Morgunblaðið - 12.06.1987, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 12.06.1987, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1987 Hæstiréttur: Taka gengismunar vegna út- fluttra sjávarafurða heimil HÆSTIRÉTTUR hefur sýknað ríkissjóð af kröfum útgerðarfé- lagsins Útvers hf. á Bakkafirði, en málið fjallaði um það hvort ríkisstjórninni hafi verið heimilt að taka gengismun vegna út- fluttra sjávarafurða. Komst Hæstiréttur að þeirri niðurstöðu að svo hafi verið, en undirréttur hafði verið á öndverðum meiði. Taka gengismunar þess sem málið snerist um var liður í víðtæk- um efnahagsráðstöfunum ríkis- stjómarinnar vorið 1983. Deilt var um hvort hún væri heimil vegna ákvæða stjómarskrár og hvemig skýra bæri lög um ráðstafanir í sjávarútvegsmálum. Greinin, sem deilt var um, hljóðar svo: „Þegar skilað er til banka gjaldeyri fyrir útfluttar sjávarafurðir, sem fram- leiddar em fyrir 1. júní 1983, skal hann greiddur útflytjanda á því kaupgengi, sem í gildi er, þegar útflutningsskjöl em afgreidd í banka við gjaldeyrisskil, að frá- dregnum 10% gengismun. Ríkisstjómin kveður nánar á um, til hvaða afurða ákvæði þetta taki. Gengismunur skv. 1. mgr. skal færður á sérstakan reikning á nafni ríkissjóðs í Seðlabankanum. Fé, sem á reikninginn kemur, skal ráðstafað af ríkisstjóminni í þágu sjávarút- vegsins og sjóða hans...“ í niðurstöðum Hæstaréttar segir, að af gögnum málsins megi ráða, að undanþágur þær er ríkisstjómin veitti hafi aðeins numið tiltölulega litlum hluta gengismunarins. í 1. mgr. greinarinnar sé fólgin almenn regla um gjaldskylduna og þrátt fyrir orðalag 2. mgr. þyki ekki eiga að skýra hana rýmra en svo, að með henni hafi ríkisstjóminni verið veitt heimild til undanþágu á ein- stökum tegundöm sjávarafurða eftir málefnalegu mati. Verði því ekki talið að um valdframsal hafí verið að ræða sem hafi farið í bága við ákvæði stjómarskrárinnar. Þá komst Hæstiréttur einnig að þeirri niðurstöðu að ekki yrði á það fallist að ákvæði laganna um ráð- stöfun gengismunarins hafí hindrað töku hans. Þá yrði heldur ekki fal- list á það með forsvarsmönnum Útvers hf. að þessi ákvæði um gengismun og ráðstöfun hans hafí falið í sér óheimila mismunun milli útflytjenda. Samkvæmt þessu bæri að sýkna sjávarútvegsráðherra og Qármálaráðherra, fyrir hönd ríkis- sjóðs, af kröfum Útvers. Málskostn- aður í héraði og fyrir Hæstarétti var felldur niður. Dóminn kváðu upp hæstaréttar- dómaramir Magnús Thoroddsen, Guðmundur Jónsson, Guðmundur Skaftason, Guðrún Erlendsdóttir, Halldór Þorbjömsson og Magnús Þ. Torfason og Gaukur Jömndsson, settur hæstaréttardómari. VEÐURHORFUR í DAG, 12.06.87: YFIRLIT á hádegi í gær: Um 700 km suðsuðvestur af Reykjanesi er 1030 millibara víðáttumikil hæð. Önnur hæð, 1026 millibara, er yfir norðanverðu Grænlandi. SPÁ: Hægviðri um land allt. Sums staðar verður skýjað við sjávar- síðuna en víöa léttskýjað inn til landsins. Hiti á bilinu 6 til 12 stig um norðanvert landið en 10 til 14 stig syðra. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: LAUGARDAGUR og SUNNUDAGUR: Fremur hæg breytileg átt. Víðast léttskýjað inn til landsins en skýjað og sums staðar þoku- bakkar við ströndina. Hiti á bilinu 8 til 14 stig að deginum en nokkuð svalara að næturlagi. g II, x Norðan, 4 vindstig: ' Vindörin sýnir vind- V. Heiðskírt stefnu og fjaðrirnar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. Léttskýjað / / / / / / / Rigning / / / Hálfskýjað * / * / * / * Slydda Skýjað / * / * * * Alskýjað * * * * Snjókoma ■j 0 Hitastig: 10 gráður á Celsius SJ Skúrir * V El — Þoka = Þokumóða ’ , ’ Súld OO Mistur —Skafrenningur Þrumuveður VEÐUR VÍÐA UM HEIM kl. 12.00 ígær að ísl. tíma Akureyri hhl 10 v«Aur léttskýjað Reykjavík n skýjað Bergen 11 skýjað Helsinki 18 léttskýjað Jan Mayen 1 skýjað Kaupmannah. 