Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1984, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 05.05.1984, Blaðsíða 21
DV. LAUGARDAGUR 5. MAl 1984. ' ' 1 21 Þau voru færö til yfirheyrslu um leiö og þau komu til landsins. Þau voru með fullkominn útbúnaö, svo sem hita- box, sigáhöld og fleira. Var þeim gert ljóst að þeim yrði fylgt hvert fótmál hér á landi. Þau fóru af landi brott strax næsta dag. I fyrra voru svo teknir til yfirheyrslu tveir Svisslendingar. Voru þeir meö góö sigáhöld. Ekkert var hægt aö sanna. Reyndar hafa snöggtum fleiri veriö teknir til yfirheyrslu vegna gruns um stuld úr fálkahreiðrum víös vegar um landið en ekkert komiö út úr því. Þótt viðkomandi hafi veriö með margnefnd hitabox, sigáhöld og fleira er þaö eitt ekki lögbrot. Eru íslendingar viðriðnir? „Mér finnst lögreglan gera rangt í því að miða allar rannsóknir í svona málum viö útlendinga," sagöi Ævar Petersen. Það er mjög brennandi spurning hvort einhverjir Islendingar séu ekki viöriönir þetta. Upplýsingar sem þessir útlendingar hafa eru oft þannig aö þeir geta ekki hafa fengiö þær nema frá Islendingum. Mér finnst gæta nokkurs tvískinnungs í þessum málum. Til dæmis fengu Chicielski- feðgarnir og Austurríkismennimir mikla umfjöllun í blöðum á sínum tíma. Þaö er mjög gott og til þess eins aö vekja fólk til umhugsunar. Hins vegar geröist það 1980 aö Islendingur var staðinn aö því aö skjóta fálka í hreiöri. I einu blaöi var örlítil klausa um þaö en svo ekki meir.” Þaö er alveg ljóst, aö hér eru gífur- legir fjármunir í boöi. Þaö sést best á því hversu mikiö menn á borö viö Chicielski leggja út í. Það kostar ekki lítið að senda tvo menn til Islands meö fullkominn útbúnað í svo og svo langan tíma eins og geröist nú í vikunni. Ekki er heldur ólíklegt að þessir menn borgi vel fyrir allar upplýsingar um feröir fálkanna. En hversu mikill ætli stuldur úr fálkahreiörum sé hér á landi? „Hann er mikill,” sagöi Ævar Peter- sen. „En hversu mikiU vitum við ekki nákvæmlega. Auövitað hvarflar það ekki aö okkur aö viö náum öllum þessum þjófum og ég er viss um aö þjófnaöur af þessu tagi er mun meiri en okkur grunar.” „Ég hef aldrei á ævinni séð fálka" En hver er hann þessi Konrad Chici- elski? Hann rekur fuglabú í Köln í Vestur-Þýskalandi meö fjölskyldu sinni. Þar ræktar hann einkum fálka, en það er hefö frá miðöldum í Þýska- landi aö nota fálka í veiðitilgangi. Menn sem rækta þessa fugla verða aö hafa nákvæmt bókhald yfir reksturinn og merkja hvern einasta fugl. Þaö er hins vegar staöreynd að fálkar verpa ekki aö neinu marki viö sUkar kringumstæöur, aö minnsta kosti ekki nærri eins mikiö og umsvif þeirra Chicielski-feöga gefa til kynna. Meira þarf aökomatil. Samkvæmt heimUdum DV er taUð aö Chicielski hafi um 25 ára skeið farið í hreiöur og tekiö þaðan unga og egg. Erfitt hefur veriö aö sanna á hann ungastuldinn. Þótt þýska lögreglan hafi verið að koma honum aö óvörum í fuglabúið og séð þar marga ómerkta unga, hefur hann aUtaf svör á reiöum höndum til útskýringar. Einu sinni var hann þó tekinn. 1968 var hann staðinn aö verki þegar hann fór í hreiður eina fálkans sem eftir var í Neðra-Saxlandi í Þýskalandi. Hreiðrið, eins og ÖU önnur í Þýskalandi, var mjög vel vaktað. Hann var sektaöur um tvö þúsund mörk og varö aö dúsa átta mánuði í fangelsi. Eftir það má rekja slóö hans frá Is- landi tU Afríku. Hann var tekinn á SikUey ’68. Árið eftir var hann kominn til Italíu með félaga sínum, Hugo Thoma. Þeir voru teknir meö 7 unga og vísað úr landi. Þeir létu þaö ekki á sig fá og næsta dag voru þeir enn komnir í sömu hreiðrin til aö ná í ungana. Þeh- voru teknir á ný og uröu aö afplána átta mánaöa fangelsisvist og greiða háa sekt. I Túnis í Afríku var Chicielski stað- inn aö verki áriö 1975. Einnig hefur hann lagt leiö sína til Spánar, en þaöan er hann brottrækur. Fyrir örfáum árum tók svo sonur hans, Lothar, flugmannspróf í Þýska- landi. Vakti þaö mikinn ugg í brjósti Þjóöverja. Hann hefur verið tekinn Chicielski-feðgarnir þegar þeir voru hér á landi 78. Sonurinn var aðeins á táningsaldri þegar þetta var. Þeim var fylgt hvert fótmál. meö fálka um borö í vélinni, en erfitt hefur reynst að sanna neitt. Það er~ ljóst, aö Chicielski hefur komist yfir nokkur hundruö unga og egg á sínum ferli. Hann notar þjálfuö vinnubrögö og hef ur f ullkominn búnaö, svo sem til aö unga út