Vísir - 01.09.1914, Side 4
V í S I R
Petroseng .... og blikkvind-
hana sem er með gogginn opinn,
eins og hann ætlaði að fara að
gala. Og þarna lengst niður frá
. . ., það hlýtur að vera í Petrilla
. . ., en varningssali þjer sögð-
uð þó að það kostaði ekki neitt,
a
*> • •
Friðrik sneri sjer nú að Org-
all-hásljettunni, og beindi sjón-
aulcanum 2ð skóginum við Pilesa-
fjallið, og að Jokum bar höllín í
Karpathafjöllunum fyrir sjónauk-
ann.
,Rjett!“ sagði hann. „Fjórða
greinin liggur á jörðinnni; . .
mjer hefur ekki skjátlast! Hana
mun engin nota á bálið við Jóns-
messuhátíðina . . ., nei enginn
. . . ekki einu sinni jeg sjálfur,
það væri alveg sama að gefa sig
dauðann og djöflinum !*
»þeð ^ildir einu“ . . ., til er
sá sem þegar í nótt mun brenna
hana í óslökkvandi eldi sínum, og
það er Kort!“
Kort kalla menn djöfulinn í
daglegu tali þar í hjeraðinu.
Gyðingurinn hefði ef til vill
beðið um skýringu á þessum orð-
um, sem hlutu að vera öllum
sem ekki áttu heima í Werstþorp-
inu eða í grend við það, óskilj-
anleg, ef að Friðrik hefði ekki
að nýju kallað, skjáifandi af ótta
og undrun:
„Líttu þangað“ . . . „hvað er
þetta . . . ?“ Er það þoka sem
læðist vir gamla turninn, eða
hvað . . ? Er það mögulegt
*ð það sje að eins þoka . . . ? “
,Nei, maður gæti haldið það
væri reykjarmökkur . . . það er
ómögulegt. . .! í mörg árhefur
aldrei rokið úrreyk-háfum hall-
arinnar.
Frh.
BÆJARFRJETTIR
Bötnvörpusklpið Maí kom í gær
meö póst frá Englandi.
Hinn nýja haus blaðsins hef-
ur Bentsen málari gettteikn-
ingu af og er hún í sama stíl og
teikningarnar á Vísis-gluggunum.
Þar eð hausinn er skorinn út í
»linoleumcdúk eru drættirnir feitari
f honum en ætlast er til að veröi,
en úr því veröur bráðlega bætt,
því Stefán listskeri Ei-
r í k s s o n sker hann út í fastara
efni.
Central News’ frjettirnar nýju
birtir Vísir á morgun. Þær veröa
sendar út til áskrifenda í dag.
aj tandl.
Sjera Björn Sigfússon á Mæli-
felli hefur verið settur prófastur í
Skagafjarðarprófastsdæmi.
Silfurbrúðkaup hjeldu i gær
þau Oddur Thorarensen lyfsali á
Akureyri og frú hans. Var þar
mikill fagnaður. Kvæði höfðu þeir
ort Matthías Jochumsson og Guð-
mundur Guömundsson. Er kvæði
Guömundar birt hjer i blaðinu í .
dag.
Skrif stofa
Sveins Björnssonar
Óskaðlegt mönnum og húsdýrum
Söluskrifstofa: Ny Östergade.
Köbennavn.
Líkkistur
yfirdómslögmanns í Hafnarstræti
og líkklæði.
fæst leigð frán1. október næstkomandi.
Eyvindur Arnason
^l^3u$Y6%U\bux.
i.
Þjóðsagnir.
Svipur Jónasar sál. Helga-
sonar organista.
Margrjet dóttir- Jónasar sál.
Helgasonar var kvöld eittí-sJkamm-
deginu að leika á orgel. Hún var
þá 12 ára að aldri. Aldimt var
orðið í herbergi því sem hún
var í, en kerti logaði öðru
megin á orgelinu. Hún ljek
ýms lög út í bláinn og vandaði
sig lítt, Ioks fer hún að spila
,Við hafið jeg sat“ sem er, eins
og kunnugt er, samið af Jónasi
sál. Margrjet ljek lagið hugsun-
arlaust og fipaðist oft í því. Alt
í einu sjer hún mann styðjast
við olbogann fram á orgelshornið
öðru meginn og horfa fast á
hana. þekkir hún óðara Jónas
föður sinn eftir myndum, sjálf
hafði hún ekki sjeð hann því
hann dó fyrir hennar minni.
