Morgunblaðið - 14.12.2005, Blaðsíða 61

Morgunblaðið - 14.12.2005, Blaðsíða 61
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2005 61 KEFLAVÍKKRINGLAN AKUREYRI FRÁ ÓSKARSVERÐLAUNALEIKSTJÓRANUM PETER JACKSON KING KONG kl. 2 - 4 - 6 - 8 - 10 B.i. 12 ára. KING KONG VIP kl. 2 - 6 - 10 B.i. 12 ára. HARRY POTTER OG ELDBIKARINN kl. 1.50 - 5 - 8.10 B.i. 10 ára. JUST LIKE HEAVEN kl. 2 - 4 - 6 - 8 GREENSTREET HOOLIGANS kl. 10.30 B.i. 16 ára LORD OF WAR kl. 8 - 10.30 B.i. 16 ára. Litli Kjúllin M/- Ísl tal. kl. 2 - 4 - 6 KING KONG kl. 4.20 - 8 - 11.40 B.i. 12 ára. JUST LIKE HEAVEN kl. 6 - 8 - 10.10 HARRY POTTER OG ELDBIKARINN kl. 5 B.i. 10 ára. Litli Kjúllin M/- Ísl tal. kl. 4 KING KONG kl. 5.30 - 9 B.i. 12 ára. HARRY POTTER OG ELDBIKARINN kl. 8 B.i. 10 ára. THE EXORCISM OF EMILY ROSE kl. 11 B.i. 16 ára. KING KONG kl. 5.30 - 9 B.i. 12 ára HARRY POTTER OG ELDBIKARINN kl. 6 B.i. 10 ára JUST LIKE HEAVEN kl. 9 ÁLFABAKKI DANÍEL Ágúst sendi á dögunum frá sér sína fyrstu sólóskífu Swallowed a Star og hefur skífan hlotið lof gagnrýnenda sem fagna endurkomu Daníels á tónlist- arsviðið. Í tilefni að útgáfunni verða haldnir tónleikar í Íslensku óperunni í kvöld. Þar mun Daníel koma fram ásamt fimm manna strengjasveit, skipaðri Grétu Guðnadóttur, Roland Hartwell, Guðmundi Kristmunds- syni, Sigurði Bjarka Gunnarssyni og Hávarði Tryggvasyni en sérstakir gestir verða tónlistarkonan Mr. Silla og hljómsveitin Rass. Swallowed a Star er gefin út af Smekkleysu á Íslandi and One Little Indian í Bretlandi. Hún var unnin í samstarfi við Bix sem meðal annars tók upp Gus Gus plötuna This Is Normal en hann hefur einnig endur- hljóðblandað lög tónlistarfólks á borð við Beck, Madonnu, Björk og Sigur Rós. Tónlist | Útgáfutónleikar Daníels Ágústs í kvöld Morgunblaðið/Árni Sæberg Daníel Ágúst vakti mikla athygli á NASA á síðustu Airwaves-hátíð. Ómþýtt í Óperunni Tónleikarnir hefjast klukkan 21. Miðaverð er 2.000 krónur. Forsala fer fram í Smekkleysu plötubúð, Laugavegi 59 (kjallari). VIKTOR Emil Andersen datt heldur betur í lukku- pottinn í fyrradag þegar hann var bíógestur númer 41.350 á Harry Potter og eldbikarnum en þar með varð myndin að stærstu mynd ársins. Fékk Viktor að launum veglegan Harry Potter-bikar. Hér er um vandaða smíð að ræða en eingöngu voru framleiddir 5000 bikarar í heiminum og fékk Ísland fimm slíka. Hina fjóra gáfu Sambíóin til Neistans, félags hjart- veikra barna. Harry Potter og eldbik- arinn er því tekjuhæsta mynd ársins með 31 millj- ón kr. í miðasölutekjur. Sló hún út teiknimyndina vinsælu Madagaskar, sem frumsýnd var í júlí og var stærsta mynd ársins þar til Harry töfraði sig á toppinn. Þess má geta að það tók Harry Potter einungis 19 daga að slá út Madagaskar en þessum sömu tekjum náði teiknimyndin inn á 20 vikum. Kvikmyndir | Harry Potter slær út Madagaskar Vinningshafinn Viktor Emil Andersen ásamt Hafdísi Ástráðsdóttur og Einari Þráinssyni. Gestur númer 41.350 HLJÓMPLATAN sem hér er til um- sagnar, Hunting for Happiness, er önnur plata