Tíminn - 07.09.1943, Side 4
348
TÍMBVIV, þrlðjndaglim 7. sept. 1943
87. blað
ÚR BÆNrW
Tveir málarar,
Þorvaldur Skúlason og Gunnlaugur
Schewing hafa nýlega opnað sýningu
í Listamannaskálanum S’'mir Þ. S. um
22 málverk og nokkrar teikningar og
G. S. um 27 málverk og nokkrar teikn-
lngar. Sýningin er opin daglega frá
kl. 10—22. í
Æskulýðshallarnefnd.
Ríkisstjórn og bæjarstjóm heflr orð-
ið sammála um að skipa í nefnd, sem
vlnnur að undirbúningi væntanlegrar
æskulýðshallar, þessa þrjá menn: Ingi-
mar Jóhannesson kennara, sem verður
formaður nefndarinnar, Einar Pálsson
verkfræðing og Einar Erlendsson
byggingarmeistara.
Verðlagsbrot.
Eftirgreind fyrirtæki hafa nýlega
verið sektuð fyrir brot á verðlags-
ákvæðum: 1. Nýja Efnalaugin fyrir of
hátt verð á fatapressun kr. 300,00
2. Verzlun Guðmundar Gunnlaugsson-
ar, Hringbraut 38, fvrir of hátt verð
á fatnaði kr. 500,00. Ólöglegur ágóði
kr. 78,65 gerður upptækur1. 3. Gunn-
ar Magnússon, klæðskeri, fyrir of hátt
verð á kvendragt kr. 800,00. Ólöglegur
hagnaður kr. 83,00 gerður upotækur.
4. Hattav. Sigríðar Helgadóttur, fyrir
of hátt verð á kvenhöttum kr. 2400,00.
Leiðrétting.
I afmælismimiinp-u um Try gva Á.
Pálsson frá Kirkjubóli hefir mis-
prentazt i fyrirsögn I nokkrum hluta
upplagsins: Kirkjuból í Önundarfirði,
í stað Kirkjuból í Skutulsfirði. Enn-
íremur hefir misprentazt í miðjum 1.
dálki: Valshvammi í stað Valshamri.
Þá hefir fallið niður að Tryggvi hafi
verið 5 ár að Gufudal neðri. Ennfremur
misprentast í síðasta dálki á 4. síðu:
„Kunni bæði að kneyfa bikar o keyra
fólk“, en á að vera: „Kunni bæði að
kneyfa bikar og knýja fák“.
Lögþíngid
Hið nýkjörna lögþing Fær-
eyja kemur saman til fyrsta
fundar í dag.
Eins og frá hefir verið skýrt
hér í blaðinu, eiga sæti á því
12 Fólkaflokksmenn, 5 jafnað-
menn og 8 Sambandsmenn. En
einn þingmaður Sambands-
flokksins, Poul Niclasen, er inni-
lyksa í Danmörku, og getur
varamaður eigi tekið sæti, nema
þingið sjálft samþykki það. Hafa
flokkarnir því jöfn atkvæði í
þinginu, Fólkaflokkurinn og
hinir flokkarnir tveir, er stutt
hafa danska amtmanninn til
valda á Færeyjum síðan Dan-
mörk var hernumin. Er allt í
óvissu, hvernig mál kunna að
skipast á lögþinginu, og hvort
Sambandsflokkurinn og jafn-
aðarmenn muni halda áfram
samstarfi sínu.
íslendingar fylgjast með vax-
andi athygli með því, sem gerist
meðal færeysku frændþjóðar-
innar, ekki hvað sízt í frelsis-
málum hennar.
llvað verður gert . . .
(Framh. af 1. slðu)
Chronicle" lagði nýlega fyrir
hann þá spurningu, hvað ætti
að gera við Þýzkaland eftir
stríðið. Aðalefnið í svari hans
var á þessa leið: Eins og ég hefi
alltaf haldið fram, stafar nú-
verandi styrjöld ekki af því, að
Þýzkalandi væri leyft að verða
of öflugu, heldur af því, að við
og Bandamenn okkar urðum
of vanmáttugir, vegna pólitísks
sofandaháttar og vesalmennsku.
