Morgunblaðið - 27.10.1991, Blaðsíða 33
• MOKGUNBLAÐI& ‘ H 91“
*
ValgeirH. Arsælsson
sendiherra - Minning
.Fæddur 12. júlí 1929
Dáinn 21. október 1991
Fregnin um andlát Valgeirs Ár-
sælssonar, sendiherra, barst eigin-
lega í sömu andrá og þau tíðindi
að mikilvægir samningar um við-
skipta- og efnahagstengsl væru um
garð gengnir í Lúxemborg. Mér
varð að orði við boðbera hinna vá-
legu tíðinda, að það væri mikill
missir að geta ekki einmitt nú
spjallað við Valgeir. Hann var
reyndur og ráðagóður svo af bar á
því sviði, sem hann helgaði einkum
krafta sína í starfi. Hér eru honum
fluttar hinstu kveðjur starfsbræðra.
Eftir nám í Verslunarskólanum
og viðskiptadeiid Háskóla íslands
starfaði Valgeir um skeið hjá verð-
lagsstjóranum í Reykjavík. Hann
hafði til að bera kunnáttu á við-
skiptum og fyrirtækjum, mönnum
og málefnum, sem mér fannst falla
einkar vel að störfum í viðskipta-
ráðuneytinu og á viðskiptavettvangi
utanríkisþjónustunnar, þar sem
hann var' stöðugt í fremstu^ sveit í
um aldarfjórðung. Valgeir Ársæls-
son hafði með höndum margvísleg,
reyndar ólík, ábyrgðar- og trúnað-
arstörf og má með sanni segja að
hann hafi vaxið við hverja raun.
Við Valgeir Ársælsson vorum
stúdentar sinn úr hvorum skólanum
í Reykjavík sama vorið, en kynnt-
umst ekki fyrr en einum átján árum
síðar. Þá urðum við nánir sam-
starfsfélagar við undirbúning að
aðild íslands að EFTA. Hér var
mikið verk að vinna og fáar hendur
til, en það varð fyrsta fastafulltrú-
anum til ómetanlegs gagns og
stuðnings að hafa síðan Valgeir að
baki til daglegrar afgreiðslu mála
í viðskiptaráðuneytinu fyrstu árin
og setu á fjölmörgum fundum í
Genf. Mér verður ævinlega þökk í
huga til Valgeirs Ársælssonar fyrir
stuðning og sífellda umönnun við
fulltrúa íslands hjá EFTA fyrstu
fjögur árin, þá er ég sat þar einn
á báti, oft nokkuð einmana. Val-
geir Ársælsson kunni allra manna
best að vera góður liðsmaður og
kann það að hafa verið reynsla
fengin úr unaðsíþrótt hans, hand-
knattleiknum.
Síðar lá leið Valgeirs í starfi til
Alþjóðabankans í Washington, þar
sem varafulltrúi Norðurlandanna,
og svo í utanríkisþjónustuna frá
árinu 1980. Hann var varafastafull-
trúi, fyrst við fastanefndina í Genf
og síðan í Brussel árin 1981—1987.
Við áttum þá enn á ný samleið í
starfi, í rétt ár í Brussel, en mér
er minnisstætt hve virtur Valgeir
var af erlendum kollegum á báðum
aðalstarfssviðunum, þ.e. varðandi
tengslin við Evrópubandalagið og
starfíð í NATO. Var ekki síður að
Valgeir nyti trausts og álits á vett-
vangi Atlantshafsbandalagsins, þar
sem hann hafði sjálfur haft minni
starfsreynslu. Segir það sína sögu
um hve vel og traust var tekið á
öllum málum.
