Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1984, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1984, Blaðsíða 9
DV.LAUGARDAGUR5.MAI 1984. .9 Sjónvarpið upplýsti okkur í vikunni um bág kjör landsmanna. Við erum langt á eftir helztu iðnaöarríkjum í kaupi. Meöaltímakaup verkafólks var þannigífyrra: Bandaríkin 220 krónur á tímann. Danmörk 185 krónur á tímann. Noregur 179 krónur á tímann. Japan, Vestur-Þýzkaland 147 kr. Svíþjóðl38krónurá tímann. Bretland 121 króna á tímann. Italía, Frakkland 105 krónur á tím- ann. Island 94 krónur á tímann. Við þekkjum öll, hvernig kaupið var skert í fyrra. Island hafði lengi verið meðal hæstu landa í þjóðar- tekjum. En við lifðum um efni fram. Mikill hluti launa okkar byggðist einfaldlega á „slætti” erlendis. Við prentuöum peninga, sem ekki var innstæöa fyrir. Við héldum uppi kaupi í landinu á þessum forsendum.| Það hlaut að koma að skuldadögum. Því er nú svo komið, eftir kjara- skerðingu ríkisstjórnarinnar, að við erum komin á bekk með eða niður fyrir Italíu og Frakkland í kaupi á hvemtíma. Hvers vegna? ítalskir gluggapússarar Þetta er hart. Eg minnist þess, þegar ég var í Róm fyrir mörgum árum, að ítölskum verkamönnum þótti mikið tU koma kaupsins í Reykjavík. Þeir spurðu mig í þaula og hugsuðu sem svo, aö helzt ættu þeir að flytjast tU Islands tU að njóta góðs af háu kaupi hér. Eg man sér- staklega eftu- gluggapússara, sem var að því kominn að kaupa flugfar- miða tU Reykjavíkur. En nú er svo komið, að íslenzkir feröalangar hafa lítið að bjóða ítölskum gluggapúss- urum. Svarið við spurningunni um lága kaupið er einkum það, að þjóöartekjur okkar eru einfaldlega minni en til dæmis á öðrum Noröur- löndum. Þjóöartekjur okkar á mann eru um 15—20 prósent lægri en á hinum Norðurlöndunum. Og þetta gerist, þótt Islendingar leggi á sig margfalda vinnu. Þetta gerist, þótt útgjöld okkar tU fjár- festingar séu meiri en víðast hvar. Ef viö setjum útgjöld til fjár- festingar hér sem 1, þá kemur eftir- f arandi út í samanburðinum: Island 1 Danmörk 0,62 Svíþjóð 0,77 Noregurl,15 Finnland0,84 Sem sagt eru útg jöld okkar til fjár- festingar meiri en á öðrum Noröur- löndum, nema í olíuríkinu Noregi. Viö ættum því að hafa grundvöll tU þess, að tekjur okkar veröi meiri en á hinum Norðurlöndunum. Hvers vegna eru þær það ekki? Við þekkjum svarið. Fer í vitleysu Mikiö af okkar fjárfestingu fer í „vitleysu”. Við höfum lagt óhemju fé í að fjölga skipum, sem berjast um tak- markaðanafla. Við höldum uppi dýrri „byggða- stefnu”. Við eyðum óhemju fé í að viðhalda offramleiðslu í landbúnaði. Við verjum mUdu fé í gæluverkefni í iðnaði í stað þess að byggja upp arð- bæraniðnað. Hér er komin skýringin á því, hvers vegna kaupið er svo lágt þrátt fyrir mikil útgjöld til fjárfestingar. Mikið af okkar fjárfestingu er ein- faldlega óarðbært, það skilar okkur ekki þeim tekjum, sem vera ætti. Hverjir bera sökina? Auðvitað verður ekki hjá því komizt að minnast á ríkisstjómir undanfarinna ára. Þar hefur stuðningur við flokks- gæðinga ráðið ferð. Með Fram- kvæmdastofnun og öðrum slíkum hefur fjármagninu verið sullað í þá, sem þóknast valdhöfum. Ekki hefur verið hugsað um, hvaða fyrirtæki væru arðbærust og færöu þjóðinni mestar tekjur. Hér hefur aö því leyti ríkt „velferðarríki fyrirtækja”, þaö er að ségja þeirra fyrirtækja, sem valdhafar hafa viljað styrkja. Dýrar matvörur Við höfum minnst á hversu lágt kaupið er miðað við önnur lönd. Til l.