NT - 08.03.1985, Blaðsíða 15

NT - 08.03.1985, Blaðsíða 15
Fóstudagur 8. mars 1985 15 — Blðð II ■ Tvær gleðikvennanna úr Gísl: Coletta (Guðrún Gísladóttir) og Meg (Margrét Helga Jóhannsdóttir). Stórglæsilegt bingó verður haldið í Sjálfstæðishúsinu Hamraborg 1 í Kópavogi, laugardaginn 9. mars kl. 14.30. Mætið tímanlega til að ná í spjöld. Vonumst til að sjá sem flesta. Stórglæsilegir vinningar í boði. Fjáröflunarnefnd kirkjufélags Digranesprestakalls Rut Rebekka á vinnustofu. Síðasta sýningarhelgi sýningar Rutar Rebekku Sigurjónsdóttur ■ NústenduryfirsýningRut- ar Rebekku Sigurjónsdóttur að Kjarvalsstöðum, en henni lýkur sunnudaginn 10. mars. Á sýningunni eru 44 verk, málverk og grafík. Rut Re- bekka stundaði nám í Mynd- listaskólanum í Reykjavík og Myndlista- og handíðaskóla íslands. Er útskrifuð 1982. Hún hefur dvalist í gistivinnu- stofu í Danmörku á vegum Nordisk Kunstcenter 1984. Rut Rebekka hefur haldið tvær einkasýningar og tekið þátt í samsýningum. ■ Frá sýningu Kristjönu Samper. Skúlptúrsýningu Kristjönu Samper lýkur um helgina ■ Á þriðja þúsund manns hafa þegar skoðaða sýningu Kristjönu Samper að Kjarvals- stöðum. Á sýningunni eru 24 verk, flest unnin í leir á s.l. tveim árum. Kristjana stundaði nám við Myndlistaskólann í Reykja- vík, Myndlista- og ihandíða- skóla íslands og University of Arizona í Bandaríkjunum. Sýning Kristjönu er opin frá kl. 14.00-22.00 oglýkursunnu- daginn 10. mars. Þrjú leikrit um helgina Leikfélag Reykjavíkur: Agnes - barn Guðs ■ í kvöld (föstudagskvöld) er bandaríska verðlauna- leikritið Agnes - barn Guðs sýnt hjá Leikfélagi Reykjavík- ur. Guðrún Gísladóttir leikur aðalhlutverkið, en einnig leika þær Sigríður Hagalín og Guð- rún Ásmundsdóttir. Þórhildur Porleifsdóttir er leikstjóri. Dagbók Önnu Frank ■ Á laugardagskvöldið er Dagbók Önnu Frank sýnd, en leikritið hefur gengið frá því snemma í haust. Leikstjóri er Hallmar Sigurðsson. Guðrún Kristmannsdóttir hefur hlotið mikið hrós fyrir leik sinn sem Anna Frank. Guðbjörg Thor- oddsen hefur tekið við hlut- verki Margrétar, systur hennar. Foreldrana leika Sigurður Karlsson og Valgerð- ■ Sýningar hefjast á ný í Þjóðleikhúsinu að kvöldi laug- ardags 9. mars og verður þá 67. sýning á söngleiknum Gæj- um og píum eftir Loesser, Swerling og Burrovvs. Sunnudaginn 10. mars verð- ur sýning á barnaleikritinu Kardemommubænum eftir Thorbjörn Egner kl. 14.00. Sunnudaginn verður síðan 6. sýning á Rashomon eftir Fay og Michael Kanin og á Litla sviðinu verður Gertrude Kvikmyndaklúbburinn Norðurljós sýnir í Norræna húsinu Sunnudaginn 10. mars kl. 16.00 (kl. 4) sýnii kvikmynda- klúbburinn Norðurljós dönsku gamanmyndina „Stövsuger- banden“ frá 1963. í aðalhiut- verkum eru Clara Pontoppi- dan, Henrik Benzon, Gunnar Lauring, Henning Moritzen o.fl. Leikstjóri er Bent Christ- ensen. Myndin er svart-hvít, með dönsku tali og sýningar- tími er 100 mínútur. Sýnt verður í fundarsal Norræna hússins og gilda að- gangskort kvikmyndaklúbbs- ur Dan, en alls koma 10 leikar- ar fram í sýningunni. 