Morgunblaðið - 27.10.1991, Blaðsíða 16
16
—
MORGUNBLAÐIÐ gUNNUDAGUR 27. QKTÓBKR ,1,9^1
milljarðar á
VOGARSKÁLUM
viðvaninga
eftir Sindra Freysson
Á hverju ári eru nýjar fast-
eignir, oghluti eldri fasteigna,
metnarfyrir rúmlega 70
milljaröa. Ýmislegt bendir til
þess, að þeir rúmlega 400
brunabótamenn sem sinna
stórum hluta þessara mata, séu
ekki hlutverki sinu vaxnir, og
aó gnðarlegur misbrestur sé á
að lánastofnanir og dómstólar
geri nauðsynlegar kfófur til
brunabótamats og matsmanna,
en ótal milljarðar eru lánaðir
út á mat á brunabótum, sem
virðast ífjölda tilvika ákaflega
óraunhæf Hér er stiklað á stóru
um umfangþessa málaflokks,
vinnubrögð brunabótamanna,
sinnuleysi lánastofnana, sem
hiróa jafnvel oft á tíðum ekki
um að kanna raunverulega
veðhæfni lántakanda, ogábyrgð
dómstóla sem skiþa
brunabótamenn. Úttektsem
þessi getur aldrei oróið
tæmandi, en óskandi er að
henni takist að benda á hve
víða þottur er brotinn, og aó
úrbóta séþörfhið bráðasta.
Heildarverðmæti
metinna fast-
eigna hjá
Fasteignamati
ríkisins á land-
inu öllu er
rúmlega 706 milljarðar, miðað við
verðlag í lok síðasta árs, og sam-
kvæmt hagtölum frá Seðlabanka
er íbúðarhúsnæði þar af um 300
milljarðar. Með hliðsjón af upplýs-
ingum frá Fasteignamati ríkisins,
tryggingafélögum og bönkum, má
telja líklegt að heildarverðmæti
nýrra fasteigna sem metnar eru á
hveiju ári, auk um 10% af eldri
fasteignum, sé varlega áætlað rúm-
lega 70 milljarðar króna. í stórum
dráttum skiptist það svo, að bruna-
bótafélögin meta fasteignir fyrir um
38 milljarða, Fasteignamatið fyrir
um 21 milljarð, og bankar fyrir um
10-15 milljarða. Auk þess eru ný-
möt Viðlagatryggingar Islands
u.þ.b. 5% af öllu sem þeir tryggja
á ári fyrir utan brunatryggingu, eða
að meðaltali um 5-6 milljarðar.
Þessar tölur sýna glöggt gífur-
legt umfang matsmála hérlendis,
og hve rangt mat getur valdið
ýmsum aðilum óbætanlegu tjóni.
Matskerfið býður
hættunni heim
Ljóst er að gífurleg verðmæti eru
í húfi fyrir þá aðila sem taka veð
í fasteignum, ef upplýsingar um
verðmæti þeirra eru rangar. Hér
er aðallega um að ræða banka og
aðrar lánastofnanir. Að nota bruna-
bótamat eða ákveðinn hundraðs-
hluta afþvísem grundvallarviðmið-
un um veðhæfni fasteigna, ber vott
um furðulegt ábyrgðarleysi, en eins
þversagnarkennt og það virðist
vera, nota sömu aðilar, svo sem
bankar og lánastofnanir, matið og
eiga þeir þó mest í húfi. í eðli sínu
þjónar brunabótamatið allt öðrum
tilgangi en að endurspegla mark-
aðsverð húsnæðis, og að þessu leyti
er ekki við matsmenn brunabótafé-
lagsins að sakast. En núverandi
matskerfi býður hættunni heim, um
að matið sé unnið illa eða a.m.k.
afar slælega, því matsmenn skipta
hundruðum á landinu, þeim er illa
greitt fyrir vinnu sína og menntun
þeirra á þessu vandasama sviði er
mjög ábótavant, oft jafnvel lítil sem
engin.
Matsmaður þarf að ráða yfir
mikilli þekkingu til að valda starfi
sínu. í sem stystu máli þarf mats-
nrdður að ráða yfir víðtækri þekk-
ingu á markaði, tekjumöguleikum
á eignum og byggingarkostnaði, til
þess að hafa yfirsýn yfir þá ijöl-
mörgu þætti sem ákvarða markaðs-
verð fasteigna. Það skýtur því
skökku við, að algengt virðist vera
að líta á matsstörf sem bitlinga til
að friða aðgerðarlitla menn, er virð-
ast margir hveijir telja, að ekki
svari fyrirhöfn að vinna mat í réttu
samræmi við mikilvægi þess, þ.e.
ef þeir búa yfir nauðsynlegri þekk-
ingu. Afleiðingar þessara vinnu-
bragða, sem í fjölda tilvika valda
því að ekki er til rétt mat á verð-
mæti þeirra fasteigna sem sem
bankar og lánastofnanir lána út á,
geta valdið hluthöfum og sparifjár-
eigendum ómældu tjóni, einkum ef
lántakendur verða gjaldþrota sem
ótal dæmi eru um. Einnig geta
húseigendur og/eða eigendur lausa-
fjárs orðið fyrir verulegum skakka-
Morgunblaðið/Sverrir
föllum ef eign þeirra er vanmetin
í tjónstilfellum.
Örfá dæmi
Nokkur nýleg dæmi um hve
bankastofnanir hafa tapað miklu á
röngu mati, eru gjaldþrot aðila í
laxeldi, loðdýrarækt og nýlegum
hótelrekstri, s.s. Holiday Inn
(kostnaðarverð um 800 milljónir og
brunabótamat áþekkt, en söluverð
á uppboði aðeins um 300 milljónir),
Hótel ísland (kostnaðarverð um
1.200 milljónir, brunabótamat um
1.597 milljónir, en selt fyrireinung-
is 725 milljónir), Hótel Ork í Hvera-
gerði o.s.frv. Þetta er einungis lítið
brot þeirra fyrirtækja sem fengið
hafa háar fjárhæðir lánaðar, þ.s.
brunabótamat hefur oftast nær ver-
ið notað sem grundvöllur að veð-
hæfni eignarinnar, en aldrei verður
*