Morgunblaðið - 06.02.1940, Blaðsíða 3
- »'*r 0 I 1 • • 1 ' ' .
Þriðjudagur 6. febrúar 1940.
I U t\ v t (í Vi i : cí n M
MORGUN BLA©I®
Ny flugvjel í stað
TF-0RN?
Verið að alhuga
inöguleikana
MORGUNBLAÐIÐ frjetti í gær, að verið væri
að athuga möguleikana á því, að kaupa
nýja flugvjel af svipaðri tegund og TF-
ÖRN, sem gereyðilagðist er henni hvolfdi á Skerjafirði á
laugardaginn.
Svo virðist, sem allir, sem um þessi mál fjalla, sjeu á
eitt sáttir um nauðsyn þess, að ný flugvjel sje keypt, þótt
jafnframt sje viðurkent, að við ýmsa örðugleika sje að etja.
Flugvjelar hafa stigið mjög mikið í verði síðustu tvö árin,
eða frá því að TF ÖRN var keypt. Hún fjekst fyrir tæpar 50
þús. krónur, en talið er að samskonar flugvjel muni nú kosta
alt að 90 þús. krónum. Hjer kemur því ekki aðeins til greina
aukið fjármagn, sem þarf til kaupa á flugvjel af sömu gerð,
heldur hlýtur rekstur hennar að verða dýrari en gömlu vjelar-
ínnar. Ennfremur koma hjer til greina gjaldeyrisvandræðin.
VANTAR FLUGYÖLL!
TF-ÖRN var keypt í Bandaríkjunum og mun að öllu leyti
Vera heppilegast að -kaupa einnig hina nýju flugvjel ,vestan_
hafs. En hún verður þá að greiðast í dollurum og við móttöku.
En þess er að vænta, að hægt verði að yfirstíga alla þessa örðug-
jeika. Það verður áð vinda að því bráðan bug, að kaupa hina
nýju flugvjel, ef hún á að vera komin hingað fyrir sumarið, svo
að hægt verði að nota hana til síldarleitar.
Ef endanleg ákvörðun dregst ekki, má gera ráð fyrir, að
fiugvjelin geti verið komin hingað eftir tvo mánuði.
TF-ÖRN er þriðja flugvjelin sem eyðilegst hjer á landi, á
þenna sama hátt: með því að stingast á kaf í ölduróti. Þetta er
ærið umhugsunarefni, og ætti að ýta undir það, að hjer í Reykja-
yík verði komið upp hentugum flugvelli, sem hægt sje að nota
fyrir landflugvjelar.
TF-ÖRN var komið á rjettan kjöl á sunnudaginn og hún
sxðan flutt í flugskýlið við Skerjafjörð. I dag fer fram mat á
tjóninu. Flugvjelin er í raun og veru gereyðilögð, þótt flotholtin
sjeu heil. Öll yfirbyggingin er sundurtætt og hreyfillinn ónýtur.
Flugvjelin er vátrygð hjá Sjóvátryggingarfjelagi Islands,
fyrir kr. 55 þús.
Kr. 27.500
safnað íil
„Sæbjargar“
Söfnunin heidur áfram
90? af fjárráðandi
Íslendingum hafa
gefið til Finnlands
Það sem eftir er af'flUgvjelinni TF-ÖRN og geymt er í flugskýlinu
í Skerjafirði, þar sem þessi mynd var tekin í gærdag. — Hægri væng-
ir flugvjelarinnar, eru alveg farnir af og vinstri vængirnir mikið
skemdir. Á hliðunum er allur biikur flugvjelarinnar rifinn og tættur,
einnig stjelið. Búið er að taka vjelina burt. Það eina, sem virðist vera
nokkurnveginn heilt, eru flotholtin. Á myndinni sjest rennibrautin,
sem flugvjelinni er rent á úti á sjó. Flugvjelarflakið stendur á sleðan-
um, sem rennur eftir brautinni/
Á konungsfund
K
ristján konungur tók í dag
1 ’|2 miljarði
á móti söngkonunni Maríu /V/V UlSS0^n* lökynti í dag,
,, , „ i * v ■ að á næstu sjö árum
Markan og songvaranum Stef- ... „
myndi verða vanð 114 miljarð
anólslandixheimsókn.Þauvoru Hra tn ræktunar á hálfri
bæði sæmd riddarakrossi Fálka- miljón hektara af óræktuðu
orðunnar í jan. síðastl. landi í Italíu.
Söfnun Slysavarnafjelags ís-
lands til útgerðar björgunar-
bátsins „Sæbjargar“ var í gær
orðin kr. 19.550, sem borist höfðu
í peningum.
En auk þess höfðu borist loforð
um peningagjafir að upphæð kr.
8000.
Samtals nemur söfnuniii því kr.
27.500. Til útgerðar „Sæbjargar“
á þessari vertíð er talið að þurfi
kr. 20.000.
En tryggja þarf xitgerðina meii’a
en til einnar vertíðar. Söfnunin
heldur þessvegna áfram.
Búist er.við að „Sæbjörg“ fari
út á miðin í dag eða á morgun.
Húsakaup Verslunar-
mannafjelags
Reykjavíkur
Samþykt til annarar trmræðti
að katipa huseígnína nr. 4
víð Vonarstrætí
VERSLUNARMANNAFJELAG Reykjavíkur helt
framhaldsfund um tillögu stjórnar húsnefnd-
ar um kaup á húseign fyrir fjelagið í gær-
kvöldi.