íiiiiiiirtlaiis- pislillinn Haukur Helgason aðstoðarritstjérl viðbótar kemur, að víðast eru brýn- ustu lífsnauðsynjar ódýrari en hér. Það er aö segja, verkamaðurinn þarf af sínu lága kaupi að eyða meira en annars staðar til að framfleyta sér. Samkvæmt sjónvarpinu eru út- gjöld til kaupa á helztu matvöru þannig: Ef við setjum 100 á matvöruútgjöld íReykjavík: Reykjavík 100 Kaupmannahöfn 86,6 Stokkhólmur 91,5 Osló 101,6 Við þennan verðsamanburö er nokkuð að athuga. Reiknað er með „leiðbeinandi” verði, það er veröi sem fyrirtækin á hinum Norðurland- anna legg ja til að vörumar seljist á. Yfirleitt eru vörurnar ódýrari en þetta leiöbeinandi verð, kannski 15% ódýrari. Auk þess hefur í verðsamanburöinum veriö tekið tillit til verðs á dilkakjöti. A öðrum Noröurlöndum kaupa menn þó lítið af dýru dilkakjöti, heldur spara sér með því að kaupa ódýrara fæði. Því segir þessi samanburöur okkur, að matvöruverð er miklu lægra á hinum Norðurlöndunum. Við höfum þvi bæði lægra kaup og þurfum aö borga meira fy rir fæðið. Bensín er auk þess um 26% dýrara hérenþar. Hjólbarðar eru 107% dýrari hér en þar. Minnzt hefur verið á, að þjóðar- tekjur eru lægri hér. Eitt af því, sem veldur,, eru miklar erlendar skuldir okkar. Hver fjögurra manna fjölskylda greiðir um fimm þúsund krónur á mánuði fyrir þessar erlendu skuldir — bara í vexti af erlendu lánunum. Enn verður ekki hjá því komizt aö kenna stjórnvöldum um. Ríkisstjómir undanfarinna ára hafa magnað þennan vanda meö því að leyfa okkur að halda uppi gervi- lífskjömm með slætti erlendis. Eitt höfum við fram yfir aörar þjóðir. Hér er ekki atvinnuleysi. I Danmörku er til dæmis 10 prósent atvinnuleysi. Við höfum sumpart bægt vofu at- vinnuleysisins frá á kostnað kaups þeirra, sem hafa vinnu. En viö sjáum á samanburðinum, að til dæmis Danir hafa „efni á” aö greiða stómm hóp atvinnuleysisstyrki, af því að þeir hafa hærri þjóðartekjur á mann en við. Laun og þjóðartekjur Okkar laun eru lág. En þrátt fyrir kjaraskerðingu núverandi ríkis- stjórnar hefur hlutfall launa af þjóðartekjum ekki lækkað mikið. Hlutur launa af beinum þjóöar- tekjum var 76—77 prósent á áranum 1974—1980. Hann komst árið 1982 upp fyrir 85%. Nú hefur hluturinn aftur lækkaö í um 77 prósent. Þaö er því ekki svo, að „milli- færslan” í þjóðfélaginu hafi rekið okkur langt til baka. Auk framangreindra þátta er til dæmis rafmagnsverð í okkar landi orkulinda miklu hærra en á hinum Norðurlöndunum. Enn beinist at- hyglin að gerðum stjómvalda. Mikill hluti rafmagnsverðsins er til kominn vegna mikillar skuldasöfnunar Landsvirkjunar á síöustu áram. Framleiöni er hér slök, það er framleiðsla per mann. Til kemur, að vélakostur er ónógur. Til kemur, aö stjórnvöld hafa ekki séð til þess, að Islendingar taki nægan þátt í fram- föramsíöustuára. Af framangreindu er ljóst, aö flokkakerfiö fær ekki verölaun. Ríkisstjórnir í mörg síöustu ár hafa farið illa með fjármuni okkar. Flokksapparötunum hefur líklega fundizt, að ekki gerði til, þótt nokkrum milljónum sé eytt hér og nokkrum milljónum þar til að hygla flokksgæðingum. En við sjáum öll betur en nokkru sinni, hvert þetta hefur leitt okkur. Við sáum ekki jafnvel fyrir fáum áram, að íslenzkir verkamenn hlytu að veröa lægra launaðirenítalskir. Núverandi ríkisstjóm er skárri en flestar aðrar stjómir síðustu ára. Hún hefur komiö hinni augljósu veröbólgu niður, en með mikilli kjaraskerðingu, kjaraskerðingu sem við hljótum að hafa búist við um hríð. Stjómin hefur séö til þess, að við lifum ekki miklu lengur langt um efnifram. En núverandi ríkisstjóm hefur ekki tekið af skarið í þeim efnum, semmestuskipta. Hún hefur ekki séð til þess, að fjár- festing okkar gangi nú til arðbærra hluta. Þvert á móti viðheldur sam- trygging flokkanna aliri óráðsíunni í þeim efnum. Haukur Helgason.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.