Frjáls verslun - 01.01.1992, Blaðsíða 27
gera annað en freista þess að sækja
sér afl til að eiga möguleika á að geta
náð árangri í samkeppninni við risann
á íslenskum ferðaskrifstofumarkaði
— Samvinnuferðir-Landsýn.
Þegar Helgi Jóhannsson fjallaði um
meinta hagræðingu vegna kaupanna á
Sögu og Atlantik, sagði hann í viðtali
við DV: „Ef þetta er skilgreining á
hagræðingu er hún að vissu leyti rétt
ef hún gengur út á að kaupa upp sem
flestar ferðaskrifstofur og helst að
verða einir á markaðnum."
Hverjir ætla að vera einir á mark-
aðnum? Tæpast þeir sem enn eru
minna fyrirtækið í samkeppni við það
fyrirtæki sem Helgi Jóhannsson stýr-
ir.
MIKILL SKJÁLFTI
Þetta dæmi er aðeins nefnt til að
sýna þann skjálfta sem gripið hefur
um sig vegna uppstokkunar ferða-
þjónustunnar. Viðþrögðin eru ekkert
óeðlileg hjá þeim sem hefur notið gíf-
urlegs stærðarmismunar í sam-
keppninni um árabil. Hann finnur að
nú stefnir í harðari slag. En það sem
við neytendur getum lesið út úr þess-
um viðbrögðum er eitthvað á þessa
leið: Skjálftinn er svo mikill að við
getum treyst því að þessir tveir
sterku aðilar muni leggja sig alla fram
og berjast fyrir hverri krónu í kostn-
aðarniðurskurði og þeir munu berjast
hart um farþegana. Þetta hlýtur að
leiða til hagstæðra verða á orlofsferð-
um íslendinga. Geta þá ekki flestir
verið ánægðir?
Það eru ekki nema þrjú ár frá því að
eftirtaldar ferðaskrifstofur börðust
um sölu á orlofsferðum íslendinga:
Samvinnuferðir-Landsýn, Útsýn, Úr-
val, Atlantik, Saga, Ferðaskrifstofa
Reykjavíkur, Pólaris og Ferðamið-
stöðin, sem breyttist í Ferðamiðstöð-
ina Veröld snemma árs 1989 og inn-
limaði þá jafnframt Pólaris, eftir að
kaup Samvinnuferða-Landsýnar á
Pólaris höfðu gengið til baka vegna
ósættis milli þáverandi eigenda Pólar-
is.
Á þessum tíma var þegar augljóst
að þessi samkeppni var hreint rugl
sem hlaut að enda með uppstokkun
— uppstokkun af því tagi sem nú hef-
ur farið fram.
Haustið 1989 keypti Úrval Ferða-
HJÓLAÐ í RISANA
Guðni Þórðarson hefur snúið aft-
ur. Hann kont öllum á óvart í fyrra
þegar hann flutti á annan tug þús-
unda íslendinga til útlanda á vegum
Flugferða-Sólarflugs. Hann er óút-
reiknanlegur frumkvöðull í ferða-
málum og sá maður sem mestan
svip hefur sett á þessa atvinnugrein
á síðari áratugum. Hann mun veita
stóru ferðaskrifstofunum og Flug-
leiðum öflugt aðhald, ef áform hans
ganga eftir á þessu ári.
skrifstofuna Útsýn af Þýsk-íslenska
hf. og sameinuðust fyrirtækin í Úrval-
Útsýn. Síðan gerist ekkert markvert í
uppstokkun ferðaskrifstofanna fyrr
en nú í janúar. Þeim, sem til þekkja,
var þó ljóst að Veröld hlyti að springa í
loft upp. Fyrirtækið varð til á skömm-
um tíma snemma árs 1989 eftir að
samstarfsslit urðu milli Ingólfs Guð-
brandssonar, fyrrum eiganda Útsýn-
ar, og þáverandi eiganda fyrirtækis-
ins, en Ingólfi gekk erfiðlega að skilja
að hann var búinn að selja fyrirtækið
og fá það greitt að fullu. Vegna þess
kom til árekstra sem leiddu til brott-
farar Ingólfs, sonar hans og nokkurra
félaga þeirra. Þessi hópur gekk til
samstarfs við Svavar Egilsson um
stofnun Veraldar. Fyrirtækið var allt
frá upphafi félítið og veikt og meira
rekið af vilja en mætti á sterkum til-
finninganótum. Því hnigu flest rök að
því að illa færi og urðu ýmsir til að spá
því að þessi ferðaskrifstofa ætti eftir
að fara veg allrar veraldar.
Þegar svo til gjaldþrotsins kom var
fjöldi farþega veglaus á Kanaríeyjum,
kominn upp á náð og miskunn Flug-
leiða, sem tóku að sér að flytja fólkið
heim. Þessi saga öll hefur kynnt undir
umræðum um nauðsyn þess að
stjómvöld geri stórauknar kröfur til
fiártrygginga frá þeim sem fá leyfi til
rekstrar ferðaskrifstofa. Það mál
hlýtur að verða tekið föstum tökum í
framhaldi þessara atburða. Menn
hafa látið sér þreföldun eða fiórföldun
fiártrygginga til hugar koma frá því
sem nú er. Hér er um verðugt verk-
efni að ræða fyrir Neytendasamtökin.
HVOR ER ÖFLUGRI?
í þeirri umfiöllun, sem farið hefur
fram í fjölmiðlum vegna uppstokkunar
á ferðaskrifstofumarkaðnum, hefur
ýmsum orðið tíðrætt um valdasam-
þjöppun og vaxandi umsvif „Kol-
krabbans". Víst er það rétt að Ferða-
skrifstofan Úrval-Útsýn er í eigu
Flugleiða og Eimskips. Flugleiðir eiga
81.5% en Eimskip 18.5%. Eins og
kunnugt er á Eimskip 34% hlutafiár í
Flugleiðum. Það er einnig ljóst að
sjaldan hefur umræðan í þjóðfélaginu
um valdasamþjöppun „Kolkrabbans“
verið eins mikil og um þessar mundir,
í kjölfar merkrar metsölubókar Öm-
ólfs Árnasonar um málið, sem kom út
fyrir síðustu jól.
En það breytir þó ekki þeirri stað-
reynd að keppinauturinn, Samvinnu-
ferðir-Landsýn, er í eigu sjálfrar
verkalýðshreyfingarinnar og sam-
vinnuhreyfingarinnar í landinu. Sam-
vinnuhreyfingunni hefur hnignað á
undanförnum árum en hún telur engu
að síður tugi þúsunda félaga. Og innan
verkalýðshreyfingarinnar eru nánast
allar fiölskyldur í landinu með einum
eða öðrum hætti. Menn skulu heldur
ekki gleyma fjármálavaldi verkalýðs-
hreyfingarinnar.
í ljósi þessara staðreynda er spurt:
Hvor „Kolkrabbinn" er kröftugri?
Þessi öfl munu nú takast á í harðri
samkeppni hinna sterku. Við neyt-
endur njótum góðs af því. Hagræð-
ingin skilar sér til okkar.