Þjóðviljinn - 23.11.1971, Blaðsíða 1
Þriðjudagur 23. nóvember 1971 — 36. árgangur — 267. tölublað.
Tvö stjórnarfrumvörp:
40 stunda vinnuvika
og lenging orlofs
í gær voru lögð fram
á Alþingi tvö stjómar-
Þingfulltrúar við atkvæðagreiðslu
frumvörp. Var annað
frumvarp til laga um 40
stunda vinnuviku, en
hitt fmimvarp til laga
um orlof.
Eins og fram kom í ræðu fé-
lagsmálaráðherra fyrir skömmu,
var það eitt af fyrstu verkum
stjórnarinnar, að skipa nefnd til
að vinna að orlofs. og vinnu-
tímamálum í samræmi við mál-
esfnasamninginn. Hins vegar var
það í samráði við aðila vinnu-
markaðarins, að ekki voru lögð
fram frumvörp um málið strax,
heldur þótti asskilegt. að reyna
að láta breytingar á vinnudma
og orlofi falla sem mest inn i
samningana að öðru leyti.
Nú hefur stjórnin hins vegar
lagt frumvörp þessi fram, og
gera þau ráð fyrir 40 stunda
vinnuviku fyrir flesta launþega
í landinu og nokkurri lengingu
orlofs. Verður nánar sagt frá
þessum frumvörpum síðar.
Landsfundurínn efídi Alþýðubanda-
lagið að þrótti og baráttuhæfni
Ragnar Arnalds einróma endurkjörinn formaður flokksins,
Adda Bára varaformaður og Jón Snorri Þorleifsson ritari
★ Landstundur Alþýðubanda-
lagsins var haldinn um helgina
á Hótel Loftleiðum — í aðal-
bækistöðvum auðvaidsins, eins og
einn fundarmanna orðaði það —
og tókst fundurinn hið bezta.
Fundinum lauk á sunnudags-
kvöld. Það sem setti svip sinn á
Iandsfundinn var framar öðru
hreinskilin umræða ungra manna
sem ekki hafa áður í jafnríkum
mæli tekið þátt í tlokksstarfi Al-
þýðubandalagsins. Einhugur ríkti
meðal fundarmanna um öii meg-
inmál fundarins og þrátt fyrir
snarpa deilu um lagagreinar
kcmur Alþýðubindalagið sterk-
ara frá þessum landsfundi en
það var við upphaf hans. Og
það er ekki lítill árangur fyrír
stjómmálafiokk.
Ferja sekkur
Tvö hundruð skólanemend-
ur fórust á s unnu d agskvöld
er ferju hvolfdi út af strönd
Filippseyja og aðeins einn
farþeganna hefur fundizt lífs.
Ferjan var ofhlaðin. og í ó-
löglegum fólksflutningum.
Ragnair Amalds, alþingismað-
uir, var endurkjörinn foianaöur
Al'þýðuhandalagsins með l'ófataki,
en uppstillingamefnd gerði ein-
róma tillögu um Ragnar til foir-
maninssitarlls áfram. Einmig varð
varaformaður, Adda Bára Sig-
fúsdóttir endurkjörin með lófa-
taki. Guðjón Jónsson sem venð
hefiur ritari Alþýðubandaiaigsim
frá landsfiundinium 1968 baðst
eindregið undan endurkjöri. Guð-
jóni voru þölkikuð góð störf í
þágu flokksins, er hann gegndi
ritarastarf'iinu. Nú var kosdnin í
ritarastarfið Jón Snorri ÞorleiiEs-
son, formaður Trésmiðafélags
Reykjavikur og var hanm ein-
róma kosinn tdl þess stainfis.
Miðstjóm var kjörin. á sumniu-
daig; máðstjómin er 30 manna, 27
mamns auk formanns, varafor-
mianns og ritara. Á imnsíðuim
blaðsins er bdrtur listi yfir menn
í mdðstjóm og varastjóm ásamt
atkivæðatölum hvers og edns. "Þá
eru birtar ályktanir um stjóm-
miálaásitandið, um utamríkisimá.'l,
um húsnæðdsmál. verðlagsmál, og
fleira efini er frá landsfumdinium
í Þjóðviljanum í dag.
