Morgunblaðið - 12.06.1987, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 12.06.1987, Blaðsíða 56
ALHLIÐA PRENTÞJÓNUSTA 9 GuðjónÚLhf. 91-27233 I ÉBRUnRBÚT -AFÖRYGGISÁSTÆÐUM Nýjungar í 70 ár FÖSTUDAGUR 12. JÚNÍ 1987 VERÐ í LAUSASÖLU 50 KR. Fyrstu íslensku glasabömin fæðast líklega á næsta ári VERIÐ er að athuga möguleika hérlendis á að gera hjónum kleift að eignast börn með tæknifrjóvgun, þar sem egg eiginkonu er fijóvg- að með sæði eiginmannsins í tilraunaglasi og fijóvgaða egginu síðan komið fyrir í legi konunnar, sem fæðir barnið með eðlilegum hætti. Ragnhildur Helgadóttir heilbrigðisráðherra hefur skrifað Gunnlaugi Snædal prófessor bréf og óskað eftir að hann útbúi greinargerð um hvað þurfi til svo hægt sé að hefja þessar aðgerðir hér á landi á næsta ári. Gervifijóvganir hafa farið fram hér á landi lengi, aðallega með inn- fluttu sæði frá Danmörku. Nú er verið að athuga möguleika á að hefja hér aðgerðir til að hjálpa hjón- um sem ekki geta átt böm með eðlilegum hætti þótt eiginmaðurinn sé ekki ófijór, til dæmis ef virkar sáðfrumur mannsins eru of fáar. Aðgerðir sem þessar hafa ekki verið gerðar hér á landi en eru frek- ar algengar erlendis. Hinsvegar hafa íslenskir sérfræðingar yfir nægri þekkingu að ráða til að gera Þrír menn frá Andorra undir eftirliti ÞRÍR menn frá fríríkinu Andorra sem komu til landsins á þriðjudag eru nú undir eftirliti lögregl- unnar. Að sögn Böðvars Bragasonar, lögreglu- stjóra í Reyigavík, hefur eftirlit með ferðamönnum verið hert til muna vegna fundar utanríkisráðherra Atlantshafsbandalagsins. Mennina þijá skorti full- gilda pappíra. Óvenju mörgum útlending- um hefur undanfamar vikur verið vísað frá landinu við kom: una til Keflavíkurflugvallar. í flestum tilvikum hefur þeim láðst að fá rétta vegabréfsárit- un, em félitlir eða geta ekki framvísað farmiða frá landinu. Böðvar sagði að harðar hefði verið tekið á slíkum yfirsjónum en undir venjulegum kringum- stæðum. Andorra er sjálfstætt ríki án formlegrar stjómarskrár, mitt á milli Frakklands og Spánar. íbúamir em um 42.000 talsins og opinbert tungumál er kata- lónska. Alvarlega slasaður eft- ir fall af „vinnupalli MAÐUR slasaðist alvarlega laust fyrir kl. 18 í gær er hann féll af vinnupalli við Boðagranda 3 í Reykjavík. Ekki er vitað hvemig slysið bar að, en maðurinn var strax fluttur á Borgarspítalann. Hann hlaut - mjög alvarlega höfuðáverka. slíkar aðgerðir og er verið að kanna hvaða aðstöðu þurfi til. Ekki þarf að leggja konur inn á sjúkrahús og því þarf ekki mikið húsrými til að hægt sé hrinda þessu í framkvæmd. „Það er heldur öndvert kerfið hjá okkur ef við kostum allan þennan fjölda fóstureyðinga en legðum ekki í kostnað við að hjálpa fólki sem svona stendur á um og hefur alla burði til þess að fæða sitt bam og ala það upp saman," sagði Ragn- hildur Helgadóttir í samtali við Morgunblaðið. Ragnhildur sagði að þetta ætti að leysa úr vanda margra hjóna og draga að einhveiju leyti úr eftirspum eftir tökubömum, þótt auðvitað geti ekki öll bamlaus hjón notfært sér þessa aðgerð. Einnig kæmu ekki upp þau siðferðilegu og lögfræðilegu álitamál við þessar aðgerðir sem hafa komið vegna gervifijóvgana með sæði úr sæðis- bönkum. Morgunblaðið/Júlíus Á myndinni hér að ofan er flugvélin, sem hlekkt- ist á á flugvellinum á Hvolsvelli. Eins og sjá má á innfelldu myndinni, er nef flugvélarinnar mikið skemmt. Flugslys á Hvolsvelli: Steytti á ójöfnu í lendingu TF-SIR, lítilli einkaflugvél, hlekktist á i lendingu á