Morgunblaðið - 15.12.2002, Blaðsíða 44
FRÉTTIR
44 SUNNUDAGUR 15. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
FASTEIGNASALA
HÁTÚNI 6a
SÍMI 512 1212 FAX 512 1213
Stangarhylur
- til leigu eða sölu
Glæsilegt fjölnotaatvinnu-
húsnæði á frábærum stað
með mikið auglýsingagildi.
Húsið er tvær hæðir. Á efri
hæð eru fullbúnar skrif-
stofur auk opins vinnu-
rýmis og góðrar kaffiað-
stöðu. Á neðri hæð er
fundarsalur, skrifstofur og
lagerrými með innkeyrslu-
dyrum. Í öllu húsnæðinu
eru góðar síma- og tölvulagnir. Hentar sérstaklega vel fyrir félagasam-
tök, hefðbundinn skrifstofurekstur eða heildsölu með smávarning.
Teikningar á skrifstofu.
ATVINNUHÚSNÆÐI
FJÁRFESTAR
Góðar eignir með traustum leigutökum.
Í Smáranum ca 200 fm vandað verslunarh. Traustur leigutaki,
langtímaleigusamn. Áhv. hagst. lán. 16,8 m. Leiga á mán.
325 þús. Hagst. kaup.
Laugavegur - 237 fm verslun. Traustur leigutaki.
Leiga á mán. 300 þús. Áhv. hagst. lán.
Bakkabraut í Kóp., 200 fm Eignin er öll í útleigu.
Mjög góð staðsetning. Leiga á mán. ca 200 þús.
Áhv. hagst. lán til 25 ára. Verðtilboð.
Fossaleynir - ca 740 fm vandað verslunarh. Traustur leigutaki
(Húsasmiðjan). Leiga á mán. ca 780 þús.
Áhv. hagst. lán 46 m. Góð kaup.
Stórhöfði - 347 fm vandað skrifst./lagerhúsnæði. Traustur
leigu-taki, leigusamn. til 2009. Leiga á mán. 375 þús.
Áhv. lán ca 20 m.
Í Smáranum - 237 fm vandað þjónusturými. Er í leigu til mjög
traustra aðila til 2011. Leiga á mán. 460 þús.
Áhv. hagst. lán ca 23 m.
Upplýsingar veitir
Magnús Gunnarsson í
síma 588 4477 eða 822 8242
Grensásvegi 22 • Sími 533 1122
Þröstur Þórhallsson, sími 897 0634.
Borgartúni 22,
105 Reykjavík,
sími 5-900-800.
Ólafur Blöndal, sími 893 9291
Til sölu við Austurstræti í Reykjavík
Þessi einstaka og sögufræga eign (gamli Hressingarskálinn) KFUM og KFUK í Reykjavík er
til sölu. Eignin er skráð 624 m² samkvæmt Fasteignamati ríkisins og skiptist í 466 m² á jarð-
hæð og 158 m² á efri hæð. Lóðin er eignarlóð. Frábær fjárfesting.
Einkasala.
Höfum til sölu þetta glæsilega
1.572 fm atvinnuhúsnæði á tveimur
hæðum, 984 fm neðri hæð og 588
fm efri hæð. Húsnæðið stendur á
mjög áberandi stað í nýju og eftir-
sóttu iðnaðar- og verslunarhverfi í
Garðabæ og hentar sérlega vel fyrir heildsölu, iðnað eða verslun. Hús-
næðið skilast einangrað að utan og klætt með garðapanil. Gólf vélslípuð.
Lofthæð frá 3,60 m upp í 6 m og stórar innkeyrsludyr. Húsið stendur á
3.172 fm lóð sem skilast malbikuð. Nánari
skilalýsing á skrifstofu okkar. Húsið er upp-
steypt nú þegar. Einnig möguleiki að selja
húsið í núverandi ástandi.
Atvinnuhúsnæði
Miðhraun - Garðabæ
Sími 568 5556
Hamraborg 12, Kópavogi, sími 564 1500, fax 554 2030.
Jóhann Hálfdánarson, Vilhjálmur Einarsson, löggiltir fasteigna- og skipasalar
564 1500
20 ára
EIGNABORG
FASTEIGNASALA
247 fm götuhæð sem er um
140 fm er stór innkeyrsluhurð, á
efri hæð eru, skrifstofa, kaffi-
stofa, snyrting og geymslur.
Húsnæðið er mjög vel innréttað
með vönduðum innréttingum.
Malbikað bílaplan, laust fljótlega.
Til sölu eða leigu - Dalvegur
GÍSLI Halldórsson, arkitekt, var
kjörinn heiðursfélagi Arkitekta-
félags Íslands á aðalfundi félagsins
fyrir skömmu, en hann er fimmti
heiðursfélagi félagsins.
„Það er gaman að fá viðurkenn-
ingu fyrir ævistarfið,“ segir Gísli en
hann hefur verið mjög afkastamikill
arkitekt. Auk þess hefur Gísli látið
mikið að sér kveða á sviði stjórn-
mála og íþróttamála, en hann hefur
meðal annars verið forseti borgar-
stjórnar Reykjavíkur, formaður
Ólympíunefndar Íslands og forseti
Íþróttasambands Íslands. Hann
hefur hlotið fjölda viðurkenninga
fyrir störf sín að félagsmálum, þar á
meðal stórriddarakross fálkaorð-
unnar.
Gísli varð 88 ára 12. ágúst síðast-
liðinn. Hann lauk prófi úr Iðnskól-
anum í Reykjavík 1933 og tók
sveinspróf í húsasmíði. Hann stund-
aði arkitektanám í Danmörku, starf-
rækti teiknistofu með Sigvalda
Thordarson í Reykjavík á stríðsár-
unum en hélt síðan aftur til Kaup-
mannahafnar og tók lokapróf frá
arkitektúrdeild Det Kongelige Aka-
demi for de Skönne Kunster 1947.