Landsfundurinm um síðustu
helgi varð til þess að efla Al-
þýðubandalagið enn að þrótti og
baráttuihæifini.
Sjá síður 5, 6 og 7 og forustu-
gredn á siðu 4.
Stöðugir sáttafundir um helgina
Yfirvinnubann hjá bókagerðar-
mönnum sett um miðja viku
Getraunamet:
222með 12
rétta—1581
með 11 rétta
Algert met var sett í get-
raunastarfseminni um síð-
ustu helgi Þetta met var
margþætt. í fyrsta lagi voru
222 manns með 12 rétta en
mest höfðu áður verið 14 með
12 rétta. Þá var 1581 seðill
með ll réttum en mest höfðu
áður borizt rúmlega 200 seðlar
með 11 réttum, en það var í
fyrravetur í sama skipti og
14 seðlar bárnst með 12 rétt-
um. Þeir seðlar, sem að þessu
sinni komu með 10 réttum,
skiptu þúsundum. en oftar en
ekki hafa 10 réttir dugað til
vinnings.
Þrátt fyrir að potturinn i
væri nú stærri en nokkru'
sinni fyrr, eða 650 þúsund
krónur, koma aðeins 2500 kr.
í hlut hvers er hafði 12 rétta
og hefur áreiðanlega margur
orðið fyrir vonbigðum er
hann frétti það. eftir að hafa
hoppað i loft upp í stofunni
heima hjá sér með 12 rétta
á laugardaginn. Að þessu
sinni var um sölumet að
ræða hjá Getraunum því að
nú seldust 4000 seðlum meira
en þegar síðasta met var sett.
en það var síðustu vikuna í
ensku knattspyrnunni sl. vor.
— S.dór.
Stöðugir fundir voru
með sáttanefnd um helg-
ina um gerð nýrra kjara-
samninga. Þannig voru
samningafundir á laug-
ardag og sunnudag og í
gær hófst samningafund-
ur að Hótel Loftleiðum
kl. 14 og stóð fram á
kvöld.
FÁRVIÐRI í EVRÓPU
Mannskaðar og stórhríð suður. eftir allri álfu
Vetur konungur kvaddi harka-
lcga dyra hjá Evrópubúum um
helgina. Norðanvindar blésu
köldu suður eftir aliri álfu og
hríðarbylir og frost ollu stór-
töfum á samgöngum á iáði og
legi. f flestum héruðum Frakk-
lands var allt á kafi í snjó, og
það fennti meira að scgja á
eynni Korsíku, í ylvolgu Mið-
jarðarhafinu. Fólk á Palíu, sem
ætlaði í helgarferð í góða veðr-
inu, varð heldur hvumsa við er
á skall blindhríð, og komust
menn í hann krappan af þeim
sökum suður eftir skaganum,
allt tU Appcnínafjalla.
Víða í Vestur-Þýzkalandi varð
að loka hraðbrautum vegna
íannfergis, og lögreglan telur
veðrið hafa valdið að minnsta
kosti tuttuigu banaslysum í um-
ferðinni. Lögregluyfirvöld í Dan-
mörku telja þrettán manns hafa
látið lífið þar af sömu orsökum.
Vindihraðinn í Skandinavíu komst
upp í 90 kílómetra á klukku-
stund, og aiftaka veður var á
Norðursjónum. Þar fórst vestur-
þýzikt flutningaskip með sex
manna áhöfn, og óttast er að
fjögurra manna áhöfn dansks
vélbáts hafi hreppt sömu örlög,
en hanis er salknað síðan á laug-
Björgunarsveit brauzt á mánu-
daginn gegnum stórhríð í skozka
hálendinu, til að koma sjö skóla-
nemendum til hjálpar en þegar
að kom, var aðeins einn á lífi,
hinir sex höfðu orðið úti, aðeins
nokikur hundnað metra frá næsta
bæ. Unglinigarnir, sem voru frá
Edinborg, fundust í skafli í hlíð-
um Cairngiromfjalia ámiðhálendi
Skotlands. Þau höfðu ætlað fót-
gangandi til sæluhúss nokkurs,
en stórhríðin yfirbugað þau áður
en á leiðarenda kom. Það voru
fjórar stúlkur og tveir piltar
sem úti urðu, þau voru íimmtán
og sextán ára gömui.
