Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2002, Blaðsíða 21

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2002, Blaðsíða 21
MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 2002 DV 21 Tilvera Keith Jarret 57 ára Keith Jarret á að baki 35 ára farsælan feril. Hann er snilling- ur sem hefur haft ómæld áhrif á yngri djasspíanista. Á síðustu 15 árum hefur hann einnig getið sér gott orð sem klassísk- ur píanóleikari og hefur á þeim vett- vangi einbeitt sér að nítjándu aldar tónlist fyrir píanó og habsicord. Þá hefur hann samið smá og stór tón- verk. Jarret fæddist í Pennsylvaníu og byrjaði þriggja ára gamali að leika á píanó og vakti snemma athygli. Áð- ur en hann varð fimmtán ára hafði hann leikið í mörgum tónleikahöllum. Gildir fyrir fímmtudaginn 9. maí Vatnsberinn (20. ian.-18. febr.i: LEinhver spenna ríkir í ' kringum þig og hún gerir þér erfltt fyrir að sinna því sem þú þarft. Þegar líður á daginn batnar ástandið til muna. Fiskarnir (39. febr.-20. marsl: | Þú gerir áætlanir varðandi framtíðina og það er líklegt að þær standist. Gefðu þér meiri tíma fyrir sjálfan þig, það borgar sig. Hrúturinn (21. mars-19. apríl): . Láttu ekki vaða ofan í *þig þó að einhver sé með tilburði í þá átt. _ Stattu á þínu og farðu eftir eigin innsæi. Happatölur þinar eru 5, 11 og 22. Nautið (70. ann'l-20. maí>: Eitthvað verðu til þess að gleðja þig sérstaklega. Líklega er það velgengni Evers þér nákomins. Happatölur þínar eru 13, 24 og 30. Tvíburarnir (21. mai-2i. íúní>: V Reyndu að gera þér y^^grein fyrir ástandinu I í kringum þig. Þú gætir þurft að taka skjóta ákvörðun sem á eftir að hafa mikil áhrif. Krabblnn (22. iúní-22. iúiíl: | Gerðu þér dagamun, | þú átt það skilið eftir ' allt sem þú hefur lagt á þig undanfarið. i þínu striki og láttu engan trufla þig. Uónlð (23. iúlí- 22. áeústl: Þú færð fréttir af máli sem ekki hefur verið á dagskrá lengi. Það á eftir að vera talsvert í umræðunni á næstunni. Happatölur þinar eru 2,19 og 34. Mevlan (23. áeúst-22. sept.l: A. Þér hættir til að vera /yyft dálitið óraunsær. Það ^^^l»væri þægilegra fyrir * f þig ef þér tækist að breyta því. Hugaðu að heilsunni, sérstaklega mataræöinu. Vpgln (23. sept.-23. OkU: J Ekki er allt gull sem glóir. Farðu varlega \ f í viðskiptum og r f leitaðu til sérfróðra manna ef þú hyggur á meiri háttar viðskipti. Sporðdreklnn (24. okt.-21. nóv.): I Gleymdu ekki að gH sinna öldruðum ■ættingja sem þarfnast þín. Það er afskaplega þakklátt að þú eyðir örlitið meiri tima í að sinna honum. Sjötugur Guðmundur Jónsson fyrrverandi bóndi Guðmundur Jónsson, Strandgötu 32, Neskaupstað, er sjötugur á morg- un, 9. maí. Starfsferill Guðmundur fæddist á Hallsstöðum á Fellsströnd í Dalasýslu, 9. maí 1932. Hann stundaði búskap í Túnsgarði á Fellsströnd 1952-79 og í Skógum í sama hreppi 1979-91 er hann brá búi og flutti til Neskaupstaðar. Fjölskylda Guðmundur kvæntist 14. 9. 1956 Ester Kristjánsdóttur, húsmóður f. 11. 6. 1938, frá Efri-Múla í Saurbæjar- hreppi. Hún er dóttir hjónanna Krist- jáns Jóhannssonar, f. 5. 12. 1901, d. 9. 