Morgunblaðið - 12.06.1987, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 12.06.1987, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1987 Guðbjörn Guðjónsson í einu af herbergjunum á nýja Hollday Inn hótelinu. Framkvæmdir við Holiday Inn á lokastigi: Morgunblaðið/KGA Fyrstu gestirmr koma á þjóðhátíðardaginn „ÞETTA leggst mjög vel í mig og bókanir sýna að það er greinilega mikil þörf fyrir þessa viðbót á gistirými hér í höfuðborginni," sagði Guð- björn Guðjónsson, eigandi nýja Holiday Inn-hótelsins við Sig- tún, er blaðamaður Morgun- blaðsins hitti hann að máli í hótelbyggingunni nú f vikunni. Byggingarframkvæmdir eru nú á lokastigi og yfir 100 manns hafa að undanfömu unnið baki brotnu við að ljúka verkinu áður en fyrstu gestirnir koma, en þeirra er von á þjóðhá- tíðardaginn, 17. júní. Að sögn Guðbjöms verður formleg opn- nn hótelsins þó ekki fyrr en um eða eftir næstu mánaðamót. Hótelbyggingin er íslensk hönnun, unnin af Gunnari Hanssyni arkitekt og starfs- fólki hans á teiknistofunni Lágmúla 9. Guðbjöm sagði að hótelið yrði að mestu tilbúið þegar fyrstu gestimir koma og er þá reiknað með að öll herbergi verði fullbúin svo og móttaka og tveir veitinga- salir. Húsið verður þá fúllbúið að utan og vonir standa til að lóðin verði þá einnig fullgerð. Nú þegar hafa aspir verið gróðursettar á lóðinni og aðeins er eftir að mal- bika bílastæðið. Byggingarfram- kvæmdir hófust í ágúst í fyrra og þykir með ólíkindum að slík sem er um 8 þúsund fermetrar að gólffleti, skuli hafa risið á aðeins ellefu mánuðum. Guðbjöm sagði að verkinu hefði miðað samkvæmt áætlun og byggingarhraðann mætti að hluta til þakka hagstæðu veðurfari í vetur. Eins og nafnið ber með sér er hótelið tengt Holiday Inn hótel- keðjunni þar sem gerðar em vissar gæðakröfur hvað varðar aðbúnað og innréttingar. Það mátti líka glöggt fínna þegar gengið var um ganga og her- bergi, sem nú þegar eru fullbúin, - þykk og dúnmjúk gólfteppin, allar innréttingar em mjög van- daðar og baðherbergi lögð marmara í hólf og gólf. Guðbjöm sagði að eftirlitsmað- ur og arkitekt frá Holiday Inn Frágangur hússins að utan er nú á lokastigi. Góða veðrið að undanfömu hefur komið sér vel við málningu hússins að utan. keðjunni hefðu nýlega verið hér á Iandi og þeirra væri von aftur nú í sumar. „Þótt kröfumar séu mikl- ar af þeirra hálfu og auki óneitan- lega talsvert við kostnaðinn sé ég þó betur og betur hversu þýðing- armikið það er að vera í þessu samstarfí," sagði hann. „Þar munar mestu um mjög fullkomið bókunarkerfí sem teygir anga sína um allan heim. Sem dæmi get ég nefnt, að í Þýskalandi einu hafa á örfáum ámm risið um 40 Holiday Inn hótel og 60 til 70% af bókunum á þau em í gegnum þeirra eigið kerfí. Við reiknum þó ekki með að hlutfallið verði eins hátt hjá okkur og myndum gera okkur ánægða með að fá á milli 15 til 20% bókana í gegnum þá,“ sagði Guðbjöm. Aðspurður sagði hann að erfítt væri að segja nákvæmlega til um kostnaðinn við bygginguna á þessu stigi. Kostnaðaráætlun hefði gert ráð fyrir um 220 millj- ónum króna og endanlegur kostnaður yrði ekki langt frá þeirri áætlun. Þó væri ljóst að um einhveija hækkun yrði að ræða, sem mætti rekja til verðbólgu, hækkunar á launakostnaði og auk þess væm nú gerðar meiri kröfur um hótelbyggingar, sem orðið hefði að taka tillit til. Jónas Hvannberg hefur verið ráðinn hótelstjóri Holiday Inn hót- elsins og hátt í 60 manns munu starfa þar í sumar. Að sögn Guð- bjöms Guðjónssonar lítur mjög vel út með bókanir fyrstu mánuð- ina og hefur verið bókað allt fram í október næstkomandi. GARÐl JR S.62-1200 62-1201 Skipholti 5 Asparfell. Faileg 4ra herb. íb. ofarl. í háhýsi. Mjög gott verð. Breiðholt — laus. 4ra herb. ný standsett íb. á 4. hæö. Bílsk. Laus. Stórar suóursv. Verð 3,9 millj. Engjasel. 