Morgunblaðið - 28.07.2002, Blaðsíða 53
… breska táningasveitin S Club 7
hefur hug á því að leika í bíómynd.
Viðræður standa nú yfir við Nigel
Dick tónlistarmyndbandaleikstjóra
um að gera myndina Seeing Double
sem mun skarta krökkunum úr S
Club 7 í aðalhlutverkum. Handritið
samdi Kim Fuller, sama manneskja
og samdi handrit Spice Girls-
myndarinnar
Spice World.
Tökur á myndinni
hefjast í haust
… kanadíska
rokksveitin Rush
er komin með
nýja plötu en
fimm ár eru frá
útgáfu síðustu
plötu, Test for
Echo. Platan nýja heitir Vapor Trails
og mun vera 17. hljóðversplata sveit-
arinnar en fyrsta platan, Rush, kom
út 1974 … þær fregnir hafa nú borist
úr herbúðum REM-tríósins að nýrrar
plötu sé að vænta frá þeim um mitt
næsta ár. Í kjölfarið hyggjast þeir
svo leggja upp í heimsreisu til að
fylgja diskinum eftir.
Það var gítarleikarinn Peter Buck
sem lét fjölmiðlum þessar upplýs-
ingar í té á dögunum, en þeir félagar
sendu síðast frá sér plötuna Reveal á
síðasta ári. Hann sagði jafnframt að
hann hefði mikinn hug á að leika
bæði í Japan og í Ástralíu á komandi
tónleikaferðalagi, en þar hefur sveit-
in ekki leikið í sjö ár … rapparinn
Mystikal er í tómum vandræðum
þessa dagana en nauðgunartilraun
sem hann og tveir kumpánar hans
stóðu að náðist á myndband. Mysti-
kal hefur játað en var sleppt gegn
tryggingu … skoska sætapopps-
sveitin Belle & Sebastian hefur
sagt skilið við útgáfur sínar, Jeepster
og Matador, og gengið til liðs við
bandarískt útibú bresku óháðu út-
gáfunnar Rough Trade … innvígðir
segja að það sé ekki hægt að læra
rokk og ról en því eru skólameistarar
nýs tónlistarskóla í Brighton, The
POPPkorn
Brighton Institute of Modern Mu-
sic, greinilega ósammála og hafa
ráðið til sín kennara, sem allir eru úr
rokkgeiranum. Þeir sem hafa verið
ráðnir eru m.a. Martin McCarrack
úr Therapy, Ace og Mark
Richardson úr Skunk Anansie, Rob
Harris úr Jamiroquai og Carleen
Anderson úr Brand New Heavies
… Fred Durst og félagar í Limp Biz-
kit leita enn logandi ljósi að gít-
arleikara en Wes Borland
hætti sem kunnugt er á
dögunum. Upptökur fyrir
næstu plötu eru þó enn í
fullum gangi … í haust kem-
ur svo út heiðrunarplata,
hvar viðfangið er Johnny
Cash. Á meðal þeirra sem
votta Cash virðingu sína eru
Bruce Springsteen, Bob Dyl-
an, Dwight Yoakam og Travis
Tritt … ný plata með Bon Jovi
kemur og út í haust og mun hún bera
nafnið Bounce … þá eru yfirnerð-
irnir óstöðvandi í Weezer að
klambra saman sjö laga pakka sem
kallast The Lion and the Witch.
Aðdáendur setji sig í stellingar því að
um takmarkað upplag verður að
ræða … söngspíra suðurríkjarokk-
aranna í Black Crowes, Chris Rob-
inson, er með einherjaskífu í far-
vatninu. Platan hefur verið skírð
hinu mjög svo hæfandi nafni New
Earth Mud. Spurning hversu nálægt
krákunum tónlistin mun liggja
… hinir sænsku frændur okkar í Hi-
ves, sem væntanlegir eru til landsins
í haust, hafa nú gert risasamning við
Universal Music UK. Þeir eru þó
samningsbundnir Warner í Banda-
ríkjunum og eiga enn eftir að klára
samning sinn við Burning Heart, út-
gáfu sína í Svíþjóð. Vonandi flækja
þeir sig ekki um of í lagakrókunum á
næstu dögum … nú er ekki bara
hægt að læra rokk og ról, það er líka
hægt að keppa í því. Simon Fuller, sá
er hafði veg og vanda af Pop Idol-
þættinum í Bretlandi, sem gaf af sér
söluhæstu smáskífu Bretlands frá
upphafi, hyggur nú á aukin strand-
högg. Nú er það heimsmeist-
arakeppni, hvorki meira né minna,
sem mun kallast World Idol (!) …
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ 2002 53
Hverfisgötu 551 9000
www.regnboginn.is
Sýnd kl. 10. B.i 16. Sýnd kl. 5.30. B.i. 10.Sýnd kl. 5.20. B.i. 10.
SV.MBL
HK.DV
...í topp
formi.
Ótrúleg bardagaatriði.
Slagsmál og grín.
2 FY
RIR
EIN
N
2 FY
RIR
EIN
N
Sýnd kl. 6, 8,30 og 10.45.
20.000. MANNS Á EINNI VIKU.
Þegar ný ógn steðjar að
mannkyninu hefst barátta
upp á líf og dauða.
