Dagblaðið Vísir - DV - 30.04.1988, Blaðsíða 4
4
LAUGARDAGUR 30. APRÍL 1988.
Fréttir
Sýslumaður Húnvetninga:
Framkvæmdi ólöglegt
nauðungaruppboð
- að mati Hæstaréttar
Hæstiréttur hefur kveðið upp dóm
í máli sem kært var vegna nauðung-
aruppboðs sem fram fór á Blönduósi
21. desember 1987. Það var Lífeyris-
sjóður verkalýðsfélaganna á Norður-
landri vestra sem kærði Jón ísberg
sýslumann. Hæstiréttur komst að
þeirri niðurstöðu að uppboðið hefði
verið ólöglegt og vísaði því heim í
hérað til löglegrar meðferðar.
Lífeyrissjóðnum var slegin húseign
á nauðungaruppboði. Lífeyrissjóður-
inn krafðist úúagningar á eigninni
sem ófuUnægður veöhafi. Lögmaður
Lífeyrissjóðsins lét bóka við upp-
boöið að Lífeyrissjóðurinn áskildi sér
rétt til að koma á mótmælum gegn
hluta fjárnámskrafnanna. Mótmæl-
unum er fylgt eftir með bréfi sjöunda
mars síðastliöinn. •
Mótmælt var fjárnámum sem gerð
voru vegna skulda eiginmanns fyrr-
verandi eiganda íbúðarinnar.
Lögmaðurinn taldi að þó um þjón
væri aö ræöa þá stæöu hjúskapar-
eignir konunnar ekki til fullnustu á
skuldum eiginmannsins. Þess var
krafist að úrskurðaö yröi að viðkom-
andi skuldareigendur ættu ekki
kröfu í uppboðsandvirði eignarinn-
ar.
Frá Jóni ísberg sýslumanni kom
ekki fram formleg greinargerð. Bréf-
lega lét hann þess getið að um
kæruna segði hann ekkert en heföi
talið greinargerð óþarfa og viljaö
flýta málinu.
Dóminn kváöu upp hæstaréttar-
dómaramir Guðmundur Skaftason,
Benedikt Blöndal og Hjörtur Torfa-
son, settur hæstaréttardómari.
-sme
Ríkissjóður:
Gatið er 3,7
milljarðar
Rikissjóður var rekinn með 2,1
milljarös króna halla á fyrstu
þremur mánuðum þessa árs. Um
3,7 milljaröa vantaöi svo að sjóð-
urinn stæði undir afborgunum
lána. Þetta hvoru tveggja er svip-
að og áætlaö var. Þetta á að vera
svona, samkvæmt áætlun fjár-
málaráðuneytisins. Stefnt er að
þvi að endar náist saman í lok
ársins.
Nokkur frávik urðu þó frá áætl-
unum. 470 milJjón króna erlent
lán var slegið en ekki hafði verið
gert ráð fyrir slíku. Þá voru ein-
ungis greiddar 40 milljónir 1
afborganir af erlendum lánum en
stefnt hafði veriö á 355 milljónir.
Vaxtagreiðslur urðu meiri og
sömuleiöis uppbætur ríkissjóðs á
lifeyri starfsmanna sinna. Þær
fóru 105 milljónir fram úr áætlun
eða 48 prósent. Ef fer sem horfir
má því búast við aö þessi póstur
veröi um 1.318 miHjónir á árinu
í stað 861 milljónar eins og gert
var ráð fyrir.
Flest önnur frávik voru lítils
háttar eða stafa af sveiflum innan
ársins. Á blaðamannafundi, .þar
sem þessar niöurstöður voru
kynntar, lýstu Forsvarsmenn
fjármálaráöuneytisins yfir
ánægju með hvernig eigin áætl-
anir hefðu staðist. -gse
Morgunblaðið breytir auglýs-
ingu landlæknis um eyðni
Auglýsing frá landlæknisembætt-
inu, sem sýnir samfarir karls og
konu og hefur vakiö mikla athygh í
sjónvarpi, vakti enn meiri athygli
þegar Morgunblaðið birti auglýsing-
una í gær þar sem fólkið hafði verið
klippt af myndinni.
