Morgunblaðið - 27.04.1915, Page 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Skeyti frá konungi.
Ráðherra Sigurðar Eggerz fekk
svohljóðandi- skeyti frá Kristjáni X.
konungi íslendinga i gær:
Gerið svo vel og látið i ljós mína
innilegustu samhrygð í tilefni af
þeim hryggilega atburði sem komið
hefir fyrir í Reykjavíkurbæ.
Christian Rex.
Ráðherra bakkaði konungi skeytið
samstundis.
Um slökkviliðið.
Vér mintumst lítilsháttar á það i
blaðinu í gær hve slökkviliðinu hefði
verið ábótavant, þegar mest reið á.
Skal hér nú nánar að þvi vikið og
minst á ýmislegt, sem kippa þarf i
lag.
Eins og mönnum er kunnugt, er
hér bæði slökkvilið og varaslökkvilið.
í brunaliðinu eru 36 menn, 12 úr
hverjum bæjarhluta, en i varasiökkvi-
liðinu eru allir verkfærir karlmenn
í bænum. Er varaslökkviliðið eigi
kvatt saman nema því að eins, að aðal-
slökkviliðið ráði ekki við eldinn, og
er kallað á það með lúðrablæstri um
allar götur — eða á að vera.
Menn höfðu vænst þess og oft
talað um það, að regla væri hér svo
góð á slökkviliðinu, að aldrei mundi
geta orðið stórbruni þótt eldur kæmi
upp. Vissu menn það að í slökkvi-
liðinu eru duglegir menn og vara-
slökkviliðið svo fjölment sem fram-
ast þurfa þykir. Því er stjórnað af
20 manns.
í vetur var þetta varalið skrásett
og var gengið rikt eftir því að menn
kæmu sjálfir á vettvang. Voru þá
margir sektaðir, þeir er eigi komu.
Þetta er nú röggsemi, sem er góð,
ef annað færi þar á eftir. En því
er nú ekki að heilsa.
í fyrsta skifti sem til varaslökkvi-
fiðsins þurfti að taka, var óreglan
svo megn, að engu tali tekur. Bruna-
lúðurinn var í ólagi og eigi þeyttur
nema á stöku stað. Sváfu því marg-
ir til morguns og þar á meðal for-
ingjar varaliðsins sumir hvorir. Eng-
inn getur ætlast til þcss, að þeir
vakni af sjálfsdáðum, þegar þörf er
á — þá á að vekja, og það sem
allra fyrst. Ef foringjana vantar er
liðið höfuðlaus her og þá fer aldrei
vel.
En eigi er nú svo að skilja, að
alla foringja hafi vantað. Þeir voru
þar margir hvorir. En hver þekti þá ?
Þeir höfðu engin auðkenni, sem
sýndu hvert vald þeim var ætlað.
Og þegar einhver þeirra ætlaði að
skipa fyrir, risu upp xo—20 manns,
sem þóttust hafa eins mikið vit á
því, sem gera þurfti, eða ef til vill
meira. Rigndi því niður fyrirskipun-
um úr öllum áttum en enginn hlýddi
ððru en því, sem honum fanst gott
sjáifum. Þessi óregla er óafsakanleg
með öllu.
Um aðalbrunaliðið er það segja,
að þar gekk margur maðurinn vel
fram og sumir ágætlega. En liðið
vantar alla æfingu. Það er nokkuð
seint að ætla að æfa það, þegar eld-
ur er kominn upp. Áður fyrri var
það æft mörgum sinnum á ári, en
nú er æði langt síðan að sá siður
lagðist niður.
Þá eru og slökkvitæki öll mjög
bágborin og vatnsmagn Gvendar-
brunna hvergi nærri nóg, þegar svo
stendur á sem hér, að mörg hús
brenna í einu. Þarf því annaðhvort
að leita til sjávar eða suður í Tjörn,
en til þess þarf vélar og þær verð-
ur bærinn að eignast, og margt fleira,
svo sem reykhjálma, góðar slöngur
o. s. frv.