hljómsveitarinnar Diktu sem kemur úr því ágæta sveitarfélagi Garðabæ. Fyrri plata sveitarinnar Andartak kom út fyrir 2002 og er í grunninn dæmi- gerð unglinga- plata; andvana verk, unnið af van- efnum og reynsluleysi. Á Hunting for Happiness er öllu þveröfugt farið. Hér sprettur fram þroskuð hljómsveit með fullburða verk sem stenst fyllilega samanburð við það allra besta sem er að gerast í heim- inum í dag. Fyrsta lag plötunnar „Los- ing Every Day“ er líklega eitt besta lag ársins 2005. Uppbygging þess er fullkomin og samhverfan heldur sér til enda. Hér er hugað að hverju einasta smáatriði og hljómurinn er eins og best verður á kosið. Haukur Heiðar Hauksson er frábær söngvari, áferð raddarinnar er flauelsmjúk en styrk- urinn er samt sem áður nægur til blæ- brigða. Þetta sýnir hann út alla plöt- una og það er í raun með ólíkindum að hann hafi ekki verið tilnefndur til Ís- lensku tónlistarverðlaunanna fyrir frammistöðu sína á þessari plötu. Ann- að lag plötunnar „Breaking the Wav- es“ sýnir Diktu í sínu besta rokkformi. Kraftmikil keyrsla bassa og gítars drifin áfram af mjög sannfærandi trommuleik Jóns Þórs Sigurðssonar og yfir öllu svífa margofnar raddir Hauks Heiðars. „This Song Will Save the world“ sýnir stílsnilld Diktu. Vönd- uð og óþvinguð lagsmíð sem leitar til málmblásturshljóðfæra og dragspils á smekklegri hátt en áður hefur heyrst. Söngur Hauks Heiðars enn og aftur með afbrigðum. Sjötta lag plötunnar, „Someone Somewhere“ hefur víst heyrst í út- varpi undanfarið. Hér er hin dæmi- gerða smáskífa fundin. Skúli Gestsson sýnir hversu nærgætinn bassaleikari hann er og tilfinning hans fyrir sam- spili bassatrommu og bassagítars er greinileg. Lagið er listavel samið og brúin er prýði annarra. Sjöunda lagið „WM3“ hefst á einskonar lagleysu sem erfitt er að klóra sig fram úr en þegar henni loksins sleppir eftir eina og hálfa mínútu, uppsker maður laun erfiðisins. Lágstemmdur en mjög svalur fönk- kafli skapar kaldhæðnislega hlið- skipun við textann sem fjallar um ör- lög þremenninganna frá Vestur Memphis í Bandaríkjunum sem voru að öllum líkindum ranglega dæmdir fyrir morð og limlestingar á þremur átta ára strákum árið 1993. Í „My Other Big brother“ og „Greater Good“ heldur Dikta upp- teknum hætti. Virkilega traustvekj- andi rokksmíðar sem gefa stærstu rokksveitum heimsins ekkert eftir, hvort sem um spilamennsku eða hljóm er að ræða. „Flies don’t tell“ ber melódíusnilld þeirra Diktu-manna vitni. Laglína og gítarlína bítast um aðalhlutverkið í versum en í viðlagi koma þau saman í virkilega sterkri melódíu. Í „My Favourite Friend “ er það samhljómur Hauks Heið- ars sem stelur senunni en þar verður einnig að hrósa Hrannari Ingimarssyni fyrir afbragðsgóða hljóðblöndun á röddum. Framlag þess síðastnefnda verður seint ofmetið þegar heildaryfirbragð þessarar plötu er tekið til athugunar og ljóst að Hrannar er með okkar langbestu upptökumönnum og hljóð- blöndurum. Tólfta og síðasta lag plöt- unnar „A Way Out“ var með réttu val- ið sem lokalag þessarar