Við eigum að lofa Þjóðverjum
að njóta hæfileika sinna í friði,
en við eigum að gæta þess að
vera alltaf miklu öflugri en þeir.
Við eigum að hafa flugvelli og
reiðubúinn flugher víðsvegar við
þýzku landamærin. Við eigum
að hafa strangar gætur á öllum
vígbúnaðartilraunum Þjóðverja
og gæta þess að vera alltaf miklu
sterkari. Við eigum að sjá um,
að þau lán, sem við veitum þeim,
fari ekki til vígbúnaðarins, eins
og reynslan var eftir síðustu
styrjöld. Lltlu löndin austan og
sunnan viðNÞýzkaland (Pólland,
Tekkóslóvakía, Ungverjaland,
Rúmenía, Búlgaría, Grikkland,
Júgóslavía) eiga að hafa öflugt
bandalag, svo að Þjóðverjar geti
ekki ráðizt á eitt þeirra í einu.
8é alls þessa vel gætt, þarf ekki
að óttast Þjóðverja eða nýtt
þýzkt stríð.
Það eru aðallega Bretar og
Bandaríkjamenn, sem hafa rætt
um meðferðina á Þjóðverjum
eftir styrjöldina. Rússar hafa
lítið lagt til þeirra mála, Það
kom stjórnmálamönnum Banda-
manna því mjög á óvart og vakti
mikil blaðaskrif hjá þeim, þeg-
ar tilkynnt var fyrir nokkru á
fremstu síðum rússneskra blaða
og 1 mörgum rússneskum út-
varpsstöðvum, að þýzkir flótta-
Afstaða Fontenay ....
(Framh. af 1. síöu)
banna fólki að vera úti að
kvöldi og nóttu og loka matsölu-
stöðum og kaffihúsum. Þá skal
fyrirskipa ritskoðun blaða og
koma upp skyndidómstólum til
að dæma athafnir, sém stríða
gegn öryggi og reglu í landinu.
Dauðahegningu skal þegar í
stað taka upp gegn þeim, sem
vinna skemmdarverk, eða taka
þátt í árásum gegn þýzka hern-
um og hermönnum í honum,
einnig skal dauðarefsing liggja
við því að hafa í fórum sínum
skotvopn og sprengiefni.“
Danska ríkisstjórnin svaraði
þessum kröfum á þann veg, að
ef þær kæmu til framkvæmda,
myndi það gera að engu mögu-
leika ríkisstjórnarinnar til þess
að halda uppi ró og reglu meðal
þjóðarinnar —og að ríkisstjórn
in gæti því ekki átt þátt í fram-
kvæmd nefndra ráðstafana.
Nóttina milli 28. og 29. ágúst
lýsti yfirmaður þýzku hersveit-
anna síðan yfir hernaðarástandi
um alla Danmörku. — Var sam-
kvæmt því framkvæmdavaldið,
meðan hernaðarástandið ríkti, 1
höndum þýzka hersins.
Frjálsræði konungsins var
ekki heft og stöðu hans sam-
kvæmt stjórnarskránni var ekki
breytt formiega. En vegna hern-
aðarástandsins hlaut konungur-
inn að vera raunverulega hindr-
aður í stjórnarstörfum sínum.
Eftir þetta afhenti stjórn
Scaveniusar konunginum lausn
arbeiðni sína og hætti strax
st j órnarstör f um.
En áður en þetta skeði hafði
ráðuneytiö gefið út svolátandi
ávarp:
Á þessum alvarlegu tímum
fyrir land vort viljum vér enn
á ný hvetja þjóðina til að sýna
ró og gætni. Sérstaklega teljum
vér nauðsynlegt að lýsa yfir, að
vér vonum, að allir embættis-
menn ríkisins haldi áfram störf-
um sínum þann tíma, sem hern-
aðarástandið ríkir, sem vonandi
verður aðeins stutta stund og í
vitundinni um embættisábyrgð
sína vinni til gagns fyrir iand
og þjóð, þannig að reynt sé að
koma í veg fyrir að til árekstra
komi milli stofnana ríkisins og
hinna þýzku yfirvalda, sem i
krafti hernaðarlaga og hernað-
arástandsins fer með sérstakt
vald.“
Konungurinn var samþykkur
þessu ávarpi.
