Morgunblaðið - 02.12.2007, Blaðsíða 1
Morgunblaðið/Kristinn
Hátíð Háskólatorg Háskóla Íslands var vígt með hátíðarbrag í gær. Um er að ræða stórbætta aðstöðu fyrir nemendur og kennara skólans. | 4
Háskólatorg
tekið í notkun
Eftir Sigríði Víðis Jónsdóttur
sigridurv@mbl.is
„HÉRNA í kring var fullt af nágrönnum og
neðar í götunni var skóli. Í hverfinu var
slökkvistöð og strætó stoppaði á horninu. Og
núna? Ekkert.“
Mercedes Davis Turner stendur fyrir fram-
an hús sitt í níunda hverfi í New Orleans og
bendir á auðar lóðir og garða í órækt. Fyrir
rúmum tveimur árum lögðu flóðin í kjölfar
fellibylsins Katrínu þetta hverfi í rúst.
Verið er að endurbyggja hús Mercedes en
það er hálfeinmana í hverfinu – fá önnur hús
hafa verið lagfærð. Sjálf veltir Mercedes fyrir
sér hvernig hægt verði að snúa aftur þegar
nánast engin þjónusta er til staðar á svæðinu.
Og hún veltir fyrir sér hvað varð um nágrann-
ana. „Það skrýtna er að ég veit ekki hver afdrif
þeirra urðu. Hvað varð um allt fólkið?“
Faðir hennar, hinn 98 ára gamli Wadsworth
Alcott Davis, muldrar að hann sé farinn að
hálfefast um að New Orleans endurheimti fyrri
íbúafjölda sinn. Fjöldi borgarbúa er í dag 70%
af því sem áður var. Enn vantar um 150.000
manns.
„Fullkomin stöðnun“
Fellibylurinn Katrína olli gríðarlegum
skemmdum í New Orleans og mikið uppbygg-
ingarstarf er enn eftir. Í dag hafa um 60% al-
menningsskóla verið opnuð á nýjan leik en
hvað aðra grunnþætti samfélagsins varðar rík-
ir að mati Brookings Institution „fullkomin
stöðnun“ þessa mánuðina.
10 af 23 sjúkrastofnunum í New Orleans eru
lokaðar og aðallögreglustöð borgarinnar er
enn í tímabundnu húsnæði í húsvögnum. Ein-
ungis 19% af almenningsvögnum eru í notkun.
Sporvagnaleiðin á St. Charles Avenue sem er
frá 1835 og er sú leið sem lengst hefur verið í
notkun í öllum heiminum var fyrst opnuð aftur
í síðasta mánuði.
„Hvað varð um allt fólkið?“
Fellibylurinn Katrína veldur enn vandræðum í New Orleans Heilu hverfin eru hálftóm
og fjöldi húsa yfirgefinn Rúmum tveimur árum eftir flóðin hafast þúsundir enn við í húsvögnum
Í HNOTSKURN
» Fellibylurinn Katrína gekk á landnærri New Orleans 29. ágúst 2005.
» Hann ruddi með sér miklu af sjó og íkjölfarið brustu varnargarðarnir í
kringum borgina.
» Vatn flæddi yfir 80% hennar.
Hver vill búa í yfirgefnu hverfi? | 10
Draugalegt í New Orleans
VEFVARP mbl.is
ÞEGAR hún fæddist var henni
vart hugað líf. Svo var talað um
daga og síðan einhver ár. En
Freyja Haraldsdóttir ákvað að láta
allar hrakspár
lönd og leið og
hellti sér út í líf-
ið, þrátt fyrir al-
varlega fötlun.
Hún varð stúd-
ent með hæstu
einkunn, starf-
aði á sumrin á
leikskóla, setti
saman fyrirlest-
urinn Það eru
forréttindi að
lifa með fötlun,
sem hún hefur flutt í framhalds-
skólum og víðar, og nú stundar
hún háskólanám í þroskaþjálfa-
fræðum.
Freyja segist vera uppfull af há-
leitum markmiðum, þar sem efst á
blaði er að klára háskólanámið,
flytja að heiman, stofna fjölskyldu
og ferðast um heiminn. | 30
Uppfull af
markmiðum
Vill svipta hulunni
af öllum tabúunum
Freyja
Haraldsdóttir
Í kvikmyndinni Bandaríski glæpa-
maðurinn elduðu lögreglumað-
urinn Roberts og glæpamaðurinn
Lucas grátt silfur saman. Þeir eru
núna ágætis vinir.
Löggan og bófinn
urðu vinir
Knattspyrnustjóri Liverpool, Rafa
Benítez, var næstum settur út af
sakramentinu vegna deilu hans og
hinna bandarísku eigenda félags-
ins, auðkýfinganna Hicks og Gillett.
Öldurót í rauðu
vígi Bítlaborgar
Úrskurður spænsks dómstóls um
sektir vegna birtingar skopmyndar
af krónprinsi Spánar hefur vakið
umræður um brothætt frelsi fjöl-
miðla í Evrópu.
Ásakanir um rit-
skoðun á Spáni
VIKUSPEGILL
Leikhúsin í landinu
Láttu leikhúsið hreyfa
við þér >> 68
Opið 13–17 í dag
og hefjum pakkasöfnun
Tendrum
jólatréð kl. 14
SUNNUDAGUR
SAMRÆÐUR
VIÐ SKÁLD
TIL FUNDAR VIÐ
HALLDÓR LAXNESS
ÚR BÓK ÓLAFS RAGNARSSONAR >> 32
ELVIS
ÍSLANDS
BO HALLDÓRSSON
ALDREI VINSÆLLI
FULLUR ÞAKKLÆTIS >> 66
STOFNAÐ 1913 329. TBL. 95. ÁRG. SUNNUDAGUR 2. DESEMBER 2007 LANDSPRENT EHF. mbl.is