Morgunblaðið - 20.11.1994, Blaðsíða 48

Morgunblaðið - 20.11.1994, Blaðsíða 48
UORGUNBLAÐIÐ, KRINGLAN 1 103 REYKJAVÍK SÍMI 691100, SÍMBRÉF 691181, PÖSTHÓLF 3040 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 SUNNUDAGUR 20. NÓVEMBER 1994 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK Sprengt í Breiðadals- göngunum SPRENGINGAR í Breiðadals- göngum eru að hefjast um helg- ina að austanverðu, það er Skut- ulsfjarðarmegin, eftir flutning tækjanna sem unnið hafði verið með Önundarfjarðarmegin í sumar. Notuðu bormenn tæki- færið til að láta fara fram við- hald á tækjunum. Jarðgöngin i gegnum Breiða- dals- og Botnsheiði eru þriggja arma, Tungudalsgöng úr Skut- ulsfirði, Botnsdalsgöng úr Súg- andafirði og Breiðadalsgöng úr Önundarfirði. Mætast þau í gatnamótum undir Botnsheiði. Búið er að grafa út Tungudals- göng sem eru tæpir tveir kíló- metrar og Botnsdalsgöng sem eru tæpir 2,8 km. Breiðadals- göngin eru lengst, tæpir fjórir kílómetrar, og eru aðeins 900 metrar eftir af þeim. Samkvæmt upplýsingum Björgvins Guðjóns- sonar, jarðfræðings hjá Vega- gerðinni, er áætlað að borinn fari þar í gegn í mars. Umferð hleypt á í vetur _ Morgunblaðið/RAX KRISTJAN Pálsson og Gunnar Þór Björnsson voru að lagfæra loftræstistokk í Breiðadalsgöngum, áður en hafist var handa við síðasta áfanga sprengivinnunnar. Stokkurinn blæs fersku lofti inn að stafninum, sem síðan þrýstir reykmettuðu sprengiloftinu út eftir göngunum. Vesturís er með alla sína að- stöðu í Tungudal og Dagverðar- dal i Skutulsfirði. I sumar var þó borað Önundarfjarðarmegin og þjónustan sótt yfir heiðina. Það gengur ekki öllu lengur og voru tækin því flutt yfir fyrir viku og byijað aftur að austan- verðu um helgina. Framkvæmdir hafa gengið vel í sumar að sögn Björgvins Guð- jónssonar. Vatnrennsli hefur ekki tafið fyrir eins og stundum áður. Reynt verður að hleypa tíma- bundið á umferð á Tungudals- og Botnsdalsgöng í vetur svo fólk komist milli Suðureyrar og Isa- fjarðar þegar heiðin er ófær. Göngin verða tekin í notkun næsta haust þó malbikun og ýms- um frágangi verði ekki lokið og verklok verða síðan haustið 1996. Jafnframt hefur í sumar verið unnið að vegagerð í öllum dölun- um og byggingu vegskála við munnana. Umræða í bæjarráði Akureyrar um íslenskar sjávarafurðir hf. Höfuðstöðvar ÍS verði fluttar til Akureyrar JAKOB Bjömsson, bæjarstjóri á Akureyri, kynnti þá hugmynd í bæjarráði Akureyrar á fundi ráðsins sl. fimmtudag að íslenskar sjávarafurðir hf. flytji höfuðstöðvar sínar norður til Akureyrar gegn því að Útgerðarfélag Akur- eyringa gangi í fyrirtækið og segi sig þar með úr Sölumiðstöð hraðfrystihús- anna. Þessi hugmynd er samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins komin upp vegna þess að líklega verða íslenskar sjávarafurðir hf. húsnæðislausar innan skamms þegar og ef samningar takast á milli aðila um sölu á Sam- bandshúsinu. Því hefur verið rætt um að ekki væri óskynsamlegt að fyrir- tækið setti upp höfuðstöðvar á Norðurlandi, þar sem svo stór hluti viðskipta- vina þess er, svo sem á Sauðárkróki, Dalvík, Húsavík og Þórshöfn. LUÐVIK JOSEPSSON LATINN EINN helsti forystumaður ís- lenskra sósíalista um áratuga skeið, Lúðvík Jósepsson, fyrrum sjávarútvegsráðherra, lést á sjúkrahúsi í Reykjavík á föstu- dagskvöld eftir skamma legu. Hann var 80 ára að aldri. Hann barðist ötullega fyrir út- færslu íslenskrar fiskveiðilögsögu og var sjávarútvegsráðherra þegar hún var færð út í 50 mílur 1972. Hann var fulltrúi flokks síns á Hafréttarráðstefnunni í Genf. Hann var forystumaður sósíalista í Neskaupstað þar sem þeir hafa haft