11.1970 og Valgerðar Hannesdóttur, f. 10. 4. 1898, d. 2. 7. 1992. Börn Guðmundar og Esterar eru Jón, f. 28. 6.1956, búsettur í Neskaup- stað, sambýliskona hans er Ragnheið- ur Þórarinsdóttir og eiga þau einn son, en hann á þrjú böm frá fyrra hjónabandi; Valgeir Kristján, f. 7. 4. 1958, búsettur í Neskaupstað, kvæntur Elísabetu Birgisdóttur og eiga þau þrjú böm, og tvö bamaböm; Friðjón, f. 25. 3. 1959, b. á Hallsstöðum á Fells- strönd, sambýliskona hans er Kristín Heiðbrá Sveinbjömsdóttir og eiga þau 4 börn; Garðar Hlíðar, f. 16. 5. 1962, búsettur í Reykjavík, sambýliskona hans er Kristín Ákadóttir og á hann tvö böm; María Kristín, f. 9. 4. 1965, búsett í Reykjavík, gift Jóni Helga Eiðssyni og eiga þau eina dóttur. Fyr- ir átti María eina dóttur; Guðni Hann- es, f. 20.10.1972, búsettur á Akureyri, sambýliskona hans er Sigríður Lovísa Bjömsdóttir og eiga þau eina dóttur. Bræður Guðmundar eru Hilmar, f. 9. 7. 1933, búsettur í Kópavogi, kvænt- ur Kristinu Guðmundsdóttur og eiga þau þrjá syni; Einar Hólm, f. 20. 10. 1936, búsettur í Stykkishólmi, sam- býliskona hans er Valgerður Valdi- marsdóttir; Kristinn, f. 9. 8. 1948, bú- settur á Bifröst og á hann þrjá syni; Svanur, f. 29. 6.1950, búsettur á Akra- nesi, kvæntur Halldóru Daníelsdóttur og á hann þrjú börn. Foreldrar Guðmundar: Jón Guð- mundsson, f. 19.1.1909, d. 7. 4.1979, b. á Hallsstöðum, og kona hans, Jófríður Einarsdóttir, f. 5. 3.1907, sem nú dvel- ur á dvalarheimilinu Silfurtúni í Búð- ardal. Ætt Jón var sonur Guðmundar, bróður Sigurbjargar, langömmu Þorgeirs Ást- valdssonar dagskrárgerðarmanns, Svavars Gestssonar f.v. alþingis- manns og nú sendiherra og ömmu Friðjóns sýslumanns, fóður Þórðar, forstjóra Þjóðhagsstofnunar. Guð- mundur var sonur Jóns, b. í Skógum, Jónssonar. Móðir Jóns í Skógum var Ingveldur á Hallsstöðum, Þorkelsdótt- ir, b. í Knarrarhöfn, Þorkelssonar, á Hömrum í Hraunhreppi (Laga-Móra), Sigurðssonar. Móðir Guðmundar á Breiðabólstað var Salome Þorsteins- dóttir, b. á Leysingjastöðum, Helga- sonar, b. á Leysingjastöðum, Jónsson- ar, b. á Skarfsstöðum, Guðmundsson- ar, b. í Sælingsdal, Péturssonar. Móð- ir Jóns á Skarfsstöðum var Sólveig Ásgeirsdóttir, prests í Tröllatungu, Einarssonar. Móðir Jóns á Hallsstöðum var Kristín Jónasdóttir, b. í Köldukinn, Magnússonar, b. í Arnarbæli, Magn- ússonar. Móðir Kristinar var María Ólafsdóttir. Móðir Maríu var Ingi- björg Oddsdóttir. Móðir Ingibjargar var Þuríður Ormsdóttir, hreppstjóra í Fremri-Langey og ættfóður Ormsætt- arinnar, Sigurðssonar. Jófríður var dóttir Einars, b. í Vogi, Guðbrandssonar, b. í Vogi, Einarsson- ar, b. á Kýrunnarstöðum, Einarsson- ar. Móðir Einars í Vogi var Jóhanna Guðrún Jónsdóttir, b. í Knarrarhöfh, Jónssonar, b. í Skálholtsvík, Hjálm- arssonar, prests í Tröllatungu og ætt- föður Tröllatunguættarinnar, Þor- steinssonar. Móðir Jófríðar var Hólmfríður Ágústa Bjömsdóttir, b. á Ytra-Felli, Ólafssonar, b. á Hlaðhamri, Bjöms- sonar, b. á Orrastöðum, Bjömssonar. Guðmundur tekur á móti gestum þann 11. maí í Sigfúsarhúsi, húsi eldri borgara á Norðflrði, frá