Þessu verður öllu að kippa í lag
hið bráðasta, svo eigi verði hand-
vömm slökkviliðsins né vöntun á
slökkvitækum um það kent, ef illa
fer. Látum aðalslökkviliðið æfa sig
oft á ári og varaslökkviliðið að
minsta kosti einu sinni á ári. Það
má þó eigi minna vera, en menn
viti hverjum þeir eiga að hlýða.
0 <a». .....
Hver hugsar um
slökkviliðsmennina ?
Mikill auður hefir farið forgörð-
um í bruna þessum. Væri það ekki
nauðsynlegt að hafa björgunarlið í
þessum bæ, þar sem nær öll bús
eru úr tré ?
Það hefir sýnt sig við bruna þenn-
an, að þótt slökkviliðið hafi eigi
fengið nokkra æfingu, þá hefir það
þó sýnt það áræði og þann dugnað,
sem eigi er betra erlendis.
Margir þeirra manna, sem ákaf-
astir voru, hafa gert föt sin ónýt,
og þann skaða verður að bæta þeim,
þegar það er augljóst að þeir skeyttu
eigi um neinar hættur, en björguðu
öllu, sem unt var að bjarga. En
það er leiðinlegt að sjá, að slðkkvi-
liðinu skuli ekki vera betur stjórnað
en raun er á.
Hvernig stendur á því að hér er
ekki til sveit manna, sem á þeirri
föstu skyldu að gegna að vara hús-
eigendur og kaupmenn við þeirri
hættu, sem húsum þeirra er búin,
svo þeir geti komið á vettvang og
bjargað því ? Og siðan: Hversvegna
er hér ekki fastákveðin bjargliðssveit ?
Eða var hún nokkursstaðar viðstödd
þennan mikla bruna ?
Við greiðum óhemjuhátt vátrygg-
ingargjald hér á íslandi, en væri það
eigi eins gott að borgarar greiddu
nokkru meira til slökkviliðsins svo
það væri i góðri reglu. Með því
móti gæti fengist lægra vátryggingar-
gjald. Fyrst við þurfum hvort sem
er að greiða féð, væri það eins gott
og betra að borgarar Dæjarins nytu
góðs af því, heldur en alt sé látið
ganga til vátryggingarfélaganna út-
lendu. Báðir mundu græða á þvi.
Eg skal eigi fara frekar út í þessa
sálma, því það er skylda slökkviliðs-
ins að bæta úr því sem nú er. En
mig tekur sárt að sjá það, að annað
eins verðmætí skyldi verða logunum
að bráð, þegar það hefir sýnt sig að
við eigum hér svo marga duglega
menn, en stjórnin er svo slæm.
Til dæmis : Eftir að brunagaflar
og hús voru hrunin, þá fyrst var
óviðkomandi mönnum bannað að
ganga um göturnar.
/. Bjerg,
»Vöruhúsinu«.
Blaðamaður rekinn úr
landi.
Fáum dögum eftir að Zeppelins-
loftförin réðust á París, flutti »Lo-
kalanzeiger* í Berlín fregnir frá
fréttaritara í París um það, þegar
sást til drekanna og »herfáni Þjóð-
verja blakti yfir höfuðborg Frakk-
lands.t
Eins og gefur að skilja var þess-
ari grein athygli veitt í París og var
farið að leita fréttaritarans og fanst
hann. Var það Svisslendingur, sem
hafði komið til Parísar í þeim til-
gangi að rita fréttir fyrir þýzk blöð.
Þegar yfirvöldin komust að þessu
þótti þeim sem hann mætti eigi
dvelja í París og var hann því rek-
inn úr landi. Það var jafnframt
tekið fram, að fyrst hann hefði selt
þýzkum blöðum fregnir frá Frakk-
landi þá hefði hann brotið lög þau,
sem banna hlutlausum borgara í
Frakklandi að eiga nokkur verzlunar-
viðskifti við Þýzkaland.
r——i DAGMBÓFflN. C=a
Afmæli f dag:
Gestur Árnason, prentari.
Jóhann Þorkelsson, prestur.
Jón Pálsson, prestur, Höskuldsstöðum.
Ludvig Uhland f. 1787.
Herbert Spencer f. 1820.
Afmæliskort selur FriSfinnur Guð-
jónsson, Laugaveg 43 B.
