Frjáls verslun - 01.01.1992, Blaðsíða 21
Höfuðstöðvar Q8 í Danmörku eru í Virum fyrir norðan Kaupmannahöfn.
keppnin aukist svo mikið að nú er
næstum hægt að tala um að hún sé
blóðug. í fyrsta lagi hefur notkun fjar-
hitunar til íbúðarhúsa aukist gríðar-
lega og framboð á olíu vaxið mikið á
meðan. Svarið við því hefur verið að
þjóna þeim betur sem eru og auka
framboðið á olíu- og bensínvörum,
s.s. blýlausu bensíni, léttri dísilolíu
o.s.frv. Þá hafa kröfur til olíufélaga
vegna umhverfismála aukist mikið og
talsvert verið lagt í að hreinsa upp
gamlar syndir.
Danir eru mjög framarlega í um-
hverfisvemd og það eru strangar
reglur í gildi hér varðandi þau mál.
Það er öruggt að þetta verður mikil-
vægasta verkefnið, sem við þurfum
að glíma við á næstu árum í öllum
hinum vestræna heimi, að ég tali nú
ekki um A-Evrópu sem er verr farin
en menn halda almennt. Q8 hefur
verið leiðandi í þróun á tilraunum með
bíó-tekníska hreinsun á jarðefnum við
bensínstöðvar sem lofa góðu. Segja
má að Q8 leitist við að vera góður
granni.
Varðandi yfirtöku nýrra orkugjafa
er það svo að ákveðin notkun á olíu er
þannig að erfitt er1 að finna stað-
kvæmdarvöru, t.d. ífluginu. Talið er
að bensínsala aukist um 1% á ári á
næstu 10 árum og flutningar á landi
aukist gífurlega. Við fylgjumst vel
með nýjungunum á þessu sviði enda
skiptir þetta framtíð fyrirtækisins
höfuðmáli."
SPURNING UM SKIPULAGNINGU
Hvernig líst þér á ástandið á ís-
lenskum olíumarkaði?
„Þótt ég hafi mikið samband við
ísland þá hef ég ekki svo mikla skoð-
un á honum. Þó er alveg ljóst að með
forstjóraskiptum hjá Shell og Esso
auk allra þeirra samfélagsbreytinga í
heiminum, sem snerta þennan mark-
að, þá munu eiga sér stað talsverðar
breytingar frá því sem við þekkjum.
Annarsvegar er það hvort gefa eigi
viðskipti með öllu frjáls, sem nú verð-
ur eflaust ofan á, og hinsvegar spurn-
ingin um mengunarþáttinn en mig
grunar að við íslendingar höfum alls
ekki hugað að þeim þætti nægilega
vel. Síðan er það spurning hvaða
stefnu olíufélögin ætla að taka — vilji
þau hafa bein áhrif á samfélagið — og
hvaða siðferðilegu skyldur þau telja
sig hafa. Þama koma inn sérstakar
KUWAIT PETROLEUM DANMARK A/S
Dótturfyrirtæki Kuwait Petroleum
International og heyrir undir móð-
urfyrirtækið sem hefur aðsetur í
London.
VELTA: Um 100 milljarðar íkr.
STARFSMENN: 4000, þar af 1700
fastir.
FJÖLDI BENSÍNSTÖÐVA:
Rúmlega 600.
MARKAÐSHLUTDEILD: 20% (su
mesta í Danmörku).
STJÓRNARFORMAÐUR: Nader H.
Sultan.
FRAMKVÆMDASTJÓRI: Bo Gjetting.
Margrét Guðmundsdóttir situr
bæði í framkvæmdastjórn og stjórn
fyrirtækisins.
Höfuðstöðvar fyrirtækisins eru í
Virum fyrir norðan Kaupmanna-
höfn.
íslenskar aðstæður, s.s. tillit til dreif-
býlis, smæð þjóðfélagsins o.s.frv.
Allavega verður spennandi að fylgjast
með þessari þróun. Ég mun örugg-
lega koma til með að gera það.“
Það er bankað á hurðina og Mar-
grét biðst afsökunar og segist verða
að sinna þessu verkefni. Danskan
hennar er lýtalaus og það er ekki oft
sem maður verður vitni að svona
hárfínum línudansi, ákveðni og kurt-
eisi. Samtalið er stutt en vandamálið
er leyst.
Að lokum Margrét. Það sést á
skreytingum og myndum hér á skrif-
stofunni að þú átt 2 börn. Hvernig er
hægt að sameina umönnun fjölskyld-
unnar og svona krefjandi starf?
„Þetta er spurning um skipulagn-
ingu. Við Lúðvíg erum bæði í erfiðu
starfi og þetta væri vonlaust ef ekki
væri unnið eftir nokkuð stífu plani. Ef
það koma upp vandamál þá verður
hreinlega að leysa þau,“ bætir Mar-
grét við og brosir.
Hefurðu einhver ráð til kvenfólks
sem treystir sér ekki út í ábyrgðar-
stöður vegna heimilisaðstæðna.
„Minn boðskapur á mun meira er-
indi til þeirra ungu kvenna sem fljót-
lega koma út á vinnumarkaðinn. Berj-
ist fyrir betri dagvistunarmöguleikum
og einsetnum skólum, því ef maður er
öruggur með börnin sín þá eru tæki-
færin mörg og mest undir manni sjálf-
um komið hversu langt maður nær.“
55