Morgunblaðið - 09.09.1928, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 09.09.1928, Blaðsíða 5
Sunnudaginn 9. september 1928. 5 w Fluftninga uppefftir annasft Bifreidasfðð ICrlsftlns & Ounnars. Simap 847 & 1214. 5öngfólk. Með því að oss undirrituðum hefir verið falið að mynda 100 manna blandaðan kór, er syngja á á Alþingis- hátíðinni 1930, óskum vjer að alt það fólk, konur og karlar, sem hugsar sjer að taka þátt í kórsöng þessum, gefi sig fram við einhvern af oss sem allra fyrst. I kórnefnd Alþingishátíðarinn'ar: Sigurður Birkis. Jón Halldórsson. sími 1382. sími 952. Sigurður Þórðarson, sími 2177. fæst nú í öllum verslunum bæjarins á aðeins 1.45 dðsin. Kaupið ekki aðra mjólk, svo lengi sem þessi er fáanleg. Sparið peninga yðar, og styðjið um leið innlendan iðnað. — Bifreiðastjórar hafið þjer reynt hið heimsfræga „Fire- stone“ bifreiðagúmmí, sem er tvímælalaust það besta sem á markaðnum er, kemur enda á mörgum bestu bifreiðateg- imdum er til landsins flytjast. Firestone kostar þó minna en aðrar sambærilegar tegundir. Allar algengar stærðir ávalt fyrirliggjandi. Allir þeir, sem vilja fá sem besta endingu úr dekkum sínum, kaupa því einungis gæðamerkið „Firestone“. Aðalumboð á fslandi. ReiðhjólauerksmiSjan Fálhinn. BAÐKER á 10 krónur hjá H. P. DUUS. iiáfiiiiiotorar ávalt fyrirliggjandi. Svelnn Egilsson. umboðsmaður fyrir Ford Motor Co, sími 976. llri&nirfig§fÍMipr á Mseignnstt í RtyijsTfk. Fpá umræðum á bffljarstjórnarfisndi, Eins og kunnugt er samþykti bæjarstjórnin í sumar aS segja upp samningi þeim er gerður var árið 1924 um brunatryggingar á húseignum í bænum. Samningur sá gilti til 5 ára, og rennur út 1. apríl 1929. Var hann gerður við fjelögin tvö „Baltica“ og „Nye danske1 ‘. Aður voru hiiseignir hjer bruna- trygðar með húseignum dönsku kaupstaðanna. En síðustu árin hafði orðið tap á brunatrygging- um hjer í bænum, og heimtaði hið danska lcaupstaðafjelag að gjöldin hækkuðu hjer. Bæjarstjórnin vildi ekki ganga að því og sagði skilið við kaup- staðaf jelagið, og fjekk samning við þessi tvö fjélög, hagkvæmari en þann er var í boði. En þó samningurinn hafi verið' Rvík hagfeldur, hafa fjelögin «rætt á vátryggingunni, því elds- voðar hafa hjer verið svo litlir þessi ár. Slökkviliðið hefir stórum batnað lijer, eins og kunnngt er þessi ár- in; og steinhúsum hlutfallslega fjölgað. Hefir þetta dregið mjög úr eldshættunni í sumum bæjar- hlutum. En ennþá eru hjer til veigamikil timburhúsahver'fi, þar sem eldhætta er mikil, þrátt fyrir gott slökkvilið. Síðan samningnum var sagt upp í sumar, hafa nokkur brunabóta- fjelög haft tal af fjárhagsnefnd bæjarstjórnarinnar, svo sem fje- lógin tvö er hafa tryggingarnar nú, og Sj óvátryggingarfjela g ís- lands. Aðstaða innlendu fjelaganna, Eftir því sem borgarstjóri skýrð'i frá á bæjarstjórnarfundinum, eru mjög mikil vandkvæði á því, að Brunabótafjelag' fslands geti tekið þessar tryggingar að sjer. Ef svo ætti að vera þarf t. d. að breyta lögum fjelagsins. Samkvæmt þeim nær vátrygging fjelagsins eigi nema til % af virð- ingarverði húsanna. En húseignir hjer er eigi hægt að vátryggja með þeim skilyrðum, því að slíkt myndi m. a, brjóta í bág við veðsetning- ar húsanna, Auk þess mundi fjelagið færast allmikið í fang að' taka að sjer 70—80 milj. kr. vátryggingar, sam- anborið við fjárhagslegt bolmagn þess. Hæpið mundi að treysta því, að þingið fjellist á að breyta lög- um fjelagsins, þannig að húseig- endur í Rvík fengju sjerstöðu, og væri því lítt hugsandi að láta málið dragast með það fyrir angum að fela Brunabótafjelagi fsl. þetta. Oðru máli væri að gegna með S j óvátry ggingarf j elagið. Ilallgr. Benediktsson lagði ríka áherslu á, að eigi yrði á nokkurn hátt gengið fram hjá Sjóvátrygg- ingarfjelaginu í þessu efni. Kvað hann vafasamt Jfc’ort nokk- uð ynnist við það, að leita tilboða um samning út mn alt, í staðinn fyrir að fjárhagsnefnd segð'i til livernig hún vildi að samningur- inn yrði, og gæti hún síðar spurt Sjóvátryggingarfjel. að því, hvort það gæti eigi fullnægt þeim ósk- um. Sama væri hvort leitað væri. Fjelag það, sem tæki þetta a.