Tíminn - 24.12.1957, Blaðsíða 11

Tíminn - 24.12.1957, Blaðsíða 11
★ J ÓUABLAÐ TÍMANS 1957 ★ n PWP Undarleg kyrrð hvíldi yfir snævi- þöktmn dalnum. Þetta var á Þor- láksmessu, og nú var orðið áliðið kvölds. Það grillti rétt í lágreistan bæinn og yfir útidyrunum hékk ljósker, sem sendi daufan, rauðan bjarma út á hlaðið. Gamla konan kom inn frá þurrkhjallinum. Hún hélt á fáeinum dúkum og lökum, sem hún lagöi frá sér á borðið í baðstofunni. Enginn sagði orð. Börnin þrjú voru sofnuð og afi gamli sat og blaðaði í húslestrabók. Hann las ekki, hann sat aðeins þarna og fletti bókinni. — Hvað heldur þú Ingimundur, sagði gamla konan að lokum. Hann leit á klukuna, áður en han svaraði: — Ég held, að það hafi verið vitleysa af okkur að láta hann fara. — Ó, já, en kannske hefði það líka verið vitleysa, hefðum við ekki látið hann fara. — Jamm. Við vitum svo lítið enn. — Það skiptir ekki heldur minnstu máli á hvað við trúum, Ingimundur, hvort við trúum á Hann eða aðeins á okkur sjálf. — Skyldi það nú ekki vera heilla- drýgzt að trúa á hvort tveggja. — Ó, jú, kannske það. Allt í einu rétti gamli maðurinn sig upp. Dauft óp heyrðist innan úr herbergi. Gamla konan kom hljóðlega inn aftur. — Það er nú að nálgast, sagöi hún og þegar hún gekk út úr stof- eftir Ivar Ringdal - unni var eins og hún hefði yngzt um mörg ár. Gamli maöurinn sat kyrr enn um stund. Börnin sváfu vært, hann hlustaði á djúpan og reglubundinn andardrátt þeirra. í hinum enda stofunnar var pottur á hlóöum og frá honum lagði þægilegan ilm. — Það nálgast . . . hann endur- tók orðin hægt, reis stirðlega á fætur og gekk þunglamalega yfir gólfið. Aðeins að Andrés og Anna .. . Klukkan á veggnum sló tólf högg, og Arni litli hrökk upp með and- fælum. — Hvað er þetta, spurði hann óttasleginn. Systur hans vöknuðu einnig. Þær risu upp, úfnar og syfjulegar. Það glampaði á grýlukerti, sem hékk niður af þakinu. Gamli maðurinn fann, að hann varð að segja eitt- hvað við börnin, áður en þu kæmu með hættulegar spurningar. — Aumingja litlu angarnir, ósköp hlj ótið þið að vera þreytt, hóf hann máls. Inga litla, sem var elzt af börn- unum leit í kringum sig: — Er pabbi ekki kominn ennþá? — Hann ætti nú að koma á hverju aughabliki. Gamli maðurinn hækkaði röddina og sagði óstyrkur: — Það er ekkert vit að þið sitjið hér og vakiö, börn. Komið þið, ég skal fylgja ykkur upp á fjósloftið, svo skulum við syngja jólasálmana. Komið þið nú börn. Hann sagði víst eitthvað meira, en hann vissi ekki, hvað það hafði verið. Börnin fylgdu honurn orða- laust. Skömmu síðar lágu þau dúðuð í skinnábreiður og hlustuðu á jórtr- andi dýrin fyrir neðan sig. Myrkrið milUUlllIlllillllllllllllllillllllillllllillllllllllllHllllllllllimillffi^. = Saga frá afskekkíu fjallabýli á Sunn- = H mseri ária 1843. Bærinn lan?iist i eyði = = 1851 sakir þess aS lífshættulegt var S = að brjótast að vetrarlagi yfir lannan = = snævi þakinn dalirsn til byggða. Nú S = er þar haft í seli og sumarbeit góð. = ííiiiiiiniiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiíiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiimiiiiiiiiuíiT og ylurinn breiddist yfir þau eins og mjúkt teppi. Það var svo gott að liggja hérna og hvilast, gleyma öllu, sem var ljótt og leiðinlegt og fyrirgefa öllum þeim, sem þau skildu ekki, — mömmu, sem þau fengju ekki að sjá, af því að hún ætlaði að eiga lítið barn, og pabba, sem brauzt yfir jökulinn með vesl- ings gamla klárinn. Fingerð snjó- korn svifu til jarðar, litla ljósker- ið, sem lýsti dauft út á hlaðið og trefillinn, sem afi átti að fá i jóla- gjöf og . . . Svo voru þau öll þrjú sofnuð. En úti á hlaöinu, sem lá baöað

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.