Hún horfði nokkra stund á svip
hans steini lostin, en varð því
næst yfir sig hrædd og hljóp út
úr herberginu og kallaði á móð-
ur stna og sagði henni frá sýn-
inni.
Margrjet er nú 15 ára gömul
og sagði hún sögu þessa ritst.
„Vísis“. Hún er rómuð af öll-
um sem þekkja hana fyrir ráð-
vendni og áreiðanleik.
Draumvltran.
Sögn frú Ágústu Eymundsdóttur.
í júnímán. 1911 var Ágústa Ey-
mundsdóttir kona sr. Jes Gíslason-
ar í Vestmannaeyjum stödd í Reykja-
vík með dóttur sína Sólveigu að
nafni, þá 13 ára að aldri. Þær
mæðgur voru kvðld eitt að tala
saman lítiili stundu eftir lágnætti,
frú Ágústa var á fótum, en dóttir
hennar var nýlega háttuð; alt í einu
byltir hún sjer í rúminu áður en
móður hennar grunar að hún sje
sofnuð og andvarpar: >Mamma,
nú Iíður svo voðailla heimal*
Móður hennar varð svo hverft við,
því maður hennar var hættulega
veikur þegar hún fór að heiman,
og bjóst hún við að hún mundi
frjeita lát hans; svo var þó ekki,
en skömmu seinna frjettir hún að
vinnumaður þeirra hjóna hefði hrap-
að til bana þetta kvöld á sama tíma
við eggjatöku í fuglabjörgum.
II.
Lausavísur.
Sjálfur mínar sorgir ber jeg,
sjálfur mjer jeg kenni’ um flest,
sjáifs míns böðull sjálfur er jeg,
en sjálfur hugga jeg mig best.
Ók. höf.
Harmur þjáir muna minn,
mæðan sáir tárum,
friður dáinn, framtíðin
fjölgar gráum hárum.
G. Viborg.
Kýmni.
F r ú i n (við barnfóstruna): »Guð
hjálpi þjer, stúlka! Ertu að baða
barnið upp úr 40 stiga heitu vatni?«
»Já, frú, því ekki það; hvaö hald-
ið þjer að þessi angi hafi vit á
hitastigum*-.
V e r j a n d i n n (er að verja mál
fyrir mann, sein kærður var fyrir
brot á húsfriði, en var giftur svarki
miklum): »Og loks vil jeg biðja
yður, háu dómarar, að taka þá
ástæðu til greina, að þessi vesa-
lings maður veit alls ekki hvað
húsfriður er.t
KAUPSKAPUR
Ungur reiðhestur til sölu nú
þegar. Afgr. v. á.
K ý r, ung og gallalaus, sem á
að bera í október, er til sölu.
Afgr. v. á.
J á r n og trjerúmstæði (eins
og tveggjamanna), madressa, ser-
vantur, lampar, kommóða, kíkir,
sófi, píanó, borð, stólar, bóka-
hylla, rullugardínur, klæðaskápur,
ýmsar bækur, úr og o. fl. er til
sölu fyrir afarlágt verð. Lauga-
veg 22 steinh.
Skyr fæst á Grettisg. 19 A.
VINNA
S t ú 1 k a óskast í vist 15. sept.
Afgr. v. á.
S t ú 1 k a óskar eftir áráegisvist.
Uppl. á Hverfisgötu 36. (Kjallara).
S t ú 1 k a óskast á matsöluhús.
Afgr. v. á.
HÚSNÆÐI
Til leigu. Stór og falleg stofa
með forstofuinngangi í Ingólfsstræti
10, niðri. Kr. Möller.
TAPAЗFUNDID
G r á handtaska með fimm-
krónu seðli og nokkru af smá-
peningum og fl. dóti tapaðist á
laugardagskvöldið frá Bergstaða-
stræti 3 að Klapparstíg 1, eftir
Laugavegi. Skilist í Bergstaða-
stræti 3, gegn fundarlaunum.
Piskifars
er daglega til í
ur^uSuv)ev^mÆ^uxwú JtoxSuxsU^
Kæfa
frá ,
*\3 etfcsxvu&\ux\t\\ 3sUx\6
er allrar kæfu best.
Prentsmiíja D. östlunds.