kl. 16.00. Fimmtug Ingibjörg Gísladóttir þroskaþjálfi Ingibjörg Gísladóttir þroskaþjálfi, Vesturgötu 23 í Reykjavík, er fimmtug á morgun, 9. maí. Starfsferill Ingibjörg fæddist á Seyðisfirði, 9. maí 1952 og ólst þar upp. Hún útskrifaðist frá Þroskaþjálfa- skóla íslands árið 1976 og hefur starf- að síðastliðin 30 ár að mestu leyti með fólk með þroskahömlun, m.a. á eftir- töldum stöðum: Kópavogshæli, Skála- túni, Leikskólanum Brákarborg, Von- arlandi og sambýlinu Stekkjartröð 1 á Egilsstöðum, Lækjarási, Sólheimum í Grímsnesi, og nú í Bjarkarási. Ingibjörg bjó um átta ára skeið í Svíþjóð, Noregi og Danmmörku og starfaði á sambýlum og dagvistun fyr- ir þroskahefta. Fjolskylda Sambýlismaður Ingibjargar er Charles Jón Brainard, vélsmiður, f. 24. 2. 1958. Foreldrar hans: Guðný Jónsdóttir, f. 12. 2.1927 og Charles Gil- bert Brainard, f. 18. 5.1926 nú látinn, til heimilis í DeBary, Flórída. Dóttir Ingibjargar frá fyrri sambúð er Björk Albertsdóttir, f. 27. 2. 1978, hennar sonur er Bergur Snorri, f. 18. 5. 2000. Þau búa i Reykjavík. Systkini Ingibjargar eru Sigurður Kristinn, búsettur í Garðabæ, f. 14. 6. 1955, giftur Mörthu Finnsdóttur, þau eiga soninn Finn Martein. Sigtryggur, býr á Akureyri, f. 8. 8. 1956, hann á fjögur böm: Telmu, gift Kjartani Emi Sigurðssyni og eiga þau dótturina Maríu Sól; Kjartan, Sigurð Kristinn og Guðborgu Björk. Ólafia María, f. 9. 2.1958, í sambúð með Guðjóni Egilssyni. Þau búa á Seyðisfirði og eiga soninn Emil Smára. Áður átti Ólafía soninn Gísla og Guðjón synina Snorra, Egil og Jó- hann og þrjú barnaböm. Ragnheiður, f. 2.10. 1965, búsett í Kópavogi, er í sambúð með Sigurði Víðissyni og eiga þau soninn Birki Örn. Áður átti Ragnheiður soninn Andrés Má og Sigurður dótturina Ágústu. Guðrún, f. 22. 5. 1971, býr á Seyð- isfirði og á soninn Vilhjálm Rúnar. Sigurveig, f. 13. 5. 1973, gift Vil- hjálmi Ólafssyni og era þau búsett á Seyðisfirði. Hálfsystkini Ingibjargar, samfeðra: Sigrún Helga Guðjónsdóttir, f. 12.10. 1955, býr á Akureyri, hún á þrjú böm: Brynjólf í sambúð með Önnu Maríu, þeirra dóttir er Bjarklind; Sandra Hrönn og Birkir Guðjón. Pétur Öm Guðjónsson, f. 4.10. 56, búsettur á Akureyri. Kristján Jón Guðjónsson, f. 26. 8. 1958, búsettur á Akureyri. Hann á eina dóttur, Ellý Dröfn og tvö barnaböm. Aðalbjörg Dísa Guðjónsdóttir, f. 11. 6. 1962, í sambúð með Oddgeiri Ey- steinssyni. Þau eiga dótturina Hafdísi og búa i Reykjavík. Foreldrar Ingibjargar: Gísli Sig- urðsson (kjörfaðir), bókari og vél- stjóri, f. 26. 6. 1926, d. 14. 7. 1991 og Guðborg Björk Sigtryggsdóttir, f. 28. 7 1931, búsett á Seyðisfirði. Ætt Faðir Ingibjargar er Guðjón Jóns- son, sjómaður, f. 7. 7. 1929. Kona hans er Dísa Pétursdóttir, f. 17. 6. 1934, þau búa á Akureyri. Foreldrar Guðjóns voru Kristjana Þorsteinsdóttir og Jón Hjörtur Vilhjálmsson. Guðborg er dóttir Páls Sigtryggs Björnssonar og Maríu Ólafsdóttur, þau voru bændur á Seyðisfirði. Gísli var sonur Sigurðar Kristins Gíslasonar sjómanns og konu hans, Ólafiu Sigurþórsdóttur, í Reykjavik. Alltaf versnar það: Britney farin aö púa rettur Bogmaðurinn (22. nóv-21. des.): Þú mátt vera ánægður með árangur þinn að undanförnu. Nú getur þú leyft þér að taka það rólega áður en næsta lota hefst. Stelngeltln (22. des.