4ra herb. endaib. á 1. hæö. ib. er 3 svefnherb., stofa, eldhús, gott baðherb. og sjónvarps- skáli. Bílgeymsla. Falleg ib. Verð 3,6-3,7 millj. Hraunbær. 2ja herb. ib. á 2. hæð. Góð íb. Verð 2,2 millj. V Kári Fanndal Guðbrandsson, Gestur Jónsson hrl. TJöföar til XX fólks í öllum starfsgreinum! Selló o g orgel í Hallgrímskirkju KIRKJULISTAHATIÐ Björn Steinar Sólbergsson, orgelleikari. Orgeltónleikar Tónllst Jón Ásgeirsson Bjöm Steinar Sólbergsson, orgel- ieikari við Akureyrarkirlgu, lék á kórorgel Hallgrímskirkju sl. þriðju- dag og vom það fjórðu tónleikamir á kirkjulistahátíðinni. Á efnis- skránni vom verk eftir Buxtehude, Du Mage, J.S. Bach og Vivaldi. Fyrsta verkið er nefnt vera Preludía og fúga í D-dúr en Buxtehude sjálf- ur notaði aðeins nafnið Preludía. Form þessara verka em mjög í anda vinnubragða sem minna á smíðatækni Frescobaldis og Frober- gers, þ.e.a.s. em í eins konar „fantasíu" formi og þá jafnvel með fleiri en einni „fúguframsögu". Ifyr- ir þessa fantasíugerð verkanna em þau oftlega laus í reipunum, þar sem lögð er meiri áhersla á leik- tæknibrellur en samfellt tónmál. Á eftir Prelúdíunni lék Bjöm Steinar þijá sálmaforleiki og e-moll „ciac- ona“ eftir Buxtehude. Úr Orgelbókinni eftir Pierre du Mage lék Bjöm Steinar fímm lög. Du Mage var nemandi Marchand, þess er flúði undan J.S. Bach, en Du Mage er getið fyrir að hafa leik- ið við orgelvígslu í Notre Dame kirlqunni, auk þess sem hann gaf út Orgelbókina sína árið 1708. J.S. Inga Rós Ingólfsóttir sellóleikari og Hörður Áskeisson stóðu fyrir hádegistónleikum á kirkjulistahá- tíðinni og fluttu tvö verk, það fyrra eftir Karl Höller og það seinna eft- ir Theodor Kirchner. Verk Höllers nefnist „Improvísasjónir" yfír sálmalagið Dýrðlegi Jesú. Höller er Bach átti aðeins eitt verk á þessum tónleikum en það var sálmforleikur úr „Orgelbuchlein". Tónleikunum lauk með orgelumritun J.S. Bach á a-moll konsertinum, eftir Vivaidi. Bjöm Steinar er góður orgelleik- ari, hefur á valdi sínu góða tækni, sem mun nýtast honum vel með vaxandi reynslu og þroska í túlkun og leikrænni útfærslu orgeltónlist- ar. Hann leikur einum of „beint af augurn", staldrar lítt við einstaka tónstemmningar en það mun koma með árunum, í samvistum við góða tónlist og svo vel undirbúinn sem hann er, má vænta mikils af þessum unga og snjalla orgelleikara. þýskur tónlistarmaður. Hann lærði orgelleik hjá Joseph Haas, er var nemandi Regers. Auk þess að stunda kennslustörf, en hann er' skólastjóri tónlistarháskólans í Miinchen, hefur hann samið sinfón- íur, einleikskonserta, strengja- kvartetta, strengjasónötur og margvísleg verk fyrir orgel og píanó. Sem tónsmíð eru þessar „impróvísasjónir" eiginlega orgel- verk, því hlutverk sellósins er mun veigaminna og oft aðeins bundið við tilvitnanir í sálminn. Þó mátti heyra einstaka tónhendingar, þar sem reyndi á sellóið og var leikur Ingu Rósar fallega mótaður og vel samstilltur. Orgelleikur Harðar studdi þar vel við. Seinna verkið, „Tvær hugleiðing- ar fyrir selló og píanó“, eftir Kirchner var meira fyrir sellóið og á köflum ágætlega lagrænt. Kirchner (1823-1903) var aðallega kunnur sem kennari en samdi nokk- ur kammerverk og um það bil 100 verk fyrir píanó. Ekki verður sagt að tónlist hans sé svipmikil, eftir því sem dæma má af þessu verki. Inga Rós lék þetta litla verk af smekkvísi og með fallegri hljóman, af þeirri alúð sem góðum tónlistar- manni sæmir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.