Umboðsstjórnin í ráðuneytun-
um og í hinum opinberu skrif-
stofum er enn fyrst um sinn í
höndum viðkomandi skrifstofu-
stjóra og forstjóra.
Þjóðln þarfnast . . .
(Framh. a1 1. slðu)
drengskapareiffa sína til þess að
geta leitt þjóðina út í sundr-
ungu og ófrið tveggja illvígra
þingkosninga. Það eru menn-
irnir, sem sögðu það tilvinnandi
að hafa þrennar kosningar, ef
þeir gætu þannig eyðilagt einn
þeirra flokka, sem þeir bjóða nú
samstarf! Það eru mestu friðar-
spillar þjóðfélagsins, sem nú
reyna að blekkja almenning
með því að látast vera friðar-
boðar.
Hitt er satt, að það þarf að
gera ráðstafanir gegn hinu yf-
irvofandi atvinnuleysi og það
þarf öflugt samstarf til þess að
tryggja þær ráðstafanir. En slík-
ar ráðstafanir verða aldrei gerð-
ar með samstarfi við menn,
sem hafa reynzt ábyrgðar-
minnstir í fjárhagsmálum þjóð-
arinnar og drengskaparminnstir
í samstarfi.
Reynsla undanfarinna ára
sýnir, að allt samstarf við slíka
menn yrði tilgangslaust og til ills
eins, því að það byggðist að
verulegu leyti á sandi ábyrgðar-
leysis og ódrengskapar.
Það, sem þjóðin þarf, er á-
byrgt, drengilegt samstarf. Þá
menn, sem reynslan hefir sýnt,
að ekki geta tekið þátt í slíku
samstarfi, verður að útiloka.
menn og herfangar hefðu stofn-
að „þýzka frelsisnefnd“ í
Moskvu. í nefndinni eiga m. a.
sæti kommúnistar, er áður voru
fulltrúar á þýzþa ríkisþinginu. í
ávarpi þessarar nefndar, sem
rússneskar útvarpsstöðvar hafa
margsinnis útvarpað á þýzku, er
sagt, að hún berjist fyrir frjálsu
Þýzkalandi, þar sem stjórn-
málafrelsi og trúarbragðafrelsi
sé viðurkennt. Þjóðverjum er og
að öðru leyti heitið hinum beztu
Tilkynning
Viðskiptaráðið hefir ákveðið eftirfarandi hámarksverð á
þriggja hellu innlendum rafmagnseldavélum:
í heildsölu .................................. kr. 825,00
í smásölu:
(a) í Reykjavík og Hafnarfirðl ............. kr. 880,00
(b) Annarstaðar á landinu .................. kr. 880,00
að viðbættum sannanlegum flutningskostnaði.
Ákvæðl tilkynningar þessarar koma til framkvæmda frá og með
6. september 1943.
Reykjavik, 3. september 1943.
V erðlagsstj ór inn.
Sundlaug Haíníírðinga
(Framh. af 2. siðu'
þegar tekin til starfa. Mun hún
verða dýrmæt heilsulind og öfl-
ugt tæki, til þess að gera alla
Hafnfirðinga synda, er fram
líða stundir.
Héraðsmót U. I. A.
(Framh. al 2. siðu)
Árnason, í. H., 2,76 m., Björn
Jónsson, í. H., 2.70 m. (Austur-
landsmet: Björn Magnússon,
Umf. Hróar, 3.04 m.).
Þrístökk: Ólafur Ólafsson, í.
H., 12.50 m., Björn Hólm, Umf.
Hróar, 12.00 m., Björn Magnús-
son, Umf. Hróar 11.91 m., Guð-
mundur Björgvinsson 11.62 m.
(Austurlandsmet: Ólafur Ólafs-
son, í. H., 12.66 m.).
Spjótkast: Tómas Árnason, í.
H., 51,67 m., Þorvarður Árnason,
í. H., 49,32 m., Snorri Jónsson,
í. Þ. Neskaupstað, 45.31 m.,
Atli Jensen, Umf. Austri, 39,35
m. (Austurlandsmet: Tómas
Árnason, 52,25 m.).
Kringlukast: Þorvarður Árna-
son, í. H., 38,30 m., Jón Ólafsson,
Umf. Stígandi, 35,23 m., Tómas
Árnason, í. H., 32,35 m. Harald-
ur Hermannsson, í. H., 30,64 m.
