Fréttablaðið - 28.10.2005, Blaðsíða 35
2 ■■■■ { tækniblaðið } ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■
Hægt að teikna beint á skjáinn
Tablet PC fartölva er nýjung frá Hewlett-Packard sem hefur hlotið mjög góðar viðtökur.
Hákon Davíð Halldórsson í mark-
aðsdeild Opinna kerfa sér um kynn-
ingar á Tablet-tölvunum og á eina
slíka sjálfur.
,,Tablet fartölva er fartölva sem
nýtist þér í raun á alveg sama hátt
og aðrar fartölvur, hefur sömu
tengi, lyklaborð, mús og allt sem
maður getur
vænst af góðri
fartölvu. Nema
hvað að á Tablet
fartölvu eru aðrir
notkunarmögu-
leikar, sem felast
í því að hægt er
að leggja skjáinn
niður og skrifa á
hann með sér-
stökum penna
sem fylgir með
vélinni, og er þá
í raun eins og þú
sért með glósu-
bók,“ segir
Magnús en hann
er greinilega ást-
fanginn af vél-
inni og segir
hana auðvelda
mikið sín dag-
legu störf.
Tablet PC hentar vel ef notand-
inn er mikið með skjásýningar eða
slíkt, til dæmis við kennslu, en með
Tablet fartölvu er hægt að halda á
og ganga um með vélina, skrifa inn
á skjáinn, leggja áherslu á hitt og
þetta með pennanum, flakka auð-
veldlega milli forrita og með þráð-
lausri tengingu við skjávarpa er
notandinn algerlega laus við allar
tengingar. Með vélinni fylgir raf-
hlaða með endingu í allt að 5 tíma
en með aukarafhlöðu er hæglega
hægt að fá 10 tíma endingu á raf-
hlöðu.
,,Þessi kostur nýtist vel ef maður
er í stöðugum samskiptum við fólk
utan vinnustaðar en í stað þess að
vera sífellt að skoða gögn og gera
athugasemdir undir eða til hliðar
við skjölin þá er hægt að skrifa þær
beint á skjölin og senda þau frá sér
á þann máta.“
Með vélinni er notuð sérstök
Tablet útfærsla af Windows XP og
því er mikill stuðningur við vélina
frá stýrikerfinu. Með pennanum
sem fylgir vélinni er hægt að notast
við öll algengustu vinnsluforritin
s.s. Office forritin og One Note, sem
er einnig með sérstakan stuðning
við vélina.
Tablet PC vélin sem er til sölu
hjá Opnum kerfum er HP Compaq
tc4200, og kostar frá 249.900 kr.
Steve Jobs hjá Apple getur greinilega alltaf
komið manni á óvart með skemmtilegum
hugmyndum og dásamlegri hönnun. Í nýrri
línu frá Apple er nefnilega margt sem að-
dáendur Apple geta slefað yfir. Þar á með-
al eru nýir iPod spilarar og borðtölvur sem
og ný lína af PowerBook fartölvum.
Apple hefur kynnt nýja iPod Nano spil-
ara sem eru til í bæði 4GB og 2GB útfærsl-
um. Þessir spilarar eru mjög þunnir, nettir
og léttir og geta geymt og sýnt ljósmyndir.
Toppurinn í iPod útgáfu Apple þetta árið er
þó líklega nýr iPod, en núna fæst hann í 30
GB og 60 GB útfærslum. En hann spilar
ekki bara tónlist heldur er hægt að horfa á
kvikmyndir, tónleika, ljósmyndir eða hvað-
eina á skjánum. Skjárinn á nýjum ipod er
stærri en á þeim eldri, rafhlöðuending er
heilir 20 tímar og svo fæst hann líka í
svörtu.
Nýr iMac G5 er ný skemmtileg borð-
tölva sem hefur upp á miklu meira að bjóða
en flotta hönnun. Með henni fylgir fjar-
stýring ef notandinn vill hlusta á tónlist
eða spila kvikmyndir úr sófanum heima og
er þá einnig hægt að tengja vélina við
sjónvarp eða stofugræjurnar. Apple hefur
líka sett á markað nýja ofurtölvu eða
PowerMac með nýjum G5 örgjörva. Power-
book fartölvurnar nýju koma í nokkrum
mismunandi útfærslum, með 12, 15 eða 17
tommu skjá, en allar örþunnar og meistar-
ar í léttvigt.
Það eru ófáir sem fagna komu
nýjasta Football Manager leiksins
enda sumir sem bíða eftir honum
allt árið um kring. Í leiknum í ár
eru meira en 270.000 leikmenn,
þjálfarar og knattspyrnustjórar.
Menn geta nú valið um að stýra
meira en 5.000 liðum sem spila í
deildum 50 landa og hafa bæst
við þrjú lönd þar sem leikurinn
hefur fullt leyfi fyrir, en það eru
Suður-Kórea, Tyrkland og
Skotland. Í leiknum eru meira en
4.000 ljósmyndir af leikmönnum
og meira en 600 búningar sem
líta út eins og þeir gera í raun-
veruleikanum. Helstu nýjungarn-
ar eru betra þjálfunarkerfi, öflugri
fjölmiðlar, meiri valmöguleikar og
fínstilltari spilun. Svo er spurn-
ingin hvernig nýi Championship
Manager leikurinn verður?
Manager leikir
hafa oft verið
taldir mestu dellu
leikir sem komið
hafa út.
Frábær tónlist
SSX ON TOUR
Hér er á ferðinni fjórði leikurinn í
þessari vinsælu snjóbretta- og
skíðaleikjaseríu. Meiri grafík
hefur verið bætt við í leiknum.
fjölda brauta, aukinn möguleiki
til að sérsmíða persónur, ný
monster-trick og fjölspilunar-
möguleikar. Sérstaklega hefur
verið lagt mikið í tónlistina og
hljóðið fyrir leikinn til þess að
auka upplifun þeirra sem spila
leikinn. Meðal frægra tónlistar-
manna sem eiga lög í leiknum
eru Bloc Party, Maximo Park,
Blackalicious, Death From Above
1979, The Faint og Jurassic 5.
Margir möguleikar til að búa til sínar eigin persónur eru í nýja SSX On Tour.
Betra þjálfunarkerfi
og öflugri fjölmiðlar
FOOTBALL MANAGER 2006
Nýir tölvuleikir:
Aðdáendur Apple
eru slefandi
Láttu þér ekki nægja að hlusta bara á tónlist í iPod spilaranum þín-
um, horfðu einnig á tónleika.
Steve Jobs heldur á nýjum iPod sem spilar vídeó.
Tablet PC hentar vel ef notandinn er mikið með skjásýningar eða slíkt, til dæmis við kennslu, segir Hákon Davíð Halldórsson.
FRÉTTABLAÐIÐ/HARI
Hægt er að snúa
skjánum og skrifa
beint á hann.
Nýr iMac sem er þynnri en fyrirrennari sinn.
02-03 tækni lesið 27.10.2005 15:46 Page 2