Auglýsingastofan Svona gerum við
sá umgerð auglýsingarinnar. Ólafur
Ingi Ólafsson hjá Svona gerum við
sagði í samtaU við DV að Morgun-
blaðið hefði ekki viljað birta auglýs-
inguna eins og hún birtist t.d. í DV,
heldur hefði verið fariö fram á aö
henni yrði breytt. „Viö völdum frek-
ar að birta auglýsinguna breytta en
að fá hana ekki birta. Morgunblaðið
Jfór fram á að auglýsingunni yrði
breytt þrátt fyrir að landlæknir hefði
lagt blessun sína yfir hana og hún
hefði birst athugasemdalaust í öðr-
um fjölmiðlum. Það er hins vegar
ekki um þaö að ræða að henni hafi
verið breytt aö okkur forspurðum.
Viö erum auövitað ekkert ánægðir
með þetta, enda er þetta ekkert voða-
legt klám. Við reyndum í þessari
auglýsingu að sýna fólk í kynlífi á
Seðlabanki skattlaus vegna dýrra innréttinga
Ríkissjóður missir spón úr aski BankinnhafðiborgaðrúmarSOmillj- vegna tapsins sem aö stórum hluta
sínumvegna 1.100 taprekstrar Seöla- ónir til samneyslunnar bæði í fyrra má rekja til innréttinganna í stóra
bankans í fyrra. Bankinn borgar ogáriðþaráundan.Núsleppurhann húsið við Kalkofnsveg.
engan skatt í ríkissjóð sökum hans. hins vegar við allar skattgreiöslur -gse
Klippta auglýsingin eins og hún birtist i Morgunblaðinu. Til samanburðar
er auglýsingin óbreytt eins og hún birtist i DV.
eins saklauSan hátt og mögulegt er,
til að koma boðskapnum til skila,“
sagði Ólafur.
Landlæknir, Ólafur Ólafsson, vildi
aöeins segja um breytingu Morgun-
blaðsins á auglýsingunni að báöir
aðilar væru sáttir við þessa lausn.
Ekki náðist samband við ritstjóra
Morgunblaðsins.
-JBj
Menning
Svipir í myrkri
Sýning Valgerðar Bergsdóttur í Gallerí Svart á hvítu
Valgerður Bergsdóttir - Án nafns, blýteikning.
Valgerður Bergsdóttir hefur
ævinlega farið sínar eigin leiðir í
myndlistinni, óháö listrænu veður-
fari og ástandi vega.
Til skamms tíma skáru dúk-
skurðarmyndir hennar sig úr
annarri íslenskri grafik fyrir dálít-
ið myrka og sérsinna úrvinnslu á
einfoldum forsendum, aö því marki
að viöfangsefni hennar virtust taka
á sig dýpri merkingu fyrir listakon-
una sjálfa en áhorfandann.
Ég hef grun um að á endanum
hafi þessi grafík komið Valgeröi í
listræna sjálfheldu, sem er kannski
ein skýringin á því hve lítið hefur
sést eftir hana í talsvert langan
tíma.
í framhaldi af því er ekki fráleitt
aö líta á risastórar og ólgandi teikn-
ingar hennar í svart/hvítu (í GaUerí
Svart á hvítu) sem meiri háttar
útrás, viðleitni til að brióta af sér
hlekki vanans og byrja upp á nýtt.
Viö gerð þessara mynda gengur
Myndlist
Aðalsteinn Ingólfson
Valgerður til verks nánast eins og
myndhöggvari, rissar með ritblýi
uns hún er komin nægilega djúpt
„ofan í“ flötinn, notar síöan mýkri
og „grynnri“ fleti sem mótvægi við
þær, lýsir ennfremur og dekkir
strúktúrinn eftir þörfum með
strokleðri og öðrum ráðum.
Samt sem áður ræðst uppbygging
þessara verka fyrst og fremst af
dráttlistinni, misjafnlega fastri og
víðtækri sveiflu handarinnar með
ritblýið - og í stærri myndum af
viöbrögðum alls líkamans við víð-
áttu flatarins.
En þótt ég sé fullur aðdáunar á
því hvemig Valgeröur byggir upp
og blæs lífsanda í hina stóru mynd-
fleti sína með ritblýinu einu get ég
ekki gert upp hug minn gagnvart
„felumyndum“ hennar.
Ég var nefnilega orðinn alveg
sáttur við byggingu þeirra, tog-
streitu kraftlínanna og samspil
blæbrigða, er ég uppgötvaöi að inn-
an í þessum verkum voru faldar
mannverur eða „svipir".
Þá fóru myndirnar að trufla mig,
og þá helst fyrir það að mér þótti
þessar verur hafa of almenna til-
finningalega skírskotun til að bæta
nokkru sem máli skipti við það sem
þegar kom fram í óhlutbundnum
formum þeirra.
