Morgunblaðið - 27.10.1991, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 27.10.1991, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUÐAGUR 27. OKTÓBER 1991 Hannes hefur ekki viljað tjá sig um gang samningavið- ræðnanna á mieðan á þeim stóð. Hann segir að slíkt komi oftar en ekki í bakið á þeim sem séu að tala við fjölmiðla, á meðan mál séu óútklj- áð. Hann segist hafa ákveðnar efa- semdir um ágæti þess að tjá sig nú við ijölmiðla, eftir að samningurinn um evrópskt efnahagssvæði er í höfn, því slíkt gæti spillt fyrir öðrum samn- ingaviðræðum siðar meir. Hann læt- ur sig nú samt sem áður hafa það í þetta sinn. — Hvernig leið Hanoesi Hafstein, aðalsamningamanni Islands, úti í Lúxemborg aðfaranótt þriðjudags- ins, þegar samningarnir voru endan- lega í höfn? „Mér leið afskaplega vel. Ef ég hefði farið út í „praxís” í lögfræð- inni, þá hefði ég lýst þessari tilfinn- ingu sem sigurtilfmningu. Auðvitað er þetta ekki persónulegur sigur fyr- ir mig, en ég tel að við íslendingar höfum náð fram nokkum veginn öllu sem við vildum ná fram og sem eng- inn möguleiki var að ná fram, nema í þessu samstarfi.” — Fengum við þá allt fyrir ekkert? „Vissulega er það svo að með þess- um samningi eykst samkeppni hér á ýmsum sviðum og rekstur verður sumum þar af leiðandi erfiðari. Sum- ir þeirra sem í harðri samkeppni munu lenda telja vafalaust að við höfum ekki fengið allt fyrir ekkert. í þeirri auknu samkeppni sem verður er það augljóst að einhverjir verða undir og um eitthvert skammtímatap getur orðið að ræða, á meðan að nauðsynleg aðlögun fer fram. Ég er hiklaust þeirrar skoðunar að fyrir nauðsynlega framþróun í þjóðfélag- inu, þá er stigið stórt skref með þess- um samningi.” — Hversu mikið sjónarspil var þessi lokatörn ykkar úti í Luxem- borg? Opinberlega voru ráðherrar ríkisstjómarinnar ihinna en hóflega bjartsýnir. Hvað eftir annað heyrðust setningar eins og „allt í járnum enn”, „getur brugðið til beggja vona”, eða „ræðst ekki fyrr en á síðustu stundu”. Var raunveruleg bjartsýni á hagfellda niðurstöðu fyrir íslend- inga miklu meiri en opinbera hliðin gaf til kynna? Stundum var þetta leikaðferð og stundum byggðist þetta á raunsæu mati. Þegar viðræðurnar runnu út í sandinn í júlí, þá var það nú meðal annars vegna þess að hlut- irnir voru ekki nema hálfkaraðir. En þessa síðustu daga viðræðnanna í Lúxemborg um síðustu helgi held ég megi segja, að bjartsýni Islending- anna hafi sveiflast frá einu prósentu- stigi allt upp i 99%. Sjálfur var ég aldrei sannfærður, fyrr en samning- urinn var í höfn.” Hannes segir þessar samningavið- ræður hafa verið miklu flóknari held- ur en aðildarviðræður að Evrópu- bandalaginu séu og taki yfir miklu stærra svið. „Þegar land gengur inn í EB, þá tekur viðkomandi land ein- faldlega yfír allt reglugerðarverk Evrópubandalagsins og fær sjálf- krafa aðild að öllum stofnunum, nefndum og ákvörðunum EB. Það er grunnregla hjá Evrópubandalag- inu að þeir breyta ekki reglum eða veita neinu aðildarríki varanlega undanþágu. Þegar af þeirri ástæðu er útilokað fyrir ísland að sækja um aðild að EB, vegna þess að þar með yrðum við sjálfkrafa aðilar að sam- eiginlegri sjávarútvegsstefnu banda- lagsins.” — Þegar viðræðurnar sigldu í strand í sumar, þá vafðist það meira að segja fyrir samningamönnum EFTA við hvem verið væri að semja. Var verið að semja við framkvæmda- stjórn EB, skrifstofuveldi bandalags- ins eða einstök aðildarríki? „Þetta er miklu flóknara en svo að við höfum bara verið að semja við framkvæmdastjómina, því í þess- um viðræðum var hún algjörlega háð því hvað aðildarríkin vildu og öll rík- MARGIR HÉLDU AÐ ÉG t • • in þurfa að samþykkja þann samning sem tókst. Það er ekkert sem heitir með vilja meirihluta í þessum efnum. Framkvæmdastjórnin var því í því erfiða hiutverki að semja við eigin