Morgunblaðið - 27.09.1989, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 27.09.1989, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. SEPTEMBER 1989 ' 19 Húseigendafélagið stofiaar skattadeild: Lækkun skatts af íbúðarhúsnæði er allra hagur - segir Þuríður Pálsdóttir söngkona „VIÐ viljum vinna að því að lækka eignaskatta, sem fólk greiðir af íbúðarhúsnæði sínu, því það er allra hagur. Eigna- skattur var hækkaður stórlega síðastliðið haust og sú hækkun kom sérstaklega illa niður á ein- staklingum,“ sagði Þuríður Páls- dóttir, söngkona, í samtali við Morgunblaðið. í kvöld heldur Húseigendafélagið fúnd, þar sem stoinuð verður sérstök skatta- deild ihnan félagsins, sem mun beita sér fyrir lækkun eigna- skattsins. Þuríður hefur verið í forsvari þess hóps, sem barist hefur fyrir lækkun éignaskatta á íbúðarhús- næði. „Einstaklingar eru í lægra skattþrepi en hjón og greiða allt að 3-4 sinnum hærri skatta af sams konar skuldlausu húsnæði," sagði hún. „Skattleysismörk einstaklinga liggja við 2,5 milljóna skuldlausa eign, en hjóna við 5 milljónir. Hærra þrep skattsins er 7 milljónir hjá ein- staklingum og það þarf ekki stóra íbúð til að ná því verðmæti. Þar er um hreina eignaupptöku að ræða. Hins vegar er öllu sjaldgæfara að hjón eigi skuldlausa eign upp á 14 milljónir og þurfi að greiða af henni hærri skatt. Þá hefur fasteignamat hækkað mjög mikið og er miklu hærra á höfuðborgarsvæðinu en landsbyggðinni. Þannig er fólki mismunað eftir hjúskaparstöðu og búsetu og ég tel það vera mun ódýr- ara fyrir þjóðfélagið að einstakling- um sé gert kleift að búa í húsnæði sínu, en þurfi ekki að hrekjast úr því.“ « Þuríður sagði, að þó eignaskatt- urinn hefði oft verið kallaður „ekknaskattur" vegna þess hve illa hann kæmi augljóslega við ekkjur sem eigi skuldlausar eignir, þá væri um hagsmunamál allra að ræða. „Á fundinum í kvöld viljum við sjá sem flesta, því þetta mál kemur öllum við og við verðum að standa vörð um sjálfsögð mannrétt- indi,“ sagði Þuríður Pálsdóttir. Fundur Húseigendafélagsins í kvöld verður haldinn í Iðnaðar- mannahúsinu að Skipholti 70 og hefst hann klukkan 20. HAUSTÖNN Tómstundaskóla MFA hófst í gær þriðjudag og stendur í tíu vikur. Verður að venju boði upp á fjölda mismun- andi námskeiða og eru þau að þessu sinni 61 talsins. Má sem dæmi nefna Sturlungunámskeið Húsaleiga hækkar um 3,5% LEIGA fyrir íbúðarhúsnæði og atvinnuhúsnæði sem sam- kvæmt samningum fylgir vísitölu húsnæðiskostnaðar eða breytingum meðallauna hækkar um 3,5% frá og með 1. október 1989 segir í frétta- tilkynningu frá Hagstofu Is- lands. Reiknast þessi hækkun á þá leigu sem er í september 1989 og leiga helst síðan óbreytt næstu tvo mánuði, þ.e. í nóvem- ber og desember 1989. Þuríður Pálsdóttir og námskeið er veitir innsýn í heim fjármála. Kennsla fer fram í Iðnskólanum og fer innritun fram á skrifstofú skólans að Skóla- vörðustíg 28 frá klukkan 10-18 daglega. Indriði G. Þorsteinsson, rithöfund- ur, er í forsvari fyrir fyrsta Sturlung- unámskeiði Tómstundaskólans sem ber heitið „Niðurlag Sturlunga". Á námskeiðinu mun Indriði taka fyrir sögu Sturlu, viðureign hans og Giss- urar og endalok ættárveldis Sturl- unga. Indriði mun m.a. varpa fram spurningunni hvort Sturla Þórðarson hafi verið fyrsti íslenski blaðamaður- inn, en hann telur, að Sturla hafi ritað samtíðarsögu sína eins og blaðamaður myndi gera nú á tímum. Námskeiðið fer fram með fyrir- lestrum og umræðum en í kjölfar þess verður efnt til ferðar á söguslóð- ir eins og á fyrri námskeiðum skólans í fornsögunum. Áður hefur þannig verið farið á slóðir Njálu og Laxdælu og m.a.s. til Færeyja og Orkneyja. Stefnt er að því af hálfu skólans að fá fleiri til liðs og taka fyrir aðra þætti Sturlungu síðar í vetur. Af