Fjelaginu hafði boðist tilboð í kaup á 2/3 húseignarinnar nr. 4
við Vonarstræti, og nokkur líkindi að alt húsið muni fáanlegt.
Tillagan, er var samþykt, var syphljóðandk
„Fundurinn samþykkir að fjelagið kaupi 2/3 hluta hixseignarinn-
ar nr. 4 við Vonarstræti, samkvæmt framkomnnm sölutilboðum, eða
alla eignina fyrir alt að kr. 148.000.00 og verji til þess fje hxxssjóðs.
Felur fundurinn stjórn fjelagsins og hixsnefnd að ganga frá samn-
ingum, enda nái sölutilboðin samþykki annars fjelagsfundar, svo stein
skipixlagsskrá hixssjóðs ákveður.
Stjórn og húsnefnd V. R.“.
Önnur umræða fer fram um málið að hálfum ínánuði liðnum, og
þarf hann að samþykkja kaupin svo að komi til framkvæmda.
Flugsamgðngur
um ísland?
Hjllenska stjórnin hefir, á-
samt flugvjelaverk-
smiðjum Fokkers stofnað fjelag
til þess að halda uppi flugferð.
um um norðanvert Atlantshaf
og er gengið út frá því sem vísu,
að f jelagið ætli sjer að hafa við-
komustað á Islandi. Hefir það
þegar sótt um leyfi Bandaríkja-
stjómar til þess að mega reka
flugferðir þangað.
Ákveðið er að reynsluflug
hefjist í apríl-mánuði. (F.Ú.).
Vörur Fixínlands-
' söfnunarinnar á
hafnarbakkanum,
þar sem Lyra lá.
Mynina tók Vigfiís
Sigurgeirsson
skömmu áður en
þeim var skipað um:
borð í Lvru.
B-'w EGAR Finnlandssöfnunin var hafin hjer á landi
töldu bjartsýnustu menn, að íslendingar stæðu
* sig vel, ef hægt væri að safna sem svaraði
250 þúsund finskum mörkum, eða 30 þúsund krónum. Einn
af fyrstu gefendunum, sem lagði fram 1000 krónur, var
þó svo bjartsýnn að segja að hægt yrði að safna 100.000 kr.
Þannig fórust Gunnlaugi Einarssyni lækni, formanni B.auða Kross
íslands, orð, er jeg átti tal við hann um Finnlandssöfnunina í gær.
Það er nú kunnugt að safnast liafa riimlega 140 þxxsund krónur, og
enn heldur söfnunin áfram.
______________________________ — Það hefir verið mjög ánægju-
legt, segir Gunnlaugur, að finna
alúðina í garð Finna bvaðanæfa
að af landinu og taka daglega á
móti þúsundum króna til hinnar
nauðstöddxx bræðraþjóðar. Jeg^
hygg, að ekki sje langt frá því,
að 90% af öllum íslendingum, sem
eru fjárráða, hafi lagt eitthvað
að mörkum til Finnlandssöfnunar-
innar.
— Og nú er stór vörusending
nýfarin til Finnlands. Hvernig
vörur voru það?, spyr jeg Gunn-
laug Einarsson.
— Já, með Lyru seinast fóru
vönu' fyrir rúmlega 70 þúsund
krónur, en áður hafði farið ein
sending. Við voum svo heppin,
segir G. E., að fá mann með sjer-
þekkingu til að velja vörurnar og
pakka þeim niður fyrir okkur.
Þessi maður var Haraldur Árná-
son kaupmaður. Er óþarfi að taka
það fram, að hann hefir gengið
með áhuga að þessu verki og
leyst það svo af hendi að betúr
var ekki ákosið.
Það sem sent var.
— Hvaða vörur voru aðallega
sendar?
— Mest var sent af karlmanna-
peysum, karlmannasokkum, sbíða-
hosum, einnig nokkuð af samskon-
ar unglingafatnaði, ullarteppi frá
Álafossi og Gefjun, sútuð sauð-
skinn og þurkaðar gærxir. Vöi’ur
þessar voru flestar pakkaðar inn
í pappír og síðan í balla eða trje-
kassa eins og tíðkast frá bestu
verksmiðjum erlendið.
— Og gæðin?
— Um gæði varanna vil jeg,
segir Gunnlaugur Einarsson, tíl-
færa orðrjett ummæli Haralds
Árnasonar, sem eins og jeg sagði
áðan, sá um öll innkaup og skoð-
aði það sem barst. Haraldur segir:
„Það er óhætt að fullyrða, að þær
vörur, sem senda voru, standa
fyllilega jafnfætis samskonar vör-
um hvaðan sem væri af Norður-
löndxxm. Alt, sem heypt var, var
Atvinnuleysis-
skráningin
Atvinnuleysisskráning fór
fram fyrstu þrjá daga
mánaðarins. Skráðir voru 553
atvinnuleysingjar, þar af 3
konur.
Tala atvinnuleysingja hefir
síðastliðin 5 ár verið:
1940 ... ... 553
1939 . .. ... 521
1938 . . . ... 769
1937 . . . ... 703
1936 . . . ... 554
Ríkisskip. Esja var væntanleg
til Hornafjarðar í morguu.
FRAMH. Á SJÖUNDU SÉÐU.