flugvell- inum á Hvolsvelli í gær. Eftir að flugvélin hafði lent steytti nefhjólið, að sögn flugmanns- ins, á ójöfnu á flugvellinum og brotnaði undan. Flugmaðurinn hélt vélinni uppi, en þegar hægðist á henni, skall hún niður með þeim afleiðingum að farþegi vélarinnar hentist fram og skaddaðist í andliti. Hann var fluttur í Borgarspítalann. Flug- maðurinn slapp hins vegar með lítils háttar skrámur. Flugvélin er talin mikið skemmd. Sjá nánar á hls. 2 Framsóknarmenn svartsýnir á að stjórnarmyndun takist: Telja að bijóta muni á fyrstu efnahagsaðgerðum - vilja að utanríkisviðskipti heyri undir utanríkisráðu- neyti en Jón Baldvin vill að viðskiptaráðuneyti haldi þeim ÞRÁTT fyrir fimm klukkustunda langan viðræðufund í gær með formönnum Alþýðuflokks, Fram- sóknarflokks og Sjálfstæðisflokks er ekki að sjá að mikið hafi miðað í samkomulagsátt. Helsta ágrein- ingsmálið er eins og fyrr um fyrstu aðgerðir í efnahagsmálum og aukna skattheimtu. Morgun- blaðið hefur heimildir fyrir því að framsóknarmenn séu nú svart- sýnir á að myndun þessarar ríkisstjórnar takist og telji að ágreiningur um fyrstu aðgerðir til viðnáms verðbólgu sé svo mik- m að hann sé nánast óyfirstígan- legur. Á fundinum ræddu þeir Þorsteinn Pálsson, Jón Baldvin Hannibalsson og Steingrímur Hermannsson um ágreiningsmálin og sögðust telja, að fundi loknum, að ágreiningur í land- búnaðar- og húsnæðismálum væri ekki óyfirstíganlegur. Þeir hefðu hins vegar fyrirvara á um að sam- komulag gæti tekist vegna ágrein- ings um fyrstu aðgerðir til viðnáms verðbólgu. Framsóknarmenn telja ágreininginn svo mikinn, að á honum geti brotið. Formennimir ræddu einnig skipt- ingu ráðuneyta og er svo að skilja úr herbúðum framsóknarmanna, að , - 'í Snæddu langvíuegg og saltfisk Morgunblaðið/KGA Þeir Steingrímur Hermannsson, Jón Baldvin Hannibalsson og Þorsteinn Pálsson hófu fund sinn á þjóðlegri máltíð í húsakynnum fjármálaráðuneytisins í Borgartúni 6 í hádeginu í gær. Á matseðlinum var m.a. saltfiskur og svartfuglsegg (langvíuegg en ekki álkuegg) og kræsingunum skoluðu formennimir svo niður með Agli sterka. samkomulag gæti tekist um að Þor- steinn Pálsson yrði forsætisráðherra. Það mun á hinn bóginn háð því að Steingrímur Hermannsson fengi ut- anríkisráðuneytið og utanríkisvið- skiptin, sem hafa heyrt undir viðskiptaráðuneytið, en Jón Baldvin mun gera kröfu til þess að Alþýðu- flokkurinn fái í sinn hlut fjármála- ráðuneyti og viðskiptaráðuneyti með sama verksviði og það hefur í dag. Jón Baldvin hefði þá f hyggju að taka sjálfur við viðskiptaráðuneyt- inu. Framsóknarmenn, sem Morgun- blaðið ræddi við í gærkveldi, benda á að það hafi lengi verið á döfinni og Þorsteinn Pálsson og fleiri hafí iðulega bent á skynsemi þess að setja utanríkismál og utanríkisvið- skipti undir sama ráðuneyti. Þetta sé því eðlileg krafa. Segjast þeir ekki munu hlusta á að ákveðið verði að hverfa frá slíkum áformum, ein- ungis fyrir þær sakir að framsóknar- menn eigi að taka við ráðuneytinu. Þeir segjast aftur á móti telja að þessar viðræður geti siglt í strand áður en þessi nýja verkaskipting ráðuneyta kemur alvarlega til um- ræðu. „Ég hef miklu meiri trú á því að það strandi á ágreiningi um hvaða leiðir verði famar í viðnámi gegn verðbólgu," sagði einn forystumaður Framsóknarflokksins í samtali við Morgunblaðið í gærkveldi. Ekki hefur verið ákveðið með hvaða hætti viðræðunum verður framhaldið, né hvenær. Sjá nánar frétt á bls. 31
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.