Morgunblaðið - 09.09.1928, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 09.09.1928, Blaðsíða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ Flugferðin mik\a. Barnasaga meö 128 mynðum eftir ö. Th. Rotman. tv 73. Þá kom listamanninum ráð í hug. Hann kunni líka dálítið í ensku. „Gimsteinarnir eru í Pegasus“, hróp- aði hann, „við komum með þá beina leið sunnan úr Transvaal. Stórir böggl- ar, lasm. Flýttu þjer þangað, ef þú vilt fá eitthvað þessháttar“. Og Ali- Ben-Kali hljóp eins og byssubrendur á leið til loftfarsins — en þeir fje- lagar læddust á eftir honum. 74. Einn þeirra stökk nú aftan að Arabanum og upp á herðar honum, svo Arabinn f-jell fram yfir sig á höf- uðið, og þeir allir ofan á hann. En um leið og hann fjell, þá riðu skot- in úr byssum hans upp í loftið, svo þau gerðu engum grand. Nú sótti Emmen reiptagl í „Pegasus", og síð- an bundu þeir Arabann á höndum og fótum. fljótu bragði öll fúkyrði þau, sem til eru í arabisku máli. Á meðan drösl- uðu þeir fjelagar honum á milli sín að súlu einni mikilli. Þar bundu þeir hann vendilega. Síðan settust þeir í makind- um þar hjá honum og borðuðu morg- unverð, en Arabinn braust um á hæl og hnakka. Að því búnu stigu þeir á „Pegasus" og flugu í norðurátt. 76. Brátt voru þeir komnir norð- ur yfir Miðjaröarhaf, og flugu í stefnu til Sikileyjar., Alt í einu heyra þeir hávaða og ólæti í loftinu og fara að líta í kringum sig. Þetta var þó stór storkahópur, er þeir mættu. „Þeir eru að fara til Afríku til vetrardvalar“, sagði Emmen, „og þeir fara lengra suður á bóginn en við fórum, eða alla leið til Suður-Afríku“. 77. „Jeg er annars hissa á því,“ hjelt hann áfram, „að þeir skuli fara þessa leið, því að þeir eru vanir að fara annaðhvort um Gíbraltar ellegar þá fyrir austan Miðjarðarhafið, og suður Egyptaland“. En Emmen hafði ekki fyr slept orðinu en hreyfillinn í „Pegasus“ hóstaði þreytulega — því að nú var bensínið þrotið. Og svo hneig hann hægt og rólega niður á hafiö. :■>? :*!;!! 1 - 3 78. En „Pegasus“ var eins og kött- urinn, hann kom niður á lappirnar. Og nú vaggaði hann ljúflega á bár- um Miðjarðarhafsins. Blæjalogn var á. En þrátt fyrir það varð flugmönn- unum ekki um sel. Seint myndu þeir ná landi með þessu móti, eða skyldu þeir nokkurn tíma sjá land? Var nú ekki úti um það? Þeim varð orðfátt, en hver þeirra hugsaði sitt. 79. Tímunum saman barst „Pega- sus“ fyrir straumi hafsins. Alt í einu sáu þeir bóla á klettaströnd — vafa- laust strönd Sikileyjar. En hver vissi hvort þeim yrði þar nokkur björg. Þeir gátu eins búist við, að hafaldan molaði „Pegasus“ við klettana. — En þegar neyðin er stærst, er hjálpin næst. — Alt í einu sáu þeir gufuskip nálgast. 80. Er skipverjar komu auga á „Pegasus“ og þá fjelaga, skutu þeir út báti og reru nokkrir þeirra yfir til flugferðamannanna. En skipverjar voru ítalskir, svo að hvorugir skildu aðra. Emrnen benti á hreyfilinn og hermdi eftir honum þegar hann stans- aði: „Hrutj-tiff-tiff! — Hrutj-tiff- tiff!“ kallaði Emmen og sýndi þeim tóman bensíndunk. ítalirnir skildu nú hvernig í öllu lá, og gáfu þeim bensín. il leyflistigum. Vínarborg til Kursk. Hann hafði farið með þau feðgin yfir Lwow, en Páll fór um Varsjá með Ga- briellu Bobrinsky og varð' því full- an sólarhring á undan þeim. Og nú voru þau komin til Ostolga, en Kilts og þau feðginin hlutu áð koma síðdegis næsta dag, ef ekk- ert hafði tafið þau, en það var ekki vert að gera ráð fyrir því. — Það er um að gera, mælti Páll að lokum og horfði hinum brúnu sveskjusteinaaugum á þá hina til skiftis, það er um að gera að þær kvensurnar hittist ekki. Við verðum að stía þeim sundur, annaðhvort með góðu eða illu. Ef þær geta talað saman, áður en alt er um garð gengið, og þessi Bo- brinsky fær að vita það, að mað- ur hennar er dauður, þá dettur henni auðvitað ekki í liug að ná í gimsteinana. Jeg þekki þetta fólk, svo að jeg veit þetta með vissu. Ef hún fær að vita að maður hennar er dauður, og að' við höf- um gabbað hana, þá fá hvorki ógn- anir nje bænir lxana