Morgunblaðið - 09.09.1928, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 09.09.1928, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ 7 ) Ytra kápnelni nýkomið. ¥e?»slign W—BBSBMBBHBO———PD liýtf! Rakvjelablað Morex er fram- leitt /úr príma svensku diamant stáli og er slíp- að hvelft; er því þunt og beygjan legt, bítur þess vegna vel. Florex verk- smiðjan fram- leiðir þetta blað með það fyrir augum að selja það ódýrt og ná mikilli útbreiðslu. Kaupið því Florex rakvjelablað, (ekki af því að það er ódýrt), held ur af því að það er gott og ódýrt. Fæst hjá flestum kaupmönnum .á aðeins 15 aura. H.F. Efnagerð Reykjavíkur. Til Kollafjarðar allan daginn. Hk ð f Bulck frá Steinðóri! Til Hafnarfjarðar á hverjum klukkutíma. Vífilsstaða kl. 12-3-8. Dilknbjöt, af 28 og 3o pd. dilkum. ‘Mest úrval og lægst verð. KjölMðm Von, Sími 1448 (2 línur). MorgunblaðiB /œst á Laugavegi 12. Erlendar símfregmr. Khöfn, FB 8. sept. Hermann Mueller talar máli friðarins. Frá Genf er símað: Hermann Mueller hefir haldið ræðu á þingi Þjóðabandalagsins. Taldi hann. mikla nauðsyn vera á því, að efnd væri loforðin sem gefin voru með Versalafriðarsamningunum. Kvað liann bert, að' þjóðirnar gæti ekki borið traust til Þjóðabandalagsins, ef afvopnunarstarfsemin bæri eng- án áraugur. Bar hann fram áskor- un um, að á þinginu yrði tekin endanleg ákvörðun um að kalla ( saman fyrstu alþjóða afvopnun- arráðstefnuna. Leit af leifum „Latham.“ Frá Ósló er símað: Stjórnin í Noregi hefir í samráði við stjórn- ina í Frakklandi ákveðið að hætta leitinni að Latham meðfram ísn- um, en halda í þess stað áfram leitinni meðfram ströndum Nor- egs. Er talið hugsanlegt að fleiri leifar flugvjelarinnar finnist þar. Heimköllun setuliðsins við Rín. Frá Berlín er símað: Fregn hefir borist frá Genf, þess efnis, að Hermann Mneller og Briand hafi rætt um heimköllun setuliðsins úr Rínarbygðunum. Sagði Briand, að heimköllun setuliðsins væri mál, er ekki eingöngu snerti Frakkland og Þýskaland, heldur og England, Belgíu og ítalíu. Ríkiskanslarinn ætlar að ræða málið' við fulltrúa þessara ríkja innan skamms. Vinnufriður í Englandi. Frá London er símað: Ársþing verklýðsfjelaganna hefir fallist á tillögur verkamanna og vinnuveit- enda um stofnun iðnaðarnáms og sáttanefndar í iðnaðarmálum. — Samþykt var að halda áfram samn ingatilraunum við vinnuveitendnr viðvíkjandi tryggingu iðnaðarins. Met í Indlandsflugi. Bretarnir Barnard og Elliot hafa flogið frá Indlandi til London á hálfum fimta degi, en það er 2% degi fljótara en nokkur hefir flog- ið á milli Indlands og Englands áður. Sig. Skagieldt sýngur í kvöld í Fríkirkjunni. 1 kvöld ætlar Sig. Skagfeldt söngvari að syngja í Fríkirkjunni, með aðstoð Páls ísólfssonar. Ætlar hann að syngja m.. a. nokkur íslensk lög: Ó, guð vors lands, Rósin eftir Árna Thorsteins- son, sálmalög, ennfremur „Sjá þann hinn mikla flokk“ o. fl. Sigurður hefir sem kunnugt er ágæta rödd, enda hlaut hann lof fyrir söng sinn hjer í sumar. Frjettir. Siglufirði FB 8. sept. Flestöll skip, sem stundað hafa reknetjaveiði, eru að hætta. Búið að salta: 77175, krydda 19500 og sykursalta 11532. — Lítil síldveiði, þó komu nokkur skip í nótt með síld, er þau höfðu fengið á Eyja- firði. Þorskafli fremur góður. — Góð veðrátta. D a g b ó k. Frh. ísfiskssala. Þessir togarar hafa selt afla sinn í Englandi: Karls- efni 3. sept. fyrir 450 sterl.pund, Apríl 5. sept. fyrir 645 pund, Maí 3. sept. fyrir 715 pund, Geir 6. sept. fyrir 716 pund, Bragi 27. ág. fyrir 400 pund og Júpíter 27. ág. fyrir 990 pund sterl. Godafoss fer hjeðan í dag til Hull og Hamborgar fullfermduf vörum. Meðal farþega eru: Mr. Taylor, Axel Andersen klæðskeri, frk. Sigríður Auðuns, frk. Sig- ríður Bjarnadóttir, Guðrún Ög- mundsdóttir, Simon flugmaður, Finnbogi Rútur Valdemarsson verkfræðingur, Grímur Magnús- son stúdent, Jónas Sólmundar- son, Garðar Hall, Haukur Þor- leifsson stúdent og margir út- lendingar. — Til Ameríku: Jó- hanna Friðriksdóttir, Benjamín Kristjánsson prestur með frú og dreng, Auður Kristjánsdóttir og Sigurlína Björnsdóttir. Til Vest- mannaeyja: Þorbergur Friðriks- son, Þórunn Guðmundsdóttir og Elínborg Björnsdóttir. Glímufjelagið