ð sjer endurtrygði síðan í mörgum fje- lögum. Eins gerði Sjóvátrygging- arfjelagið. Og hann vissi ekki bet- ur. en Sjóvátryggingarfjel. stæði nú svo vel að vígi, að það gæti útvegað eins góðar endurtrygging- ar. eins og hvert annað fjelag. Á bærinn sjálfur að taka þátt í vátrygginguimi? Því hefir verið hreyft í bæjar- stjórninni, að rjett væri að bærinn tæki þátt í vátryggingunni, notaði sjer þá kagsmunavon sem í því felst. Hefir Magnús Kjaran m. a. tal- að því máli. Hefir hann stung-ið upj> á því, að bærinn tæki tryggingarnar al- gerlega í sínar hendur, tæki sjálf- ur 5% áhættu, en endurtryggi 95%. Bærinn greiðir nú 214 þús. krónur í iðgjöld á ári. Ef bærinn tæki 5% fengi hann í iðgjöld á ári 10.700 kr. Ennfremur fengi hann 5% umboðslaun af endur- tryggingarupphæðinni og nemur það' nálægt 10.000 krónum á ári. í þriðja lagi kvað hann það ekki óalgengt, að þótt bæir tækju ekki meiri áhættu en 5%, að þá fengju þeir hærri ágóðahlut og væri 10% af ágóða ekki of hátt reiknað, og ef miðað væri við síðastliðin 5 ár, þá næmi þessi upphæð 10.000 kr. á ári, þar sem fjelögin hafa grætt 50% af iðgjöldunum, eða um ^ railj. krónur í þessi 5 ár. Þá fanst honum ekki ósann- gjarnt að húseig. greiddu sömu ið- gjöld og nú í næstu 5 ár og fengi bærinn því í fjórða lagi þann mis- mun, sem yrði á þeim iðgjöldum sem hann greiðir nú og þeim sem liann kemur til að greiða e£ betri kjör fást og á því telur hann lít- inn vafa. í fimta lagi væri með þessu stigið spor 'í áttina að' mynda varasjóð, sem gerði það liugsan- legt að eftir nokltra áratugi gæti bærinn sjálfur tekið meiri hluta. af áhættunni. Á þann hátt hefði bærinn milli 30 og 40 þús. kr. árstekjur, en helmingur iðgjaldanna færi altaf í alskonar smáskaða. Þar væri því viss útgjaldaliðnr 5—6 þús. á ári, en eftir 5 ár væri samt eftir fullar hundrað þúsund krónur. Svo þótt hjer kæmi upp eldur strax á næstu fimm árum svo stór, að það væri tjón upp á 2 miljónir, þá kæmi 100 þús. krónnr í bæjarins hlut og stæði hann þá eigi að síður skað- laus eftir. Svo glæfrafyrirtæki get- ur þetta ekki kallast. En vérði þessi leið farin, þarf hærinn að taka lán eða eiga það víst, sem yarasjóð alt að % miljón og telur hann líklegt að það fáist hjá því fjelagi sem endurtryggir fyrir bæ- inn. Um það væri vitanlega enginn ágreiningur, að' fara ætti varlega. Það vildu allir. A síðasta hæjarstjórnarfundi kvaðst M. Kj. hafa átt tal við þetta við umboðsmann fyrir vá- tryggingarfjelagið „Store Brand“, sem hjer hefir verið' í sumar, og hafði hann litið svo á, að það væri engan veginn ógætilegt að hærinn tæki sjálfur 5% af áhættunni og þætti endurtryggjendum það oft æskilegt. Maður þessi hefir grand- skoðað hæinn fyrir fjelag sitt, ef vera kynni að það vildi gera til- boð í vátrygginguna. Magnús Kjaran skýrði ennfrem- ur frá því, að Pasteignaeigendaf jelagið hefði fengið sjerfræðing, Brynjólf Stefánsson, til þess að athuga þetta mál, og væri hann að' vinna að þeirri rannsókn. Komið hefði til mála að athuga hvort eigi væri hægt að skifta hæuum í reiti, og tæki hær- inn á sig vissan liluta af vá- tryggingunni í hverjum reit. Með því móti mundi bærinn e. t. v. geta fengið 15—20% af iðgjöldunum án stórfeldrar áhættu. Lagði hann til að bæjarstjórn fengi tækifæri til að gera grein fvrir á hvaða grundvelli væntan- legur samningur ætti að vera, áð- ur en tilhoða yrði leitað. En tilhoðin ættu að vera öll á sama grundvelli, ella væru þau ekki samhærileg. Borgarstjóri skýrði síðan málið nokkuð. Sagði m. a. að hann von- aðist eftir því, að bæjarstjórnin fengi einmitt ýmiskonar tilboð, er gerð yrðu með a. m. k. þrenns- konar fyrirkomulagi fyrir augum. Þegar f jelögin hefðu lagt það nið- ur fyrir bæjarstjórninni, á hvern hátt þau, hvert fyrir sig, gætu

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.