Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1992, Blaðsíða 2

Frjáls verslun - 01.01.1992, Blaðsíða 2
TOLVUR Annað dæmi: Settu inn í tölvuna orðið „vacum“ og hún mun sýna þér að það er rétt stafað „vacuum“. Tökum eitt dæmi enn: Sett er inn í tölvuna orðið „oreginal" og hún mun sýna að orðið er rétt stafað „original". Stundum vantar staf eða stafi inn í orð. Vitað er að það byrjar t.d. á L og endar á T. Þá er settur inn fyrsti stafurinn og stutt á sérmerktan hnapp (láréttur homklofi) til merkis um að þama vanti inn í einn staf eða fleiri. Dæmi L -1 er sett inn. Tölvan birtir orðið „Left“. RÉTTAR ENDINGAR OG ORÐSKIPTI Stundum vantar einungis einn staf í enskt orð, t.d. þegar ekki er ljóst hvort orð endar á e eða a. Dæmi: Sett er inn í tölvuna „Circ“ og bætt við tákni með sér- hnappi sem þýðir að síðasta stafinn vanti. Tölvan birtir strax „Circa“. Sé notandi ekki alveg ömggur á fleir- tölumynd ensks orðs eða endingu þess getur Tl-tölvan greitt úr því. Dæmi: Sett er inn orðið „Block" (lokun, húsalengd, röð o.fl.). í glugga tölvunnar sést „OK“ sem þýðir að orðið er rétt stafað. Nú vill notandinn vita hvaða endingar em notaðar með þessu orði. Hann styður á hnapp sem merktur er „Endings". í glugganum birtist fleirtölumyndin „Blocks" (lokanir, húsa- lengjur, raðir o.fl.) og ör sem bendir nið- ur. Það þýðir að meiri upplýsingar er að hafa. Þegar stutt er á örvahnappinn birtist í glugganum „Blocked" (lokað/ur, teppt/ur o.fl.), stutt aftur á örvahnappinn og í glugganum birtist „Blocker" (lokari, tepp- ari o.fl.), sé stutt enn einu sinni birtist fleirtalan „Blockers“, sé aftur stutt á örva- hnappinn birtist lýsingarháttur nútíðar „Blocking" og þar með em mögulegar endingar fyrir þetta ákveðna orð upp tald- ar. Leggjum nú smágildru fyrir tölvuna og heimtum fleirtöluna af ranglega stöfuðu orði „imformation". Hú lætur ekki plata sig svo auðveldlega en birtir orðið rétt stafað „information" og boð um að ein- hverjar endingar séu notaðar. Þegar stutt er á örvahnappinn birtist annað orð „im- portation". Það segir okkur að engin sér- stök fleiritölumynd er til af orðinu „information" en hins vegar sé hægt að skoða orðasafnið áfram ef upphaflega orð- ið hefði ekki verið það sem leitað var að heldur eitthvað annað sem er líkt. Með örvahnöppunum er hægt að skruna bæði aftur á bak og áfram um orða- safnið. Sérstakur hnappur er notaður til þess að láta tölvuna sýna hvernig orðum sé rétt skipt í atkvæði, svo sem „in-for- ma-tion“. SAMHEITI Á TI PS 4500 er stór hnappur sem merktur er „Thesaums", þ.e. samheita- safn. Sé stutt á hann með „information" í glugganum birtast önnur orð sem hafa sams konarmerkingu. Fyrst birtist „data“ og það orð má síðan skoða nánar, annars vegar með því að fletta upp, með örva- NÝ FISTÖLVA FRÁIBM: Fistölvur nefnast þær tölvur sem á ensku kallast „Notebook comput- ers“ þ.e. tölvur sem aðveldlega komast fyrir í frekar þunnri skjala- tösku. Þrátt fyrir litla fyrirferð er geta margra fistölva með ólíkindum. IBM hefur sett á markaðinn nýja fis- tölvu. Ifún er boðin í nokkrum mismun- andi útgáfum. Sú sem Sameind hf. í Reykjavík býður nefnist IBM PS/2 Model N33 SX. (Fyrir þá sem velta fyrir sér mun- inum á 386 SX og 386 DX skal upplýst að munurinn liggur í miðverkinu en gjörvinn er sá sami. í 386 SX er gjörvinn 32ja bita enmænustrengurinn („bussinn") 16bita. í vélum með 386 DX er hvort tveggja 32ja bita, gjörvinn og mænustrengurinn. Þær vélar eru því hraðvirkari í ákveðnum til- vikum.) hnappi, frekari þýðingu þess, þá birtist t.d. „facts“ og því næst „findings". Hægt er að velja aðra leið en þá kemur samheitið „testimony" fyrir „data“. Sé sett inn enska orðið „harbour“ segir tölvan það rangt stafað og birtir „harbor", samheitin „port“ og „anchorage". Sama gerist ef sett er inn enska orðið „colour". Þá birtir tölvan það leiðrétt sem „color“ og samheitið „hue“. Ástæðan fyrir þessu er einföld: Tölvan er gerð fyrir amerísku en ekki ensku upp á breskan máta. Á meðal annarra athyglisverðra kosta þessa merkilega tækis er að það má nota til þess að finna ýmis önnur heiti sem eru á einhvem hátt tengd því sem stendur á skjánum. Dæmi: Orðið „color“ á sér sam- heitið „hue“. Séu örvahnapparnir notaðir til að fræðast ögn meira um það orð birtist „tint“, „cast“, complexion" og „tincture". Með því að fara í undirskrá, en það er gert með láréttu örvahnöppunum, birtist í tengslum við „color“ orðið „pigment", sé orðasafnið skoðað í tengslum við síðasta orðið birtist „dye“, „dyestuff", „stain“ og fleiri orð sem tengjast upphaflega orðinu. Hér er greinilega á ferðinni óskatæki þeirra sem fást við að ráða enskar kross- gátur. Þessi nýja PS/2 fistölva frá IBM er með 2ja megabæta vinnsluminni sem má stækka þannig að hún getur haft 2, 4 eða 6 megabæti. Tölvan er knúin með hleðslur- afhlöðum og fylgir hleðslutæki. Tiftíðni gjörvans er 12 megarið. Skjárinn er 24 sm á kant, baklýstur VGA vökvakristallaskjár með leysnina 640 x 480 doppur og 16 grá- tóna. Innbyggðir grafi'skir skjástaðlar eru, auk VGA, MCGA, EGA og CGA. Skjáinn má hallastilla í þá stöðu sem myndin sést best í og lýsing hans er stillanleg. Þessi tölva vegur 2,5 kg og er af sömu stærð og símaskráin sem vegur 1,7 kg. í henni er 40 megabæta fastur diskur með 19 míkrósekúndna meðalsóknarhraða (það er mjög hraðvirkur diskur). Hnappaborðið er með 85 hnappa, þ.e. full stærð. Það er með litlum stillanlegum EINS 0G SIMASKRAIN EN EINU KG ÞYNGRI 36

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.