meirihluta í um hálfa öld og þingmaður Austfírðinga um langt skeið. Lúðvík Jósepsson var vin- sæll maður og vel látinn og hafði mikil áhrif innan vinstri hreyfingar hér á landi. Síðasta áratug hafði hann lítil afskipti af þjóðmálum en fylgdist þó vel með og var full- trúi fiokks síns í bankaráði Lands- banka Islands. Lúðvík Jósepsson var fæddur í Neskaupstað 16. júní 1914. For- eldrar hans voru Þórstína Þorsteins- dóttir og Jósep B. Gestsson. Lúðvík lauk gagn- fræðaprófí á Akur- eyri 1933 og var kennari við gagn- fræðaskólann í Nes- kaupstað 1934- 1943. Hann starfaði við útgerð í heimabæ sínum 1944-1948, var um langt árabil formaður Samvinnu- félags útvegsmanna í Neskaupstað og for- stjóri Bæjarútgerðar Neskaup- staðar frá 1948 til 1952. Lúðvík sat í bæjarstjórn Nes- kaupstaðar frá 1938-1970 og var forseti bæjarstjórnar 1942-1943 og frá 1946-1956. Hann sat á Alþingi fyrir Sósíal- istaflokkinn og síðar Alþýðu- bandalagið frá 1942-1979, ýmist sem landskjörinn þingmaður eða sem þingmaður S- Múlasýslu, og, frá 1959, Austurlands- kjördæmis. Frá 1956-1958 og frá 1971-1974 varLúð- vík Jósepsson ráð- herra sjávarútvegs- og viðskiptamála. Hann var formað- ur Alþýðubandalags- ins 1977-1980 og formaður þingflokks * Alþýðubandalagsins 1961-1971 og frá 1975-1979. Lúðvík Jósepsson sat í stjórn Fiskimálasjóðs 1947- 1953, stjórn Framkvæmdasjóðs 1966-1968 og í bankaráði Út- vegsbankans 1957-1971. 1 bankaráði Landsbanka ís- lands sat hann frá 1980 til dauða- dags. Lúðvík Jósepsson lætur eftir sig eiginkonu, Fjólu Steinsdóttur, og son. Ef félagið fengi ÚA til liðs við sig væri um stórkostlega aukningu við- skipta að ræða, en ÚA er lang- stærsti eigandi Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna með á milli 12% og 13% eignarhlut. Bærinn meirihlutaeigandi í ÚA Samkvæmt upplýsingum Morg- unblaðsins mun bæjarstjóri Akur- eyrar hafa lagt áherslu á það, er hann kynnti ofangreindar hugmynd- ir, að ekki kæmi til þess að bæjarráð eða bæjarstjóm myndi knýja fram ákvörðun í þessa veru ef stjórn ÚA væri hugmyndinni andvíg. Akur- eyrarbær á 53% hlut í Útgerðarfé- lagi Akureyringa og KEA á nálægt 10%. Andstaða í stjórn Morgunblaðið hefur upplýsingar um að meirihluti stjórnar UA telji þennan möguleika ekki aðgengileg- an þar sem fyrirtækið eigi svo mik- illa hagsmuna að gæta með við- skiptum sínum í gegnum dótturfyr- irtæki SH í Bandaríkjunum, Cold- water. Stjórnin telji ekki að hagsmuna ÚA verði gætt með sama hætti ef viðskiptunum verði beint í gegnum dótturfyrirtæki ÍS í Bandaríkjunum, Icelknd Seafood. Ríkisendurskoðun Einkavæðingar- skýrsla væntanleg FYRIR áramót eru væntanlegar nokkrai’ skýrslur frá Ríkisendur- skoðun. Á næstu grösum er t.d. ítarleg skýrsla um einkavæðingu á starfstíma ríkisstjórnarinnar, sem Ríkisendurskoðun hefur unnið að eigin frumkvæði. í liðinni viku sendi Ríkisendur- skoðun frá sér stjórnsýsluendur- skoðun á Heyrnar- og talmeinastöð íslands, þar sem talið er rétt að leggja hana niður og sameina háls-, nef- og eyrnadeild Borgarspítalans, og spara með því 8-9 milljónir á ári. Ríkisendurskoðandi, Sigurður Þórðarson, telur í viðtali við blaðið, að ákveðin tímamót séu að verða og hér eftir muni Alþingi og fram- kvæmdavald horfa enn frekar til þeirra athugasemda sem stofnun eins og Ríkisendurskoðun gerir við stjórnsýsluna. í þessum málum sé því ákveðinn vendipunktur nú. Enn- fremur kemur fram, að frá því hann fyrir 25 árum hóf störf hjá ríkis- kerfinu hafi slaknað á aðhaldi emb- ættismanna. Telur hann vanta sam- ræmdar reglur. ■ Tímamót/14

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.