plötu. Í laginu er leikið á andstæður sem mynda spennu á milli viðlags og versa en þessi tækni er eins konar leiðarstef Hunting for Happiness og rís hvað hæst í þessu lagi. Ekki er fallið í þá gryfju að stækka hlut strengja sem þar er að finna, heldur þeim fundinn staðsetning við hæfi og svo ekki hvikað frá þeim stað. Hér ber líklega að þakka upp- tökustjóranum Ace sem virðist auk þess hafa náð fram öllu því besta sem liðsmenn Dikta hafa fram að færa. Ekki nokkurs staðar er hnökra að finna á útsetningum, hljómi, vali á hljóðfærum eða „effektum“ og það er ekki laust við að maður óski sér þess að fleiri hljómsveitir fyndu þá þörf hjá sér að leita til reyndra upptökustjóra. Velkist þær í vafa um að það hafi nokk- uð um að segja er Hunting for Happ- iness staðfesting á því að það hefur allt að segja. Eins og áður sagði á þessi plata fullt erindi á erlenda plötumarkaði og nú reynir á Diktu að koma sér þar að sem fyrst, því ef eitthvað er að marka Ís- lensku tónlistarverðlaunin verða hæfi- leikar Diktu seint metnir hér á landi – en það var svo sem við því að búast. Með því allra besta TÓNLIST Geisladiskar Dikta – Hunting for Happiness  Dikta er: Haukur Heiðar Hauksson – söngur, gítar, píanó, hljómborð. Jón Bjarni Pétursson – gítar og hljómborð. Jón Þór Sigurðsson – trommur, slagverk og bakraddir. Skúli Gestssson – bassi, dragspil og hljómborð. Aðrir hljóðfæraleikarar: Hallgrímur J. Jensson – selló. Guðrún S. Guðmunds- dóttir – fiðla. Þorbjörn Sigurðsson – pí- anó og Ívar Guðmundsson – trompet í „This Song Will Save the World“. Upp- tökur og hljóðblöndun: Hrannar Ingimars- son. Tónjöfnun: Axel Árnason. Upp- tökustjórn og sóló-gítar í „Greater Good“: Ace. Upptökur fóru fram í Stúdíó Sýrlandi, Hafnarfirði. Höskuldur Ólafsson Morgunblaðið/Sverrir „Ekki nokkurs staðar er hnökra að finna á útsetningum, hljómi, vali á hljóðfærum eða „effektum,“ segir m.a. í dómi. LESENDUR breska glans- tímiaritsins Grazia hafa valið Kate Moss best klæddu konu árs- ins 2005. Af þeim sem þátt tóku í könnuninni kusu 34% Kate stæl- legustu konuna. Helstu keppi- nautar fyrirsætunnar, sem hefur ekki haft það alltof gott í ár (eit- urlyfjahneyksli og erfiður kær- asti), voru konur á borð við Scar- lett Johansson, Sienna Miller og Gwen Stefani. Kate hefur lengi verið leiðandi í tískuheiminum og hlaut hún verðlaun frá Samtökum fatahönn- uða í Bandaríkjunum, CFDA, í sumar. Hún er með rokkaðan stíl og er hvað mest þekkt fyrir að ganga í þröngum buxum og stíg- vélum. Hún þykir ávallt vera skrefi á undan í tískunni og það sem hún er í vilja aðrir eignast. Moss best klædda kona ársins Reuters Hér er Kate í engu nema alpahúfu og tekur sig vel út. Myndin er tekin af hinum þekktu ljósmyndurum Mert Alas og Marcus Piggott fyrir Pirelli-dagatalið 2006. LISTINN: 1. Kate Moss 2. Scarlett Johansson 3. Sienna Miller 4. Gwen Stefani 5. Nicole Kidman 6. Angelina Jolie 7. Kirsten Dunst 8. Jennifer Aniston 9. Keira Knightley 10. Victoria Beckham
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.