Sólarupprás kl. 4.20 f. h.
S ó 1 a r 1 a g — 8.33 síðd.
Háflóð er í dag kl. 3.56 f. h.
og í nótt — 4.17
Veðrið í gær:
Vm. s.v. stinningsgola, hiti 5.9.
Bv. s.s.v. kaldi, hlti 6.2.
ísaf. logn, snjór, hiti 0.7.
Ak. n.v. andvari, hiti 4.0.
Gr. s.v. kul, hiti 5.0.
Sf. logn, hiti 2.4.
Þórsh., F. v. gola, móða, hiti 7.8.
Þjóðmenjasaf nið opið kl.
12—2.
L æ k n i n g ókeypis kl. 12—1 í
Austurstræti 22.
Tannlækning ókeypis kl. 2—3
i Austurstræti 22.
Póstar í dag:
Kjósarpóstur kemur.
Það er margt sem athuga þarf eftir
að önnur eins stórtíðindi hafa gerst og
bruninn mikli. Eitt af því er það
skeytingarleysi manna að hafa eigi kaðla
við glugga á efri hæðum húsa sinna.
Það ætti að vera jafn sjálfsagt sem
hitt, að bærinn eigi slökkvitæki. Með
vissu verður þó eigi sagt, að í þetta
skifti hafi hlotist slys af því að menn
hafa ejgi enn lært að meta þýðingu
þessara björgunartækja. En eigi er
það ólíklegt að maðurinn, sem inni
brann á Hótel Reykjavík, hefði getað
komist út, ef kaðall hefði verið við
gluggann á svefnherbergi hans. Von-
andi er það að menn taki þetta til at-
hugunar og láti verða af því að fá sór
einhver slík björgunartæki sem eru
handhæg og geta orðið að ómetanlegu
liði. Það er nóg að húsin brenna til
kaldra kola, þótt eigi kosti það jafnan
mannslíf líka.
Prófin í brunamálinu hófust í gær.
Þá gáfu þeir slökkvistjórarnir Guðm.
Ólsen og Pótur Ingimundarson skýrsl-
ur sínar, og er það aðeins undirbún-
ingur undir aðalprófin.
Gullfoss kom að vestan í gærmorg-
un. Með skipinu kom hingað m. a.
Guðm. Hannesson lögm. á ísafirði. A
Patreksfirði frótti skipið um brunann
hór í Reykjavík. Svo er ráð fyrir gert,
að skipið leggi af stað til Ameríku í
kvöld.
Eldur var enn í brunarústunum 1
allan gærdag en minkaði þó óðum.
Nýjan líkvagn hefir Reykjavík feng-
ið og á hann Eyvindur Árnason tró-
smiður.
Jarðarför frú Marie Heilmann fór
fram í gær.
í sambandi við greinina í Morgun-
blaðinu í gær þar sem minst var á
gasið í Mentabúrinu, hefir landsskjala-
vörður skýrt oss frá því, að í þeim
hluta hússins, þar sem landsskjala-
safnið er, sóu engin gasljós. Kvað
hann það að sínum ráðum gert, því
hann hefði eigi viljað hafa gasið.
í þinglýsingum, sern birtust hór í
blaðinu fyrir helgina, stóð það, að Þór-
unn Björnsdóttir ljósmóðir hefði keypt
húsið nr. 9 við Bókhlöðustíg, en átti ’
að vera nr. 11.
Frá Serbum.
Reuters fréttastofa hefir fengið
þær fregnir frá Serbíu snemma i þess-
um mánuði að það væri alment álit-
ið þar i landi að upphlaupið á landa-
mærunum mundi ekki hafa neinar
alvarlegar afleiðingar. Serbíu langaf
eigi til þess að eiga i illindum við
Búlgariu og þess gerist engin þörf
að ætla það, að búlgarska stjórnia
hafi staðið á bak við árás stigmanna.
Allar fregnirnar benda til þess að
stigamennirnir hafi dregið lið saman
á landamærunum til þess að slit*
öllum samgöngum við Saloniki-
Meðal fallinna manna hafa fundis*
Tyrkir og Aústurrikismenn. Þykir
sennilegt að fyrir þeim hafi vakað