öðrum námskeiðum skólans í haust má nefna námskeið á sviði Tómstundaskóli MFA: Boðið upp á 61 námskeið Þróun samræmds efuahagssvæðis EB og EFTA: Búist við að bandalögin gangi til samningaviðræðna - sagði Jón Baldvin Hannibalsson í ræðu hjá Evrópuráðinu JÓN Baldvin Hannibalsson utanríkisráðherra sem nú fer með for- mennsku í EFTA-ráðinu hélt ræðu hjá þingi Evrópuráðsins í Strass- borg 23. september síðastliðinn, í tilefiii þess að þingið fjallaði um málcfni Fríverslunarsamtaka Evrópu (EFTA). Sagði utanríkisráð- herra m.a. að búist væri við því að sameiginlegur ráðherrafúndur EFTA og EB í lok ársins myndi ákveða að ganga til samningavið- ræðna innan hins evrópska efiiahagssvæðis sem bandálögin eiga aðild að. Áður hafði Anders Björck, forseti þings Evrópuráðsins, ávarpað utanríkisráðherra. Þar kom m.a. fram að um málefni EFTA væri fjallað með þessum hætti annað hvert ár. Áheyrnarfúlltrúar komu að þessu sinni frá Ungverjalandi, Póllandi, Sovétrlkjunum og Júgóslavíu. Jón Baldvin rakti aðdraganda þess að fjörkippur hefði komið í samstarf Evrópubandalagsins (EB) og EFTA. Á leiðtogafundi EFTA í Ósló um miðjan mars hefði í loka- yfirlýsingu verið gert ráð fyrir því, „að samningaviðræður milli EFTA og EB leiddu til fyllsta mögulega samkomulags um óhindraðan flutn- ing á vöru, þjónustu, ijármagni og fólki, auk náinnar samvinnu á sviði rannsókna og þróunar, mennta- máia, umhverfismála og tæki til félagslegra þátta samrunans og samgangna með það að markmiði að koma á einu samræmdu evr- ópsku efnahagssvæði." Jón Baldvin skýrði frá því að leið- togar EB hefðu í júní sl. óskað eft- ir því að á sameiginlegum ráðherra- fundi EB og EFTA í Strassborg í byijun desember n.k. kæmu fram raunhæfar niðurstöður þeirrar könnunar sem nú fer fram. Jón Baldvin ■ lýsti stöðu mála nú með þessum orðum: „Eins og lýst var í Óslóaryfirlýsingunni hefur EFTA í þessum fyrsta áfanga staðið við skuldbindingar sínar og sýnt fram á vilja til að athuga framtíðarsam- vinnu við Evrópubandalagið sem heildarverkefni. I upphafi viðræðn- anna bað bandalagið okkur um að kynna sameiginlega afstöðu EFTA í ýmsum veigamiklum málum sem vinnuhóparnir fjalla um fremur en að endurtaka það sem þegar er vit- að um afstöðu einstakra EFTA- ríkja. Þessari áskorun var tekið af EFTA og við höfum síðan í þessum könnunarviðræðum sýnt fram á möguleika EFTA-ríkjanna til að koma fram sem samhljóða heild. I viðræðum okkar hefur EFTA í grundvallaratriðum samþykkt að nota „acquis communautaire", þ.e. það sem þegar hefur verið sam- þykkt innan EB, sem grundvöll við- ræðna um mögulegan samning. Hins vegar verðum við að hafa í huga að til eru svið, þar sem EFTA-ríkin hafa ítarlegri reglur og reglugerðir, og svið þar sem erfitt er fyrir EFTA-ríkin að aðlaga sig reglum bandalagsins að fullu.“ Jón Baldvin vék að niðurstöðu fjögurra vinnuhópa EB og EFTA sem íjölluðu um ýmsar hliðar hugs- anlegs samstarfs. Hann sagði að vinnuhópur I, sem fjallaði um óhindraðan flutning vöru, hefði samþykkt að halda möguleikum opnum á því hvort fríverslunar- samningur eða tollabandalag væri betri kostur innan hins evrópska efnahagssvæðis, EES. Vinnuhópur V er sá eini sem ekki hefur lokið störfum en hann fjallar um lagaleg og stofnanaleg atriði. Jón Baldvin sagði að hópur- inn mýndi fram í miðjan næsta mánuð athuga eftirfarandi lagale’g atriði: „Bein réttaráhrif, eftirlit og fullnustu sameiginlegra reglna og samræmda túlkun, leiðir til lausnar deilumála, svo og skipulag og að- ferðir við ákvarðanatöku innan evr- ópska efnahagssvæðisins.