Hins vegar magnar nærvera
„svipanna" upp togstreitu, og þá
jafnframt myndspennu, í þessum
verkum, sem annars væri ekki fyr-
ir hendi. .ai
Ákærður fyrir að
bana konu sinni
Bragi ólafsson, Klapparstig 11 í
Reykjavík, hefur verið ákærður
fyrir manndráp, Bragi er ákærð-
ur fyrir aö hafa svipt eiginkonu
sína, Grétu Birgisdóttur, lifi á
heimili þeirra aðfaranótt sunnu-
dagsins 10. janúar 1988.
i ákærunni segir að Bragi Ól-
afsson hafi misþyrmt eiginkonu
sinni með spörkum í andlit og
höfuð og vafiö síðan köðlum um
háls hennar. Viö það brotnaði
skjaldbrjóskið. Banamein hennar
var köfnun.
Eftir handtöku neitaði Bragi aö
hafa orðið konu sinni að bana.
Hann hélt því fram aö hún heföi
skaðað sig sjálf. Þau höföu bæði
komiö við sögu lögreglu, fyrst og
fremst vegna óreglu.
Bragi Ólafsson er fæddur 17.
nóvember 1936 og er 51 árs gam-
all. Gréta Birgisdóttir fæddist 23.
apríl 1961, hún var 26 ára gömul
er hún lést. -sme
Bjórfhimvarpið:
Breytingartillaga
líkleg í efri deild
Meirihluti allsherjarnefndar
efri deildar hefur nú afgreitt bjór-
frumvarpið og mælir með þvi að
frumvarpiö verði samþykkt eins
og það kom frá neðri deild. Undír
þetta skrifa Jóhann Einvarðsson
formaður, Guðmundur Ágústs-
son, Salome Þorkelsdóttir, Eiöur
Guðnason, Eyjóliur Konráö
Jónsson og Stefán Guðmundsson.
Guðrún Agnarsdóttir er eini
nefndarmaöurinn sem ekki skrif-
ar undir þetta álit en hún hefur
þó ekki skilað séráliti. Guðrún
sagði aö vel gæfi svo farið aö hún
mundi leggja fram breytingartil-
lögu ásamt öörum en hún heföi
ekki tekið ákvöröun um það enn.
Talið er líklegt aö breytingartil-
laga komi fram um frumvarpið
og þá helst rætt um að tillagan
um þjóðaratkvæöi verði viðruö á
nú. Þar sem skammt er nú til
þingloka þá gæti breytingartil-
laga hægt svo á málinu að það
fengi ekki afgreiðslu. -SMJ
lOOþúsundísekt
-afll og velðarferi upptæk
Skipstjórinn á fiskibátnum
Faxaborgu GK 7 hefur verið
dæmdur til aö greiöa 100 þúsund
króna sekt vegna veiöa í lokuöu
hólfi vestur á Stafnesi. Það var á
miövikudag sem báturinn var
staöinn aö ólöglegum veiöum.
Skipstjórinn var dæmdur í 50
daga varðhald til vara. Afli og
veiöarfæri voru gerð upptæk.
Báturinn var aö byrja veiðiferð.
Afli var mjög lítill, eöa 40 kíló af
kola og 20 kíló af ýsu. Veiðarfæri
voru metin á 200 þúsund krónur.
Faxaborg er tæplega tíu tonna
dragnótarbátur. Skipstjórinn bar
því viö að hann liaifi ekki vitaö
aö hólfiö væri lokað. Ásgeir Ei-
ríksson, dómarafulltrúi við
embætti bæjarfógetans í Kefla-
vík, kvaö upp dóminn. -sme
Fleiri grisir
hafa drepist
Fleiri grísir hafa drepist f svína-
búinu þar sem kom upp torkenni-
leg veiki fyrir páska og leiddi
nokkur dýr til dauða. I fýrstu
töldu dýralæknar að um svina-
pest væri aö ræða. Sýni voru send
til Danmerkur til rannsóknar.
Niðurstaða rannsóknarinnar
ætti að hafa borist til landsins.
Páll A. Pálsson yfirdýralæknir
sagðist eiga von á niðurstöðunum
á allra næstu dögum.
Einkenni á grísunum sem dráp-
ust nú eru svipuð og á þeim
dýrum er drápust fyrir páska. DV
hefur þaö eftir öruggum heimild-
um aö dýrin hafi ekki drepist úr
svínapest. -sme