Fréttablaðið - 28.10.2005, Blaðsíða 27

Fréttablaðið - 28.10.2005, Blaðsíða 27
 28. október 2005 FÖSTUDAGUR26 Gunnar Karlsson prófessor, inn- blásinn af grein undirritaðs í Fréttablaðinu frá 8. október sl., skrifar þann 20. október grein um græðgi og ýmislegt fleira, og veltir þar við mörgum stein- um sem sjálfsagt er að líta nánar undir. Gunnar segir: „Einstæð móðir í verkalýðsstétt hefur örugglega meiri tekjur nú [...] en stöndugar fjölskyldur höfðu um miðja 20. öld. En líf hennar er ekki að sama skapi auðveldara af því að sam- félag hennar gerir meiri kröfur til hennar.“ Þetta er einkennilegur sam- anburður og margt við hann að athuga. Miðað við fjölskyldu á miðri 20. öld getur hin einstæða húsmóðir keypt helstu lífsnauð- synjar á lægra verði, ekið í örugg- ari bíl, átt fleiri heimilistæki, notið fullkomnari upplýsinga- tækni, hringt ódýrar og ferðast til útlanda fyrir minni pening, svo fátt eitt sé nefnt. Hitt er e.t.v. rétt að miðað við þá sem hafa mikið á milli handanna í dag getur hin einstæða móðir hugsanlega leyft sér hlutfallslega minna ef allir möguleikar á peningaeyðslu eru meðtaldir. Úrval vöru og þjón- ustu er líka margfalt meira í dag en það var um miðja 20. öld. Gunnar segir: „Fátæktarmörk- in lyftast í takt við meðaltalið.“ Þetta er furðuleg staðhæfing sem gefur til kynna að ein leið til að útrýma fátækt sé að lækka með- altalslaunin og jafna þau. Sam- kvæmt þessari staðhæfingu eru íbúar Norður-Kóreu, með sín lágu en jöfnu meðaltalslaun, ekki eins fátækir og þeir íbúar Vesturlanda sem hafa laun vel undir háum með- altalslaunum samborgara sinna. Gunnar segir: „Í grófum drátt- um jafngilda þessi „lífsgæði“ neyslu og þar með notkun á orku og auðlindum.“ Draugasagan um auðlindaskort og óafturkallanlega tortímingu umhverfisins hefur ekki náð að sanna sig að hluta til eða í heild. Þvert á móti er enginn skortur á neinum auðlindum, og á hinum frjálsa markaði getur eitthvað sem kallast auðlind í dag hæglega verið orðin að verðlausum grjót- haug á morgun. Hugvitsmenn eru stanslaust að þróa tækni sem gerir óarðbæra borholu í dag að ódýrri framkvæmd á morgun. Loft rík- ustu stórborganna heldur áfram að batna með fullkomnari brennslu- vélum bifreiða og auknum kröf- um sífellt ríkari einstaklinga um loftgæði, urðunartækni þeirra ríku heldur áfram að minnka það flatarmál dýrmæts lands sem þarf undir ruslahauga, og svona má lengi telja. Gunnar segir: „Útkoman yrði sú [ef fátækasta fólk heims næði Vesturlandabúum í lífskjörum] að orku- og auðlindanotkun mann- kynsins þyrfti að fjórfaldast áður en það næði allt á það stig sem við köllum mannsæmandi lífskjör.“ Þarna virðist Gunnar reikna með því að tækniþróunin hætti að leiða til bættrar nýtingar mest nýttu orkuauðlindanna í dag, að nýjar auðlindir og jafnvel endur- nýjanlegar verði ekki uppgötvaðar eða teknar í notkun á hagkvæm- an hátt, að sömu orku muni alltaf þurfa til að standa undir því sem við köllum mannsæmandi lífskjör í dag, að tilkoma 60% mannkyns inn á heimsmarkaðinn muni ekki hafa nein áhrif á markaðsaðstæð- ur fyrir nýja orkugjafa, og svona má áfram telja. Líklega mun aukinn fjöldi virkra einstaklinga á heims- markaðnum leiða til betri heims frekar en verri, og það án þess að Vesturlandabúar þurfi að hafa samviskubit eða leggja á sig lífs- kjaraskerðingu. Gunnar segir: „Hvernig færi það [að fátækasta fólk heims næði Vesturlandabúum að lífskjörum] með ósonlagið? Hver yrðu gróður- húsaáhrif þess?“ Þarna skýtur önnur óstað- fest goðsögn upp kollinum. Nú er því varla að neita að hitastig hefur að meðaltali víða verið að mælast hærra í dag en fyrir 30 árum og virðist vera hækka upp á um 0,16°C á áratug, en mæling- ar sýna ekki merki þess að hita- stigshækkunin sé að herða eða hægja á sér. Tilkoma olíubrenn- andi risahagkerfa í Asíu á síð- ustu árum virðist lítil áhrif ætla að hafa, og heimsendaspádómar græningja virðast eiga lengra og lengra í land með að rætast. Síðasta tilvitnunin í Gunnar verður þessi: „Við, frjálslyndir Vesturlandabúar, höfum afneit- að þjóðernishyggju og kynþátta- hyggju og höfum því enga gilda réttlætingu fyrir því að halda þessum gífurlega auði fyrir okkur eina.“ Þetta vill undirritaður taka undir báðum höndum. Vestur- landabúar ættu hið snarasta að gefa fríverslun lausan tauminn og taka opnum örmum við fátækum bændum og verkamönnum þróun- arlandanna. Í sameiningu getur mannkynið skapað sér bjarta fram- tíð mikils auðs, góðra lífskjara og friðsamlegrar samvinnu þar sem peningaliturinn verður eini litur- inn sem skiptir máli og framboð og eftirspurn einu stríðandi öflin. UMRÆÐAN SVAR VIÐ ÁDREPU GUNNARS KARLS- SONAR GEIR ÁGÚSTSSON VERKFRÆÐINGUR Peningar bæta ýmis mein 60% Þú nærð til rúmlega helmingi fleiri Íslendinga á aldrinum 20–40 ára með því að auglýsa í atvinnublaði Fréttablaðsins frekar en atvinnublaði Morgunblaðsins. AUGLÝSTU EFTIR STARFSFÓLKI Á RÉTTUM STAÐ Lestur sunnudaga* 37% *20–40 ára Íslendingar. Gallup júní 2005. Á sunnudögum fylgja bæði Morgunblaðinu og Fréttablaðinu sérblöð inni í aðalblöðunum sem fjalla um atvinnumál. Rúmlega 60% 20–40 ára Íslendinga fletta ekki sunnudags- blaði Morgunblaðsins. Láttu ekki fyrirtæki þitt verða af góðum starfsmanni með því að auglýsa á röngum stað.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.