“ Sagði Jón Baldvin að búist væri við því að næsti sameiginlegi ráð- herrafundur EB og EFTA í desem- ber myndi veita samþykki sitt fyrir því að samningaviðræður hæfust milli bandalaganna um þróun evr- ópsks efnahagssvæðis. Alnæmi - stuðningur - fræðsla - ráðgjöf Námsteftia 27. september ALNÆMI, stuðningur - fræðsla - ráðgjöf - er yfirskrift námstefnu sem Rauði kross íslands, lands- nefiid uin alæmisvarnir og Sam- tök áhugafólks um alnæmisvand- ann efiia til í dag, miðvikudag, í fúndarsal Hótels Lindar að Rauð- arárstíg 18, Reykjavík. í frétt frá Rauða Kross íslands segir að markmið námstefnunnar sé að fjölga þeim aðilum á landinu sem geta veitt nauðsynlegar upplýs- ingar um málefni er varða alnæmi og er hún einkum ætluð fólki í heil- brigðisstéttum, lögreglumönnum, sjúkraflutningamönnum og öðrum áhaustönn handmennta, lista, tungumála og fjölmiðlunar. Einnig hefst nú í fyrsta sinn kvikmyndaumfjöllun sem skipt verður eftir tegund kvikmynda. Þá verða hagnýt námskeið í tengslum við vinnuna og heimilisreksturinn.. Sem dæmi um nýjung má nefna námskeiðið „Að rata um peninga- frumskóginn", þar sem gefin verður innsýn í heim fjármála. þeim er vinna félagsleg störf. Námstefnan verður sett klukkan 9 og fyrsti fyrirlesturinn er um al- næmi og meðferðarmöguleikar þess, sem Haraldur Briem, læknir flytur. Auður Matthíasdóttir, fé- lagsráðgjafi ræðir um félagslegan stuðning Veturliði Guðnason um alnæmi frá sjónarhóli aðstandenda, Ingimar Sigurðsson, deildarstjóri fjallar um lög og reglugerðir varð- andi alnæmi og Sigríður Jakobí- nudóttir, hjúkrunarfræðingur kynn- ir landsnefnd um alnæmisvarnir og landsáætlun hennar. Eftir hádegið fjallar Sten Petter- son, gestafyrirlesari, um samkyn- heigð og alnæmi og þýðir Guðrún Gísladóttir mál hans á íslensku. Hildur Helgadóttir, hjúkrunarfræð- ingur íjallar um ráðgjöf og stuðning við smitaða. Auk fyrirlestranna verður sýnt efni af myndböndum og námsstefn- unni lýkur með umræðum. Náms- stefnuslit er áætluð klukkan 16.30.. “ni INNLENT, * Sinfóníuhljómsveit Islands: Verk eftir Áskel Másson frumflutt FYRSTU áskriftartónleikar Sin- fóníuhljómsveitar íslands á fer- tugasta starfsári hennar verða fimmtudaginnn 28. september í Háskólabíói og hefjast klukkan 20.30. Hljómsveitarstjóri verður Petri Sakari, aðalhijómsveitar- stjóri Sinfóníuhljómsveitarinnar og einleikari Christian Lindberg, básúnuleikari. Á efiiisskránni verða þrjú verk: Básúnukonsert eftir Áskel Másson sem er frum- flutt, Dóttir norðursins eftir Jean Sibelius og Scheherazade eftir Rimsky-Korsakoff. í frétt frá Sinfóníuhljómsveitinni segir um básúnukonsert Áskels: Áskell samdi konsertinn fyrir Svíann Christian Lindberg fyrir um tveimur árum. Christian Lindberg lærði á básúnu 17 ára gamall og 19 ára var hann ráðinn til Konung- legu óperuhljómsveitarinnar í Stokkhólmi. Hann sat þó ekki lengi í hljómsveit, heldur ákvað að reyna fyrir sér sem einleikari á básúnu og hefur, frá því hann kom fyrst fram sem slíkur 25 ára gamall, verið eftirsóttur víða um lönd. Hann hefur m.a. leikið með Fílharmóníu- sveitinni í Hong Kong-sinfóníu- hljómsveitunum í Queensland og Milwaukee og BBC-hljómsveitun- um í Manchester og Wales, svo eitt- hvað sé nefnt. Lindberg er braut- ryðjandi sem einleikari á básúnu og hefur einbeitt sér fyrst og fremst að nútímatónlist og mörg nútíma- skáld hafa skrifað verk fyrir hann.“ Petri Sakari, aðalhljómsveitar- stjóri Sinfóníuhljómsveitarinnar hefur nú annað starfsár sitt með hljómsveitinni. Starfsárið sem nú er að heíjast er hið fertugasta í sögu Sinfóníuhljómsveitarinnar. Þann 9. mars 1990 verða afmælis- tónleikarnir og þess minnst að þá verða 40 ár liðin síðan hljómsveitin hélt sína fyrstu tónleika. Viðskiptatækni 128 klst. Markaðstækni 60 klst. Fjármálatækni 60 klst. Sölutækni 36 klst. Hringdu í síma 62 66 55 og fáðu sendan bækling Viðskiptaskólinn Borgartúni 24, sími 6 2 6 6 5 5

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.