Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2002, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 08.05.2002, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 8. MAÍ 2002 DV Delabie 9 Fréttir Krakkar á hlaupahjólum og hjólaskautum ekki skyldugir til að nota hjálma: Umferðarráð vill lagabreytingar - þörf á aö samræma reglur um lögbundna hjálmanotkun Vinsæl samgöngutækl Hjálmar hafa veriö lögleiddir hjá hjólreiöafólki og þaö er mat Umferöarráös og lögreglunnar á Akureyrí aö þaö sama eigi aö gilda um hlaupahjólin. Hjálmlaus böm á hlaupahjólum era í hættu í umferðinni og er þörf á lagasetningu til að skylda þau til hjálmanotkunar að mati lögregl- unnar á Akur- eyri og Umferðar- ráðs. Notkun hlaupahjóla er al- geng meðal barna og eru dæmi um að 5-7 ára krakkar renni sér á mikl- um hraða á gang- stéttunum án nokkurs hlifðarbún- aðar. „Það er augljóst að töluverð slysahætta fylgir þessu ástandi," segir Ólafur Ásgeirsson, aðstoðaryf- irlögregluþjónn á Akureyri. Hjálmar hafa verið lögleiddir hjá hjólreiðafólki og telur Ólafur að hið sama eigi að gilda um hlaupahjólin. „Srnnir krakkar eru hvorki með hjálma né annan hlífðarbúnað og það er miklu verra að stýra hlaupa- hjólunum en reiðhjólum. Krafa samfélagsins er að foreldrar láti böm ekki vera á þessum tækjum án hlífðarbúnaðar. Hjálmur er algjört lágmark," segir Ólafur. Kærulausari á Akureyri? Til að böm geti rennt sér á gang- stétttnn verða þau að hafa öðlast nægilegan þroska til að skynja um- ferðina i kringum sig að sögn Ólafs. Sjö ára böm mega renna sér á ak- brautum undir leiðsögn 15 ára eða eldri en eftirlitslaust telur Ólafur að böm verði að hafa náð 10 ára aldri hið minnsta. Hann telur hugsanlegt að foreldrar séu kæmlausari gagn- vart umferð barna sinna á Akureyri en á höfuðborgarsvæðinu. „Ég get vel ímyndað mér að umferðin sé svo ógn- vænleg i Reykjavík að þar setji for- eldramir bömunum frekar stólinn fyrir dymar,“ segir aðstoðaryfirlög- regluþjónninn. Slys hafa oröiö Samkvæmt upplýsingum frá dóms- málaráðuneytinu telja menn rétt að skoða hvort gat sé í þessum þætti um- ferðaröryggis og Óli H. Þórðarson, framkvæmdastjóri Umferðarráðs, seg- ist hjartanlega sammála lögreglunni á Akureyri um að lögbinda ætti hjálma- notkun, bæði vegna umferðar á hlaupahjólum og hjólaskautum. „Það er engu minni þörf á að nota hjálma á þessum tækjum en hinum. Þau ná ótrúlega miklum hraða og það hafa orðið slys,“ segir Óli. Líklegt er að nýtt lagafrumvarp þurfi til að boða aukna hjálmaskyldu. Því em horfur á óbreyttu ástandi fram á haust en Umferðarráð og lög- regla hvetja foreldra til að huga strax að þessum málum. -BÞ Blesgæs friðlýst á Hvanneyri: Fitar sig fyrir flugið til Grænlands Hvanneyri í Borgarfirði Á jörðinni verður lögverndaö friöiand blesgæsarinnar í framtíöinni. Umhverfisráðuneytiö hefur form- lega friðlýst jörðina Hvanneyri í Borgarfirði sem búsvæði blesgæsar- innar. Er þetta í fyrsta sinn sem bú- svæðavemd dýrategundar er stað- fest á íslandi samkvæmt lögum sem vom samþykkt á Alþingi 1999. Blesgæsin hefur viðkomu tvisvar á ári á Hvanneyri og hefur verið rannsóknarefni erlendra og inn- lendra vísindamanna þar vor og haust. Dvölin á Islandi er gæsinni nauðsynleg til fitunar áður en hún heldur áfram flugi sínu til og frá varpstöðvmn sínum á Vestur-Græn- landi. Friðlýsingin er gerð með sam- þykki Landbúnaðarháskólans á Hvanneyri og Borgarfiarðarsveitar og að tillögu Náttúruverndar ríkis- ins. Þetta er gert í samræmi við samn- ing um vemdun villtra plantna og dýra og lífssvæða í Evrópu og samn- ing um líffræði- lega fiölbreytni frá Ríó de Janeiro 1992. Jafnframt friölýsingunni hef- ur verið undirrit- aður samningur á milli Náttúruverndar ríkisins og Landbúnaðarháskólans á Hvann- eyri um umsjón og rekstur auk fræðslu og aðgengis almennings að búsvæðavemdarsvæðinu. -JBP DELABIE SANITARY FITTINGS Blöndunartæki og lokar Hné- eða fótstýrðir lokarþar sem hreinlætis er krafist. Einnig blöndunar- og sturtutækimeð tímarofa. VATNS VIRKINN ehf Ármúla 21,108 Rvk,s. 533-2020 www.vatnsvirkinn.is. Gerið verðsamanburð! Kílóverð ca 2.900 Kílóverð ca 3.950 I < o, í W) 5 f J zanelli ADRIR Innihald í 100 gSZanol tti Parmigiano-peggiano Vítamín A ug 270 Vitamín B12 M9 4,2 Umboð B-karótín gg 107^ Vítamín PP Kfsill ehf., sfmi 551 5960 Vítamín B1 pg 440 Pantothenic acid pg 320 Dreifing Vítamín B2 pg 370 Biotin M9 23 ó Osta- og smjörsalan sf., Vítamtn B6 M9 110 Choline(mg/100g) M9 40 sími 569 1600 IKáMiil mar Nyju kcmiAiH niY mc*iia>no•* ímfo r»íönTiA « rí ert þú búin(n) aö smakka? iSUBWRY* Ijúffengar * sosur 1 löNUY MUSTARD SÓSA '\SIAGO CaESAR SÓSA • SOUTHWKST SÓSA Horseradish SÓSA . I I Esso-stöðinni Reykjavíkurvegi Hfj. • Kaupvangsstræti Akureyri • Hafnargötu Keflavík • Varnarstöðinni Keflavíkurflugvelli

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.