Morgunblaðið - 28.07.2002, Blaðsíða 52

Morgunblaðið - 28.07.2002, Blaðsíða 52
52 SUNNUDAGUR 28. JÚLÍ 2002 MORGUNBLAÐIÐ Fyrir 1250 punkta færðu bíómiða. SÍMI 588-0800 KRINGLAN www.sambioin.is Sýnd kl. 2. Mán kl. 4. Vit nr. 370. Sýnd kl. 8 og 10.20. B.i. 16 ára Vit 400 Sandra Bullock í spennumynd sem tekur þig heljartaki! Þeir búa til leik sem hún þarf að leysa.. takmarkið er hinn fullkomni glæpur.  kvikmyndir.is Sýnd kl. 10. B.i. 14. Vit 393. HETJA MUN RÍSA UPP... ...Á AFTURLAPPIRNAR. 1/2 Kvikmyndir.is Sýnd kl. 2, 4, 6 og 8. Mán kl. 4, 6 og 8. Vit 398 Kvikmyndir.is FRUMSÝNING Þau hafa 45 mínútur til að bjarga heiminum. En þau þurfa 46 mínútur Fyndnasta myndin í bænum í dag frá Barry Sonnenfeld, leikstjóra Get Shorty. Með topp leikurum í öllum hlutverkum, þar á meðal Johnny Knoxville úr sjónvarpsþáttunum JackAss. Þessi mynd mun koma þér skemmtilega á óvart, ekki missa af henni! Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10.10. Vit 406 Sýnd SUNNUDAG kl. 3 og 5. Íslenskt tal. Vit nr. 410. FRUMSÝNING Sýnd MÁNUDAG kl. 6. Vit 393. S ag a u m s tr ák 1/2 SV Mbl 1/2 Kvikmyndir.is  Kvikmyndir.com  ÓHT Rás 2 23 þúsund áhorfendur www.sambioin.is Fyrir 1250 punkta færðu bíómiða. Sýnd kl. 2, 4, 5.50, 8 og 10. Mán kl. 5.50, 8 og 10. Hið yfirnáttúrulega mun gerast. vegna fjölda áskorana. 1/2 Kvikmyndir.is Kvikmynd eftir Ágúst Guðmundsson Ugla Egilsdóttir vann tilverðlauna á dögunum sem besta aðalleikona. Aðrir leikarar: Margrét Vilhjálmsdóttir, Hilmir Snær Guðnason, Kristbjorg Kjeld ofl Sýnd kl. kl. 2, 4 og 6. Mán kl. 6. Sýnd kl. kl. 2, 3.45, 6 og 8. Mán kl. 6 og 8. Með íslensku tali. Sýnd kl. 5.30, 8 og 10. B.i. 16 ára.  SG DV  DV  HL. MBL Með hinum frábæra Frankie Muniz úr „Malcolm in the Middle“ i i i l l i i l Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. Mán kl. 6, 8 og 10. Sýnd kl. 8. RICHARD GERE LAURA LINNEY  Kvikmyndir.com Sýnd kl. 10. B. i. 16. Sýnd sd kl. 2 og 4. Íslenskt tal. 1/2 Kvikmyndir.is FRUMSÝNING Red Hot Chili Peppers By The Way Warner Bros Firnagóð plata frá heitustu piparsveinum Kaliforníu sem er meistaralega vel af hendi leyst. Bústið, sextán laga verk, þar sem vart er snöggan blett að finna. HARÐHAUSAR hafa baulað á Chili Peppers eftir að þeir gengu glaðir út í meginstrauminn með Ca- lifornication (’99). En það er bara ekki hægt að setja sig í þannig stell- ingar lengur og ergja sig, sérstak- lega þegar litið er til plötu eins og þessarar. Styrkur þessarar plötu, og hér eru ekkert minna en steinsteyptir og járnbentir styrktarbitar frá helv … á ferðinni, er hversu ótrú- lega áreynslulaust rennslið er, allan tímann, út í gegn. Ekkert uppfyll- ingarefni hérna, takk fyrir. Auk þess er hér næsta fullkomið jafn- vægi á milli aðgengileika og til- raunastarfsemi og munar þá helst um Frusciante sem sýnir einstaka hugmyndaauðgi í gítarleik sínum, sé tillit tekið til rammans sem RHCP setja sér hér. Platan er t.a.m. talsvert betri en Californica- tion, sem þrátt fyrir nokkra ann- marka gaf greinilega til kynna hvert næst yrði haldið. En ég við- urkenni fúslega að ég átti ekki von á þessu. Skírskotunin er afar víð hér og tilraunarottur og popphænsn ættu að geta sameinast um þessa giftu- sömu piparveislu. Besta popp/rokk- plata ársins. Einfaldlega skotheld.  