Hann rak einn teiknistofu í Reykja-
vík til 1957 og síðan í félagi við aðra.
Ásamt félögum sínum rak hann eina
stærstu arkitektastofu landsins,
Teiknistofuna Ármúla 6, og hélt
uppi fyrsta raunverulega fyrirtæk-
inu í arkitektaþjónustu um áratuga-
skeið.
Í lögum Arkitektafélagsins segir
m.a. að heimilt sé að kjósa heið-
ursfélaga hvern þann sem stuðlað
hafi að framgangi og þekkingu á
byggingarlist eða unnið ötullega
fyrir félagið. Gísli hefur unnið marg-
vísleg trúnaðarstörf fyrir arkitekta.
Hann gekk í Húsameistarafélag Ís-
lands 1947, var m.a. formaður þess,
og var nafni félagsins breytt í Arki-
tektafélag Íslands í formannstíð
hans. Gísli sat í fjölda nefna félags-
ins og þar á meðal í gjaldskrárnefnd
í meira en áratug. Hann var einn af
frumkvöðlum að stofnun Bygginga-
þjónustu félagsins og í fyrra lagði
hann fyrir stjórn þróaða hugmynd
sína um Höfundarsjóð arkitekta. Á
verkefnalista stofu Gísla má nefna
margvísleg íþróttamannvirki í
Laugardal, Hótel Loftleiðir, Hótel
Esju, flugstöðvar á Akureyri og Eg-
ilsstöðum, fjölbýlishús við Birkimel
og eigið hús við Tómasarhaga.
Gísli Halldórsson heiðursfélagi
Valdís Bjarnadóttir, formaður Arkitektafélags Íslands, afhenti Gísla Hall-
dórssyni, arkitekt FAÍ, heiðursskjal og blómvönd við athöfnina.
Aðalfundur Arkitektafélags Íslands
AÐALBÚÐIN á
Siglufirði hefur nú
hafið starfsemi að
nýju, en verslunin
hefur lengi verið
rótgróin bóka- og
gjafavöruverslun.
Á liðnu sumri lagði
fyrri eigandi versl-
unarinnar starf-
semina niður. Eig-
endur Blóma- og
Föndurstöðv-
arinnar, þær
Hrafnhildur
Hreinsdóttir og
Guðrún Hauks-
dóttir keyptu
reksturinn
skömmu síðar og
fluttu allan rekstur
sinn í húsnæðið sem hefur hýst
Aðalbúðina um áratuga skeið.
Þær stöllur hafa rekið Fönd-
urstöðina þar sem þær hafa versl-
að með blóm, gjafa- og fönd-
urvörur í rúm tvö ár, en hafa nú
stækkað reksturinn með því að
gera samning við Brynjar Pálsson
bóksala á Sauðárkróki varðandi
sölu á bókum og ritföngum.
Áfram verður lögð áhersla á
framboð á gjafa- og föndurvörum,
auk blóma og skreytinga auk bók-
anna. Þá verður einnig boðið upp
á ýmiskonar námskeið í tengslum
við þann áhuga sem orðið hefur á
handgerðum munum og föndri.
Föndursmiðjan Komman verð-
ur, þegar fram líða stundir einnig
til húsa á sama stað, en Komman
var rekin sem föndursmiðja í
nokkur ár, en reksturinn lagður
niður fyrir tæpu ári. Myndlist-
arkonan Brynja Baldursdóttir
hannaði og skipulagði innrétt-
ingar í samstarfi við rekstr-
araðila.
Aðalbúðin á Siglu-
firði aftur í rekstur
Frá vinstri: Hrafnhildur Hreinsdóttir, Brynjar Páls-
son bóksali og Guðrún Hauksdóttir.
Morgunblaðið/Halldór Halldórsson
Siglufirði. Morgunblaðið. FYRIRTÆKIÐ iPnet ehf.. hyggst á
næstu dögum setja á markað lág-
gjalda símaþjónustu með fyrirfram-
greiddum alþjóða símakortum undir
vörumerkinu „Heimsfrelsi“. Með
kortinu mun korthafi geta hringt til
útlanda í allt að 200 mínútur fyrir
1.000 kr.
Á kortinu er aðgangsnúmer sem
hringt er í og er kortanúmerið síðan
slegið inn.
Í tilkynningu frá iPnet segir að
það kosti rúmar 5 kr. á mínútu að
hringja til landa á borð við Bandarík-
in, Bretland, Þýskaland og Svíþjóð.
Stefnt er að því að þjónustan verði
komin í gagnið 16. desember nk. og
verða fyrstu kortin fáanleg á öllum
bensín- og afgreiðslustöðvum Esso.
Nánari upplýsingar um kortið má
finna á www.simakort.is.
Hringt til út-
landa fyrir 5
kr. á mín.
SÍMINN hefur ákveðið að lækka
verð á símtölum í Iridium-kerfinu.
Mínútuverð á Iridium-símtölum frá
sjó í land lækka um 11% og kosta
framvegis 127 kr og símtöl milli Irid-
ium-síma lækka um 14% og kosta 73
kr. Verð á samtali þegar hringt er úr
almenna símkerfinu í Iridium lækkar
um 32%, úr 225 kr. í 153 kr.
Í tilkynningu frá Símanum segir
að viðskiptavinir hans hafi aðgang að
tveimur gervihnattakerfum, Inmars-
at og Iridium, Iridium sé fyrsta
hnattræna fjarskiptakerfið sem bjóði
upp á samband um allan heim.
Iridium-símtöl
lækka