Morgunblaðið - 17.01.1918, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
■
ist það benda til f>ess að isinn sé
eigi mjög þéttur á þessum stöðum
enn.
En útlit nyrðra er mjög iskyggi-
legt.
Símfregnir.
Akureyri í gær.
Bjarndýr skotin
Isbirnir hafa gengið á land á Mel-
rakkasléttu, i Skagafirði og á Skaga-
strönd. Hefir eitt dýr verið skotið
á Grjótnesi á Sléttu og annað á ísn-
um fram undan Skagaströnd.
Háhyrningar og hvalir.
Háhyrningar og höfrungar hafa
verið drepnir hér inni á Eyjafirði og
mikið er af háhyrningum fram und-
an Ey. Þrír skíðishvalir eru í stórri
vök fram undan Árbakka á Skaga-
strönd. Hafsíldarvart hefir orðið hér.
Hafísinn
er ein samfeld hella frá Hornbjargi
og austur fyrir Langanes.
Er(. símfregnir
Opinber tilkynning frá brezku utan-
ríkisstjórninni i London.
London, 15. jan.
Litið hefir gerst tíðinda á vigstöð-
vunum því að allstaðar hafa veður-
harðindi hamlað hernaðarframkvæmd-
um, nema í loftinu. Hinn 14. jan,
varpaði brezk flugvéladeild hálfri
annari smálest af sprengjum á Karls
ruhe um bjartan dag. Eldur kom
upp á járnbrautarstöðinni og verk-
smiðjum. Þrátt fyrir öflugar varnir
náðu allar flugvélarnar takmarki sinu
og komu heilar á húfi heim aftur.
Plumer hershöfðingi sendi þá
skýrslu frá Italíu, að frá 1.—15.
janúar hafi brezkir flugmenn ónýtt
13 óvinaflugvélar og stórskemt fleiri.
Brezkar og portúgalskar hersveitir
elta nú leyfarnar af Austur-Afriku
herliði Þjóðverja, sem tókst að kom-
ast undan inn í nýlendu Portúgals.
Churchill lýsti yfir því í brezka
þinginu hinn 11. jan. að á þessu
ári hefði brezki herinn miklu öflugra
stórskotalið, miklu meiri sprengi-
kúlnabirgðir, betri útbúnað, sérstaklega
að dýrum og þýðingarmiklum her-
gögnum, heldur en nokkru sinni
áður.
Auckland Geddes lýsti yfir þvf i
neðri deild þingsins hinn 14 jan. að
nauðsynlegt væri að srfna nú þegar
450 þúsnnd borgurum og hefir
Nýkomið:
Morgunkjólatau, Flónel, Silki- og Bómullar-Lastingur,
Gasléreft, Molskinn, S v u n t u r fyrir börn og fullorðna,
allskonar Dömukragar, Matrosakragar (hvítir og bláir), Sjlki-
hálskíútar, Vasaklútar (herra og dömu), Bróderingar, stórt
úrval, Sokkar á börn og fullorðna — og margt fleira.
Verzl. Gullfoss
Hafnarstræti 15.
stjórnin ákveðið að nota til þess
fjölda ungra manna, er nú vinna í
verksmiíjum. Fráfall Rússa hefði
aukið bolmagn óvinanna á vestur-
vígstöðvunum og á vígstððvum ítala
svo, að þar hefðu þeir getað bætt við
sig 1.500.000 hermönnum. Banda-
menn væru þó nægilega sterkir til
þess að vinna sigur og ekkert annað
en andlegt niðurdrep í Bretlandi eða
löndum bandamanna, eins og varð í
Rússlandi, gæti bjargað Miðríkjunum.
Bretar ætluðu sér ekki að breyta her-
skyldualdrinum.
Samningum Rússa og Þjóðverja
hefir verið frestað um óákveðinn
tíma. Rússar vildu fá vitneskju um
það hvört þeir gætu samið frið þegar
án þess að Póllandi, Lithaugalandi,
Armeníu og öðrum .löndum yrði
sýnt ranglæti. En Þjóðverjar vildu
ekkert um það ræða. Hoffmann
herforingi neitaði að lokum fyrir
hönd hersins þeirri kröfu að verða
á brott úr Eystrasaltslöndunum. Hefir
þvi samningum verið frestað um
óákveðinn tíma.
Þýzku blöðin birta gagnstæðar
fréttir um það þá er spítalaskipinu
Rewa var sökt. Sum þeirra segja
að skipið hafi flutt herlið og þess
vegna verið sökt, en önnur segja að
enginn kafbátar muni hafa getað gert
það og skipið þess vegna farist á
tuudurdufli. En það er obinberlega
tilkynt, að enginn tundurdufl hafi
verið þar í nánd.
Það er gert ráð fyrir þvi að árið
1918 muni Bandaríkin smiða skip
er bera samtals 4Y2 miljón smálesta.
a pagbok__________j|
Kveikt á Ijóskerum hjóla og bif-
reiða kl. 4.
Gangverð erlendrar rnyntar.
Bankar Pósthúa
Doll. U.S.A. & Canada 3,60 3,60
Frankl franskur 59,00 60,00
Sænsk króna ... 112,00 110,00
Norsk króna ... 107,00 106,50
Sterllngspund ... 16,70 16,00
Mark ... ... ... 67.00 62,00
Holl. Florin ... ... 1.37
Austurr. króna... ;;; ... 0.29
Veðrið í gær. 17,6 stiga froBt kl. 6
í gærmorgun. 17 stig á hádegi. Sól-
skin og logn.