Það hefur ekki sitaðið á við-
brögðum stéttarfélaga í land-
inu við þeim tilmælum 40 manna
ráðstefnu A.S.Í. að boða verk-
föH 2. desember. Þannig viar
samþykkt í gærkvöid á trúnað-
anm ann a ráðsiundi Iðju, félags
verksmi'ðjufólks í Reykjavik að
boða verkfall 2. desember. Þá
hefur verkalýðsféiagið í Nes-
kaupsitað samþykkt að boða
verkfall 2. desember
Bókagerðarmenn ætla að til-
kynna yfirvinnubann í dag frá
miðnætti miðvikud um óákveð-
inn tíma. Er ekki vitað betur en
prentmyndasmiðir, prentarar,
offsettprentarar og bókbindarar
tilkynni viðkomandi atvinnurek-
endum um þetita yfirvinnubann
bréflega í daig. Nær það til
landsins alls.
í>á hefur Byggiragiariðnaðair-
mannafélagið í Hafnarfirði boð-
að verkfiaH 2. desember og
Bátasölur
Þrír bátar seldu erlendis um
helgina fyrir 3,6 miljónir króna.
Steinunn seldi 34 lestir í Huil og
fékk 38,30 k/ á kiló Sæunn
seldi í Bremerbaven 33 lestir og
fékk 38,10 kr. á k'íló og Faxi 34
lestir og fékk 30 krónur á kátó.
Prentmyndasmiðafélag íslands.
Ennfremur hefur Iðja í Hafnarf.
og Verkalýðsfélagið Rangæingur
gefið heimild til vinnustöðvunar.
í gærkvöld voru haldnir trún-
aðarráðsfundir í mörgum félög-
um er fjölluðu um verkfailsboð-
un 2. desember.
DAUÐASL YS
f HRÍSEY
Féll fyrir borð
og drukknaði
Það slys varð í Hrísey s. L
sunnudag að Þorbjöm Jónsson,
starfsmaður kaupfélagins í Hrís-
ey, féil fyrir borð af litlium báti
og dnukknaði. Gerðist þetta laust
eftir hádegið rétt fyrir norðan
eyjuna.
Þorbjöm var þama á fuigla-
veiðum og vissi enginn neitt
fyrr en menn á nálægum bátum
3u allt í einu bát Þorbjöms
tma um mannlausan. Þorbjöm
var einn í bátnum og sá því
enginn með hvaða hætti siysið
varð. Siysið gerðist rétt fyrir
norðan eyjuna, en þrátt fyrir
miMa ledt faranst líltið ekfci.
Þorbjöm Jónsson var kvæntur
og 5 bama faðir. — S.dór.
Ók á fjárhóp
Það slys varð rétt fyrir ofan
Akranes að bifreið ók á fjár-
hóp og drápust við það 5 kind-
ur. Þetta gerðist um kl. 17.30
sl. laugardag. Ekki drápust ali-
ar kindurnar við áreksturinn, en
sumar voru það illa slasaðar að
lóga varð þeim á staðnum.
Sjómannafélag Reykjavíkur
Listi starfandi
sjómanna kominn
Framundan eru kosningar í Sjómannafélasi Reykjavík-
ur og hefur komið fram nýr listi — listi starfandi sjó-
manna. Formannsefni er Pétur Ólafsson, en varaformanns-
efni Jón Tímóteusson. Heyrzt hefur að efsti maður á
Iista stjórnarinnar verði Hilmar Jónsson, núverandi fram-
kvæmdastjóri, en Jón Sigurðsson muni nú draga sig í hlé
sem formaður félagsins; hann mun starta áfram í Sjó-
mannasambandinu.