STÓRKOSTLEGAR TÆKNIBRELLUR
OG BRJÁLAÐUR HASAR.
FRUMSÝNING
S V A L I R Í S V Ö R T U
Sýnd kl. 6.30, 8,30 og 10.30.
Sýnd kl. 8.
Sýnd kl. 8.
Sýnd kl. 10. B. i. 16.
Sýnd í lúxus kl. 6, 8 og 10.10. B. i. 16. Vit 411
1/2
SV Mbl 1/2
Kvikmyndir.is
Kvikmyndir.com
ÓHT Rás 2
SG DV
23 þúsund áhorfendur
Sýnd kl. 2 og 4. Mán kl. 4. Íslenskt tal. Vit 358.
SÍMI 587-8900 ÁLFABAKKI www.sambioin.is
Fyrir 1250 punkta
færðu bíómiða.
Sýnd kl. 8 og 10.10. Vit 395.
Sýnd kl. 5.40, 8 og 10.20. B.i. 16 ára Vit 400
Sýnd kl. 10.10. B.i. 14. Vit 393.
HETJA MUN RÍSA UPP...
...Á AFTURLAPPIRNAR.
Sýnd kl. 2, 4 og 6. Mán kl. 4 og 6. Íslenskt tal. Vit nr. 410.
Sýnd kl. 2, 4, 6 og 8. Mán kl. 4, 6 og 8. Enskt tal. Vit nr. 407.
kvikmyndir.is
RICHARD GERE LAURA LINNEY
DV
HL. MBL
Kvikmyndir.com
1/2
Kvikmyndir.is
Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. 16 ára Vit 408
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10. Vit 406
Þau hafa 45 mínútur
til að bjarga heiminum.
En þau þurfa 46 mínútur
FRUMSÝNINGFRUMSÝNING
Sýnd kl. 2, 4 og 6. Mán kl. 4 og 6. Vit 398
Fyndnasta myndin í bænum í dag frá
Barry Sonnenfeld, leikstjóra Get Shorty.
Með topp leikurum í öllum hlutverkum,
þar á meðal Johnny Knoxville úr
sjónvarpsþáttunum JackAss.
Þessi mynd mun koma þér skemmtilega á
óvart, ekki missa af henni!
Einnig sýnd í lúxussal VIP
Sýnd kl. 2 og 3.50. Mán kl. 3.50. Ísl tal. Vit 338
ÁSGARÐUR, Glæsibæ: Dans-
leikur öll sunnudagskvöld kl. 20:00
til 23:30. Caprí-tríó leikur fyrir
dansi.
CAFÉ ROMANCE: Ray Ramon og
Mete Gudmundsen spila fyrir gesti.
GAUKUR Á STÖNG: Gísli Jó-
hannsson kántrýtónlistarmaður, og
hljómsveitin Big City.
O’BRIENS, Laugavegi 73: Moga-
don spila sunnudagskvöld kl. 22:00.
Þórarin Gíslason píanóleikari,
mánudagskvöld kl. 22:00.
PLAYERS-SPORT BAR, Kópa-
vogi: Geirmundur.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
FORSPRAKKI hinnar sálugu
sveitar Nirvana, Kurt heitinn Coba-
in, hélt ítarlega dagbók frá unga
aldri og fram á dauðadag. Alls fylla
minningar og hugsanir Cobains 23
bækur og um 800 blaðsíður.
Þetta þykir þó kannski ekki í frá-
sögur færandi nema fyrir þær sakir
að nú stendur til að gefa herlegheit-
in út en Riverhead Books útgáfu-
fyrirtækið mun gefa út dagbæk-
urnar þann 11. nóvember
næstkomandi.
Að sögn Julie Grau, ritstjóra
verksins, geta aðdáendur Cobains
fengið að skyggnast inn í hugar-
heim hans, sem var oft á tíðum ansi
myrkur.
Eins og flestum er kunnugt svipti
Cobain sig lífi árið 1994, aðeins 27
ára að aldri.
Dagbækur Kurt Cobains heitins gefnar út
Kæra dagbók...
Kurt Cobain
RÍKISDÓMARI í Bandaríkjunum
hafnaði í vikunni kröfu Mattel fyr-
irtækisins um endurupptöku
málaferla fyrirtækisins
vegna lagsins „Barbie Girl“
en fyrirtækið segir lagið
brjóta á rétti sínum sem
einkaleyfishafa Barbie-
dúkkunnar. Lagið, sem er
flutt af dönsku hljómsveit-
inni Aqua, naut á sínum
tíma mikilla vinsælda.
Mattel stefndi MCA
útgáfufyrirtækinu og öðr-
um þeim sem stóðu að útgáfu lags-
ins, vegna brota á einkaleyfislögum.
Þá sagði fyrirtækið almenning
standa ranglega í þeirri meiningu að
það hefði staðið á bak við útgáfu
lagsins.
Málinu hafði áður verið vísað frá í
undirrétti.
Á síðasta ári úrskurðaði undirrétt-
ur í Utah að listamanni væri heimilt
að nota Barbie-dúkkur í listaverkum
sínum jafnvel þótt þau gæfu eitthvað
ósæmilegt í skyn.
AL-
Mega syngja
um Barbie
Hljómsveitin Aqua sýknuð