(Austurlandsmet: Þorvarður
Árnason, 38,30 m.
Kúluvarp: Þorvarður Árna-
son, í. H., 12,38 m., Jón Ólafs-
son, Umf. St., 11,94 m. Snorri
Jónsson, í. Þ., Neskaupstað,
11.74 m., Tómas Árnason, í. H.,
10,66 m. (Austurlandsmet: Þor-
varður Árnason, 12,66 m.).
50 m. bringusund karla: Garð-
ar Stefánsson, Umf. Skriðdæla,
41.00 sek., Ragnar Magnússon,
Umf. Hróar, 41.00 sek., Ásgrím-
ur Halldórsson, Einherjum
Vopnafirði, 42.00 sek., Ingimar
Jónsson, 42.50 sek. (Austurlands-
met: Garðar Stefánsson, 41.00
sek.).
100 m. bringusund karla: Ingi-
mar Jónsson, 1 mín. 34.5 sek.,
Garðar Stefánsson, Umf. Stíg-
andi, 1 mín. 34.6 sek., Ásgrímur
Halldórsson, Einh. Vopnafirði,
1 mín. 34.6 sek. (Austurlands-
met: Ingimar Jónsson, 1 mín.
34.5 sek.).
Seyðfirðingar hlutu flest stig
á mótinu. Veður var óhagstætt,
hvasst og kalt, en mótið var fjöl-
mennt og fór ágætlega fram
Á víðavangi.
(Framh. af 1. síðu)
í kosningunum, er urðu þar fyr-
ir nokkru.
Hinsvegar getur Þjóðviljinn
ekki neitt um fylgi það, sem
flokkurinn hafi hlotið. en úr
honum er allt yfirlæti um sig-
ur „sinna manna" í Ástralíu, en
fyrst í stað reyndi hann að
túlká sigur Alþýðuflokksins þar
á þá leið.
Kosningarnar í Ástralíu fóru
þannig, að Alþýðuflokkúrinn
fékk meirihluta þingsætanna, en
kommúnistar ekkert. Slíkt er
álit ástralskra verkamanna á
kommúnistum. Getur það ekki
orðið islenzkum verkamönnum
umhúgsunarefni?
kjörum. Sum amerísku blöðin
hafa látið í ljós, að Rússar ætli
að vinna sér meiri hylli hjá
Þjóðverjum en Bandamenn með
því að bjóða þeim betri friðar-
skilmála. Hafa þau frekar hall-
mælt Rússum fyrir slíka sam-
keppni, en jafnframt sagt, að
hér sé um mál að ræða, er
Bandamenn og Rússar þyrftu
að koma sér saman um sem
fyrst, þ. e. meðferð Þýzkalands
eftir styrjöldina.
Fjárbólusetníngar-
sprautur
(10 gramma)
sérstaklega vönduð og hentug
gerð fyrir fé
með 2 nálum kr. 22.00
varagler — 3.00
nálar — 1.50
Sendar gegn póstkröfu um
land allt.
Seyðisfjarðar Apótek.
Blátt og brúnt
Dragta- og Pílsefni
komið aftur.
VERZLUN H. T Of t Síml 1035.
Skólavörðustíg 5.
Silíurplett Matskeiðar, Gafflar og
Hnífar, settiff á kr. 20.00
Ávaxtaskeiffar — 13.00
Desertskeiðar — 4.50
Rjómaskeiffar — 6.75
Sultuskeieðar — 6.75
Sósuskeiðar — 12.75
Kökugafflar — 6.75
Kjötgafflar — 12.75
Borffhnífar — 6.75
Smjörhnífar — 6.75
Smjörhnífar — 5.00
Ávaxtahnífar — 7.75
K. EINARSSON
& BJðRNSSON
Bankastrætí 11.
Ntúlknr
óskast til fiskflökunar. Hátt
kaup. Frítt húsnæði I nýtízku
húsum.
HR AÐFR Y STISTÖÐ
VESTMANNAEYJA.
Okur og launsala
í Bandaríkjunnm
(Framh. af 3. siðu)
anda. Brot gegn settum reglum
varðar þungum refsingum. All-
ur peningur er skrásettur og
bændur mega ekki slátra heima.
