Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.01.1992, Blaðsíða 9

Frjáls verslun - 01.01.1992, Blaðsíða 9
Slys á Reykjanesbraut eru gífurlega tíð, ekki síst ef bílar aka út af í hið úfna hraun sem brautin liggur um. ingar, arðsemismat, útboð og loks fjármögnun að hluta. Gangi þessir þættir upp er reiknað með að næsti áfangi hefjist, þ.e. framkvæmdin sjálf. Að henni lokinni taki svo við rekstur vegarins en hann skal vera í eigu félagsins þangað til fjárfestingin hefur verið greidd til baka af þeim sem um veginn fara. Gert er ráð fyrir að það taki 20-25 ár. Félagið annist viðhald á þessum tíma en að honum loknum eignist ríkissjóður mannvir- kið án endurgjalds. Undirbúningsfélagið telur að verk- ið sjálft muni kosta um 1500 milljónir króna og byggist það á mati Vega- gerðarinnar. Reiknað er með að hlut- hafar greiði 15-20% þess fjár í upphafi enþess, sem upp á vantar, verði aflað með útboði á fjármagnsmarkaði. Mið- að við endurgreiðslu þess fjár á 20 árum og til að standa straum af rekstri og viðhaldi vegarins er reiknað með að tollur verði 70-80 kr. fyrir hvora leið. VIUIÁ SUÐURNESJUM Þegar forgöngumenn undirbún- ingsfélagsins kynntu hugmynd sína nú í byrjun janúar voru viðbrögð manna nokkuð misjöfn og má segja að stjórnmálamenn hafi skipst í óvænt horn þegar taka átti afstöðu til þess- arar nýstárlegu hugmyndar sem jafn- að hefur verið við einkavæðingu. Raunar er tæpast hægt að tala um einkavæðingu því þótt aðrir aðilar en ríkissjóður fjármagni verkið og fram- kvæmi það mun mannvirkið verða í eigu ríkisins að þeim tíma liðnum sem tekur að greiða skuldirnar. Ólafur G. Einarsson, fyrsti þing- maður Reyknesinga og menntamála- ráðherra, reyndist andsnúinn hug- myndinni. Hann benti á í samtölum við fjölmiðla að víða væru brýn verk- efni í vegamálum og ef ætti að fara þessa leið varðandi fjármögnun verksins væri með því verið að mis- muna Suðurnesjamönnum þar sem þeir eða aðrir vegafarendur suður með sjó ættu ekki annarra kosta völ en að borga tollinn. Ólafur Ragnar Grímsson, þing- maður Alþýðubandalagsins, og Steingrímur Hermannsson þingmað- ur Framsóknarflokksins í kjördæm- inu, voru hins vegar þess fýsandi að þessi kostur yrði rækilega skoðaður. Minnti Ólafur m.a. á að í sinni tíð sem fjármálaráðherra hefði hann viðrað hugmynd um að hraða tvöföldun brautarinnar með tilliti til þeirrar gíf- urlegu hættu sem af umferð þar staf- aði við núverandi aðstæður. í hugmyndum undirbúningsfélags- ins er sérstaklega kveðið á um það að milda áhrif vegtollsins gagnvart Suð- urnesjamönnum. Annars vegar yrði hún fólgin í lægra veggjaldi bíla, sem skrásettir eru á Suðurnesjum, þannig að það næmi einungis 75% af almennu veggjaldi. Hins vegar er gert ráð fyrir því að 5% af tekjum af mannvirkinu renni í sérstakan þróunarsjóð Suður- nesja og verði markmið hans að styðja við atvinnulíf svæðisins. Að 43

x

Frjáls verslun

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.