Morgunblaðið - 19.03.1988, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 19.03.1988, Blaðsíða 1
72 SÍÐUR B OG LESBÓK 66. tbl. 76. árg. LAUGARDAGUR 19. MARZ 1988 Prentsmiðja Morgunblaðsins Þyrlu sandinista grandað innan landamæra Hondúras Óljósar fregnir um undanhald sandinista Washington, Managua, Tegucigalpa. Reuter. CARLOS Lopez Contreras, utanríkisráðherra Hondúras, sagði að F-5- orrustuþotur flughers landsins hefðu grandað sovézkri þyrlu í eigu hers Nicaragua á lendingarsvæði Hondúrasmegin landamæra ríkjanna. Þoturnar gerðu einnig árás á sveitir sandinista innan landamæra Nicaragua. í gærkvðldi virtist sem hermenn Nicaragua hefðu hörfað frá Hondúras, en bandariska utanríkisráðuneytið sagðist ekki geta staðfest að svo væri. Fregnir um undanhald sandinista stönguðust á. Særðir hermenn stjómarhers sandinista í Nicaragua haltra til þyrlu, sem flutti þá á brott frá landamærum Hondúras og Nic- aragua. Til harðra bardaga kom milli hers sandinista og kontra- skæruliða á landamærunum og er fullyrt að sandinistar hafi ráð- ist inn í Hondúras í sókninni gegn skæruliðum. „Sovézkum loftvamarskeytum var skotið á þotumar af fjalli innan okkar eigin landamæra og skotið var af loftvamarbyssum," sagði Lopez Contreras. Hann sagði að flugvél- amar hefðu laskað stöðvar, sem hermenn sandinista hefðu náð úr höndum kontra-skæruliða þegar stjómarher Nicaragua réðst inn í Hondúras á miðvikudag. Herþyrl- unni hefði verið grandað á flugvelli, sem kontra-skæruliðar misstu í innrásinni. Öðrum þyrlum hefði tekizt að flýja til Nicaragua. Lopez Contreras sagði að milli 1.000 og 1.500 stjómarhermenn Nicaragua hefðu tekið þátt í innrás- inni. Komið hefði til bardaga milli Háttsettur Austur- Þjóðveiji flýr vestur: Feitur biti fyrir Vest- ur Þjóðveija Bonn, Reuter. HÁTTSETTUR austur-þýskur embættismaður, sem þekkir njósnakerfi austurblokkarinnar út og inn, er flúinn til Vestur- Þýskalands að þvi er vestur- þýskir embættismenn sögðu. I gær. í gærkvöldi var svo skýrt frá þvi að ritari i ráðuneyti i Bonn hefði verið handtekinn vegna gruns um að hann hefði njósnað fyrir Austur-Þjóðveija. Embættismennimir staðfestu frétt dagblaðsins Bild en í henni segir að Fritz Fuchs, varaforstjóri flutningafyrirtækisins Deutrans, sem er í ríkiseigu, hafi yfirgefið ættjörð sína er hann var á viðskipta- ferðalagi fyrr í mánuðinum. „Þetta er einn mesti fengur síðan 1979," hafði Bild eftir starfsmanni vestur-þýsku leyniþjónustunnar, BDN. Að sögn blaðsins er nú verið að yfírheyra Fuchs. Að sögn leyniþjónustumanna em margir af þeim 3.000 flutningabílum Deutrans, sem aka í hveijum mán- uði milli Austur- og Vestur-Þýska- lands, búnir fuilkomnum hlustunar- tækjum. / Ritarinn, sem grunaður er um að hafa njósnað fyrir Austur-Þjóðveija, er ógift kona á fimmtugsaldri. Hún starfaði í ráðuneyti, sem fjaliar um þróunaraðstoð við erlend ríki. Hermt er að hún hafi gengið til þjónustu við Austur-Þjóðveija árið 1975 fyrir tilstilli austur-þýzks njósnara, sem hún féll fyrir. þeirra og kontra-sveita. Stjómarher Hondúras hefði ekki blandast í átök- in. Að sögn Elliotts Abrams, aðstoð- amtanríkisráðherra Bandaríkjanna, gerðu flugvélar frá Hondúras árás á skotmörk í Nicaragua í fyrradag, í fyrrinótt að íslenzkum tíma. Frétta- menn, sem flogið var að landamær- unum frá Managua, höfuðborg Nic- aragua, hefðu hlaupið í skjól er ein sprengja sprakk skammt frá þeim. Aðrar sprengjur hefðu fallið innan landamæra Hondúras. Manuel Esp- inosa, upplýsingamálaráðherra Hondúras, sagði F-5-þotur hafa sko- tið fimm flugskeytum á sveitir sandinista í héraðinu Bocay í Hond- úras og Jinotega í Nicaragua og síðan flogið til baka undan kúlnahrið sandinista. Spenna hefur aukizt á landamær- unum í kjölfar árásarinnar. Herir beggja ríkja hafa fiutt liðsstyrk til landamæranna. Jose