Morgunblaðið - 15.12.2002, Blaðsíða 43

Morgunblaðið - 15.12.2002, Blaðsíða 43
KVENFÉLAG Selfoss hélt sinn árlega jólagjafafund síðastliðinn fimmtudag, 12. desember. Á fund- inum var að vanda boðið upp á góðar kaffiveitingar að hætti kven- félagskvenna og gestirnir, sem að meirihluta voru íbúar sambýlanna á Selfossi, kunnu vel að meta góð- gjörðirnar. Á hverju ári færir félagið íbúum sambýlanna jólagjafir og voru það geisladiskar og myndbandsspólur. Fulltrúar hvers sambýlis veittu gjöfunum viðtöku, frá sambýlinu að Árvegi 8, Álftarima 2, Vallholti 12–14, Vinnustofunni Gagnheiði, Vallholti 9 og frá Lambhaga 48. Vallaskóli fékk í jólagjöf 8 skák- klukkur en þar er nú mikill skák- áhugi skólabarna sem blossaði upp eftir Mjólkurskákmótið nú í haust og skólinn hefur fylgt honum eftir. Barnastofa Sjúkrahúss Suðurlands fékk 8 myndbandsspólur með barnaefni, Sambýlið að Lambhaga 48 fékk stafræna myndavél og Ljósheimar á Selfossi fengu tvö vinnuljós til að nota við tómstunda- starf eldra fólksins sem þar dvelur. Þá hefur Kvenfélag Selfoss fært Kvennaathvarfinu í Reykjavík 50 þúsund krónur, auk þess sem fé- lagið hefur stutt fólk í erfiðleikum og veitt til þess 200 þúsund krón- ur. Gjafir þeirra kvenfélagskvenna byggjast á hugsjón kvenfélaganna að veita aðstoð inn í samfélagið, gleðja fólk og styðja við uppbyggi- legt starf. Allt er þetta gjört af miklum myndarskap. Fjöldi gjafa til stuðnings og gleði Morgunblaðið/Sig. Jónsson Frá afhendingu jólagjafa Kvenfélags Selfoss. Selfossi. Morgunblaðið. FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 15. DESEMBER 2002 43 Sérhæfðir sölumenn í atvinnuhúsnæði! FRANZ@holl.is Hóll — Alltaf rífandi salaAGUST@holl.is FJÖLDI EIGNA TIL SÖLU OG LEIGU! Ekki hika við að hringja í okkur félagana, Franz, gsm 893 4284, Ágúst gsm, 894 7230. Höfðabakki - til leigu mjög hagstæð leiga Atvinnuhúsnæði Góð lofthæð, mjög góð staðsetning, góð aðkoma og næg bílastæði. Eigum eftirfarandi til ráðstöfunar. 1. hæð 468 fm og 266 fm. Innkeyrslud., lofth. 3,7 m. 780 fm. Innkeyrslud., lofth. 7,6 m. 2. hæð 1.040 fm og 266 fm. Skrifstofur o.fl. Mögulegt er að skipta ofangreindum stærðum í smærri einingar. Húsnæðið hefur verið í notkun fyrir höfuðstöðvar Marels. Hentar fyrir ýmiss konar starfsemi, s.s. iðnað, heildsölu, skrifstofustarfsemi o.fl. Eignin er í eigu Landsafls, sem er öflugt sérhæft fasteignarfélag. Upplýsingar veitir Magnús Gunnarsson í síma 588 4477 eða 822 8242 www.valholl.is - Opið virka daga frá kl. 9-17.30 ÍBÚÐARHÚSNÆÐI Brattholt - raðhús Vegna sérstakra aðstæðna er þetta 131 fm raðhús á 2 hæðum á barnvænum stað í miðju Mosfellsbæjar til sölu. Hjónaherbergi, eldhús og stórt stofa/borðstofa á 1. hæð, 2 svefnherbergi, sérþvottahús og baðher- bergi m. sturtu og baðkari á jarðhæð. Flísar og parket á gólfi. Úr stofu er gengið út í lítinn suð- urgarð. Stutt í alla þjónustu, skóla og leikskóla. Verð 13,5 m., áhv. 4,1 m. Urðarholt - 3ja herb. m. bíl- skúr *NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá glæsilega 94,3 fm íbúð á jarðhæð með sérgarði ásamt bíl- skúr. Íbúðin er öll parketlögð með beyki, en bað- herbergi er flísalagt, m. baðkari og sturtu. Í eld- húsi er stór og falleg sprautlökkuð innrétting ásamt borðkróki. Mjög falleg útsýni er úr íbúðinni. Húsið er nýmálað að utan og sameign er snyrti- leg. Verð 13,9 m., áhv. 8,2 m Skeljatangi - 4ra herb Perma- form *NÝTT Á SKRÁ* 94 fm Permaform-íbúð á jarðhæð í litlu fjórbýlishúsi með sérinngangi. 