Það var árið 1987 að Valgeir
Ársælsson fór frá Brussel, tók við
starfi forstöðumanns viðskipta-
skrifstofu utanríkisráðuneytisins og
var skipaður sendiherra. Á þeim
starfsferli, sem hér er stuttlega lýst,
var stöðugt sótt á brattann og tek-
ist á við ný og erfiðari viðfangs-
efni. Þegar Valgeir kom heim í
ráðuneytið var honum falið það
mikla ábyrgðarhlutverk að taka við
stjórn viðskiptaskrifstofu, sem
skyldi gegna nýju og mjög auknu
hlutverki og vissu allir vel að eng-
inn var til þess betur fallinn. Við
kollegarnir fögnuðum að sjálfsögðu
þessari ráðstöfun og áttum í vænd-
um nýjan kafla í farsælu starfi vin-
ar okkar. En nú fór á annan veg
og alvarleg veikindi bundu fyrst
enda á starfsferilinn og síðan lífið
sjálft. Lengi var þess vissulega
vænst að einhver bati mætti verða
en áföll og ólæknandi sjúkdómur
fengu loks yfirhönd og lífi er nú
Iokið langt fyrir aldur fram.
Þessum fáu þakkarorðum fyrir
mikla vináttu og samstarf Valgeirs
Ársælssonar skal nú lokið með
dýpstu samúðarkveðjum til hans
góðu eiginkonu, Adeline — Öddu,
börn, tengdabörn og barnabörn,
sem öll voru Valgeiri Ársælssyni
svo hugljúf. Við þökkum góðar
samverustundir með þeim heima
og erlendis og biðjum ástvinum
hans hughreystingar við fráfall
mæts manns.
Far í friði.
Einar Benediktsson
Á morgun kveðjum við, starfs-
menn utanríkisþjónustunnnar,
hinstu kveðju, langt fyrir aldur
fram, kæran félaga og samstarfs-
mann, Valgeir H. Ársælsson, sendi-
herra.
Það Var mikill fengur að fá Val-
geir til starfa í utanríkisþjónustunni
árið 1980. Næstu þijú árin þar á
undan hafði hann gegnt miklu
ábyrgðarstarfi sem varafulltrúi
Norðurlandanna allra í stjórn Al-
þjóðabankans í Washington, að
loknum mjög farsælum störfum um
ellefu ára skeið í viðskiptaráðuneyt-
inu, þar sem hann vann einkum að
utanríkisviðskiptamálum. Þetta
mikilvæga hagsmunasvið íslensku
þjóðarinnar þekkti Valgeir betur en
flestir og hann naut sín vel í flókn-
um og erfiðum samningum við er-
lendar þjóðir um viðskiptamál. Val-
geir gegndi lykilhlutverki í fámenn-
um hópi embættismanna, sem und-
ir styrkri stjórn Þórhalls Ásgeirs-
sonar, ráðuneytisstjóra viðskipta-
ráðuneytisins, báru hita og þunga
af samingunum um aðild íslands
að EFTA árið 1970. Þeir samningar
voru fyrstu stóru skref íslands úr
viðjum hafta og einangrunar til
frelsis í utanríkisviðskiptum. Þau
skref hafa reynst okkur mjög heilla-
dtjúg og eru reyndar nú sá grunn-
ur, sem samningurinn um aðild
okkar að EES byggist á.
Ári eftir að Valgeir var skipaður
sendifulltrúi, fór hann til starfa til
Genfar og gegndi starfí varafasta-
fulltrúa íslands hjá EFTA og öðrum
alþjóðastofnunum í Genf. Þar starf-
aði hann til 1985 að hann fluttist
til Brussel þar sem hann var um
þriggja ára skeið varafastafulltrúi
Fæddur 23. júní 1930
Dáinn 6. október 1991
Okkur langar að kveðja vin okk-
ar hjónanna með örfáum orðum.
Elfar Skarphéðinsson var fæddur í
Reykjavík, sonur hjónanna Önnu
Þórunnar Magnúsdóttur og Skarp-
héðins Benediktssonar sem bæði
eru látin. Þau systkinin voru sjö,
Hulda, Bjarni, Elfar, Anna Sigríð-
ur, Elín, Magnús sem er látinn og
Hilmar.