Azcona, forseti Hondúras, gaf Daniel Ortega, leið- toga Nicaragua, í gær frest til að draga heri sína frá Hondúras. Ekki var skýrt frá hvenær sá frestur renn- ur út. Daniel Ortega, leiðtogi Nic- aragua, lagði í gær til að alþjóðleg rannsókn færi fram á því hvað hæft væri í þeim ásökunum að stjómar- her Nicaragua hefði ráðizt inn yfir landamæri Hondúras. Frank Carlucci, vamarmálaráð- herra Bandaríkjanna, sagði að bandarísku fallhlífarhermennimir í Hondúras myndu ekki taka þátt í hemaðaraðgerðum. Þeir yrðu við æfingar um 150 kílómetra frá landa- mæmnum og yrðu kallaðir heim eftir um 10 daga. Sjá kort af átaksvæðinu á bls. 31. Reuter Yfirlýsing í lok heimsóknar Gorbatsjovs til Júgóslavíu: Konunúmstan'ki mega fara sínar eigin leiðir Brezhnev-kenningin um takmarkað forræði formlega numin úr gildi? Dubrovnik. Reuter. í SAMEIGINLEGRI yfirlýsingu, sem gefin var út við lok opin- berrar heimsóknar Míkhaíls Gor- batsjovs, leiðtoga Sovétrikjanna, til Júgóslavíu var því heitið að Yfirgefur Nor- iega Panama? Panam&borg. Reuter MANUEL Antonio Noriega, hershöfðingi, valdamesti maður Panama, er sagður hafa fallizt á tilboð um að fara úr landi, annað hvort til Frakklands eða Spánar, að sögn bandarfskrar sjónvarpsstöðvar. Neyðarástandi var lýst yfir í Panama í gær tíl þess að koma á röð og reglu í landinu. Bandaríkjastjóm hefur hvatt til þess að Noriega verði settur frá völdum eftir að hann var kærður fyrir aðild að fíkniefnasmygli. Hermt er að hann hafi nú fallizt á að fara úr landi gegn því að verða aldrei fangelsaður. Hann mun fá að hafa auðævi sín með- ferðis. Panama er nánast gjaldþrota þar sem Bandaríkjamenn hafa frestað greiðslum fyrir afnot af Panamaskurðinum og fryst inn- stæður Panamabúa í bandarískum bönkum. Landsmenn hafa mót- mælt kröftuglega að fá ekki laun sín greidd og á miðvikudag var gerð tilraun til að steypa Noriega. Sjá „Fimm yfirmenn...“ á bls. 30. ríkin myndu virða skilyrðis- lausan rétt allra kommúnista- ríkja til þess að fara sínar eigin leiðir. Er yfirlýsingin talin sögu- leg og að með henni hafi yfir- völd í Moskvu heitið þvi að blanda sér ekki í innanrikismál fylgiríkja Sovétríkjanna. I yfirlýsingunni er tekið fram að hvorki Sovétmenn né Júgóslavar muni reyna að þröngva sínum hug- myndum og þjóðfélagsgerð upp á aðrar þjóðir. Með yfirlýsingunni er svo litið á sem Gorbatsjov hafí form- lega numið svonefnda Brezhnev- kenningu um takmarkað sjálfsfor- ræði kommúnistaríkja úr gildi. „Með þá sannfæringu að leiðar- ljósi að enginn hafi einkarétt á sannleikanum lýsum við yfir því að hvorugt ríkjanna mun reyna að þröngva sínum hugmyndum um þjóðfélagsþróun upp á aðra. Komm- únistar, verkamenn, sósíalistar, jafnaðarmenn, þjóðfrelsisöfl og önnur framsækin öfl og flokkar hafa skilyrðislausan rétt til þess að velja sér sínar eigin umbótaleiðir," sagði í yfirlýsingunni. I henni sagði ennfremur að bæði ríkin teldu sérstaklega mikilvægt að alþjóðasamningar, sem bönnuðu hemaðarofbeldi, innrás í önnur ríki, hertöku landssvæða og sérhver af- skipti af málefnum annarra rílqa, yrðu virtir. Sjá „Júgóslavar fá að fara eigin Ieiðir“ á bls. 30. Bretland: Mesta aukn- ing lands- framleiðslu í 15 ár London, Reuter. MEIRI vöxtur varð í brezku efna- hagslífi í fyrra en um 15 ára skeið, eða frá því i olíukreppunni árið 1973, að sögn brezku hag- stofunnar. Landsframleiðsla Breta jókst um 4,4% í fyrra og er það mesta árlega hækkun frá árinu 1973, er aukning- in varð 7,25%. í hitteðfyrra, árið 1986, jókst landsframleiðsla Breta um þijú prósent. Spáð er þriggja prósentu aukningu landsframleiðsl- unnar á yfirstandandi ári. Að sögn hagstofunnar jókst al- menn neyzla um 5% í fyrra, miðað við 6% aukningu árið áður. Verzlun með heimilistæki jókst um 9% í fyrra en 19% árið áður.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.