aðildarríki og finna sameiginlegan flöt innbyrðis, sem væri jafnframt viðunandi fyrir samingsaðilana, þ.e. okkur hjá EFTA-ríkjunum. Hún þurfti því jafnhliða að standa í tveim- ur samningaferlum.” — Nú hefur Jón Baldvin Hanni- balsson utanríkisráðherra borið mik- ið lof á embættismann, þakkað aðal- samningamanni íslands að miklu leyti þann árangur sem náðist. Þetta er óvenjulegt þegar stjórnmálamaður og embættismaður eiga í hlut. Hvers vegna varst þú réttur maður á réttum stað, eins og utanríkisráðherra komst að orði? „Ég met orð Jóns Baldvins mikils í þessum efnum og er ánægður með að hann skuli hafa rofið það sem þú nefnir hefð. Þetta með réttur maður á réttum stað hlýtur að stafa af mati utanríkisráðherrans á því hvað kom út úr samningunum á endan- um.” ,_ — Hefur ekki persóna Hannesar Hafstein eitthvað með þetta mat að gera? Hér glottir Hannes háðslega og segir: „Heyrðu nú, þú ert komin út á brautina Hjemme hos ...!” — Jón Baldvin og starfsmenn ut- anríkisráðuneytisins hafa lýst þér svo í mín eyru, að þú sért óhemju skap- stór, þijóskur með afbrigðum, fastur fyrir sem klettur, tillitslaus þegar því er að skipta og ósveigjanlegur með öllu. Með fylgja umsagnir í þá veru að þú sér vinnuþjarkur, afar hæfur embættismaður, sumir segja „brill- iant”, að þú hafir mjög fágaða kímni- gáfu, en farir bara allt of fínt með hana. Ekki beinlínis hægt að segja að þessi mannlýsing eigi við um hinn dæmigerða „diplomat”, eða hvað? „Auðvitað reyndi ég að sýna ann- arra vandamálum skilning. Á mörg- um sviðum taldi ég mig vera að sýna lipurð og standa með félögum okkar í EFTA, því við urðum auðvitað að finna samnefnara á fjöldamörgum sviðum fyrir það sem væri afstaða EFTA. En ég taldi alltaf jafn þýðing- armikið, stundum þýðingarmeira, að fá skilning félaga okkar í EFTA á því að þetta mál eða annað væri meira virði fyrir ísland en önnur lönd. Það yrði því að hafa forgang og fé- lagar okkar yrðu að sýna einingu í samstöðunni með okkur til þess að við næðum einhveijum árangri. Við skilgreindum fyrir okkur hveijir væru okkar raunverulegu hagsmunir og hvar væri hægt að gefa eftir. Eftir það hvikuðum við aldrei frá okkar aðalhagsmunum, ekki í hinu minnsta smáatriði.” — Svo við víkjum aðeins að sam- skiptum þínum og utanríkisráðherra. Ég veit að þið töluðust varla við þegar Jón Baldvin varð utanríkisráð- herra haustið 1988 og þú varst þá ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytis- ins. Hvað gerir það að verkum að þið starfið svo vel saman nú 'og ber- ið hvor öðrum svo vel söguna? Hannes þegir í smástund, lítur svo þungbrýnn á mig og spyr? „Hefur nú einhver sagt þér það líka?” Glott- ir svo og segir: „Ætli ráðherrann meti ekki það í fari mínu nú sem kosti, sem hann mat sem galla þá! Ætli honum hafi ekki þótt ég of ráðríkur i ráðuneytisstjórastarfinu.” — Er það kannski kostur að vera skapstór í samningaViðræðum, en galli í utanríkisþjónustu? Aftur stutt þögn: „Þú spyrð erf- iðra spurninga. Ég veit ekki hvort ég er skapstór. Ég er harður á minni meiningu. Það kannski hjálpar til. Hún þarf ekki að vera rétt, alltaf.” — Én hún er það nú oftast, eða hvað? „Já. Ég hugsa að ég hefði átt afskap- lega erfítt með að verða stjórnmála- maður. Stjórnmálamaður þarf að gefa svo mikið eftir af skoðunum sínum. Vissulega þurfti ég að gefa eftir á ýmsum sviðum, í þessum samningaviðræðum, en ekki í neinu sem skipti máli. Það var oft sagt við mig að við værum í þeirri skrýtnu aðstöðu að vera með einar hæstu þjóðartekjur í Evrópu og ég var spurður hvað það væri eiginlega sem við vildum fá gefins.” Og hveiju svaraði aðalsamninga- maður íslands þá? „Ég sagði að ég væri í samningum sem ættu að verða öllum til hags- bóta, en ég væri ekki í neinum góð- gerðaræfingum. Það væru menn á öðrum vígstöðvum í þeim hlutverk- um, það er innan Sameinuðu