til þess að af- henda gimsteinana. Og það getur líka vel verið að hún fái slag, eða verði brjáluð, þegar hún fær að vita hið sanna. Jakob Grossmann hristi höfuðið. — Já, við verðum svei mjer að fara varlega, sagði hann. Vinur hans, Aoron Mosenthal hafði sagt honum frá öllu því sem þeim Gabriellu Bobrinsky og Pjetri Abramovitch hafði farið á milli, því að Aaron hafði staðið á hleri- og heyrt hvert orð. Jakob Gross- mann var því sem á nálum. Ef gróðabrallið heppnaðist, þá hlaut hann að fá stórfje í sinn hlut, því að hann var hátt settur í glæpa- mannafjelaginu vegna þess að hann var veitingamaður og hafði tækifæri til þess að kynnast mörg- um ferðamönnum og tala við þá. Og þar eð hann átti von á mikilli fjefúlgu var honum mjög umhug- að að' alt gengi vel. Hann var sem 'á nálum. ■—• 'Setjum nú svo, inælti hann, að þessi djöfuls Svíi vilji ekki af- henda peningana fyr en Ceeil Bo- brinsky hafi verið slept. Það yrði elcki þægilegt fyrir þig, Pjetur Abramovitch. —■ Það gerir ekkert til, mælti Pjetur önugur. Þú gleymir því Jakob Grossmann, að Nikolajvitch fangelsisstjórinn í Kharkoff, er besti vinur minn. — Nei, því hefi jeg ekki gleymt, mælti hinn rauðhærði Gyðingur. En er það þá ætlan þín, Pjetur Abramovitch að láta Ivan Niko- la.jvitch fá hlutdeild í ágóðanum? Heilagi Móses, hvað verður þá eft- ir handa okkur? — Stórfje vona jeg. Við getum ekki komist af án Ivans Nikolaj- vitch. *— Hvers vegna? — Því er fljótsvarað. Undir eins og Svíinn sjer skipun mína til fangelsisstjórans í Kharkoff um að láta fangann lausan, þá sendir hann mann þangað' eða fer þangað sjálfur til þess að athuga málið. — Já, auðvitað, mæltu allir ein- um munni. — Og þá verður Ivan Nikolaj- vitch að fullvissa hann um það að alt sje í reglu, að fanginn sje þar og að honum verði slept undir eins og nokkrar brjefaskriftir hafa far- ið fram til málamynda. Og auðvit- að vill hann fá eitthvað fyrir að hjálpa okkur þannig. — Já, auðvitað, mæltu allir ein- um munni. — Ivan Nikolajvitch verð'ur líka að segja að þessari skriffinsku verði ekki lokið á skemri tíma en tveimur eða þremur klukku- stundum. — Já, sagði Jakob Grossmann, en samt sem áður------------- — Hlustið þið nú á! Meðan jeg bíð í banlcanum ásamt Bobrinsky fjelaga, gerist jeg óþolinmóður og þegar svo sem hálf stund er liðin, þá segi jeg að nú hafi jeg fengið nóg af þessu og geti. ekki biðið lengur, og ef þau trúi mjer ekki, þá liætti jeg við alt saman. — Hættir við alt saman? hróp- aði Aaron Mosenthal. Heilagi Mós- es, hvað á þá að verða um okkur? — Jeg segi þetta bara sí sona, asninn þinn, svaraði Pjetilr, og jeg skal segja það oft og leggja mikla áherslu á orðin — og að lokum stend jeg á fætur og fer út í bif- reið mína og læt sem jeg ætli að fara. Og þið getið bölvað ykkur upp á það, að þá samþykkir konan hvað sem vera skal. Eða hvað sýn- ist þjer, Páll Alexandrovitch ? bætti han nvið og leit til Páls sem liafði hlustað þegjandi á en ljet sem hann heyrði ekki livað fram fór. — Þði megið vera rólegir, sagði Páll og lagði áherslu á orðin, hún mun ganga að öllu, eins og Pjetur Abramovitch segir. Þegar jeg færði lienni brjefið í Nizza efaðist hún ekki eitt andartak um að það væri frá manni sínum. Nei, þið skuluð ekki vera hræddir. Það er vandalaust að eiga við hana. — Og það er engin hætta á, að Ivan Nikolajvitch leiki ekki sitt hlutverk vel, mælti ráðsfulltrúinn. Hann hefir áður brallað annað eins. Hann mun sýna Svíanum bækur og skjöl, undirskriftir og stimplanir. Hann er valdsmanns- legur í einkennisbúningi sínurn og hann kemur vel og hreinskilnis- lega fyrir. — Og auk þess mun hvorki Svíann nje Bobrinsky fjelaga gruna neitt misjafnt, mælti Páll. Hinir kinkuðu ltolli. Og þar sem Jakob Grossmann var nú sann- færður um þetta, vjek hann um- ræðuefninu við. — Það er leiðinlegt mælti hann, að við skulum ekki geta komist af án Ivans Nikolajvitch, — Það er ekki hægt, mælti Pjet- ur reiður. Og svo er ekki meira um það að tala.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.