Árni Matthíasson Tónlist Öryggið uppmálað GAMAN- LEIKARINN Mike Myers varð þess heið- urs aðnjótandi í vikunni að fá að raða sér á Frægðargötu Hollywoodborg- ar er stjarna með nafni hans var steypt í göt- una frægu. Myers, sem er 39 ára gamall, mætti með konu sína upp á arminn auk móður sinnar og tveggja bræðra til að veita viðurkenningunni viðtöku. Stjarnan er steypt í jörð á sama tíma og þriðja mynd Myers um njósnarann kynþokkafulla Austin Powers var frumsýnd en Myers á að baki fleiri óborg- anlegar grínmyndir á borð við Wayne’s World og So I Married an Axe Murderer. Myers eign- ast stjörnu ÞAÐ ER af sem áður var þegar myndasögur voru prentaðar á endur- nýttan klósettpappír og litagæðin voru svo slæm að það var undir hæl- inn lagt hvort liturinn passaði við myndirnar. Stundum minnti prentun- in meira á poplist Roy Lichtenstein en heila samstæða litafleti. Á síðustu árum hafa gæði prentunar og pappírs í myndasögum batnað svo að varla er saman að líkja við það sem áður gerð- ist. Það eru fáar útgáfur svo aumar að þær hafi ekki ráð á að prenta á fínasta glanspappír með bestu fáanlegu tækni. Maður sér fyrir sér að í sumum sögunum séu litaforritin nánast jafn mikilvæg og teiknarinn sjálfur. Out There: The Evil Within er fyrsta bókin sem kemur út í þessari röð og höfundurinn Brian Augustyn kýs að fara nokkuð rólega af stað. Kynntir eru til leiks fjórir krakkar af ólíku sauðahúsi sem búa í smábænum El Dorado þar sem allt er svo hreint og fínt að það jaðrar við að vera grun- samlegt. Enda kemur í ljós að bæj- arbúar hafa gert samning við æðri (eða neðri) máttarvöld um að halda hlífiskildi yfir staðnum en þurfa í staðinn að byggja einhvers konar gátt inn í aðra vídd til að hleypa verndara sínum til jarðar. Sá hinn sami er kölski sjálfur og hefur hann útsend- ara sína í bænum í formi lítilla púka sem líkjast mest hjálparhellum Ha- desar í Disneymyndinni um Herkú- les; þá frómu drýsla Pata og Píni. Sjálfur er kölski ekki sérlega óttaleg- ur og tel ég víst að mér mundi bregða meira en krökkunum þegar þau standa augliti til auglitis við andskot- ann sjálfan. Sagan líður í rauninni fyr- ir það að hún nær aldrei að gera les- andann almennilega skelkaðan og spennan verður ekki mikil. Það getur reyndar skýrst af því að hér er aðeins um fyrsta bindið að ræða og vonandi að keyrslan verði meiri þegar fram líða stundir. Bestu kaflar bókarinnar eru þeir þar sem verið er að lýsa mis- munandi aðstæðum krakkanna áður en kraftur þeirra til að sjá undir yf- irborðið færir þau saman. Humberto Ramos er tæknilega mjög fær teiknari. Persónur hans eru teiknaðar í veggjakrotsstíl þar sem rétt hlutföll mannslíkamans eru ekki endilega í fyrirrúmi; fætur og höfuð í yfirstærðum. Andlit eru öll einfölduð þannig að erfitt getur verið að greina á milli persóna og augun; ooh! þessi augu, stór eins og undirskálar, hjá góðu köllunum og lítil og pírð hjá þeim sem hafa óhreint mjöl í poka- horninu. Það mætti í rauninni segja að í bandarískum myndasögum sé að skapast tiltekin stílhefð í teikningum sem dregur dám af þeirri japönsku (Manga) og er Out There prýðilegt dæmi um það þegar þessi menning- arblöndun gengur upp. Eins og áður sagði þá er tölvulitun orðin nánast ráðandi í geiranum í dag en öllu má nú ofgera. Teikningarnar í Out There nánast hverfa á bak við glansandi tölvuvinnsluna og missa með því mikið af þeim lífsglampa sem er nauðsynlegur til að lesandinn nái tilfinningu fyrir sögunni. Áferðin á andlitum persónanna er lík þeirri sem finna má á plastdúkkum í leikfanga- verslunum; glansandi og lökkuð og gersamlega lífvana. Það þyrfti ein- hver að kippa glampatakkanum úr sambandi í teikniforritinu sem notað er. Það er ekki hægt að saka þá Aug- ustyn og Ramos um einhverja tilgerð- ardramatík enda er Out There bless- unarlega laus við allt slíkt. Þetta er afslöppuð afþreying, full af tækni- brellum og lofti eins og sumarmyndir bíóhúsanna. MYNDASAGA VIKUNNAR Djúpar pælingar á þessum bænum. Með litprentuðum glans Myndasaga vikunnar er Out There eftir Brian Augustyn og Humberto Ramos. Cliffhanger! gefur út, 2002. Bókin fæst í myndasöguversluninni Nexus. Heimir Snorrason
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.