Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1984, Blaðsíða 1

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1984, Blaðsíða 1
DAGBLAÐIÐ — VISIR 103. TBL. — 74. og 10. ARG. — LAUGARDAGUR 5. MAI 1984. Lögreglumenn fylgjast með skotmanninum i gærkvöldi. Myndin er tekin á Mýrargötu við Danielsslipp. DV-mynd-Sveinn. Víkingasveit lögreglunnar gekk móti skothríðinni: Handtekinn eftir skot- bardaga í vesturbænum maður með haglabyssu skaut að lögreglunni og Ijósmyndara DV í gærkvöldi Ær maöur bóf skothríö laust fyrir klukkan tíu í gærkvöldi á mótum Vesturgötu og Framnesvegar. Lög- reglunni barst tilkynning um að þar færi maður, vopnaður haglabyssu, og skyti hann á allt sem í kringum hann væri. Fólk var ekki á ferli á götunni þegar þetta gerðist, eftir því sem best er vitað. Frá Vesturgötunni hélt skotmaöur- inn síðan áleiðis niður í slippinn á Grandanum, sem í daglegu tali er nefndur Daníelsslippur. Þegar ljós- myndari DV kom þar að örskömmu síðar og hugöist fara út úr bíl sínum til myndatöku hóf skotmaöurinn skothríð að honum og fékk hann högl í andlitið og sömuleiðis varð bifreið hans fyrir höglum án þess að teljandi tjón hlytist af. Lögreglan umkringdi þegar Daníels- slippinn og víkingasveit lögreglunnar var kölluð út. Hafinn var undirbúning- ur að því að svæla manninn út úr bátn- um Jóni Jónssyni með táragasi en þar var talið að hann hefði falið sig. Ekki kom til þess en víkingasveitin réöst til uppgöngu í bátinn og mætti þá hagla- skothríð byssumannsins en lét þaö ekki á sig fá og hélt áfram för sinni að manninum og tókst aö lokum að ná til hans og yfirbuga hann. Maöurinn var færöur í geymslur lögreglunnar, en þegar DV fór í prentun í gærkvöldi var ekki ljóst hvað valdið heföi æði manns- ins. Lét skotin dynja á lögreglubflnum „Eg kom akandi niður Bræðra- borgarstíginn og beygði inn Vestur- götu og kom þá auga á manninn þar sem hann stóð með haglabyssuna. Ég stoppaöi og ætlaöi út en hann benti mér strax meö byssunni að halda áfram,” sagöi Einar Kristjánsson sem strax sá til ferða byssumannsins í gærkvöldi. Og Einar heldur áfram lýsingu sinni: „Eg þori ekki annaö en að halda áfram en þá sé ég að næsti bíll á eftir mér er lögreglubíll. Ég stoppa því aftur og sé að lögreglumaöur opnar hurðina en þá hefur maðurinn þegar í stað skothríð á lögreglubílinn. Lögregl- an bakkar þá strax upp í næstu götu. Eg næ síðan loks tali af lögreglunni eftir aö maðurinn er hlaupinn niður í slipp. Þeir vildu í fyrstu ekki hlusta á mig en lögðu loks trúnaö á frásögn mína og hófu eftirför í slippinn,” sagði Einar Kristjánsson. óm. Söngvakeppni sjönvarpsstööva HV (, III. sjá atkvæöaseðil si bls. 2

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.