-19. ian.l: Eitthvað óvænt hendir fyrri hluta dags og á eftir að hafa töluvert umstang í for með sér. Vinir þínir eru hjálpsamir við þig. Happatölur þínar eru 9, 24 og 35. Hún trúir hvorki á dóp né sígar- ettur, heldur aðeins á almáttugan guð. Samt er það nú svo að söng- konan Britney Spears lét ljós- myndara góma sig með linsu sinni þar sem hún fékk sér smók úti á svölum hótelherbergis síns í Sydney í Ástralíu. Svo var söng- konan í knallstuttum stuttbuxum. Britney hafði komið auga á ljós- myndarann og reyndi að forða sér inn í herbergið en var ekki nógu snör í snúningum. Fátt varð um svör þegar tals- kona Britney var spurð út í reyk- ingar hennar og hvort þær gætu ekki orðið til þess að leiða ung- linga út í tóbaksnotkun. Britney hefur í mörg ár klifað á heilbrigðu og kristilegu lífemi sínu en brestir virðast komnir í þá blessuðu brynju. Britney Spears Söngkonan unga viröist ekki lifa jafn kristilegu og heilsusamlegu lífi og hún heidur sjálf fram. fimmtudaginn 9. maí 90 ára Aðalheiður Þorsteinsdóttir, Skjólvangi Hrafnistu, Hafnarfiröi. 80 ára__________________________ Aleth Kristmundsson, Brávallagötu 42, Reykjavlk. 75 ára__________________________ Sigurður B. Þorbjörnsson, Langholtsvegi 32, Reykjavík. Árni Sigurðsson, Melaheiöi 7, Kópavogi. 70 ára__________________________ Hörður Sigurbjörnsson, Hamrahlíö 17, Reykjavík. Daníei Gestsson, Vallarbraut 3, Seltjarnarnesi. Jens Jakob Hallgrímsson, Holtagerði 70, Kópavogi. 60 ára__________________________ Steinunn Guðlaugsdóttir, Selvogsgrunni 31, Reykjavík. Hannes Haraldsson, Hofteigi 19, Reykjavík. Guðmundur Jóhannesson, Jórsölum 3, Kópavogi. Edith María Óladóttir, Vallarbraut 6, Njarðvfk. Gunnar Friðriksson, Víðigrund 24, Sauðárkróki. Ásmundur Jóhannsson, Hólabraut 1, Hrísey. 50 ára _________________________ Anna Magnúsdóttir, Klapparstíg 7, Reykjavfk. Ingibjörg Gísladóttir, Vesturgötu 23, Reykjavík. Margrét Barðadóttir, Drápuhlíð 45, Reykjavík. Hreinn Ómar Sigtryggsson, Klapparbergi 13, Reykjavík. Jóhannes Bárðarson, Hverafold 66, Reykjavík. Albert Guðmundsson, Tjarnarstíg 14, Seltjarnarnesi. Ósk Sigmundsdóttir, Hæðargötu 10, Njarövík. Ríkarður Már Pétursson, Lágholti 23, Mosfellsbæ. Pétur Þór Jónasson, Brekkugötu 14, Akureyri. Jóhann Frímann Stefánsson, Munkaþverárstræti 40, Akureyri. Margrét V. Þórðardóttir, Vestursíöu 2c, Akureyri. 40 ára__________________________ Dóra Lúðvíksdóttir, Grenimel 32, Reykjavík. Eyvindur Þorgilsson, Ásgarði 133, Reykjavík. Daníel Rúnar Ingólfsson, Lindarbraut 2, Seltjarnarnesi. María Andrews, Vatnsnesvegi 28, Keflavík. Sesselja Svavarsdóttir, Ásabraut 14, Sandgeröi. Sævar Guðmundsson, Lyngmóa 13, Njarövík. Jónína Kristín Jónsdóttir, Tunguvegi 3, Njarövík. Petrún Björg Jónsdóttir, Hlíöargötu 17, Neskaupstaö. Raquel D. Cabiiao, Hjallabraut 1, Þorlákshöfn. Smáauglýsingar DV 550 5000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.