landinu, en hann á að verulegu leyti rót sína að rekja til þess ráðs stjórnar Karmals að innrita unga nienn nauðuga eða viljuga í herinn og þá án tillits til þess, hvort viðkom- andi byggðarlag mætti við því að missa fleiri menn í herinn frá at- vinnuvegunum. Sjá nánar bls. 18: „Hræðsla og verðbólga heltaka Kabúl“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.