Elfar giftist danskri konu, Ásu
Katrínu Jelle 10. október 1959 og
eignuðust þau þtjú mannvænleg
börn, Ásdísi, fædda 1961, gifta
Aðalsteini Loftssyni, þeirra börn
eru Ása Fanney og Aðalbjörg Eva;
Guðbjörn, fæddan 1964, ógiftur og
Kolbrúnu, fædda 1969, gift Indriða
Kristjánssyni. Kynni okkar hófust
á Suðurlandsbrautinni árið 1964 er
við fjölskyldurnar bjuggum þar hlið
við hlið. Það mynduðust innileg
tengsl milli þessarar Ijölskyldu og
okkar, börnin léku sér saman og
höfum við átt margar ánægjustund-
irnar saman síðan.
Elfar var lærður bílaklæðningar-
hjá Atlantshafsbandalaginu, en
jafnframt hjá Evrópubandalaginu.
Það var einmitt á þessu tímabili,
sem Hvítbók EB um samræmdan
Evrópumarkað var samþykkt og
hugmyndin um Evrópskt efnahags-
svæði með aðijd EFTA-ríkjanna
kom fram. Vorið 1987 var opnað
sérstakt sendiráð í Brussel fyrst og
fremst til að gegna hagsmunavörslu
íslands gagnvart Evrópubandalag-
inu, sem áður var gegnt af fasta-
nefnd íslands hjá Atlantshafs-
bandalaginu. Þá um sumarið fluttist
Valgeir til og helgaði sig málefnum
EB eingöngu. Við stjórnarskiptin
árið 1987 var svo ákveðið að utan-
ríkisviðskiptamál flyttu frá við-
skiptaráðuneytinu yfir til utanríkis-
ráðuneytisins og þar yrði efld sér-
stök viðskiptaskrifstofa, sem reynd-
ar er nú orðin stærsta eining utan-
rikisráðuneytisins. Ekki fór á milli
mála hver starfsmaður utanríkis-
þjónustunnar hafði reynsluna og
hæfnina til að byggja upp í utanrík-
isráðuneytinu viðskiptaskrifstofu.
Valgeir var valinn til þess ábyrgð-
armikla hlutverks. Hann var skip-
aður sendiherra 1. október 1987
og falið starf skrifstofustjóra í hinni
nýju viðskiptaskrifstofu utanríkis-
ráðuneytisins í ársbyijun 1988. Það
ábyrgðarmikla staif' hóf hann af
mikliun áhuga og hæfni. En enginn
má sköpum renna. í miðju kafi við
uppbyggingu nýs málaflokks í ráðu-
neytinu, dundi áfall yfir og heilsan
brast. Síðustu tvö ár höfum við vin-
ir og samstarfsmenn Valgeirs fylgst
með hetjulegri baráttu, sem við
vonuðum að skilaði honum heilum
maður og rak sitt eigið verkstæði
í rúm 30 ár, fyrst á Suðurlands-
brautinni og síðar á Funahöfða 3.
Hann var vandvirkur og vandaður
maður í alla staði og mjög gott var
að leita til hans ef eitthvað vantaði
og þá var Elfar alltaf tilbúinn að
rétta hjálparhönd.
Ása varð mín besta vinkona frá
okkar fyrstu kynnum. Við höfum
farið margar skemmtiferðirnar
saman til útlanda. Mennirnir okkar
voru alltaf bundnir sinni vinnu og
þeim fannst þeir ekki geta komist
frá, svo hlutirnir atvikuðust þannig
að við tvær fórum saman. Það leið
varla sá dagur að ég kæmi ekki á
heimili þeirra Ásu og Elfars á Bú-
staðavegi 73, en þangað fluttu þau
árið 1969. Elfar hafði alltaf frá ein-
hveiju að segja því hann var vel
lesinn og fróður.
Elfar var veill fyrir hjarta og var
búinn að vera það í nokkur ár og
andaðist hann á heimili sínu hinn
6. október. Okkur er þakklæti í
huga er við hugsum til hans og
þökkum honum fyrir samfylgdina
og trygga vináttu öll arin.