Öll slátrun verður að fara fram
í löggiltum sláturhúsum. Heild-
salar og smákaupmenn verða að
hafa sérstakt leyfi til að verzla
með kjöt, og þeir eru jafnskjótt
sviptir leyfinu, ef þeir brjóta af
sér. Þetta skipulag hefur gefizt
vel.
Fyrsta skrefið til að vinna bug
á svarta markaðinum er að setja
einfaldar en strangar reglur um
kjötkaup frá framleiðendum,
afhendingu til kjötbúðanna og
refsingu fyrir afbrot.
í öðru lagi, og það er ef til
vill fyrir mestu, — verða hús-
mæðurnar að vaka yfir verðlag-
inu í búðunum. Þær verða að
gæta þess að hámaxksverð sé
látið gilda og ennfremur, að allt
kjöt sé stimplað með löggiltum
merkjum. Óstimplað kjöt er
smyglvara og hvort tveggja í
senn, ólögleg og stórhættuleg
fyrir líf og heilsu almennings.
Burt með svarta markaðinn!
—1 1 1 GAMLA PtA---- ---(
A hálum ís
(Silver Skates).
Amerísk söngva- og skauta
mynd.
Skautadrottningin
B E L I T A
PATRICIA MORISON,
KENNY BAKER.
Sýnd kl. 7 og 9.
Kl. 31/2—6 y2
DAUÐADALURINN
WALLACE BEERY,
LEO CARRILLO.
Börn fá ekki aðgang.
Þakka innilega auffsýnda samúð viff andlát og jarffarför
mannsins míns,
Þorgelrs Þorsteinssonar,
bónda, Hlemmiskeiði.
Fyrir mina hönd, barna minna og tengdasona.
VILBORG JÓNSDÓTTIR.
tjr.. /JA BÍO ■ .. 1
Stríðsfréttarit-
ariun
(Confirm Or Deny).
DON AMECHE,
JOAN BENNETT,
RODDy McDONALD.
Aukamynd:
FRAM TIL SIGURS.
(March Of Time).
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
Hjartans þakkir til allra vína minna, er sóttu míg heim,
á fimmtugsafmœli mínu. Sérstaklega þakka ég Skagfirð-
ingum auösýndan vinarhug, með heimsókn þeirra og^höfð-
inglegri gjöf.
Guömundur Guðmundsson, Fossum.
_________________________________________________—l
Þakka af hrcerðu hjarta alla vinsemd mér auðsýnda á
sextugs afmœli minu.
Valdimar V. Snævarr.
Tilkyiming
Atvinnu- og samgöngumálaráðuneytið hefir, hinn 24. ágúst
1943, sent okkur svohljóðandi bréf:
„Meðan á þvl stendur að koma i kring tryggingum
fyrir farþega í flugvélum Flugfélagsins, vill ráðuneytið
taka það fram, að það telur sjálfsagt, að félagið bendi
farþegum, sem ætla að ferðast með flugvélum þess, á
það mjög eindregið um leið og fars er béiðst, að þar sem
félagið geti ekki tryggt þá, sé þeim rétt, að reyna að fá
sig slysatryggða á ferðinni hjá einhverju félagi hér, áður
en þeir leggja af stað 1 flugferð. Óskar ráðuneytið enn
fremur að Flugfélagið auglýsi þetta hér 1 blöðum, þar
sem erfitt getur verið fyrir fólk að útvega sér tryggingu,
ef það fær fyrst að vita um það á síðustu stundu að það
sé ekkl slysatryggt af félagsins hálfu.“
Samkvæmt þessu er væntanlegum farþegum okkar ráðlagt að
útvega sér slysatryggingu hjá einhverju viðurkenndu vátrygg-
ingarfélagi áður en lagt er af stað í flugferð.
Stjórn Flugfélags fslands h.f.
Haltfiiknr
þurrkaður og pressaður f heildsölu til
verzlana.
— ÓDÝR OG MJÖG GOÐUR. —
Hafliði Baldvinsson
Sírni 1456.
imnritöð
vor er opin da^lega frá kl. 8 til kl. 6 e. h.
H.F. RÆSIR
Skúlagötu 59. Sími 1228.