eggjum. Hann hefur tamningamenn á sínum snærum en nokkra mánuöi tekur aö temja fálka. Ef vel tekst til má fá fy rir þá um vera bílasali í Köln og sagði svo: „Eg hef alið með mér þann draum aö ef til vill gæti ég sest hér aö og gerst bóndi.” Þetta voru orð mannsins, sem gjarnan hefur verið nefndur „frægasti fálka- þjófurEvrópu”. Ekki einu sinni til skrá yfir fáikahreiður hér á landi Hvemig má bregöast við slíkum vá- gestum sem f álkaþjófar eru? I Þýskalandi hafa fuglafriöunar- menn tekiö lögin í sínar hendur. Gæta þeir fálkahreiöranna allan sólarhring- inn. Þá taka þýsku blöðin syrpu annaö slagið og skrif a um máliö. Ein slík yfir- ferö var í nóvember á síöasta ári. Einnig eru þung viöurlög viö brotum á fuglafriðunarlögunum. Hér á landi er ekki einu sinni til skrá um hvar fálkahreiöur er aö finna. Þaö stendur þó til bóta, en næsta sumar verður gerð ítarleg úttekt á fálka- hreiörum hér á landi. Þá er íslenskur maöur, Olafur Karl Nielsen, sem er viö nám viö Comell háskóla aö rannsaka lifnaöarhætti fálkans. Þetta tvennt ætti aö auðvelda alla gæslu á þessum hreiðmm, sem er engin í dag. En auövitað er það fjárveitingavaldiö sem hef ur úrslitavald þar um. Hverjar era sektir viö því aö veröa uppvís aö fálkaþjófnaöi? Aö sögn Olafs Walters Stefánssonar í dómsmálaráðuneyti, nær hinn almenni refsirammi til þess. Þar geta komiö til sektir sem numið geta allt að einni milljón króna, varðhald, sem er væg- ari tegund af innilokun og getur orðið allt að tvö ár, eða fangelsi sem getur orðiö allt aö sextán ár. Er þaö dómar- ans aö meta, hversu mikið brotið er. Fyrir tæpum tveimur árum féll í Sakadómi Reykjavíkur úrskurður um skylt mál. Var þar maður ákærður fyrir aö stela ýmsum tegundum af eggjum úr hreiörum. Dómurinn hljóð- aði upp á 30 þúsund króna sekt, upp- töku á eggjum og búnaði. Aösögn Hall- varös Einvarðssonar rannsóknarlög- reglustjóra þyngist dómurinn sé um fágæta fugla að ræöa. Hvers vegna var ekki eggjunum skjlað í hreiðrin? Þaö hefur vakiö nokkra undrun Þessar myndir eru teknar 1978. Fyrir ofan er Konrad Chicielski. Hann sagði i viðtali við Visi að hann „hefði aldrei á ævinni séð fálka!" Til hliðar er mynd, sem tekin var þegar feðgarnir voru handteknir við Hlégarð eftir að þeim hafði verið veitt eftirför i fjóra daga. Konrad Chicielski, sá með alpahúfuna, var vísað aflandi brott eftir þetta. Syn- inum hins' vegar ekki, enda átti hann eftir að koma hingað tíl lands siðar. Fyrir neðan er svo mynd af hluta þess útbúnaðar sem feðgarnir höfðu meðferðis. tvær milljónir íslenskra króna og eggin má selja á 80 til 300 þúsund krónur. Verðiö fer eftir tegundum, framboöi og eftirspurn. Það er því orö aö sönnu aö Chicielski er eins hættulegur fuglalífi og banka- ræningi er fyrir þjóðfélagið og bank- ana. Því má bæta viö eftir þessa upptaln- ingu að þegar Chicielski var hér á landi ’78 birtist viö hann viðtal í Vísi. Þar sagöi hann: „Eg hef aldrei á æv- inni séö fálka. Eg get stokkið hér út um gluggann upp á það!” Þá sagðist hann hvers vegna eggjunum, sem tekin voru núna í vikunni, var ekki skilað. „Það er mjög erfitt,” sagði Ævar Petersen. „Eitt fálkapariö var farið úr hreiörinu og þegar maður veit ekki nákvæmlega um útungunarstig eggj- anna er ekki hægt aö setja egg hjá ööram fálka. Það getur eyöilagt fyrir báöum. Þaö hefði veriö mögulegt að unga þeim út og sleppa svo fálkunum í haust. En viö værum engu nær. Slíku fylgdi mikill kostnaður. Viö yrðum aö fá einhverja aðstööu til þessa og auk þess y röum viö aö fylg jast með f uglun- um. Þaö er stórvafasamt að fuglarnir heföu plummað sig, þar sem þá vantar foreldra til að herða sig í lífsbarátt- unni.” — Var það ekki ómaksins vert? „Nei, því aö við höfum einfaldlega ekki fjármagn til þess.” — Kom ekki til greina að unga út og setja ungana til dæmis á Sædýrasafn- ið? „Þaö er menntamálaráðherra að ákveða það og ekkert slíkt var gert,” sagði Ævar Petersen. Háar sektir og fangelsi Þaö er ljóst að eitthvað verður að gera og þaö strax ef við viljum ekki að fálkinn veröi útdauöur á Islandi. Himinháar sektir og fangelsi myndu ráöa þar miklu um, 30 þúsund krónur fyrir menn á borö við Chicielski er ekk- ert. Þá ættu yfirvöld að sjá sóma sinn í aö fylgja rannsóknunum á fálkanum eftir með þvi að koma upp strangri gæslu við þau fáu fálkahreiður sem eftir eru. -KÞ

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.