Við vottum elsku Ásu, börnum,
^53
aftur til starfa. Æðrulaus var hann
og þegar um stund rofaði til, kom
hann til starfa í ráðuneytinu. Allan
tímann, sem Valgeir barðist við
erfiðan sjúkdóm, sem að lokum
varð honum yfirsterkari, var hugur
hans við þau miklu og erfiðu störf,
sem viðskiptaskrifstofa utanríkis-
ráðuneytisins hafði með höndum,
að undirbúa og vinna að stærsta
samningi sem Island hefur gert á
sviði utanríkismála í seinni tíð. Þótt
hann gæti ekki tekið virkan þátt í
því starfi, miðlaði hann af reynslu
sinni. Þegar mikilvæg álitaefni
komu upp leituðu starfsmenn ráðu-
neytisins til Valgeirs og fengu holl
ráð byggð á traustri reynslu. Jafnt
yngri, sem eldri samstarfsmenn
nutu allt til hins síðasta þess að
sækja í þann viskubrunn sem hann
var um öll mál, sem utanríkisvið-'
skipti vörðuðu.
Sjálfur reyndi ég á fyrsta ári
mínu í stjórnarráðinu hve hlýtt við-
mót Valgeirs var við nýjum og
óreyndum samstarfsmönnum.
Þannig var reynsla allra samstarfs-
manna fram til hins síðasta.
Það er sárt að sjá á bak góðum
og traustum samstarfsmanni, í
blóma lífsins. Utanríkisþjónustunni
er mikill missir að reyndum starfs-
rnanni. En mestur er missir eigin-
konu hans, Öddu, sem í blíðu og
stríðu stóð honum við hlið, og fjöl-
skyldunnar. Megi minningar um
góðan dreng verða þeim huggun
harmi gegn. Ég flyt þeim fyrir hönd
samstarfsmanna dýpstu samúðar-
kveðjur.
Þorsteinn Ingólfsson
tengdabörnum og barnabörnum
okkar dýpstu samúð og megi guð
leiða þau í gegnum þeirra erfíðleika.
Bænin má aldrei bresta þig
búin er freisting ýmisleg
þá líf og sál er lúð og þjáð
lykill er hún að Drottins náð.
(H.P.)
Guð blessi ykkur.
Sólbjört, Viðar og börn
Elfar Skarphéðins-
son - Minning
London Regency Hotel 6 dagar/5 nætur og 8 dagar/7 nætur.
Brottför 29. nóvember frá Keflavíkurflugvelli Verð pr. mann í tvíbýli í fimm nætur 45.500.-
, Verð pr. mann í einbýli i fimm nætur 52.400.-
kl. 9:05. Komutimi til London kl.12:00. Verö pr. mann í tvíbýli isjö nætur 52.700.-
Verð pr. mann í einbýli í sjö nætur 64.600.-
Akstur frá flugvelli að hóteli þar sem dvalið
verður. Gist er á Regency hótelinu, sem er
fjögurra stjörnu hótel í Kensington, skammt
frá Kensington High Street. Þar er m.a. að
finna hið heimsþekkta vöruhús Harrods, auk
fjölda veitingastaða.
Flug heim 4. og 6. desember.
Innifalið i verði: Flug og gisting með morgunverði,
akstur milli flugvallar og hótels erlendis.
Ekki innifalið: Flugvallarskattur, kr. 1.250.-,
forfallatrygging kr. 1.200.-
Verð miðað vlð gengi 10. september og staðgreiðslu.
yjr ■yviröi' ■j'j'j.'.p !
Sawvifiniileriirlaiiúsjiii
Reykjavik: Austurstræti 12. s 91 -691010. Innanlandsíerðir. s 91 -691070.
postfax 91 -27796. telex 2241. Hotel Sogu við Hagatorg. s 91 -622277. postfax 91 -623980
Akureyri: Sk.pagotu 14. s 96-27200. posttax 96-27580. telex 2195