75. sýning á Gísl Órfáar sýningar eftir ■ Á sunnudagskvöldið er 75. sýning á Gísl eftir Brendan Behan í þýðingu Jónasar Árnasonar en leikstjórn Stef- áns Baldurssonar. Aðeins eru nú eftir örfáar sýningar á leikritinu. Jóhann Sigurðsson leikur gíslinn, en mikill fjöldi leikara syngja, leika og dansa í leikritinu. Draumur á Jónsmessunótt ■ Nýjasta viðfangsefni Leik- félags Reykjavíkur er Draum- ur á Jónsmessunótt. Það leikrit verður næst sýnt á þriðjudag og fimmtudag. Uppselt hefur verið á allar sýningar til þessa. Stein Gertrude Stein Gertrude Stein, eftir Marty Martin sýnt 20.30. Fyrirhugað var að miðasala hæfist á þessar sýningar fimm- tudaginn 7. mars og var búið að auglýsa það, en nú er ljóst af því hversu fyrirferðarmikið þing Norðurlandaráðs er, að miðasala getur ekki hafist fyrr en kl. 16.00 föstudaginn 8. mars og eru leikhúsgestir beðnir velvirðingar á þessu. ins frá því í haust á sýninguna. Einnig verður hægt að kaupa miða við innganginn. Næsta sýning á vegum kvik- myndaklúbbsins verður sunnu- daginn 31. mars og verður þá sýnd kvikmyndin „Don Olsen kommer til byen“ frá 1964. Félagsvist Húnvetningafélagsins Húnvetningafélagið í Reykjavík verður með félags- vist sunnudaginn 10. mars kl. 16.00 að Skeifunni 17, Ford- húsinu. Góð verðlaun verða í boði, en stjómandi vistarinnar er Ingi Tryggvason. Sýningar Alþýðuleik- hússins Klassapíur ■ Alþýðuleikhúsið sýnir um helgina leikritið Klassapíur í Nýlistasafn- inu við Vatnsstíg. Á sunnudag kl. 20.00 verður 8. sýning á leikritinu. Miðapantanir í síma 14350 og miðasala er niilli kl. 17.00 og 19.00. Beisk tár Petru von Kant Síðasta sýningarhelgi ■ 50. sýning á leikritinu Beisk tár Petru von Kant laugardag kl. 15.00, 51. sýning verður sunnudag kl. 16.00 og 52. sýning mánudag kl. 20.30. Sýnt er að Kjarvalsstöðum. Miðapantanir í síma 26131. Sýning í Nýlistasafninu Föstudaginn 8. mars opnar Georg Guðni Hauksson mál- verkasýningu í Nýlistasafninu Vatnsstíg 36. Þetta er fyrsta einkasýning hans, en áður hef- ur hann tekið þátt í nokkrum samsýningum. Sýningin verður opin virka daga kl. 16-20 og um helgar kl. 16-20. Sýning- unni lýkur 17. mars. Kim Smáge gestur í Norræna húsinu Á laugardag 9. mars kl. 15.00 kynnir norski sendikenn- arinn,TorUlset, nýjarnorskar bækur í Norræna húsinu í sam- vinnu við bókasafn þess. Þetta er önnur bókmenntakynningin af fjórum, sem haldnar verða í mars. Gestur á þessari norsku bók- menntakynningu verður rit- höfundurinn Kim Smáge. Hún er fædd og uppalin á vestur- strönd Noregs og starfar sem framhaldsskólakennari í Ála- sundi. Auk þess er hún kafari - fyrsti köfunarkennari Noregs - og í verkum hennar endur- speglast vesturströndin og ver- öld kafaranna. Kim Smáge hefur fengið bókmenntaverðlaun og bækur hennar fengið mjög góðar við- tökur. Kynningin hefst kl. 15.00 og allir eru velkomnir. Sýningar í Þjóð- leikhúsinu hefjast á ný

x

NT

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: NT
https://timarit.is/publication/305

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.