Morgunblaðið - 05.09.2011, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 05.09.2011, Blaðsíða 26
26 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 5. SEPTEMBER 2011 VIÐTAL Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is Svik, harmur og dauði er nýr disk- ur með hljómsveitinni HAM. Með- limir hljómsveitarinnar eru fimm, þeir Sigurjón Kjartanson, Óttarr Proppé, Björn Blöndal, Flosi Þor- geirsson og Arnar Geir Ómarsson. Af hverju fékk þessi nýi diskur þann dramatíska titil Svik, harmur og dauði? Lagahöfundur hljóm- sveitarinnar Sigurjón Kjartansson svarar því. „Lögin fjalla öll á ein- hvern hátt um svik, harm og dauða. Þar sem við höfum ekki ver- ið að helga okkur tónlist eingöngu undanfarin ár hafa lögin á disk- inum orðið til á síðastliðnum fimm árum og megnið síðustu tvö til þrjú árin.“ Textahöfundurinn Óttarr Proppé segir: „Það má segja að í vinnsl- unni á þessum diski hafi tónlistin fyrst orðið til, síðan kom hug- myndin að titlinum og loks textarn- ir.“ „Á bak við hvert lag sem komst á þessa plötu eru kannski tíu verri lög sem var kastað. Þau fóru í gegnum HAM-síuna,“ segir Sig- urjón. „Um leið og lag er komið í gegnum þá síu er fullvíst að eitt- hvað verði úr því og þá er kannski komin hugmynd að textabroti eða titli og þá er sest skipulega yfir það að semja textann. Til þess að geta samið lög fyrir HAM verður maður að inspírerast af HAM. Ég get ekki verið einhvers staðar að búa til sjónvarpsþætti og svo allt í einu samið HAM-lag. Það er nauð- synlegt að geta æft sig með hljóm- sveitinni og sett af stað ákveðið ferli.“ Þróun felst í eigin þroska Hljómsveitin HAM var stofnuð árið 1988 og hefur starfað með hléum. „Við félagarnir vorum í hljómsveitinni af krafti til ársins 1994 þegar við hættum,“ segir Ótt- arr. „Við vorum eiginlega komnir eins langt og við gátum, höfðum ekkert meira að gefa og vorum að sinna öðrum hlutum. Við hættum sumpart líka til að geta viðhaldið vináttunni. Við gerðum ekkert til 2001 en þá má segja að við höfum átt okkar comeback. Frá 2005 höf- um við hist reglulega og spilað tvisvar til þrisvar á ári.“ Hljómsveitin heldur útgáfu- tónleika fimmtudaginn 8. sept- ember á NASA og mun spila á Airwaves. Félagarnir segja að hugsanlega muni hljómsveitin svo kíkja eitthvað út fyrir borg- armörkin. Þeir félagar eru spurðir hvort mikil þróun hafi orðið í tónlist hljómsveitarinnar. „Þróunin felst í okkar eigin þroska,“ segir Sig- urjón. „Það er að segja, þessi disk- ur hefði tónlistarlega og hug- myndafræðilega séð átt að koma á eftir fyrstu plötu okkar sem kom út árið 1988, en það er ekki fyrr en nú sem við höfum náð þeim þroska sem til þurfti. Frá byrjun höfum við verið að búa til dramatíska tón- list, frekar óaðgengilega og þunga en við vorum bara tvítugir og mikl- ir gleðimenn þegar við byrjuðum og höfðum enga lífsreynslu.“ „Og ætluðum að vera skeggjaðir en svo óx okkur ekki skegg,“ bætir Óttarr við. Sigurjón heldur áfram: „Nú höf- um við hins vegar öðlast lífsreynslu og þroska, við höfum upplifað alls konar drama í okkar lífi og þrosk- ast upp í þann tónheim sem HAM er.“ „Og okkur vex skegg,“ segir Ótt- arr. „Ef það ætti að lýsa lögunum á þessum diski þá mætti segja að þetta væri dramatísk tónlist fyrir dramatíska tíma. Þarna eru engir kaflar eða tónar sem ekki hafa ein- hvern þunga á bak við sig. Það hef- ur aldrei verið neitt hálfkák í HAM tónlistarlega séð,“ segir Sigurjón. Gott meðal við fundum Tveir félagar HAM, Björn Blön- dal og Óttarr Proppé, hafa nú aðal- atvinnu sína af borgarmálum, en Björn er aðstoðarmaður Jóns Gnarrs borgarstjóra og Óttarr er borgarfulltrúi Besta flokksins. Ótt- arr er spurður hvort tónlistin sé nú orðin eins konar lausn frá lang- dregnum fundarsetum. „Þetta starf mitt sem borgarfulltrúi er ekki mikið öðruvísi en það að vera lista- maður og vera í launavinnu. Það er nú einu sinni hlutskipti flestra listamanna á Íslandi að vinna launavinnu á daginn,“ segir Óttarr. „Besta meðal við endalausum fund- um er að spila háværa tónlist. Eftir að við Björn drógumst inn í pólitík- ina hélt ég að það yrði erfiðara að finna tíma fyrir tónlistina en það er ekki svo. Maður finnur alltaf tíma og að sinna tónlist er miklu betra en að horfa á sjónvarp eða fara í sund í lok vinnudags.“ Mun hljómsveitin verða starfandi næstu árin? „Ekki starfandi upp á dag en það stendur allavega ekki til að hætta,“ segir Óttarr. Sigurjón segir: „Við erum búnir að ljúka við ákveðið verk, sem er þessi diskur, og það er ekki eins og við séum að pressa sérstaklega mikið á okkur að byrja á næsta verki. Við erum mjög sáttir vegna þess að þessi diskur hefur heppnast mjög vel.“ „Já, það er búið að setja ákveð- inn punkt við stemninguna sem við vorum að vinna með á þessum diski,“ segir Óttarr. „Nú er disk- urinn kominn út og stemningin skjalfest og þá er ákveðið frelsi í því að hugsa áfram á annan veg – eða ekki.“ Diskurinn hefur fengið afar góða dóma. Þegar félagarnir eru spurðir um viðbrögð við þessum skínandi dómum segir Sigurjón: „Góðir dómar eru alltaf vel þegnir, það er mun skemmtilegra en að fá lélega dóma. Um það get ég vitnað.“ Morgunblaðið/Golli Aldrei neitt hálfkák Óttarr Proppé og Sigurjón Kjartansson eru tveir af fimm meðlimum HAM. „Til þess að geta samið lög fyrir HAM verður maður að inspírerast af HAM,“ segir Sigurjón. Ekkert hálfkák í HAM  Hljómsveitin HAM sendir frá sér nýjan disk  Dramatísk tónlist fyrir dramatíska tíma  Þróun tónlistar HAM felst í eigin þroska segja hljómsveitarmeðlimir  Lögin fjalla um svik, harm og dauða » „Þróunin felst í okkar eigin þroska,“ segir Sig-urjón. „Það er að segja, þessi diskur hefði tón- listarlega og hugmyndafræðilega séð átt að koma á eftir fyrstu plötu okkar sem kom út árið 1988, en það er ekki fyrr en nú sem við höfum náð þeim þroska sem til þurfti. Frá byrjun höfum við verið að búa til dramatíska tónlist, frekar óaðgengilega og þunga en við vorum bara tvítugir og miklir gleðimenn þegar við byrjuðum og höfðum enga lífs- reynslu.“

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.