Tíminn - 18.02.1981, Blaðsíða 13

Tíminn - 18.02.1981, Blaðsíða 13
Miðvikudagur 18. febrúar 1981 17 Hart barist i spurningakeppninni. Samvinnuferöir-Landsýn Spumingakeppra veritápsfélaga Ferðaskrifstofa Samvinnuferðir-Landsyn hefur nú i vetur, eins og undanfarin ár, staðið fyrir svokölluðum Sólarkvöldum annað hvert sunnudagskvöldiSúlnasalHótelSögu. Á dagskrá þessara kvöldahefur margt verið til skemmtunar, svo sem söngur, dans, tiskusýningar, töfrabrögð o.fl., að ógleymdu bingói þar sem keppt er um þrjá ferða- vinninga hvert kvöld. Þá hafa og ferðaáætlanir Samvinnuferða-Land- sýnar verið kynntar. En það atriði sem hvað mesta athygli og kátinu hefur vakið er án efa spurningakeppni verkalýðsfélaga innan ASI, þar sem keppter um sex Lundúnaferðir, þ.e. fyrir sigurliðið og maka. Þrir keppendur eru i hverju liði. Fyrstu félögin i keppni þessari voru Bakarasveinafélag Islands og Trésmiðafélag Reykjavikur. Bakarar unnu þá keppni og kepptu næst viðfulltrúa Hins islenska prentarafélags. Þá unnu prentarar og kepptu á næsta kvöldi, við félagsmenn úr Verslunarmannafélagi Reykjavikur, sem fóru með sigur af hólmi i þeirri viðureign. Þar næst, eða sunnu- daginn 7. febr. sl., kepptu verslunarmenn svo við fulltrúa Starfs- mannafélagsins Sóknar og unnu enn. Á sunnudaginn kemur, 22. febr. keppa svo verslunarmenn i þriðja sinn, og nú við fulltrúa Félags járniðnaðarmanna i Reykjavik. Sigur- liðið i þeirri keppni heldur áfram og mætir á þarnæsta kvöldi keppend- um frá Félagi kjötiðnaðarmanna. Eins og fyrr segir hefur keppni þessi vakið mikla kátinu gesta. Spurningar eru yfirleitt úr fréttum eða daglega lifinu og oft handa- gangur i öskjunni þegar liðin reyna að ná réttinum til að svara fyrst. Ekki hefur enn verið tekin ákvörðun um hvaða félög keppa i fram- haldi af tveim næstu kvöldum,en hafieinhver félög áhuga á að gefa sig fram er það hægt rheð þvi að hafa samband við Hauk Má hjá ASI (simi 83044) eða Sigurð Haraldsson, stjórnanda sólarkvöldanna (simi 86366). Til mikils er að vinna, eins og fyrr er sagt, þvi það lið sem sigrar i keppninni fer i vikuferð til Lundúna með mökum sinum i boði Sam- vinnuferða-Landsýnar. . Á sólarkvöldi nk. sunnudag 22. febr. mætir i boði Samvinnu- ferða-Landsýnar fulltrúi Dansk Folkeferie og kynnir orlofsstaðina i Karlslunde og á Möltu. Samvinnuferðir-Landsýn hafa tekið upp sam- vinnu við dönsku verkalýðshreyfinguna gegnum Dansk Folkeferie og fengið aðstöðu i hinum stórglæsilegu orlofsheimilum hennar á þessum stöðum. Hámarks öryooi Sterkar og léttar í ásetningu ERLAU snjókeðjurnar eru framleiddar úr sérhertu galvaniseruðu stáli. ERLAU keðjurnar eru sérlega léttar í ásetningu, sitja þétt og kyrfilega og henta öllum tegundum hjólbarða. Hægt er að setja þær á ökutæki sem þegar er fast í snjó. Mynstur þeirra tryggir hámarks rásfestu, ekki sístgegn hliðarrennsli. Hentugar umbúðir ERLAU keðjurnar eru seldar í sterkum og handhægum plasttöskum með leið- beiningum um ásetningu og viðhald. Æfingadekk Til þess að þú getir öðlast leikni í ásetningu á ERLAU áður en í alvöruna er komið, verða æfingadekk til staðar á eftirtöldum stöðum: bensínsölum ESSO Ægissíðu og Ártúnshöfða og á Akureyri. lágmarks fyrirhöfn! Sölustaðir: Bensínstöðvar ESSO í Reykjavík og víða um land. f ..\ 103 Daviðs-sálmui. Luia þú Drottin. sál i min. oií alt. srm i m« r »r. hans heilaga nafn ; ]ofa þu I 'rottiri. s.ila min. ■ •g gl'-vn . igi n'.-mum velgjörðum hans, BIBLÍAN OG Sálmabókin Fást í bókaverslunum og hjá kristilegu féiögunum. HIÐ ÍSL. BIBLÍUFÉLAG (PiiÖbranbsstofu Hallgrimskirkja Reykjavik simi 17805 opið3-5e.h. LAUNÞEGAR! Vinsamlegast athugið að síðasti skiladagur _ skattframtala 1981 er Ath. að fjárhæðir í framtalinu eiga að vera í GOMLUM KRONUM Ríkisskattstjóri

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.