Ármann hefir um þessar mundir æfingar innan fjelags í hlaupum, allskonar köst um og þessum sundum: 50 metra (frjáls aðferð), 100 metra (frjáls aðferð), 400 metra (frjáls aðf.), 200 metra bringusundi og 100 metra baksundi. Sundið verður þreytt hjá örfirisey, en hlaupin og stökkin á íþróttavellinum, og má hver horfa á, sem vill. Er þetta því ekki aðeins keppni milli einstakra manna, heldur einnig skóli fyrir þá, sem hafa í huga að æfa sig í þessum íþróttum, og skemtun fyrir hina, sem hafa gaman af að sjá hver fræknastur reynist í hverri íþrótt í hvert skifti. — í dag verður kept á íþróttavellinum kl. 9% og kl. 11% verður kept hjá Örfirisey í 200 metra bringusundi og 400 metra sundi (frjáls aðferð). I gær var kept í 100 metra baksundi, og sigraði þar Óskar Þorkelsson á 1 mín. 47 sek. (met 1 mín 45 sek.). Annar varð Gísli Þorleifs- son, 1 mín. 53 sek. og þriðþ Guðni Sigmundsson 1 mín. 54 sek. — Það er afar gaman að horfa á þessar íþróttaæfingar. kostar ekkert — en hlýtur rv' verða hverjum hvatning, sem horfir á, og vekja löngun til ]>ess að keppa. Til Strandarkirkju frá útgerð- armanni 200 kr. Hannes rcvSherra kom í gær af veiðum með 113 tunnur lifrar. Forystugreinin í síðasta tölubl. Tímans er um trú æskumanna á jarðræktina. Talað um, að bærid- ur hafi brostið trú á ræktunar- möguleikana! En hvaðan kom vantrúin? Hver hefir best barið barlómsbumbuna? Engir aðrir en ritstjórar Tímans. er reynt hafa af fremsta megni að telja bændum trú um, að þeir gætu ekki rótað í moldarflagi nema fá til ^ess styrk á einhvern hátt af opinberu fje. TIRE3 « ttCBBER EXPORT CO„ Akran, Okio, U. S. A. Þægileg keyrsla. Fínasta efni. Fallegt útlit. Ending óvið- jafnanleg. Ef dekkið, sem þjer kaupið, hefir ekki alla þessa kosti, fáið þjer ekki fult verðgildi fyrir peninga yðar. GOODYEAR dekk hafa alla þessa kosti, og er verðið hið alþekta GOOD Y AR-verð. Aðalumboðsmaður: P. Stefánsson. Þakkarvert er það, ef Tíminn nú sjer sig um hönd, breytir um stefnu, þó seint sje, og aðhyllist þá meginstefnu, sem Ihaldsflokk- urinn hefir haídið fram í jarð- ræktarmálum, að telja í menn dug og kjark til athafna. Sósíalistadeild Framsóknarflokks ins getur þó vitanlega aldrei að- hvllst ]>á stefnu, ]>ví mark og mið sósíalista er að draga úr öllu ein- staklingsframtaki sem frekast er unt. Engu orði trúandi, sem hann segir. Þannig er orðinn vitnis- burður almennings um forsætis- ráðherra okkar. Vegna þeirrar reynslu sem fengin er í þessu efni hefir miðstjórn íhaldsflokks ins skriflega boðað Framsókn fundi í Skaftafellssýslu. Frá munnlegum fundarboðum svíkj- ast ]>eir Tímamenn, sem kunn- ugt er. En svo barnalegir eru Tíma- ritstjórar, að ]>eir auglýsa van- traust það, sem menn bera þeirra, með því að seg.ja frá hinu skriflega fundarboði. Margir hefðu haldið, að ]>eim ]>ætti betra að tala fátt um. Dómsmálaráðherra — sauða- þjófur. 1 hólgrein þeirri, er Jón- as dómsmálaráðherra skrifar um sjálfan sig í síðasta tbl. Tímans, kemur hann víða við að vanda. í niðurlagi greinarinnar talar hann um, að fullveldi íslensku þjóðarinnar sje hætta búin’, ]>eg- ar »svo er komið, að sauða]>jófar geti orðið dómsmálaráðherrar. Munu velflestir íslendingar á sömu skoðun. En mönnum hefir óneitanlega dottið í hug, og ]>að hefir jafnvel komið á daginn, að fullveldinu sje það hvergi nærri holt, er þjóðin eignast dómsmála- ráðherra, sem liðsinnir erlendum veiðiþjófum með því, að taka undir svívirðingar þeirra í garð dómgæslu og hæstarjettar. og jafnvel ganga feti framar í því efni en hinir erlendu. Sjómannakveöja. (FB). Farnir að fiska. Óviss heimkoma. Kveðja. til vina og vandamanna. Skipshöfnin á Maí. Skólatöskur haldgóðar og ódýrar hjá H. P. DUUS. Leirker á miðstöðvarofna (til vatnsuppgufunar). höfum við fyrirliggjndi. Ómissandí til þess að loft- ið verði eigi of þurt. ]. dorlðksson S Horðmann Símar 103 og 1903. Fötur Þvottabalar Þvottapottar Þvöttavindur Þvottasnúrur Glerbretti Klemmur Herðatrje Luktir. JÁRNVÖRUDEILD JES ZIMSEN. Þakpappi Þrjár þyktir fyrirliggj- andi. Símar 103 og 1903. ofnsveran. Heildsölubirgðir hjá Daniel Halldorssyni. Sími 2280.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.