Morgunblaðið - 15.12.2002, Blaðsíða 58
58 SUNNUDAGUR 15. DESEMBER 2002 MORGUNBLAÐIÐ
Russell Crowe er í giftingar-
hugleiðingum. Ástralski leikarinn,
sem á dögunum lýsti yfir að hann
ætlaði að leggja kvikmyndaleikinn
á hilluna um
óákveðinn tíma,
mun nú loksins
tilbúinn til að
festa ráð sitt. Sú
lukkulega er
ástralska leik-
konan Danielle
Spencer sem
Crowe hefur átt
í stormasömu
sambandi við um
allnokkurt skeið. Og hvað hafa
heimildamenn fyrir sér? Átta millj-
óna króna demantshring sem
Crowe hefur pungað út fyrir. Vinir
hans staðfesta þetta líka: „Crowe
hefur hugsað sinn gang og komist
að þeirri niðurstöðu að það sem
hann vantar í líf sitt er fjölskylda.“
Ekki alls fyrir löngu missti Crowe
föður sinn. Hann tók föðurmissinn
mjög nærri sér og leitaði svars í
flöskunni … Moby var barinn til
óbóta af tveimur Eminem-
aðdáendum á föstudag. Fautarnir
króuðu Moby af og þóttust vilja
eiginhandaráritun en gengu í
skrokk á honum eftir að hafa lokk-
að hann afsíðis. Tónlistarmaðurinn
var fluttur í snatri á spítala þar
sem gert var að sárum hans sem
blessunarlega reyndust minnihátt-
ar. Töluverð togstreita hefur ríkt
milli Mobys og Eminems und-
anfarnar vikur og þótt Moby hafi
ítrekað lýst því yfir að hann vilji
grafa stríðsöxina hefur Eminem
verið óþreytandi í að senda honum
ögrandi glósur. Þótt lögreglu-
yfirvöld velti nú vöngum yfir hvort
árásin sé tengd þessum hanaslag er
Eminem sjálfur ekki talinn viðrið-
inn málið … Halle Berry ræktar nú
trúna til að reyna að bjarga hjóna-
bandi sínu og tónlistarmannsins
Erics Benets. Parið sækir saman
messu í Los Angeles á hverjum ein-
asta sunnudegi. Er Benet ávallt
berfættur en
Berry heldur á
Biblíu. Hann
baðst nýlega af-
sökunar op-
inberlega fyrir
að hafa haldið
framhjá hinni
fögru eiginkonu
sinni … Leik-
arinn Richard
Harris, sem lést
fyrir skömmu, sést á tjaldinu í
þriðju myndinni um galdrastrák-
inn Harry Potter, Harry Potter og
fanginn frá Azkaban. Nútímagaldr-
ar gera þetta kleift en notast verð-
ur við ónotaðar upptökur af leik-
aranum, sem lést úr krabbameini í
október. Andlit Harris verður sett
með tölvutækni yfir andlit Harrys
nokkurs Robinsons, sem var stað-
gengill Harris í fyrstu tveimur
myndunum. Kunnugir segja að
Robinson, sem er 72 ára, eigi á
endanum eftir að taka við hlutverki
Dumbledores prófessors …
FÓLK Ífréttum
Russell Crowe
Richard Harris
Miðasala opnar kl. 13.30 HUGSAÐU STÓRT
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10. Mán kl. 4 og 6.
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd kl. 2, 5, 6, 8, 9 og 10.50. Mán kl. 5, 6, 8, 9 og 10.50. B.i.12 ára
4, 7 og 10
Hvað gerist þegar þú týnir
hálfri milljón dollara frá mafíunni?
Hörku hasarmynd með töffaranum
Vin Diesel úr xXx, Dennis Hopper
og John Malkovich.
YFIR 36.000 GESTIR
DV
“Besta Brosnan Bond-myndin”
GH Kvikmyndir.com
i
i i
RadíóX
Sýnd kl. 2 og 4.
Mán kl. 4.
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.10. Mán kl. 5.30, 8 og 10.10.
Rapparinn Lil Bow Wow finnur galdraskó sem
Jordan átti og kemst í NBA!
Margur er knár þó hann sé smár -
frábær skemmtun
fyrir alla fjölskylduna.
Jonathan Lipnicki úr Jerry Maguire
og pabbinn úr American Pie fara á
kostum!
Falleg
kvenúr
LAUGAVEGI 15 • Sími 511 1900
www.michelsen.biz
Kíktu á úrvalið á
Sýnd kl. 6, 8 og 10.45. Mán kl. 6B.i. 16 ára
Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10. Mán kl. 6 og 9. B.i. 12 ára
“Besta Brosnan Bond-myndin”
GH Kvikmyndir.com
i
i i
RadíóXDV
YFIR 36.000 GESTIR.
Lína fer í skóla
kl. 3.
Lína fer í Tívolí
kl. 4.30.