Fréttablaðið


Fréttablaðið - 28.10.2005, Qupperneq 57

Fréttablaðið - 28.10.2005, Qupperneq 57
Umsjón: nánar á visir.is Hringja í pabba Hannes Smárason, forstjóri FL Group, er á fleygi- ferð með félagið. Svo mikilli að ýmsum þykir nóg um. Þeim sem það þykir telja Hannes glannalegan í meðförum á fjöregginu Icelandair, eins og þeir líta á málið. Ný stjórn tekur til starfa í félaginu á hluthafafundi á mánudag. Stjórnarmönnum verður fækkað úr sjö í fimm og Hannes fer úr stjórninni. Í hans stað kemur faðir hans, Smári S. Sigurðsson. Þeir sem áfram hafa áhyggur af því að strákurinn sé ekki nógu ábyrgur og fari offari í stjórn fé- lagsins eiga þá þann möguleika sem oft hefur verið nýttur þegar ódælir strákar eiga í hlut: Að hringja í pabba hans. Áhugi á Express Töluverður áhugi er á Iceland Express og hafa margir spurst fyrir um félagið. KB banki sér um söluna og þar á bæ verjast menn allra frétta ann- arra en þeirra að þeir finni fyrir miklum áhuga á félaginu. Á markaðnum eru miklar spekúlasjónir um kaup. Mogginn vill að Jón Helgi í Bykó kaupi og er sjálf- sagt til margt vitlausara. Aðrir sem nefndir eru til sögunnar sem áhugamenn um kaup á Iceland Ex- press eru Andri Már í Heimsferðum sem hingað til hefur neitað áhuga, hvað sem síðar verður. Þá hefur KEA einnig verið nefnt, en þá vantar verk- efni fyrir peningana sína og sjá eflaust tækifæri í að styðja við byggðarlagið með flugi til megin- landsins frá Akureyri. Markaðurinn er líka að spá í verðmiðann, en heyrst hefur að þrír milljarðar séu áhugaverð tala í því sambandi. MESTA HÆKKUN ICEX-15 4.676 Fjöldi viðskipta: 251 Velta: 3.775 milljónir +0,16% MESTA LÆKKUN MARKAÐSFRÉTTIR... > Skráð hefur verið hlutafjárhækkun Nýherja að fjárhæð tíu milljónir í sam- ræmi við tilkynningu félagsins til Kaup- hallar dagsetta 21. október síðastliðinn. Skráð hlutafé félagsins í viðskiptakerfi Kauphallarinnar eftir hækkunina er 248 milljónir að nafnvirði. > Greining Íslandsbanka hefur gefið út verðmat á Mosaic, fyrst greiningar- deilda. Niðurstaða verðmatsins gefur gengið 18 krónur á hlut. Útboðsgengi í byrjun sumars þegar félagið var skráð á markað var 13,6 krónur á hlut, en nú- verandi verð er um 16 krónur á hlut. > Verð á sjávarafurðum hækkaði mjög mikið í septembermánuði, eða um 2,8% frá mánuðinum á undan mælt í SDR. 28 28. október 2005 FÖSTUDAGUR Peningaskápurinn… Actavis 42,80 -0,47% ... Bakkavör 44,60 -0,89% ... FL Group 13,95 +0,36% ... Flaga 3,70 -1,07% ... HB Grandi 9,35 +0,00% ... Íslandsbanki 15,10 +0,00% ... Jarðboranir 22,00 +0,00% ... KB banki 604,00 -0,17% ... Kög- un 54,80 -0,36% ... Landsbankinn 22,80 +0,00% ... Marel 65,20 +0,00% ... SÍF 4,35 +0,69% ... Straumur 13,35 +0,00% ... Össur 91,50 -0,54% Mosaic Fashions +3,9% SÍF +0,69% FL Group +0,36% TF -4,6% Atorka Group -1,75% Flaga -1,07% HLUTABRÉF Í ÚRVALSVÍSITÖLU: VIÐSKIPTI Aðeins 162 af 1.252 hlut- höfum Símans nýttu sér yfir- tökutilboð sem nýir eigendur Sím- ans gerðu þeim. Tilboðið rann út á þriðjudaginn. Síminn er ekki leng- ur skráður í Kauphöll Íslands. Þar sem félagið Skipti ehf. á tæp 99 prósent í Símanum bar þeim skylda til að bjóðast til að kaupa hluti annarra hluthafa. Stjórnarformaður Símans vonaðist samt til að sem fæstir nýttu sér til- boðið og fylgdi þeim frekar eftir. Kaupgengið var 9,6 eða það sama og hlutur ríkisins var seldur á. Þessir 162 hluthafar áttu um níu prósent af því hlutafé sem ekki var í eigu Skipta. Þeir 1.085 hluthafar sem eftir eru eiga núna um 1,12 prósent í Símanum eða um 835 milljónir að markaðsvirði. Síminn var afskráður úr Kaup- höll Íslands í gær. Félagið uppfyll- ir ekki skilyrði um dreift eignar- hald til að vera skráð. Þó verða eigendur að skrá félagið aftur fyrir árslok 2007 samkvæmt kaupsamningi við ríkið og selja 30 prósent hlutafjár til einstaklinga og fagfjárfesta. - bg KAUPHÖLL ÍSLANDS [Hlutabréf ] VIÐSKIPTI Íslenskir aðilar eru orðn- ir einu stærstu söluaðilar Apple- vara í Evrópu eftir að hafa keypt 38 prósent í norska félaginu Office Line, sem er skráð í norsku kauphöllinni. Þetta segir Bjarni Ákason, eigandi Apple á Íslandi, en félagið Öflun, sem hann á meirihluta í, keypti hlutinn. Bjarni segist hafa opnað Apple-verslanir í Kaupmannahöfn og Stokkhólmi. Reksturinn gekk vel og vildi hann opna búðir í ná- grannalöndunum. Office Line hafi verið með sterka stöðu í Finnlandi og Noregi. Á þriðjudagskvöld hafi stærstu eigendurnir samþykkt sölu á sínum hlut fyrir um hálfan milljarð króna. Það myndist ekki yfirtökuskylda fyrr en eignar- hlutur fer yfir 40 prósent. Eignar- haldið sé dreift, hans félag sé ráð- andi í félaginu og hyggist ekki bæta við sig hlutafé. Gengi hlutabréfa í Office Line rauk upp um 30 prósent í fyrradag eftir að tilkynnt var um kaupin. Bjarni segist hafa séð kauptæki- færi í þessu félagi þar sem verðið var lágt um leið og hann kæmist inn á nýja markaði - bg Kaupir norskan Apple söluaðila: Stærstir í Evrópu FORSTJÓRINN OG STJÓRNARFORMAÐURINN Brynjólfur Bjarnason og Lýður Guð- mundsson sem vonaði að flestir hluthafar héldu áfram að eiga í Símanum. APPLE OPNAR Í SVÍÞJÓÐ Biðröð mynd- aðist þegar Apple-búð opnaði í Svíþjóð. Fáir nýttu sér yfirtökutilboð: Síminn afskrá›ur 56-57 (28-29) Viðskipti lesið 27.10.2005 16:05 Page 2
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.