Tíminn - 18.02.1981, Blaðsíða 1

Tíminn - 18.02.1981, Blaðsíða 1
Siðumúla 15 Pósthólf 370 • Reykjavik Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392 Tveir ungir sjómenn af Heimaey VE 1 drukknuðu — er skipið strandaði á Hólsárfjöru AM — Tveir ungir sjómenn frá Vestmannaeyjum fórust i óveðrinu sem gekk yfir landið i fyrrinótt, er skip þeirra, Heimaey VE-1 hraktist undan veðri með net i skrúfunni upp i fjöru sunnan við Þykkvabæ. Tók mennina út, er þeir voru að reyna að losa anker frammi á skipinu og brotsjór reið yfir þá. Mennirnir hétu Albert Ólason, fæddur 1959 og Guðni Guð- mundsson, fæddur 1960. ' Hannes Hafstein, fram- kvæmdastjóri SVFÍ sagði blaö- inu i gær að það hefði verið um miðnætti i fyrrinótt sem hjálparbeiðni barst vegna Heimaeyjar, sem fengið hafði net i skrúfuna i fyrrakvöld. Hafði ölduljón VE-130 komið skipinu til hjálpar og tekist að koma taug um borð, en hUn - slitnaði skjótlega. Var þá veður tekið að versna og barst leikur- inn undan veðri nær landi. Þá var togarinn Sindri VE-60 kom- inn á vettvang og skömmu siðar varðskip. Er ekki að orðlengja að skipið barst upp i brimskafl- inn við landið og varð þá hið hörmulega slys, sem fyrr um getur. Er SVFl fékk þessar fréttir um Vestmannaeyjaradió voru björgunarsveitir sendar á strandstað frá Hvolsvelli og Hellu. Fóru þeir vestan við Hólsárós, en sveit Ur Landeyj- um, sem til vonar og vara var kölluð til, að austanverðu. Kom skipið að vestanmegin og tókst giftursamlega að koma mönnunum sem eftir lifðu i land, en þeir voru átta talsins. Voru þeir litt skaddaðir og fluttu björgunarmenn þá upp á Hvols- völl. Skjótlega var farið að ganga fjörur um nóttina og i gær var leitað að likum hinna tveggja manna. Hafa Landeyjamenn leitað Landeyjasand frá Hólsárósi i Markarfljót, en sveitin á Hvolsvelli hefur gengið fjörur frá Hólsárósi að Þjórsá. Þá hafa aðrar sveitir leitað strandlengjuna vestan Þjórsár. Skipið mun ekki vera mikið skaddað og að sögn eru góðar horfur á að takast megi að ná þvi á flot. Mennirnir sem fórust hétu Albert Ólason, fæddur 1959, og Guðni Guðmundsson, fæddur 1960. Albert lætur eftir sig eitt barn og unnustu. Guðni var ein- hleypur. Fréttír af fár- viðrinu AM — „Eftir 25 ára starf i lögreglunni i Reykjavik, man ég ekki aðra eins nótt,” sagði aðal- varðstjóri lögreglu i Reykjavík. við okkur i gærkvöldi. Lögreglan hafði nógu að sinna i almyrkri borginni,varð jafnvel að fara i hús til þess að róa gamalt fólk og börn sem voru ein. Kvaðningar skiptu hundruðum. Stjórtjón varð á bifreiðum á höfuðborgarsvæðinu er bilar fuku og járn losnaði af húsum, en auk þess stórskemmdist gróðurhús Blómavals, þak fór af einbýlis- húsi i Árbæ og af Fæðingardeild Landspitalans. 1 Kópavogi var skelfilegt ástand við Engihjaila, þar sem bifreiðar fuku eins og hráviður, en myndinhér á siðunni er glöggt dæmi um útreiðina sem sumar fengu. Stórtjón varð á Vffilsstöðum vegna þakjárns sem fauk á bila og i Krýsuvik sviptist þakið af svinabúinu þar. Seint verður allt upp taliö en inni i blað- inu er lýst ástandi viða um land, rætt við veðurstofu, Landsvirkjun Sjá bls. 8, 9 og 12 Þórshafnartogarinn væntanlegur eftir 10 daga: Jlefðum setíð uppi með skaða- bótakröfur og óleystan vanda” JSG — „Mér er alveg ljóst að það hefði verið hægt að fá ódýr- ara skip en ég tel hins vegar að þetta sé gott og traust skip sem keypt verður”, sagði Stefán Guðmundsson alþingismaður i samtali við Timann í gær, en Stefán var einn þeirra stjórnar- manna i Framkvæmdastofnun rikisins sem i gær greiddu endaniega fyrir kaupum á hin- um margumtalaða norska skut- togara til Þórshafnar og Raufarhafnar. Fimm af sjö stjórnarmönnum i Framkvæmdastofnun þeir Stefán, Geir Gunnarsson, Ölafur G. Einarsson, Þórarinn Sigurjónsson og Matthias Bjarnason stóðu að lokasam- þykktinni um togarakaupin þar sem segir að Byggðasjóður skuli leggja fram 10% af endur- skoðuðu kaupverði togarans 28 milljónum norskra króna en upphaflegt kaupverð var 21 milljón norskra króna. önnur 10% verða fengin af lánsfé sem rikisstjórnin hafði ákveðiö að ábyrgjast til Byggðasjóðs. Rikissjóður ábyrgist siðan beint lán fyrir 80% af kaupverði tog- arans. Samkvæmt þessu minnk- ar ábyrgð Byggðasjóðs úr 4,2 milljónum i 2,8 milljónir norskra króna miðað við fyrri samþykktir stjórnar Fram- kvæmdastofnunar en ábyrgð rikissjóðs vex. Ólafur G. Einarsson sagði i gær, að með þvi að hafna kaupum á togaranum, hefði Framkvæmdastofnun hætt á að verða fyrir skaðabótakröfum frá Norðmönnum og ennfremur setið áfram uppi með óleystan byggðavanda. „Átökin út af þessu máli eiga sér dýpri rætur en mest hefur verið rætt um i þvi hvort halda eigi uppi byggðastefnu i landinu oghvortnotaeigi Byggðasjóð til þess”,sagðiStefán Valgeirsson, alþingismaður i samtali við blaðið i gær. „Sem betur fer tókst ekki að koma i veg fyrir það nú”, sagði Stefán. Stefán Guðmundsson minnti á að tveimur frystihúsum, sem skorthefur hráefni væri ætlaður afli af hinum nýja togara. „Til- koma togarans ætti að bæta rekstrargrundvöll þessara húsa og bæta stórlega afkomumögu- leika þess fólks sem býr á þess- um stöðum”, sagði Stefán. Tveir stjórnarmanna i Fram- kvæmdastofnun, þeir Eggert Haukdal og Karl Steinar Guðna- sonsátuhjá við afgreiðsluna. en i bókun sem Eggert lagði fram Framhald á bls. 27 Tímmn kom ekki út í gær Vegna rafmagnsleysis og raf- magnsskömmtunar gat ekki orðið af útkomu Timans i gær og eru lesendur blaðsins beðnir vel- virðingar á þvi. 1 dag er blaðið hins vegar stærra en venjulega eða 28 síður. Valur sigraöi Valur lagði Islandsmeistara Njarðvikur að velli i Úrvals- deildinni i körfuknattleik er félög- in mættust i Laugardalshöll i gærkvöldi. Lokatölur leiksins urðu 92-74 og var sigur Vals aldrei i hættu. Staðan i hálfleik var 44-30 fyrir Val.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.