Harða vetnrinn sama dag: 11
stiga næturfrost. 10 stig á hádegi.
Norðaustan stormur. ísinn að auk-
ast.
Öskuhreinsunin. Vér fréttum það
í gær, að það mál hefir verið á dag-
skrá í kvonfélögum bæjarins eigi alls
fyrir löngu. Stjórn »Bandalags kvenna
í Beykjavík*, sem er miðstjórn 8 kven-
félaga 1 bænum, sendi borgarstjóra
skrifiega áskorun fyiir nokkru þar
sem farið er fram á að bærinn taki
að sér ösku- og skarnflutning frá
húsum bæjarmanna. Bandalagið hef-
ir ekki enn fengið svar frá borgar-
Stjóra, en vafalaust mun áskorunin
verða athuguð af bæjarstjórninni og
hún væntanlega tekin til greina.
f>að væri mikilsvert fyrir þrifnað í
þe8sum bæ, sem mikið vautar á að
geti kallast hreinlegur í orðsins fylstu
merkingu, ef bærinn vildi taka að
sér að flytja öskuna burt. Víðast
hvar annarsataðar annast bæjarstjórn-
in slíkt, og það getur ekki verið
neitt þvi til fyrirstöðu að hér sé far-
ið að dæmi annara borga, þar sem
þrifnaður er á hærra stigi yfirleítt
en í höfuðborg vorri,
Margir bæjarmanna eru nú orðn-
ir kolalausir með öllú, og verða að
láta sér nægja steinolíuofnana, þótt
óhollir séu. Hlýtur að reka að því, að
landsstjórnin láti selja fólki eftir seðl-
um eitthvað af kolabirgðum þeim,
sem hún hefir umráð yfir, þvíað ekki
dugar að láta fólkið sitja í kulda.
Gjengið úr Viðey. |>rír menn
gengu í gær ísinn yfir sundið milli
Viðeyjaf og Klepps. ísinn var þó
eigi þykkri en það, að þeir gátu rek-
ið prik niður úr í einu höggi.
Gamla Bio sýnir þorgeir { Vfk {
19. sinni í kvöld. Hefir öll kvöldin
verið húsfyllir eða þvi sem næst,
enda ætti það svo að vera, að hver
einasti maður í bænum "sæi þessa
ágætu mynd,
Ný-trúlofuð eru ungfrú Ágústa
Guðmundsdóttir, Grjótagötu 14 A, og
Frederik Johansen, sjómaður á sk,
»Skandia<.
Þórður kakali fór héðan í g*r
suður til Sandgerðis til fiskveiða.
Hefir legið hér síðan um hátíðar.
Þórður Pétursson útvegsbóndi frá
Oddgeirsbæ, fór til fiskiróðra suður i
Leiru eftir nýárið. Bn á mánudag-
inn kom hann gangandi að sunnan
með skipshöfn sína og hafði orðið að
skilja bát og afla eftir vegna íss.
Hafði aflað vel meðan gaf á sjó.
A mánudaginn reru 4 vélbátar
frá Sandgerði og fengu alt að 18
skippundum á bát, mest þorsk. í
fyrradag gátu þeir eigi róið vegna
frosts, því að línan gaddfraus um
leið og hún var dregin úr sjónum
og hvorki hægt að þíða hana né
beita hana frostna.
Hér fyrir utan eru stórar spangir
af lagís og er engum róðrarbátum
fært hingað inn þess vegna.
Suður með sjó eru sögð afarmikil
eldsneytis vandræði og eru það því
þungar búsifjar fyrir menn að fá
önnur eins frost og nú hafa verið að
undanförnu.
Ingólfnr kom úr Borgarnesi með
norðan og vestan-póst. í gærdag.
Sagði skipstjóri mikinn ís vera á leið-
inni upp á Bkranes og alstaðar með-
fram landi i Aorgarfirði. En þar
var auð renna í miðjum firðinum.
í Borgarnesi lagðist skipið við ís-
röndina og var það affermt og
fermt áftur þar. Var farangrinum og
póstinum ekið út á skipið á sleðum
sem tveir hestar drógu.
V etnrn áttasamskotin.
III. skilagrein.
Auk þnss, sem áður hefir verið
auglýst og afhent var slra Ólafi
Óiafssyni, hafa þessar peningagjafir
bæzt við samskotin á skrifstofa
vorri:
P. B. ... kr- 25.00
N. N. . . . — 2.00
Verz’./ólk . . — 12 .00
N. N. . . . — 57.2 5
Samtals kr. 96.25
Þessi upphæð var afhent sr. Ól«
Ólafssyni fyrir nokkru siðan.
Hitt og þetta
,,KrÍ8tianíafjord“.
Við sjóprófin, sem haldin voru í
Kristjaníu út af strandi »Kristiania-
fjord«t, kom í ljós, að 1. stýrimaður
hafði varpað skipsdagbókinni fyrir
borð, eftir að skipið var strandað.
Ennfremur að enginn yfirmanna
skipsins vissi neitt um það hver var
stefna þess þegar það strandaði.
Járnmynt
er nú verið að gera i Danmörko *
stað koparpeninganna.