3 svefnherbergi, gott eldhús og stór stofa. Baðher- bergi m. kari og sérþvottahús. Úr stofu er gengið út á fallega timburverönd með góðum skjólvegg. Verð 12,8 m., áhv. 6,8 m. Klapparhlíð - 4ra herbergja Sérlega glæsileg 99 fm, 4ra herbergja íbúð á 3. hæð í nýju fjölbýli með sérinngangi. Rauð eik á öllum gólfum en flísar á baði, þvottahúsi og nátt- úrusteinn á forstofu. Vandaðar mahoní-innrétting- ar í eldhúsi og svefnherbergjum. Úr stofu er geng- ið út á stórar svalir með mjög miklu útsýni til Reykjavíkur og yfir sundin. Verð 15,4 m., áhv. 9,3 m. húsbréf - til afhendingar strax Barmahlíð - 4ra herb. - Rvk. *NÝTT Á SKRÁ* Vorum að fá í einkasölu mjög fal- lega 98 fm sérhæð ásamt 28 fm bílskúr. Íbúðin skiptist í 3 rúmgóð svefnherbergi, fallegt eldhús með borðkrók, baðherbergi flísalagt í hólf og gólf og stóra og bjarta stofu. Íbúðin lítur mjög vel út, m.a. er nýleg eldhúsinnrétting og fallegt beyki- parket á gólfum. Verð 15,7 m., áhv. 7,1 m. Eskihlíð - Reykjavík. Glæsileg 97 fm, 3ja herbergja íbúð á 4. hæð ásamt geymslu. Mikið endurnýjuð 3ja herbergja íbúð, með mer- bau-parketi á gólfi, stór svefnherbergi, eldhús m. borðkrók og björt og rúmgóð stofa, baðherbergi er flísalagt, m. baðkari. Úr íbúðinni er mikið útsýni yfir Reykjavík. Þetta er glæsileg eign á góðum stað. Verð 13,4 m. Fullinnréttað 420 m² skrifsthúsn. á 2. h. í lyftuhúsi í miðbæ Rvk. Húsnæðið skiptist í 11 skrif- stofuherbergi, mót- töku, stórt fundarher- bergi og eldhús. Dúkur á gólfum. Gluggar og gler nýl. endurn. Hús í góðu ástandi í sérstöku húsi á framtíðarstað. Verð 39 millj. Ekkert áhv. Ath. mögul. að lána hluta kaup- verðsins. Lyklar og teikningar á skrifstofu okkar. Nánari uppl. veitir Guðlaugur í neðan- greindum síma eða 896 0747. Sími 511 2900 Til sölu í Tryggvagötu HEIMSKLÚBBUR Ingólfs-Príma hefur skipt um húsnæði og flutt sig milli hæða í Austurstræti 17 í Reykjavík. Að því er fram kemur í fréttatilkynningu frá ferðaskrif- stofunni hafði það staðið til um tíma að flytja úr miðbænum en þegar henni skyndilega bauðst ný- standsett húsnæði í sama húsi á annarri hæð breyttust þau áform. Hjá Heimsklúbbnum-Príma vinna nú 5 manns í fullu starfi á skrifstofu auk lausráðins fólks í Orlando og Taílandi og far- arstjóra í einstökum ferðum. Í fréttatilkynningunni segir enn- fremur að með nýju starfsfólki hafi farseðlasala út í heim marg- faldast á undanförnum mánuðum. Segja megi að allsherjar endurnýj- un hafi átt sér stað, því að allur tækja- og fjarskiptabúnaður er einnig nýr. Fyrirtækið sinnir jöfnum hönd- um þjónustu við hópa og ein- staklinga. Nýja húsnæðið er á 3. hæð í Austurstræti 17 með af- greiðslutíma kl. 9–17 virka daga, mánudag til föstudags. Heimsklúbbur Ingólfs- Príma í nýtt húsnæði Morgunblaðið/Golli
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.