þjóð- anna.” — Ég hef fengið fregnir að utan um það að samningamenn EB og jafnvel ákveðnir samningamenn EFTA hafi í þessum viðræðum verið skíthræddir við þig. Þú ert sagður hafa beitt ógnvekjandi svipbrigðum þegar þér mislíkaði í meira mæli en allir hinir samningamennirnir til samans. Var þetta látbragð hluti af leikfléttu samningamannsins? „Það hefur kannski sést svona vel á mér hvenær ég var óánægður, og það er ekkert leyndarmál að ég leyfi því alveg að koma fram þegar ég er óánægður. Þá er ég ekkert allt of brosmildur. Menn hafa sjálfsagt margir haldið að ég kynni ekki að brosa. Nú, stundum var ég í þeirri stöðu á samningafundum að það var ákveðinn talsmaður fyrir EFTA-hóp- inn, og ég gat því eklri sagt það sem ég vildi. Þá var eins gott að beita svipbrigðunum í staðinn, svo að af- staða Islands færi ekkert á milli mála, ef því var að skipta.” — Gro Harlem Brundtland forsæt- isráðherra Noregs sagði þegar hún hitti þig í fyrsta sinn: „Jæja, er þetta hinn kunni Hannes!” Við höfum átt mikið samflot með Norðmönnum í HANN=EES Svipmynd utanríkisráðherra afHannesi Hafstein, aðalsamningamanninum, sem gárungarnir segja aðgeti með fullum rétti bœttu einu e-i í nafn sitt Hannes. amstarf okkar Hannesár byrj- aði ekki par vel. Þegar ég kom í þetta ráðuneyti, hét það svo að Hannes Hafstein væri ráðuneytisstjóri. Fyrstu vik- urnar minnir mig að hann hafi verið í fríi einhvers staðár og það þótti mér firna ósvifið. Eftir að við byijuðum fyrir alvöru í Evrópumál- unum í mars 1989 þá var þessi þáttur utanríkisviðskiptamálanna orðinn að meginverkefni ráðuneyt- isins. Hannes þekkti þau mál mjög vel og ég tók fljótt eftir því að hann skilaði fyrsta flokks vinnu. En þetta þýddi fljótlega það að við vorum báðir komnir svo á kaf í. málin, að við gátum ekki sinnt öðrum störfum í ráðuneytinu. Ég held ég hafi sagt þá fullum fetum að það gengi ekki að ráðuneytið væri ráðuneytisstjóralaust og það þótti ekki kurteisi að segja slíkt upp í opið geðið á ráðuneytisstjór- anum. Þegar að því kom að skipa þurfti aðalsamningamann íslands i þessar viðræður, þá undirbjó ég það að losa mig við ráðuneytisstjór- ann Hannes Hafstein til þess að aðalsamningamaðurinn Hannes Hafstein gæti einbeitt sér að þessu máli. Hann tók því afar illa. Jafn- vel að hann hafi litið svo á að þetta væri meinbægni af minni hálfu og að hann setti ofan á framaferlinum. Ég minni hann stöðugt á það hvað þessi ákvörðun mín hafi nú verið glúrin,” segir utanríkisráðherrann og er síður en svo að f ara fínt með það, að hann er í raun rifandi montinn af þessari ákvörðun sinni. „Hannes er fyrsta flokks samn- ingamaður,” segir Jón Baldvin, „og það eru þeir kostir sem sumir leggja honum til lasts sem gera hann slíkan. Sumir myndu kalla það skapfestu, aðrir þrákelkni, þrjósku ogtillitsleysi. Hannes Haf- stein er þannig skapi farinn að hanr. hikar ekki við að segja nei, þegar hann þarf að segja það. í þeim skilningi er hann enginn „diplómat”. Hann fer ekki með kui-teisishjal og hann fer ekki í kringum málin eins og köttur í kringum heitan graut. Hann kemur beint að kjarnanum og víkur aldrei af markaðri leið. í návígi við aðra menn, þar sem margir eru í eðli sínu svo áhrifagjarnir að þeir eru í'yri' en varir farnir að taka tillit til þrýstings frá öðrum, gegnir öðru með Hannes. Þetta freistar ekki Hannesar - hann heldur sínu striki og í návígi við samstarfsmenn eða viðsemjendur þá sleppir hann mönnum aldrei við það að fara með rétt rök, né heldur leyfir hann þeim að komast upp með merkingarlaust hjal. Þetta heitir að sitja fastur við sinn keip, hvað svo sem á gengur. Andstæðingarnir myndu segja að Hannes hefði fylgt þessu máli eftir af ráðríki, frekju og óbilgirni - en það er allt í lagi. Árangurinn sem hann náði byggðist á þessari samn- ingatækni og þeirri löngu reynslu sem hann hefur