18 skýjað Narssarssuaq 8 skýjað Nuuk 6 skýjað Osló 16 úrkomafgr. Stokkhólmur 14 skýjað Þórshöfn 8 alskýjað Algarve 22 léttskýjað Amsterdam 14 skúr Aþena 30 heiðskfrt Barcelona 22 hálfskýjað Beriln 23 skýjað Chicago 18 alskýjað Feneyjar 23 léttskýjað Frankfurt 21 skýjað Hamborg 14 skúr Las Palmas 24 skýjað London 16 skýjað LosAngeles 16 alskýjað Lúxemborg 14 rígnlng Madrfd 24 skýjað Malaga 21 skýjað Mallorca 27 skýjað Miaml 28 skýjað Montreal 16 hálfskýjað NewYork 18 léttskýjað París 17 skýjað Róm 27 skýjað Vfn 22 léttskýjað Washington 18 hálfskýjað Winnipeg 16 þoka Morgunblaðið/Börkur DÓMKIRKJAN FEGRUÐ UNNIÐ hefur verið að því síðustu daga að mála klukkuturn Dómkirkjunnar í Reykjavík. Það stóð til í fyrra að mála tum- inn, en vegna vætutíðar varð ekki af því. Auk þess sem tuminn verð- ur fegraður núna verður málað yfír þá hluta kirkjunnar, sem verst era famir. Að sögn Þóris Stephensen, dómkirkjuprests, verður kirkjan öll máluð, ef blettun þessi tekst ekki vel. Eggjum stolið í Mývatnssveit: Eggjakassinn áður notaður hérlendis Húsavfk. Austurrikismaðurinn, sem lög- reglan handtók í Mývatnssveit á þriðjudagskvöld fyrir stuld á andareggjum, hafði í fórum sínum sérstakan kassa tíl flutn- ings á eggjunum. Greinilegt er á kassanum að hann hefur áður verið notaður við flutninga frá íslandi. Á miðvikudagskvöld var mannin- um gert að greiða 25 þúsund króna sekt fyrir stuld á 15 andareggjum. Eggin fundust flest í sérstökum krossviðarkassa sem maðurinn hafði meðferðis. Greinilegt er á kassanum að hann hefur áður verið notaður til flutninga héðan, en fyr- ir allmörgum áram. Á kassanum er gamalt merki Loftleiða og miðað við aðrar merkingar á honum hefur hann verið sendur frá Keflavík til Kaupmannahafnar og þaðan til Vínar. Við yfírheyrslur bar maðurinn að hann hefði komið hingað til lands til að kaupa lundaegg í Vestmanna- eyjum, en gat litlar skýringar gefið á því hvers vegna hann var staddur í Mývatnssveit. Hann kvaðst hafa haldið að öllum væri fijálst að taka andaregg og var hann með vasabók meðferðis, þar sem skráðar vora upplýsingar um íslenskar andarteg- undir. Maðurinn hefur nú verið fluttur til Reykjavíkur og í dag er honum gert að mæta hjá útlendingaeftirlit- inu. í framhaldi af því verður tekin ákvörðun um hvort manninum verð- ur vísað úr landi. Fréttaritari. Urðargaldur — ný ljóða- bók Þorsteins frá Hamri IÐUNN hefur gefið út nýja ljóða- bók eftir Þorstein frá Hamri. Nefnist hún Urðargaldur og geymir fimmtíu ljóð. Efni bókar- innar skiptist í eftirtalda fjóra meginþætti: I Gestir, II Ljóðlif, III Rætur og IV Svipdagar. Út- gefandi kynnir efni bókarinnar með svofelldum orðum: „Hlustum leingur, hlýðum á veð- ur og orð.“ Þannig kveður Þorsteinn frá Hamri í þessari nýju bók, í lok kafla sem nefnist Ljóðlíf. í skáld- skap hans heyram við jafnan dyn af veðram samtímans eins og þunga undiröldu. Skáldið minnir lfka á rætur þjóðmenningar okkar, land og sögu. Táknmynd þess gæti verið stakur, veðraður steinn, „viðnáms- legur í fasi“. í ljóðum Þorsteins felst einatt hæglætislegt en þraut- seigjufullt viðnám gegn glamri og sýndarmennsku umhverfísins. Ljóð- astíllinn í Urðargaldri er sem fyrr hjá skáldinu heill og traustur, nútí- malegur og klassískur í senn, í fullu samræmi við það viðhorf til sam- fellu menningarinnar sem í ljóðun- um birtist. Hér bregður skáldið fyrir sig ýmsum formbrigðum, bundnu formi og lausu. Árið 1984 gaf Ið- Þorsteinn frá Hamri unn út Ljóðasafn Þorsteins og Ný ljóð ári seinna. Urðargaldur er tíunda ljóðabók hans. Vart munu önnur samtímaskáld eiga brýnna erindi að rækja þegar alls er gætt, eða kunna betur til fþróttar sinnar." Kápu, spjaldpappír, saurblöð og titilblöð fyrir köflum bókarinnar teiknaði Guðrún Svava Svavars- dóttir. Bókin er 68 bls. Prentun annaðist Prenttækni en Amarfell hf. bókband.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.