af samningamál- um. Hann hefur djúpa þekkingu á þessum málum ogþekking hans nær til minnstu smáatriða. Það er það sem hefur gildi fyrir okkur ídag. þessum samningum, en nú á síðustu stigum hafa heyrst raddir í þá veru að Norðmenn greiddu fyrir tvo í þess- um_ samningi, þ.e. fyrir Norðmenn og íslendinga, með þeim auknu veiði- heimildum sem þeir veita EB. Hvað segir „den berömte Hannes” þar um? ■ „Norðmenn voru í raun og veru ekkert að borga fyrir okkur. Þeir höfðu á hinn bóginn skilning á því að við myndum ekki gera þennan samning, nema við næðum þessu fram. Það lá ekkert um það á borð- inu að Evrópubandalagið hefði verið reiðubúið að haida viðræðunum við hinar EFTA-þjóðirnar áfram, ef við hefðum stöðvað samninginn. Við höfðum stöðvunarvald sem slíkt og það styrkti okkar aðstöðu gríðar- lega.” Hvernig heldur þú að gangi á þjóð- þingunum 19 að fá samninginn um EES samþykktan? Eg held að hann verði alls staðar samþykktur. Ég sé ekki að það sé mikið val fyrir önnur ríki í þeim efnum. Það er kannski hluti af þeim styrk sem ég hafði, að menn vissu það mætavel, að ef við næðum ekki góðum samningi, þá myndum við ekki taka þátt í þessu. í þessum samningum var okkar stóri styrkur fólginn í því að við vorum með mörg- um öðrum löndum að semja og póli- tískt séð var það mjög þýðingarmik- ið fyrir Evrópubandalagið að klúðra ekki þessum samningi. Því var mjög í mun að fá ekki á sig þann stimpil að það gæti aldrei lokið neinum samningum út af innbyrðis deilum. Ég hef sagt það skýrt og skorinort, þegar rætt er um tvíhliða viðræður, að þær væru eins og spilið Langavit- leysa, þar sem annar þátttakandinn, ísland, hefur eitt spil á hendi og á því stendur Tollfríðindi, og á spili mótspilarans, Evrópubandalagsins, stendur Veiðiheimildir. Svo draga aðilarnir spil hvors annars, en aldrei gengur neitt - niðurstaðan er ein allsheijar langavitleysa. Við verðum að horfast í augu við það að við höfum enga markaðsaðstöðu að bjóða í þessu litla landi, sem er eitt- hvað lokkandi fyrir Evrópubandalag- ið. En með því að vera í þessum fé- lagsskap EFTA fáum við styrk. Það er í mínum huga alveg augljóst að við hefðum aldrei náð þeim tollfríð- indum, sem við nú höfum náð, með tvíhliða viðræðum íslands og EB, ekki nema með því að greiða fyrir þau með einhliða veiðiheimildum til EB.” — Þú og utanríkisráðherra komuð heim frá Lúxemborg á þriðjudag. Ég hef upplýsingar um að ykkur hafi ekki verið tekið með neinum fagnaðarlátum þegar þið mættuð á fundi utanríkismálanefndar þann dag. Raunar veit ég að eini nefndar- maðurinn sem þakkaði þér samning- astörf þín og óskaði þér til hamingju var Björn Bjarnason. En þrátt fyrir þessar móttökur má segja að í hugum margra sért þú kominn í hetjuflokk- inn me_ð heimsmeisturum okkar í brids. Á borgarafundinum á Hótel Sögu á miðvikudagskvöldið var þér til dæmis fagnað með langvinnu lófa- taki af fundargestum, eins og hetju. Hvernig er það fyrir aðalsamninga- manninn að koma heim í stutta heim- sókn að lokinni langri samningatöm og fá svona hlýlegar móttökur hjá almenningi? „Það gleymist ábyggilega jafn- fljótt aftur! En ég vil bara leiðrétta þann misskilning hér að ég eigi að taka á mig einhvern aðalheiður af þessum samningi. Ég veit ekki til þess að ég sé nein hetja. Ég er búinn að vera með fullt af góðu fólki í mjög strangri vinnu. Við höfum ver- ið með undirsamninganefndir, frá- bæra talsmenn fyrir ísland í þeim öllum - því skulum við ekki gleyma. Við höfum fengið óhemju stuðning frá stjórnarráðinu öllu, alls kyns stofnunum á vegum ráðuneytanna og samráð við hagsmunaaðila, verka- lýðshreyfinguna, atvinnurekendur og fleiri hefur verið víðtækara og margslungnara en þekkst hefur hingað til. Heiðurinn af þessum samningi deilist því á fleiri hundruð manns.”

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.